Fleiri fréttir

Enn ólga í Danmörku

Enn eru óeirðir í Danmörku í kjölfar þess að fjölmiðlar ákváðu að endurbirta skopmynd af Múhameð spámanni. Óróinn hefur breiðst út um landið átti lögregla átökum við ungmenni í Kaupmannahöfn, Árósum og á nokkrum stöðum á Norður Sjálandi.

Varað við fljúgandi hálku - lögreglubíll valt á Sandskeiði

Lögregla varar við fljúgandi hálku á Reykjanesbraut og á Suðurlandsvegi. Nokkrir bílar hafa þegar hafnað utan vegar og tveir hafa oltið á Suðurnesjum. Á Suðurlandsvegi valt bíll við Sandskeið og þegar lögregla og sjúkralið mætti á vettvangs óhapps sem varð á Sandskeiði vildi ekki betur til en svo að lögreglubíllinn ók á sjúkrabílinn og valt út af veginum.

Fimm féllu í skotárás í háskóla í Illinois

Fimm féllu í árás byssumanns í Northern Illinois háskólanum í Bandaríkjunum í gærkvöld. Nemendur reyndu að koma sér í skjól þegar hvítur karlmaður vopnaður tveimur skammbyssum og haglabyssu hóf skothríð í fyrirlestrasal skólans. Lögregla segir að maðurinn hafi skotið sjálfan sig áður en þeir komu á vettvang og enn veit enginn hvað manninum gekk til.

Fóður og fjör framundan

Hátíðin Fóður og fjör eða Food & Fun verður haldin um allt land helgina 21. til 24. febrúar næstkomandi. Hótel og veitingahús í öllum landsfjórðungum hafa tekið sig saman með þetta skemmtilega verkefni á landsbyggðinni, verða með sérstök tilboð á mat og gistingu og lofa frábærri lífsstílshátíð og ætla að kynna íslenskt hráefni til matargerða sem lífgar mun upp á skammdegið.

Fóður og fjör á Vesturlandi

Hátíðin Fóður og fjör eða Food & Fun verður haldin um allt land helgina 21. til 24. febrúar næstkomandi. Hótel og veitingahús í öllum landsfjórðungum hafa tekið sig saman með þetta skemmtilega verkefni á landsbyggðinni, verða með sérstök tilboð á mat og gistingu og lofa frábærri lífsstílshátíð sem lífga mun upp á skammdegið. Vestlendingar eru engir eftirbáta

Hátt í 20 manns urðu fyrir árás byssumanns

Byssumaður myrti að minnsta kosti tvo og særði fjölda annarra í kennslustofu í DeKalb nærri Chicago í Bandaríkjunum í kvöld. Byssumaðurinn lést eftir skotárásina. Samkvæmt lýsingum vitna var hann grannvaxinn hvítur karlmaður. Ekki er ljóst hvernig hann lést.

Ingibjörg Sólrún setti Bridgehátíðina 2008

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra setti Bridgehátíðina 2008, Icelandair Open, á Hótel Loftleiðum klukkan 19 í kvöld, fimmtudagskvöldið 14. febrúar.

Reykur í potti á Rauðarárstíg

Slökkviliðið var kallað að Rauðarárstígur klukkan hálfsjö í kvöld þegar tilkynnt var um reykjalykt í stigagangi í fjölbýslishúsi á þremur hæðum. Við nánari athugun kom í ljós að einstaklingur í einni íbúðinni hafði sofnað út frá potti á eldavél.

100 kíló af stolnum verkfærum fundust í Þýskalandi

Lögreglan í Þýskalandi stöðvaði í dag póstsendingu með rúmum hundrað kílóum af verkfærum sem talið er að hafi verið stolið hér á landi. Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er talið að ætlunin hafi verið að senda verkfærin til Póllands. Ekki er vitað hvort einhverjir hafi verið handteknir í tengslum við þetta tiltekna mál. Samkvæmt heimildum Vísis hefur töluvert verið stolið af verkfærum á undanförnum mánuðum, sem flest eru flutt til Austur - Evrópu.

Varar við því að hindra aðgang fjölmiðla

„Til að tryggja opið og lýðræðislegt samfélag þarf að greiða leið allra fjölmiðla að fréttaviðburðum. Blaðamannafélagið varar við tilraunum til þess að standa í vegi fyrir því. Vinnubrögð af því tagi sem viðhöfð voru í vikunni eru auk þess einungis til þess fallin að skapa tortryggni," segir í bréfi sem stjórn blaðamannafélagsins sendi Andra Óttarssyni, framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins, í dag.

Ný tjörn í Vatnsmýri miðpunktur framtíðarbyggðar

Ný tjörn verður grafin í Vatnsmýrina og gerð að miðpunkti nýrrar lágreistrar byggðar og Hljómskálagarðurinn stækkaður til suðurs, samkvæmt skoskri tillögu sem hlaut fyrsta sæti í hugmyndasamkeppni um framtíðarskipulag svæðisins.

Laun hækka um 18 þúsund krónur strax

Lægstu laun í landinu hækka um 16 prósent við undirskrift og um 32 prósent á næstu tveimur árum, samkvæmt kjarasamningum sem verið er að ganga frá, en búist er við að skrifað verði undir um helgina.

Fimm þúsund krónurnar duga skemur

Fyrir fjórum árum gat meðalfólksbíll ekið frá Reykjavík langleiðina á Kópasker fyrir fimm þúsund krónur en nú kemst hann aðeins á rétt fram hjá Akureyri.

Ómerkti dóm í nauðgunarmáli

Hæstiréttur ómerkti í dag dóm héraðsdóms í nauðgunarmáli og vísaði málinu heim í hérað til nýrrar aðalmeðferðar. Ákærða sem er tæplega tvítugur karlmaður er gefið að sök

21 slapp úr brennandi flugvél á hvolfi

Það þykir með ólíkindum að enginn skyldi farast þegar Canadair CRJ-100 farþegaþotu hlekktist á í flugtaki í Hvíta Rússlandi í dag. Tuttugu og einn maður var um borð.

Fundur ráðherra og bankastjóra ekki krísufundur

Fundur ráðherra og fulltrúa úr íslensku fjármálalífi í Ráðherrabústaðnum í dag var ekki krísufundur að sögn forsvarsmanna ríkisstjórnarinnar. Fundinum lauk fyrir stundu og sögðu þau Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra og Geir H. Haarde forsætisráðherra að hann hefði verið gagnlegur.

Múslimar brenna aftur danska fánann

Fyrstu viðbrögðin eru nú komin við þeirri ákvörðun danskra fjölmiðla að birta aftur hinar umdeildu teikningar af Múhameð spámanni.

Rannsókn Madeleine málsins næstum lokið

Lögreglurannsóknin á hvarfi Madeleine McCann í Portúgal 3. maí á síðasta ári er næstum lokið samkvæmt því sem portúgalski innanríkisráðherrann sagði fjölmiðlum í gær. Madeleine sem var þriggja ára þegar hún hvarf úr sumarleyfisíbúð í Praia da Luz hefur ekki sést síðan.

Sjö manns tilnefndir í stýrihóp um skipulag Vatnsmýrar

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag tilnefna þau Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, Gísla Martein Baldursson, Kjartan Magnússon, Ástu Þorleifsdóttur, Dag B. Eggertsson, Svandísi Svavarsdóttur og Óskar Bergsson í stýrihóp um heildarskipulag Vatnsmýrarinnar.

Annar stór skjálfti í Grikklandi

Tveir stórir jarðskjálftar riðu yfir Grikkland í dag, sá fyrri var 6,7 á Richter en eftirskjálftinn var 6,4. Fólk flúði byggingar í skjálftunum í suðurhluta landsins og fannst meðal annars vel í höfuðborginni Aþenu og á eyjun Krít.

Hezbollah tilbúnir í stríð við Ísrael

Hezbollah skæruliðar í Líbanon segjast tilbúnir í „opið stríð" við Ísraela ef það sé vilji þeirra. Sayyed Hassan Nasrallah leiðtogi samtakanna lét ummælin falla við útför háttsetts hershöfðingja í Sýrlandi í dag en hann féll í sprengjuárás.

Venus bönnuð í Lundúnum

Stjórn neðanjarðarlesta Lundúnaborgar hefur neitað að setja upp plaköt með mynd af gyðjunni Venusi.

Enginn vill Ungdómshús í Kaupmannahöfn

Stuðningur Kaupmannahafnarbúa við nýtt Ungdómshús fer dvínandi. Miklar óeirðir urðu í borginni á síðasta ári þegar borgaryfirvöld misstu loks þolinmæðina og létu rífa gamla húsið.

Ár rottunnar bjargar ekki rottunum í Peking

Rotturnar í Peking njóta þess ekki á nokkurn hátt að nú sé ár rottunnar gengið í garð. Yfirvöldum í borginni er mjög í mun að halda henni hreinni og fínni á Ólympíuárinu og því eru borgarbúar eindregið hvattir til þess að drepa nagdýrin hvar sem til þeirra næst.

Fá ferðaávísun fyrir fullkomna mætingu

Þeir starfsmenn Samherja sem missa ekki dag úr vinnu eiga nú kost á myndarlegri bónusgreiðslu. Starfsmannastjóri óttast ekki að þetta ýti undir að fólkið mæti veikt til vinnu.

Skilur að Vilhjálmur vilji skoða sín mál eftir klaufaleg mistök

Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra segir að ákvörðun hjá Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni um að sitja áfram í borgarstjórn hafa verið eðlileg. Hann segist skilja að hann vilji skoða sín mál eftir að hafa gert klaufaleg mistök í sjónvarpsviðtali.

Týndur maður sást í kvikmynd

Ítalskur maður sem hvarf ásamt viðhaldi sínu og tæpum fimm milljónum íslenskra króna fannst eftir að hann kom fram í vinsælli kvikmynd. Martino Garibaldi var verslunareigandi í bænum Montecalvo. Hann hvarf ásamt viðhaldinu eftir að hafa hreinsað bankareikning fjölskyldunnar. Þrátt fyrir að eiginkona hans hefði ráðið einkaspæjara til að finna hann, komust þeir aldrei að því hvert hann hefði farið.

Annir á slysadeild vegna hálkuslysa

Nokkuð hefur verið um að fólk hafi leitað á slysadeild í morgun eftir að hafa dottið í hálku. Algengir áverkar eru brotnir úlnliðir, axlir og ökklar. Fólk er beðið að fara varlega og eldri borgarar íhuga að halda sig heima í dag.

Leiðtogi uppreisnarmanna í Burma drepinn

Leiðtogi stærsta uppreisnarhóps í Burma var skotinn til bana á heimili sínu í bænum Mae Sot í Taílandi sem liggur við landamæri Burma í dag. Eiginkona Pado Mahn Sha Lar Phan sagði Reuters fréttastofunni að hann hefði verið skotinn af tveimur mönnum sem komu í jeppa að heimili þeirra. Lar Phan lést samstundis.

Sterkur jarðskjálfti skekur Grikkland

Jarðskjálfti um 6,5 á Richter skók suðurhluta Pelopsskaga á Grikklandi á hádegi í dag, eða klukkan 10 í morgun að íslenskum tíma. Ekki er vitað um meiðsl á fólki eða skemmdir á byggingum. Íbúar bæjarins Kalamata sögðust hafa fundið fyrir skjálftanum en hann hefði ekki verið eins sterkur og skjálftar sem mælst hafa nýverið.

Davíð: „Hvernig líst þér á Huddersfield?“

Davíð Oddson sat fyrir svörum í Seðlabankanum varðandi ákvörðun bankans um að halda stýrivöxtum óbreyttum. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum leitaði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík, ráða hjá Davíð varðandi þau vandræði sem flokkurinn og hann sjálfur hafa ratað í síðustu vikur.

Tvær áður óþekktar risaeðlur hafa fundist

Vísindamenn frá Bretlandi og Bandaríkjunum hafa fundið steingerfinga af tveimur áður óþekktum risaeðlum. Fundust steingerfingarnir í Sahara-eyðimörkinni innan landamæra Niger.

Stjórn BHM segir Samtök atvinnulífsins dæmalaust ósvífin

Stjórn Bandalags háskólamanna (BHM) segir dæmalaust ósvífið að ætlast til þess að kjör opinberra starfsmanna verði ákveðin af öðrum en þeim sem um þau eiga að semja. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem BHM hefur sent frá sér vegna kröfu Samtaka atvinnulífsins um að ríkið fylgi sömu launastefnu og ákveðin verður í komandi kjarasamningum við samtök verkalýðsins.

Starfsmenn Reykjanesbæjar fá hvatagreiðslur á árinu

Rúmar 35 milljónir verða lagðar til aukalega í launagreiðslur til starfsmanna Reykjanesbæjar á þessu ári vegna aukins álags á þá samfara mikilli fjölgun íbúa bæjarins. Þetta var samþykkt á fundi bæjarráðs.

Sjá næstu 50 fréttir