Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
REI - Hvað, hvenær, hvernig ... og hver Saga Reykjavik Energy Invest er stutt en afar átakamikil síðustu daga. Miklar deilur spruttu upp innan borgarstjórnar vegna ákvörðunar um sameiningu REI og Geysir Green Energy. Farið hefur verið fram á að borgarstjóri og fulltrúi framsóknarflokks í borgarstjórn víki úr borgarstjórn vegna málsins. Stjórnarformaður Orkuveitur Reykjavíkur var látinn fjúka og borgarstjóri er sagður ljúga. 9.10.2007 13:10
Ökuþór dæmdur til að greiða 200 þúsund krónur í sekt Karlmaður var í Héraðsdómi Norðurlands eystra í dag dæmdur til að greiða 200 þúsund krónur í sekt vegna ítrekaðra umferðarlagabrota. Maðurinn keyrði meðal annars án ökuréttinda og þá var hann tekinn með fíkniefni í sínum vörslum. 9.10.2007 13:00
Almennar lækkanir í Kauphöllinni í dag Hlutabréf lækkuðu almennt í Kauphöll Íslands þegar hún opnaði í morgun. Þegar klukkan sló tólf hafði gengi Atlantic Petrolium lækkað mest eða um 6,19 prósent en gengi bréfa 365 lækkaði um 1,1 prósent, Össurar um 0,93 prósent og Atorku um 0,7 prósent. 9.10.2007 13:00
Birtist Paul McCartney óvænt vegna friðarsúlu? Friðarsúla Yoko Ono verður tendruð í Viðey þegar klukkuna vantar átta mínútur í átta í kvöld í beinni útsendingu á Stöð tvö. Mikil spenna ríkir um það hvort Sir Paul McCartney birtist óvænt og verði með þeim Ringo Starr, Sean Lennon og Oliviu Harrison við athöfnina og heiðri þannig minningu John Lennons á fæðingardegi hans, en Lennon hefði orðið 67 ára í dag. 9.10.2007 12:45
Mótmæla gjaldtöku í Hvalfjarðargöngum Samgönguráðherra fékk í dag undirskriftalista með rúmlega eitt þúsund nöfnum fólks sem mótmælir gjaldtöku í Hvalfjarðargöngum. 9.10.2007 12:30
Hægt að vera góður Evrópubúi utan ESB Forsætisráðherra hrósar Evrópusambandinu vegna aðgerða í umhverfismálum en ítrekar um leið þá afstöðu af hægt sé að vera góður Evrópubúi utan sambandsins. 9.10.2007 12:27
Glitnir hvorki játar né neitar að bankinn hafi áhuga á REI-hlut Oddviti Samfylkingarinnar í borginni furðar sig á því að meirihlutinn hafi stofnað til brunaútsölu á eignarhlut Orkuveitunnar í REI í bakherbergjum Sjálfstæðisflokksins. Talsmaður Glitnis hvorki játar því né neitar að bankinn hafi þegar lýst áhuga á að kaupa hlut Orkuveitunnar í REI. 9.10.2007 12:11
Næstbest að búa á Íslandi Ísland er í öðru sæti á lista bandaríska tímaritsins Reader's Digest yfir þær þjóðir þar sem best þykir að búa. Listinn er byggður á könnun bandaríska umhverfishagfræðingsins Matthew Kahn sem náði til 141 lands. 9.10.2007 12:09
Fær Gore friðarverðlaun Nóbels? Al Gore, fyrrum varaforseti Bandaríkjanna þykir líklegastur til að hljóta Friðarverðlaun Nóbels í ár ef marka má norræna veðbanka. Hann hefur líkurnar einn á móti fjórum. 9.10.2007 12:05
Toppskarfur í útrýmingarhættu við Íslandsstrendur Toppskarfur við Íslandsstrendur stefnir í útrýmingarhættu og flestir aðrir sjófuglar á norðurslóðum eru á hröðu undanhaldi. Þetta kemur fram í drögum að skýrslu um fuglalíf á norðurslóðum. 9.10.2007 12:00
Þrír varamenn taka sæti á Alþingi í dag Þrír varamenn taka sæti á Alþingi í dag þar á meðal Guðmundur Steingrímsson sonur Steingríms Hermannssonar, fyrrverandi forsætisráðherra. Guðmundur segist ætla láta að sér kveða á þeim tíma sem hann mun sitja á þingi. 9.10.2007 11:53
Enn von um Paul McCartney í Viðey Friðarsúla Yoko Ono verður tendruð í Viðey þegar klukkuna vantar átta mínútur í átta í kvöld í beinni útsendingu á Stöð tvö. Mikil spenna ríkir um það hvort Sir Paul McCartney birtist óvænt og verði með þeim Ringo Starr, Sean Lennon og Oliviu Harrison við athöfnina og heiðri þannig minningu John Lennons á fæðingardegi hans, en Lennon hefði orðið 67 ára í dag. 9.10.2007 11:52
HV vill fimm meistaranámsleiðir á fimm árum Fimm alþjóðlegar námsleiðir á meistarastigi, frumgreinanám í samstarfi við Háskólann í Reykjavík og sumarnámskeið í íslensku fyrir erlenda skiptinema eru meðal hugmynda sem Háskólasetur Vestfjarða vinnur að til framtíðar. 9.10.2007 11:46
Bílasprengja sprakk í Bilbao Að minnsta kosti einn er slasaður eftir að bílasprengja sprakk í borginni Bilbao sem tilheyrir landsvæði Baska á norðurhluta Spánar í morgun. Spænskir fjölmiðlar sögðu fyrst að maðurinn, sem er lífvörður stjórnmálamanns í jafnaðarmannaflokki staðarins, hefði látist. Þær fréttir voru síðar dregnar til baka af varnamálaráðuneytinu. 9.10.2007 11:46
Ógöngur Vilhjálms borgarstjóra Vilhjálmur Þórmundur Vilhjálmsson borgarstjóri hefur ekki átt sjö dagana sæla í embætti. Á meðal umdeildra verkefna hans er að gera útigangsmenn að nágrönnum leikskólabarna og gefa fjárhættuspilafyrirtæki 20 milljónir króna á silfurfati. 9.10.2007 11:21
Launmorð með geislavirku eitri Eitt af best geymdu leyndarmálum kalda stríðsins er nú komið í ljós. Bandaríski herinn kannaði það á sínum tíma hvort fýsilegt væri að nota geislavirkt eitur til launmorða á áhrifamiklum einstaklingum sem taldir voru óvinir Bandaríkjanna. 9.10.2007 10:22
Frakki og Þjóðverji deila Nóbelsverðlaunum í eðlisfræði Frakkinn Albert Fert og Þjóðverjinn Peter Grünberg deila Nóbelsverðlaununum í eðlisfræði í ár eftir því sem sænska akademían greindi frá í dag. 9.10.2007 10:18
Hörð mótmæli VG á Akranesi Vinstrihreyfingin – grænt framboð á Akranesi hefur sent frá sér ályktun þar sem mótmælt er harðlega þeim ólýðræðislegu vinnubrögðum sem viðgengist hafa innan Orkuveitu Reykjavíkur og almenningur hefur orðið vitni að síðustu daga og vikur. 9.10.2007 10:05
Dönsk kvikmynd hlýtur kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs Danska kvikmyndin Listin að gráta í kór hlýtur Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2007. Frá þessu var greint í dag. 9.10.2007 09:38
Útgjöld til félagsverndar aukast um 12 milljarða Heildarútgjöld til félagsverndar jukust um nærri sex prósent á milli áranna 2004 og 2005, eða úr 210 milljörðum í 222 milljarða. Þetta leiða tölur Hagstofunnar í ljós. 9.10.2007 09:14
Stærsta dómsátt Bandaríkjanna Stærsta dómsátt í sögu Bandaríkjanna er nú staðreynd eftir að fyrirtækið American Electric Power féllst á að eyða sem svarar til tæpum 250 milljörðum króna í uppsetingu á nýjum mengunarvarnabúnaði. 9.10.2007 08:15
Björn biðst undan því að vera bendlaður við REI Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, biðst undan því á bloggsíðu sinni að nafn hans sé „nefnt í tengslum við þessar uppákomur hjá OR og REI síðustu daga.“ Björn Ingi Hrafnsson benti á það í Kastljósi Ríkisútvarpsins að Björn hafi setið í stjórn Orkuveitunnar þegar ákvörðanir voru teknar um ENEX. 8.10.2007 23:14
Ísraelar opna á möguleikann um tvískipta Jerúsalem Tveir háttsettir stjórnmálamenn í Ísrael ræddu opinskátt í dag um möguleikann á því að Jerúsalem verði skipt í tvennt. Stjórnmálaskýrendur segja þetta gefa til kynna að von sé á stefnubreytingu Ísraela í málinu sem hingað til hafa neitað að fallast á skiptingu borgarinnar. 8.10.2007 22:56
Heimdellingar fagna sátt og samstöðu í borgarstjórn Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík lýsir yfir ánægju með þá „sátt og samstöðu sem náðst hefur í meirihluta borgarstjórnar Reykjavíkur. Stjórn félagsins fagnar þeirri niðurstöðu að stefnt skuli að sölu á hlut Orkuveitu Reykjavíkur í REI. 8.10.2007 21:28
Pólitísk spilling einkennir REI málið Bjarni Harðarson, þingmaður Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi segist ekki vera andsnúinn sameiningu REI og Geysis green energy eða útrás íslenskra orkufyrirtækja yfirleitt. Hann segist hins vegar gera athugasemdir við feril málsins sem einkennist af pólitískri spillingu að hans mati. Bjarni segir að sala ríkisins á hlut sínum í Hitaveitu Suðurnesja hafi verið mistök sem séu að reynast dýrkeypt. 8.10.2007 20:54
Borgarstjóri fundar með mótmælendum Ungdómshússins Stjórnendur mótmælahreyfingarinnar sem varð til þegar Ungdómshúsið í Kaupmannahöfn var rifið, hafa ákveðið að þiggja boð Ritt Bjerregård borgarstjóra um að funda með henni. Hvað eftir annað hefur komið til óeirða í Kaupmannahöfn síðan húsið var jafnað við jörðu. 8.10.2007 20:39
Bjarndýr drap mann í Svíþjóð Bjarndýr varð sextugum karlmanni að bana í grennd við bæinn Valsjöby í Svíþjóð í morgun. Íbúar í Valsjöby hafa lengi óttast að þetta myndi gerast. Lítið hefur verið um ber fyrir bjarndýrin sem þá verða hungruð og árásargjörn. Þeir segja einnig að bjarndýrum hafi fjölgað mjög á þessum slóðum undanfarin ár. 8.10.2007 20:00
Hálft barnslík fannst við Álaborg Danir eru slegnir óhug eftir að hálft barnslík fannst á byggingarlóð rétt sunnan við Álaborg. Lögreglan segja að líkið sé af nýfæddu stúlkubarni. Það var aðeins neðri hluti líkamans sem fannst. Það var fjölskylda sem var að láta aka gróðurmold inn á lóð sína, sem fann líkið. Það var í gær, en lögreglan ákvað að tilkynna ekki um fundinn fyrr en í dag í von um að finna hinn helminginn af barninu. 8.10.2007 19:40
Íslendingar eiga að losa sig við jarðefnaeldsneytið Ef eitthvert land í heiminum ætti að geta skipt úr jarðeldsneyti fyrir aðra og betri kosti er það Ísland. Þetta segir prófessor við tækniháskólann í Colorado. 8.10.2007 19:36
Menningarhúsið á Akureyri klætt stuðlabergi Þrjú þúsund tonna stuðlabergsklæðning sem þekja mun menningarhúsið á Akureyri hefur vakið mikla athygli. Svo gæti farið að stuðlabergið yrði að tískufyrirbrigði. 8.10.2007 19:32
Grunaðir um skjalabrot og brot á vinnulöggjöf Grunur leikur á að GT verktakar og Nordic Construction Line hafi gerst sek um skjalabrot og brot gegn vinnulöggjöfinni. Málið er komið inn á borð ríkislögreglustjóra. 8.10.2007 19:30
Gefum friðnum tækifæri Friðarsúla Yoko Ono verður tendruð á morgun á afmælisdegi Johns Lennon. Bítillinn Ringo Starr verður viðstaddur sem og Olivia Harrison, ekkja bítilsins George Harrisons. Ekki er útilokað að Paul McCartney verði viðstaddur athöfnina. 8.10.2007 19:30
Ákvörðun Ólafs veltur á stuðningi þjóðarinnar Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segir að það hvort hann hafi stuðning þjóðarinnar til að sinna forsetaembættinu eins og hann hefur gert hingað til muni hafa áhrif á það hvort hann bjóði sig fram til endurkjörs á næsta ári. 8.10.2007 19:23
Björn Ingi undrast að Vilhjálmur hafi ekki vitað af kaupréttarsamningum Björn Ingi Hrafnsson, segir að það komi sér verulega á óvart að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri hafi ekki vitað af þeim kaupréttarsamningum sem gerðir voru í tengslum við sameiningu REI og Geysir green energy. Hann bendir á að Haukur Leóson, stjórnarformaður Orkuveitunnar og stjórnarmaður í REI sé náinn samstarfsmaður Vilhjálms. 8.10.2007 18:31
Kalabríu mafían hreiðrar um sig í Evrópu Kalabríu mafían hefur hreiðrað um sig í Evrópu og þrífst þar vel, að sögn Ítalsks saksóknara. Það er vegna þess að í Vestur-Evrópu eru ekki til nein samræmd stefna til þess að takast á við skipulagða glæpastarfsemi. Nicola Gratteri, sem hefur verið að rannsaka morð á sex ítölum í Þýskalandi í ágúst síðastliðnum, segir að mafían sé eins og fjölþjóða fyrirtæki, með útibú í öllum heimsálfum. 8.10.2007 18:04
Dagur segir fráleitt að selja REI „Sú þrautalending borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins að ætla að selja hlut Orkuveitunnar í Reykjavik Invest er fráleit. Hún felur í sér að borgarbúar og eigendur Orkuveitunnar verði af þeirri margföldun í verðgildi fyrirtækisins sem spáð hefur verið á næstu arum,“ segir Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í borginni. 8.10.2007 17:47
Fimmtán teknir af lífi í Afganistan Yfirvöld í Afganistan tóku í morgun 15 fanga af lífi en þetta eru fyrstu aftökur þar í landi í meira en þrjú ár. Ekki hafa fleiri verið teknir af lífi í Afganistan á sama degi síðan Talibanar voru hraktir frá völdum árið 2001. 8.10.2007 17:33
Dorrit vísar fréttaflutningi DV á bug Dorrit Moussaieff fosetafrú segist vera særð og móðguð yfir fréttaflutningi DV í dag. Þar er sagt að Dorrit hafi verið ein af styrktaraðilum verðlauna sem Ólafur Ragnar Grímsson, forseti, hafi veitt viðtöku 23. september sl. 8.10.2007 16:55
Herstjórnin tilnefnir samningamann fyrir Suu Kyi Herstjórnin í Búrma hefur tilnefnt Aung Kyi aðstoðarráðherra til að semja beint við Aung San Suu Kyi stjórnarandstæðing sem nú er í stofufangelsi. Aung Kyi tók við embætti aðstoðaratvinnumálaráðherra á síðasta ári. Tilnefningin kemur í kjölfar mestu mótmælaaðgerða gegn herstjórninni í áratugi. 8.10.2007 16:45
Harður árekstur á Akureyri Harður árekstur varð á gatnamótum Þingvallastrætis og Vallargerðis á Akureyri, rétt fyrir klukkan fjögur í dag. Jeppi og fólksbifreið sem voru að koma úr gagnstæðri átt rákust saman. Að sögn lögreglunnar á Akureyri var enginn fluttur á slysadeild en ökumaður fólksbílsins kenndi eymsla í hálsi. 8.10.2007 16:40
Sátt um að halda völdum í Reykjavík Svandís Svavarsdóttir, borgarfulltrúi Vinstri - grænna, segir að sáttaniðurstaða sjálfstæðismanna í málefnum Reykjavik Energy Invest sé sátt um áframhaldandi völd í Ráðhúsinu í Reykjavík og að viðhalda völdum Framsóknarflokksins í borginni. 8.10.2007 16:27
Kviðdómendur lentu í óhappi í París Rúta kviðdómenda í réttarrannsókninni á dauða Díönu prinsessu af Wales lenti í óhappi fyrir utan Ritz hótelið í París í dag. Hópur fréttamanna horfði á rútuna keyra á steypustólpa þegar hún ók upp að hótelinu með þeim afleiðingum að hvellsprakk. Ekki tók langan tíma að skipta um dekk og hópurinn gat haldið áfram að fara yfir síðustu stundirnar í lífi prinsessunnar og ástmanns hennar Dodi Fayed. 8.10.2007 16:11
Haukur kemur af fjöllum Haukur Leósson, fráfarandi stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, kom af fjöllum þegar fréttastofa innti hann eftir viðbrögðum við því að borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins hygðist láta hann víkja vegna málefna Reykjavik Energy Invest. 8.10.2007 16:07
Sýknaður af utanvegaakstri við smölun Héraðsdómur Norðurlands eystra sektaði í dag karlmann um áttatíu þúsund krónur fyrir að aka á óskráðu vélhjóli við smölun. Hann var hins vegar sýknaður af ákæru um utanvegarakstur. 8.10.2007 16:00
Anda léttar Hæstiréttur á Spáni hefur staðfest bann við því að að vængstífðum öndum sé fleygt í sjóinn í bænum Sagunto, þar sem drukknir veislugestir berjast um þær. Árlega hafa hundruð manna safnast saman í bænum í ágúst, til þess að leika þennan leik. 8.10.2007 15:57