67 milljarða króna afgangur hjá hinu opinbera 17. mars 2008 09:12 MYND/E.Ól
Tekjuafkoma hins opinbera reyndist jákvæð um 67 milljarða króna í fyrra samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. Þetta svarar til rúmlega fimm prósenta af landsframleiðslu og tæplega ellefu prósenta af tekjum hins opinbera. Til samanburðar var tekjuafkoman jákvæð um 6,3 prósent af landsframleiðslu árið 2006 og tæp fimm prósent árið 2005.Þessi hagstæða tekjuafkoma stafar fyrst og fremst af miklum tekjuafgangi ríkissjóðs, sem nam 4,2 prósentum af landsframleiðslu árið 2007. Fjárhagur sveitarfélaganna hefur þó einnig snúist til betri vegar síðustu þrjú árin enda þótt hann sé afar misjafn að sögn Hagstofunnar. Hann nam sex milljörðum króna í fyrra eða sem nemur hálfu prósenti af landsframleiðslu. Til samanburðar var afgangurinn fjórir milljarðar árið 2006, eða 0,3 prósent af landsframleiðslu.Tekjur hins opinbera reyndust 617,5 milljarðar króna í fyrra og hækkuðu um tæpa 57 milljarða króna milli ára. Sem hlutfall af landsframleiðslu námu þær 48,3 prósentum og hafa ekki verið hærri áður. Mikil hækkun hefur orðið í tekjum hins opinbera frá árinu 2002 þegar þær mældust tæp 42 prósent af landsframleiðslu. Útgjöld hins opinbera námu 551 milljarði króna árið 2007 og hækkuðu um ríflega 63 milljarða króna milli ára.Nærri 120 milljarðar til heilbrigðismálaÞegar litið er til einstakra geira samfélagsins námu heildarútgjöld til heilbrigðismála rúmlega 117 milljörðum króna, eða rúmum níu prósentum af landsframleiðslu. Þar af var hlutur hins opinbera um 97 milljarðar króna en hlutur heimila 20,5 milljarðar, eða 17,5 prósent af útgjöldunum. Af heildarútgjöldum hins opinbera 2007 runnu 19 prósent til heilbrigðismála.Til fræðslumála var ráðstafað 106,5 milljörðum króna í fyrra, eða 8,3 prósent af landsframleiðslu. Þar af var fjármögnun hins opinbera um 98 milljarðar króna og hlutur heimilanna 8,7 milljarðar króna, eða 8,2 prósent. Um fimmtungur útgjalda hins opinbera rennur til fræðslumála.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Fleiri fréttir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Sjá meira