Fleiri fréttir

Dapurleg og vond tíðindi fyrir Reykjavík

„Þetta eru dapurleg og vond tíðindi fyrir Reykjavík," sagði Geir H. Haarde í samtali við Ríkissjónvarpið um þau tíðindi að Björn Ingi Hrafnsson hefði slitið samstarfi við sjálfstæðismenn í borginni og myndað meirihluta með Samfylkingunn, Vinstri - grænum og Frjálslyndum og óháðum.

Vilhjálmur fær meiri tíma til að spila golf

Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins héldu sameiginlegan blaðamannafund nú síðdegis. Að loknum stuttum ræðum Vilhjálms, fyrrverandi borgarstjóra, Gísla Marteins Baldurssonar og Hönnu Birnu Kristjánsdóttur svöruðu borgarfulltrúarnir spurningum fjölmiðla. Fyrsta spurningin snérist um framtíð Vilhjálms.

Vilhjálmur ætlar að sitja áfram í borgarstjórn

Vilhjálmur Vilhjálmsson, fráfarandi borgarstjóri, lýsti því yfir á blaðamannafundi á heimili sínu að hann hygðist ekki hætta í borgarstjórn þrátt fyrir samstarfslit við Framsókn.

Ný borgarstjórafrú stolt af Degi

"Ég er ákaflega ánægð fyrir hans hönd," segir Arna Dögg Einarsdóttir eiginkona nýs Borgarstjóra Reykjavíkur, Dags B. Eggertssonar um tíðindi dagsins. Arna var rétt búinn að ná sér eftir fréttirnar þegar Vísir náði af henni tali en sagði það gleðilegt að Dagur hefði ásamt nýjum samherjum sínum náð saman.

Dagur: Félagshyggjustjórn um almannahagsmuni

Dagur B. Eggertsson sagði á nýafstöðnum blaðamannafundi að nýr meirihluti sé félagshyggjustjórn sem sé meðal annars stofnuð um almannahagsmuni í orkumálu og um lýðræðisleg vinnubrögð.

Lét græða eyra á handlegginn

Ástralskur listamaður sem hefur látið græða eyra á framhandlegg sinn í nafni listarinnar hefur vakið upp deilur. Stelios Arcadiou er fæddur á gríska hluta Kýpur og er 61 árs. Hann segir auka eyrað gert úr brjóski og mótað á rannsóknarstofu. Það er eftirmynd af venjulegu eyra. Skurðlæknar settu spurningamerki við hvort slík aðgerð ætti rétt á sér vegna þess að ekki hafi verið læknisfræðileg þörf á henni.

Þrír látnir í sprengingu á Indlandi

Að minnsta kosti þrír eru látnir og 20 slasaðir eftir sprengju við mosku í Rajasthan héraði á Indlandi. Sprengjan sprakk fyrir utan Dargah Sharif helgiskrínið í Amjer borg rétt eftir að daglegt hlé var gert á föstu Ramadan mánaðar sem senn er á enda. Að minnsta kosti 500 manns voru inni í helgidómnum þegar sprengjan sprakk samkvæmt heimildum CNN.

Svona sneri Björn Ingi á sjálfstæðismenn

Atburðarásin í borgarpólitíkinni síðastliðna daga hefur verið hröð. Margir sjálfstæðismenn voru furðu slegnir þegar Björni Ingi Hrafnsson, oddviti Framsóknarflokksins, lýsti því yfir á fundi með borgarstjóra í dag að hann hygðist slíta meirihlutasamstarfinu. Tæpum 16 klukkustundum fyrr höfðu þeir sammælst um að halda áfram samstarfinu þrátt fyrir ágreining.

Blaðamannafundur Vilhjálms í beinni

Sýnt verður beint frá blaðamannafundi Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar á Stöð 2 og Vísi klukkan 17:15. Fundurinn fer fram á heimili borgarstjórans fyrrverandi að Ljárskógum í Breiðholti.

1650 manns bíða eftir félagslegu húsnæði

1650 manns bíða eftir félagslegu leiguhúsnæði hjá sveitarfélögunum og Öryrkjabandalaginu samkvæmt skýrslu sem Rannsóknarstöð þjóðmála við félagsvísindanefnd Háskóla Íslands vann fyrir nefnd á vegum félagsmálaráðherra.

Sjálfstæðismenn hneykslaðir á vinnubrögðum Björns Inga

Sjálfstæðismenn eru furðu slegnir og hneykslaðir yfir vinnubrögðum Björns Inga Hrafnssonar, oddvita Framsóknarflokksins, að sögn Jóns Kristins Snæhólms, aðstoðarmanns borgarstjóra. Hann segir ákvörðun Björns Inga um að slíta meirihlutasamstarfinu hafa komið sjálfstæðismönnum í opna skjöldu.

Blaðamannafundur nýs meirihluta í beinni

Nú er um það bil að hefjast blaðamannafundur á Ráðhússtéttinni þar sem tilkynnt verður um myndun nýs meirihluta í borginni. Sýnt var beint frá fundinum hér á Vísi og sömuleiðis á Stöð 2.

Skipting embætta liggur fyrir

Boðað verður til blaðamannafundar klukkan 16:30 á Ráðhússtéttinni við Iðnó til þess að tilkynna um meirihlutasamstarf gömlu R-listaflokkanna, Framsóknarflokksins, Vinstri - grænna og Samfylkingarinnar ásamt Frjálsynda flokknum í borgarstjórn Reykjavíkur.

3125 hraðabrot mynduð í Hvalfjarðarsveit

Stafrænu hraðamyndavélarnar tvær í Hvalfjarðarsveit hafa myndað 3.152 hraðabrot síðan þær voru settar upp í byrjun júlí, eða rúmlega 1000 hraðabrot á mánuði. Heildarsektir vegna þessara brota nema 55 milljónum króna. Gefinn er afsláttur ef sekt er greidd innan 30 daga, þannig að heildargreiðslur eru lægri sem nemur afslættinum.

Kviðdómur sér myndir af dauða Díönu

Ljósmyndir paparazzi ljósmyndara af Díönu prinsessu deyjandi í bílflaki voru lagðar fyrir kviðdóm réttarransóknarinnar yfir láti hennar í dag. Myndirnar voru að hluta ruglaðar en hár prinsessunnar og hliðarsvipur sáust.

Eins árs fangelsi fyrir ölvunarakstur

Karlmaður var í dag dæmdur í eins árs fangelsi í Árósum í Danmörku fyrir ítrekaðan ölvunarakstur. Um er að ræða einn þyngsta dóm sem fallið hefur í landinu fyrir brot sem þetta.

Gerry segist líffræðilegur faðir Madeleine

Það á ekki af foreldrum Madeleine McCann að ganga. Nú hefur Gerry McCann séð sig knúinn til að staðhæfa að hann sé líffræðilegur faðir stúlkunnar eftir getgátur í portúgölskum fjölmiðlum. Gerry sem er hjartasérfræðingur sendi frá sér yfirlýsingu vegna greinar í dagblaðinu 24 Horas.

Guðfinna vildi ekki vara við sköpunarhyggju

Á fundi Evrópuráðs þingmanna í síðustu viku greiddi Guðfinna Bjarnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, atkvæði gegn ályktun sem varaði við því að sköpunarsagan, eins og hún birtist í biblíunni, væri kennd sem vísindaleg staðreynd.

Forseti Armeníu fagnar ályktun Bandaríkjaþings

Forseti Armeníu fagnar ályktun Bandaríkjaþings um að skilgreina fjöldamorð Ottoman Tyrkja á Armenum sem þjóðarrmorð. Allt að ein og hálf milljón Armana voru drepnir í morðunum sem fræðimenn skilgreina sem fyrstu þjóðarmorð tuttugustu aldarinnar. Tyrkir hafa neitað að morðin hafi jafnast á við þjóðarmorð og segja fjölda látinna ýktan.

Lítið atvinnuleysi í september

Skráð atvinnuleysi í septembermánuði var 0,8 prósent samkvæmt samantekt Vinnumálastofnunar. Að meðaltali voru um 1.336 manns án atvinnu í síðasta mánuði og fækkaði um 140 frá ágúst. Fleiri konur voru án atvinnu en karlar.

Kannast ekki við að meirihlutinn sé að springa

Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segist ekki vita til þess að meirihluti sjálfstæðismanna og framsóknarmanna í borgarstjórn sé að springa. Gísli kom til fundar meirihlutans í Höfða sem átti að hefjast klukkan eitt en eftir því sem fréttastofa kemst næst er Björn Ingi Hrafnsson, borgarfulltrúi Framsóknarmanna ekki mættur.

Vöruflutningabíll fór útaf

Vöruflutningabíll fór útaf veginum við Skeiðarárbrú um klukkan 22:00 í gærkvöld. Að sögn lögreglu virðist sem vegkantur hafi gefið sig með þeim afleiðingum að bíllinn valt hálfur útaf veginum. Ökumaður vöruflutningabílsins hlaut ekki meiðsli en kranabíll var kallaður á vettvang til að aðstoða hann við að koma bílnum aftur á veginn.

Frjósamar nektardansmeyjar þéna meira

Nektardansmeyjar sem eru á hátindi frjósemi sinnar í tíðahringnum fá að jafnaði meira í þjórfé en starfssystur þeirra sem eru á pillunni. Þetta sýna niðurstöður vísindamanna við háskólann í New Mexico í Bandaríkjunum.

Skortur á starfsfólki hjá 60 prósentum fyrirtækja

Nærri sextíu prósent fyrirtækja segja að skortur sé á starfsfólki samkvæmt könnun sem Capacent Gallup gerði í samstarfi við fjármálaráðuneytið, Seðlabankann og Samtök atvinnulífsins.

Aftur ákært í netbankamáli

Mál gegn fjórum Akureyringum sem samanlagt högnuðust um ríflega 30 milljónir króna í gjaldeyrisviðskiptum á Netinu var þingfest í gær aftur.

Rætt um kynferðisofbeldi gegn börnum

Kynferðislegt ofbeldi gegn börnum á Netinu er til umræðu á ráðstefnu Barnaheilla í Norræna húsinu í Reykjavík í dag. Þar er rætt hversu berskjölduð börn geti verið fyrir áreiti og ofbeldi á netinu og hvernig ný tækni sé notuð til að beita börn slíku ofbeldi.

Erlendum nemendum á Akranesi fjölgar um 143%

Grunnskólanemendum af erlendum uppruna á Akranesi hefur fjölgað úr sjö í sautján frá því á síðasta skólaári. Það er aukning um 143%. Þetta telst mikil aukning í ekki stærra sveitarfélagi og því ræða bæjaryfirvöld nú leiðir til að komast til móts við þennan nýja hóp nemenda og hvernig megi auðvelda honum að aðlaga sig að nýju samfélagi.

Árangur á alþjóðlegum orkumarkaði ekki gefinn

Sameinað fyrirtæki Reykjavík Energy Invest og Geysir Green Energy býr að sérþekkingu Íslendinga á sviði jarðvarma og endurnýtanlegrar orku. Það þýði þó ekki að árangur í sölu á alþjóðlegum markaði sé gefinn. Þetta segir bandarískur sérfræðingur um samkeppni á alþjóðlegum orkumarkaði.

Umferðarslys í miðbænum

Umferðarslys varð á gatnamótum Faxagötu, Sæbrautar og Kalkofnsvegar, skammt frá sjávarútvegsráðuneytinu, um hádegisbil.

Rætt um REI í Höfða

Borgarstjórnarmeirihlutinn kemur saman til fundar í Höfða klukkan eitt og eftir því sem fréttastofa kemst næst á meðal annars að ræða málefni Reykjavik Energy Invest.

Textinn var lesinn upp fyrir Svandísi

Á aukafundi borgarstjórnar í gær sagði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri að hann hefði ekki áður verið kallaður lygari, í störfum sínum.

Doris Lessing hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels í ár

Breski rithöfundurinn Doris Lessing er handhafi bókmenntaverðlauna Nóbels í ár. Frá þessu greindi sænska akademían í dag. Lessing, sem er 87 ára, er elsta manneskja sem hlotið hefur þennan heiður og ellefta konan.

Kína mótmælir verðlaunum Dalai Lama

Stjórnvöld í Peking andmæltu í dag áformum Bandaríkjaþings um að heiðra búddaleiðtogann Dalai Lama. Tíbeska útlaganum verður í þessum mánuði veitt gullmedalía bandaríska þingsins, en það er æðsta borgaralega viðurkenning landsins. Kína lítur á Dalai Lama sem aðskilnaðarsinna.

Orkulindir áfram í samfélagslegri forsjá

Orkulindir á Íslandi eiga áfram að vera í samfélagslegri forsjá að mati Össurar Skarphéðinssonar, iðnaðarráðherra. Þetta kom fram í máli ráðherra á Alþingi í dag. Hann segir að það frumvarp sem nú er í smíðum komi reglu á orkumarkaðinn og tryggi að þær orkulindir sem í dag eru í samfélagslegri forsjá verði það áfram.

Bhutto hvött til að fresta heimför

Pervez Musharraf forseti Pakistan hefur óskað eftir því að Benazir Bhutto fyrrverrandi forsætisráðherra fresti heimkomu sinni þar til Hæstiréttur úrskurðar um lögmæti endurkjörs hans í forsetaembættið.

Stríð í Afríku kostar jafnmikið og þróunaraðstoð

Ný skýrsla um stríðsátök í Afríku greinir frá því að þróunarmál síðustu 15 ár hafi kostað álfuna 300 milljarða bandaríkjadala. Kostnaðurinn er jafnhár fjárhæðum sem bárust á tímabilinu í þróunaraðstoð. Það var hópur sjálfstæðra samtaka sem stóðu að rannsókninni, þar á meðal Oxfam, alþjóðasamtakin sem berjast gegn fátækt.

Staðfestir stjórnvaldssekt Sunda

Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur staðfest ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um að sekta félagið Sund um eina milljón króna vegna þess að fyrirtækið svaraði ekki ítrekaðri beiðni stofnunarinnar um gögn.

Segir sjálfstæðismenn vilja fórna meirihlutanum í borgarstjórn

Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, segir borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks standa fyrir ofsóknum á hendur Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni, borgarstjóra. Þetta kemur fram á heimasíðu Össurar. Hann segir sjálfstæðismenn einbeitta í þeim ásetning að fórna meirihlutanum frekar en að gefa borgarstjóra grið.

Búrma - Mótmælandi deyr í fangelsi

Maður sem barðist fyrir lýðræði í Búrma og var handtekinn í mótmælum í síðasta mánuði lést við yfirheyrslur. Alþjóða mannréttindasamtök pólitískra fanga í Taílandi greindu frá því að maðurinn hefði látist af völdum pyntinga. Dauði hans vekur ugg um öryggi fjölda fanga í Búrma.

Áttatíu meintir barnaníðingar handteknir í Portúgal

Lögreglan í Portúgal handtók í gær áttatíu grunaða barnaníðinga og lagði hald á um 150 tölvur í stærstu lögregluaðgerð gegn barnaníðingum í sögu landsins. Hún fer nú í gegnum ógrynni barnakláms sem fannst í aðgerðinni.

Mál Svandísar fyrir dóm á mánudag

Mál Svandísar Svavarsdóttur, borgarfulltrúa Vinstri - grænna, vegna eigendafundar í Orkuveitu Reykjavíkur í síðustu viku verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur á mánudag.

Dómsmálaráðherra gagnrýnir forstjóra REI

Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, tekur undir gagnrýni borgarstjórnarflokks sjálfstæðismanna á Guðmund Þóroddson, forstjóra Reykjavík Energy Invest. Á heimasíðu sinni segir ráðherra að það komi sér ekki á óvart að Guðmundur sé tregur til að miðla upplýsingum til kjörinna fulltrúa.

Sjá næstu 50 fréttir