Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Félagsmálaráðherra skipar nýtt Jafnréttisráð Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra hefur skipað níu manna Jafnréttisráð til næstu alþingiskosninga í samræmi við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. 21.8.2007 15:29
Hyldýpisgjá milli kirkju og þjóðar virði Þjóðkirkjan ekki niðurstöðuna Séra Óskar Hafsteinn Óskarsson, prestur í Akureyrarkirkju, fagnar niðurstöðu í könnun á afstöðu presta til heimildar til að staðfesta samvist samkynhneigðra. Hann segir gott að vilji presta sé kominn fram og segir að hyldýpisgjá myndist milli þjóðar og kirkju verði ekki farið eftir niðurstöðu könnunarinnar og prestum veitt þessi heimild. Formaður Prestafélagsins býst við að málið verði til lykta leitt á Kirkuþingi um miðjan október. 21.8.2007 15:11
Bláeygir farsælli en aðrir Augnlitur gæti ákvarðað afrek þín í lífinu. Þetta gefur ný bandarísk rannsókn til kynna. Hún sýnir að fólk með blá augu sé líklegra til að skara framúr í námi en þeir sem eru með brún. Þau séu gáfaðri og gangi betur í prófum. 21.8.2007 14:48
Nafn mannsins sem lést Maðurinn sem lést í flugslysinu í Kanada á laugardaginn hét Guðni Rúnar Kristinsson, til heimilis að Digranesheiði 2 í Kópavogi. Guðni var að verða 23ja ára, fæddur 29. september 1984. Hann var ókvæntur og barnlaus. 21.8.2007 14:44
Tveir þriðju presta vilja fá heimild til að staðfesta samvist samkynhneigðra Liðlega 65 prósent starfandi presta í Þjóðkirkjunni eru fylgjandi því að prestum innan kirkjunnar verði veitt heimild til að staðfesta samvist samkynhneigðra. Þetta kemur fram í viðhorfskönnun sem fyrirtækið Outcome gerði fyrir Biskupsstofu í júní og júlí. 21.8.2007 14:04
Styrkur Dean dvínar Fellibylurinn Dean ferðast nú yfir Yukatan skaga með ofsavindi og úrhellisrigningu. Bylurinn er að veikjast. Vindhraði er nú um 56 metrar á sekúndu og mælist stormurinn nú tveir á Saffir-Simpsons kvarða að sögn bandarísku fellibyljastofnunarinnar. 21.8.2007 13:59
Sjóránum fjölgar gríðarlega Fimm danskir sjómenn eru enn á valdi sjóræningja sem rændu skipinu Danica White undan austurströnd Sómalíu fyrsta júní síðastliðinn. Vitað er um 147 aðra sjómenn í höndum ræningja. Árásir sjóræningja eru orðnar svo tíðar að þær eru orðnar alheims vandamál. Árásunum fjölgar ár frá ári og sömuleiðis þeim sem sjóræningjar slasa eða drepa. 21.8.2007 13:15
Sjötugir öldungar skulda 40 milljónir í meðlög Þegar litið er á yfirlit yfir þá sem skulda meðlög hjá Innheimtustofnun sveitarfélaga kemur í ljós að 31 einstaklingar sem orðnir eru sjötugir eða eldri skulda samtals tæplega 40 milljónir kr. Og þeir sem taka á móti meðlögum á þessum aldri eru 44 talsins. 21.8.2007 13:13
Kannt þú tölvunörda brandara ? Danir eru að velja sína bestu tölvunörda brandara. Hér er einn, úr blaðinu Computerworld. Tveir tölvunördar sátu saman á bjórkrá, að vinnu lokinni. "Veistu, í gærkvöldi hitti ég rosalega flotta blondínu á bar á Strikinu." "Og hvað gerðir þú ?" "Nú ég bauð henni heim. Við fengum okkur nokkra drykki og komumst í stuð. Svo allt í einu bað hún mig um að klæða sig úr öllum fötunum." 21.8.2007 13:09
Hamas biðja um olíu fyrir Gaza ströndina Leiðtogi Hamas samtakanna hefur beðið Evrópusambandið að byrja aftur að veita olíu til stærstu orkuveitu Gaza strandarinnar. Hann hefur lýst því yfir að alls ekki standi til að leggja á nýja skatta á sölu á rafmagni. Vegna olíuskorts hafa stór svæði á Gaza ströndinn verið án rafmgns undanfarna daga. 21.8.2007 13:00
Birtir ekki nöfn veitingahúsa sem ekki hafa lækkað verð Tryggvi Axelsson, forstjóri Neytendastofu, segir ekki standa til að birta nöfn þeirra veitingahúsa Neytendastofa gerði verðkönnun hjá í ágúst. Könnunin leiddi í ljós að aðeins 4 prósent veitingahúsa lækkuðu verð þegar virðisaukaskatturinn var lækkaður í vor. 21.8.2007 12:53
Segja súdönsk stjórnvöld ábyrg fyrir fjölda nauðgana og mannrána Mannréttindastofnun sameinuðu þjóðanna salaði í dag vígamenn sem eru hliðhollir stjórnvöldum í Súdan um að hafa rænt og nauðgan fjölda kvenna og stúlkna í Darfúr héraði. Í skýrslu sem stofnunin sendi frá sér í dag hvetur hún stjórnöld í Súdan til að rannsaka fullyrðingar um að vígamennirnir hafi í árás á þorp Fur ættbálksins síðastliðinn desember, rænt fimmtíu konum og stúlkum, haldið þeim í mánuð og nauðgað ítrekað. 21.8.2007 12:47
Alifuglakjöt orðið vinsælla en lambakjöt Alifuglakjöt, einkum kjúklingakjöt, er í fyrsta sinn í Íslandssögunni orðið vinsælla en lambakjötið, samkvæmt sölutölum síðustu tólf mánuðina. 21.8.2007 12:30
McDonalds vill opna fleiri veitingastaði í Evrópu Bandaríska skyndibitakeðjan McDonalds hyggst verja tæpum 72 milljörðum króna á þessu ári í uppbyggingu McDonalds veitingastaða í Evrópu. Stjórnendur keðjunnar eru bjartsýnir á að fjárfestingin skili sér þrátt fyrir minnkandi sölu í álfunni á undanförnum árum. 21.8.2007 12:22
Segir Vegagerð ekki hafa haft heimild til að kaupa ferju Ríkisendurrskoðun segir að það sé afar vafasamt að stofna til hundraða milljóna króna útgjalda í tengslum við Grímseyjarferju á grundvelli þeirrar sölu- og ráðstöfunarheimildar sem getið er í fjárlögum fyrir síðasta ár og þetta ár. Vísað er til þess að Sæfari, gamla Grímseyjarferjan, sé enn óseld. Með þessu mótmælir Ríkisendurskoðun orðum fjármálaráðherra sem sagði í fjölmiðlum í síðustu viku að heimild hefði verið til að kaupa nýja ferju. 21.8.2007 12:21
Björgunarsveitarmenn leita Þjóðverja í grennd við Skaftafell Björgunarsveitarmenn frá Höfn í Hornafirði eru að leggja af stað til leitar að Þjóðverjunum tveimur, sem saknað er, og verður leitað í grennd við Skaftafell til að byrja með. 21.8.2007 12:13
Harma niðurrif húsa á Laugavegi 4-6 Torfusamtökin harma að Skipulagsráð Reykjavíkur heimili niðurrif á tveimur elstu húsunum á Laugavegi 4-6 sem voru byggð í lok nítjándu aldar. Til stendur að rífa þau á næstu mánuðum. 21.8.2007 12:09
Íbúðalán hafa hækkað um 40 prósent á þremur árum Glitnir hækkaði vexti af nýjum íbúðalánum í morgun og hefur þá hækkað vexti af þess háttar lánum um fjörutíu prósent á tæpum þremur árum. 21.8.2007 12:06
Gæludýrin að kafna úr spiki Meira en helmingur hunda og katta í Bretlandi eru of feit, að sögn bresku dýraverndunarsamtakanna RSPCA. Vefsíða hefur verið sett á laggirnar til að hjálpa eigendum að kljást við stækkandi mittismál kisu og voffa. 21.8.2007 11:50
5 milljarðar í skip og flugvélar á síðasta ári Íslenska ríkið keypti skip og flugvélar fyrir 5 milljarða króna á síðasta ári, sem nam um 30 prósentum af kaupum ríkisins. Mestu var tilkostað í kaup á ferjum og rannsóknarskipum. Samkvæmt nýútkomnum ríkisreikningi nema eignir ríkisins 11 prósentum af eignum Kaupþings. 21.8.2007 11:47
Starfshópur fer yfir lög um gjaldtöku fjármálafyrirtækja Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra hefur skipað starfshóp sem fær það verkefni að skoða ýmsa gjaldtöku fjármálafyrirtækja og lagaumhverfi tengda henni, þar á með svokallaðan fit-kostnað bankanna og seðilgjöld. 21.8.2007 11:43
Vilja knýja fram íbúakosningu um reykingabann Kráareigendur í Hamborg í Þýskalandi reyna nú að knýja fram sérstaka íbúakosningu um fyrirhugað reykingabann á veitingastöðum þar í borg. Undirskriftalistum hefur verið komið fyrir á rúmlega tvö hundruð veitingastöðum en veitingamenn þurfa að minnsta kosti tíu þúsund undirskriftir. 21.8.2007 11:36
Hátt í tvo mánuði frá grunnskóla vegna biðar eftir úrræðum Mikilvægt er taka strax á alvarlegum agabrotum barna í grunnskólum og tryggja að þau fái strax þá aðstoð sem þörf er á, að sögn sérfræðings hjá menntasviði borgarinnar. Dæmi eru um að barn hafi verið frá skóla í allt að tvo mánuði vegna agabrots þar sem bið var eftir þeim úrræðum sem eru fyrir hendi. 21.8.2007 11:10
Persónupplýsingum stolið Persónuupplýsingum hundruða þúsunda manna var stolið, þegar tölvuþrjótar svindluðu sér leið inn í gagnabanka atvinnumiðlunarsíðunnar Monster.com. Þrjótarnir notuðu svokallaðan trójuhest til að stela aðgangsorðum að starfsmannaleitarsvæði síðunnar. Þar stálu þeir nöfnum, netföngum, heimilisföngum og símanúmerum. 21.8.2007 11:07
Metár í meðlagsgreiðslum Árið í fyrra var metár hvað varðar innheimtu á meðlagsgreiðslum hjá Innheimtustofnun sveitarfélaga. Alls innheimtust 83,5% af meðlagsgreiðslum hjá stofnuninni. Hilmar Björgvinsson forstjóri stofnunarinnar segir að skýringu á þessu megi að hluta til rekja til þess að efnahagsástandið hefur verið mjög gott undanfarin ár. 21.8.2007 10:55
Kafarar finna fórnarlamb brúarslyss Lík þess síðasta sem saknað var eftir brúarslysið í Minneapolis í Bandaríkjunum í byrjun ágústmánaðar fannst á botni Mississippi fljótsins í gær. Alls létust því þrettán manns í slysinu. Það voru kafarar sem fundu lík mannsins. 21.8.2007 10:53
Rangt hús, rangt rúm og röng kona Konu í Froland í Noregi brá í brún þegar hún vaknaði í morgun og sá ókunnan mann við hliðina á sér í rúminu. Hún hringdi þegar í lögregluna sem sendi menn á staðinn. Erfiðlega gekk að vekja hinn ókunna mann. Það tókst þó um síðir og kom í ljós að hann hafði ekki haft neitt illt í hyggju. 21.8.2007 10:40
Sterling í samkeppni við SAS um farþega úr viðskiptalífinu Norræna flugfélagið Sterling, sem er í eigu íslenskra aðila, íhugar nú að fjölga flugleiðum sínum með það að markmiði að ná betur til viðskiptavina í viðskiptalífinu. 21.8.2007 10:27
Blind kona slær holu í höggi Bandarísk kona, sem hefur verið blind í aldarfjórðung, gerði sér lítið fyrir og sló holu í höggi á golfvelli í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum fyrir skemmstu. Konan sló golfkúluna meira en 131 metra áður en hún féll beint ofan í holuna. 21.8.2007 10:19
Víkingaaldarperla finnst undir öskuhaugnum á Hólum Fornleifafræðingar þeir sem unnið hafa við uppgröft og rannsóknir á Hólum í Hjaltadal hafa fundið skála frá 10du öld undir öskuhaugnum á staðnum. "Þetta er einstakt hús að okkar mati, eiginlega hrein víkingaaldarperla," segir Ragnheiður Traustadóttir fornleifafræðingur sem stjórnað hefur rannsóknum á Hólum í sumar. 21.8.2007 10:08
Hlutfall fagmenntaðra 99% í grunnskólum á Akureyri. Vel gekk að manna grunnskólana á Akureyri í ár. Enn er þó óráðið í 1-2 stöður vegna forfalla. Í fréttatilkynningu frá Akureyrarbæ kemur fram að hlutfall fagmenntaðra starfsmanna sé 99% og að mikill stöðugleiki hafi einkennt starfsmannahaldið undanfarin ár. 20.8.2007 23:02
Íslendingar skoða kaup á Newcastle Innan skamms gætu tvö ensk úrvalsdeildarlið orðið í eigu Íslendinga. Íslenskir fjárfestar eiga nú í viðræðum við forsvarsmenn Newcastle um hugsanleg kaup á liðinu, sem er eitt það allra stærsta í enska boltanum. Ísland í dag ræddi við Guðna Bergsson, sem spilaði í úrvalsdeildinni í mörg ár. 20.8.2007 20:21
Afborganir lána hækka Mörg íslensk heimili munu finna verulega fyrir því um næstu mánaðamót, hversu hratt gengi krónunnar hefur veikst síðasta mánuðinn. 60 þúsund króna afborgun af 10 milljón króna myntkörfuláni með íbúðaveði um síðustu mánaðamót er orðin 70 þúsund króna afborgun. Gengi dollarsins hefur hækkað úr 59 krónum í 69 krónur frá 20 júlí. 20.8.2007 20:16
Vísað úr landi og skilur soninn eftir Mexíkósk kona, sem hafði búið ólöglega í Bandaríkjunum í tíu ár og eignast þar son var vísað úr landi í gær, án sonarins. Elvira Arellano var handtekin í miðborg Los Angeles á sunnudaginn. Það átti að vísa henni úr landi þann fimmtánda ágúst í fyrra, en hún stakk af og hefur síðan þá haldið til í kirkju í Chicago ásamt átta ára syni sínum. 20.8.2007 20:14
Ekki líklegt að knapinn yrði sakfelldur Dýralæknafélag Íslands lýsir yfir furðu og hneykslan á því að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafi ákveðið að ákæra ekki í máli hestamanns sem margsinnis misþyrmdi hesti sínum í apríl síðastliðnum. Lögreglan taldi ekki líklegt að knapinn yrði sakfelldur fyrir barsmíðarnar. 20.8.2007 19:14
Hreyfillinn sprakk Engan sakaði þegar hreyfill Boeing flugvélar tævanska flugfélagsins China Airlines sprakk í loft upp á flugvellinum á Okinawa í morgun. Farþegar komust við illan leik frá borði en vélin varð alelda og brotnaði í tvennt. 20.8.2007 19:06
Lögum um dóma yfir níðingum breytt Frakkar eru harmi slegnir eftir að dæmdur barnaníðingur beitti fimm ára dreng ofbeldi tæpum mánuði eftir að hann losnaði úr fangelsi. Geðlæknar höfðu varað við því að sleppa manninum. Frakklandsforseti vill breyta lögum þannig að níðingar sleppi ekki eftir afpánun nema að vel athugðu máli. 20.8.2007 19:04
Bíða eftir flugi frá Júkatan-skaga Tíu Íslendingar bíða milli vonar og ótta um hvort þeir nái flugi frá Júkatan skaga nú þegar fellibylurinn Dean stefnir hraðbyri á Mexíkó. Íslendingarnir fóru frá Cancun í gær þar sem búist er við miklum veðurofsa. Óttast er að bylurinn nái mesta styrk áður en hann skellur á Mexíkó á næstu klukkustundum. 20.8.2007 18:58
Hjólreiðamenn munaðarlausir í umferðinni Mörgum ökumönnum finnst hjólreiðamenn á þjóðvegum landsins vera til trafala, tefja umferð og vera hvimleiður fylgifiskur sumarsins. Umferðarstofa segir aðstöðuleysi leiða til þess að hjólreiðamenn verði eins og munaðarlausir í umferðinni. Margir erlendir ferðamenn telja hálendisvegi hér frábæra til hjólreiða vegna einstakrar náttúrufegurðar. 20.8.2007 18:53
Virðisaukaskatturinn drýgstur Fjögurhundruð tuttugu og tveir milljarðar króna runnu í ríkissjóð á síðasta ári - næstum sama upphæð og árið áður. Virðisaukaskatturinn er drýgstur og gæti einn staðið undir heilbrigðiskerfinu, háskólum og framhaldsskólum. Og meiru til. 20.8.2007 18:45
Verðmætara að passa fé en börn Það er skelfilegt að þjóðfélagið meti það til hærri launa að passa peninga en börn, segir Beata Tarasuik, sem ákvað nýverið að segja upp, eftir níu ára starf á leikskóla. Hún hefur fengið starf sem gjaldkeri hjá Glitni og snarhækkar við það í launum. 20.8.2007 18:45
Læknalaust víða á landinu vegna manneklu Erfitt hefur reynst að manna sumarafleysingar lækna í Rangárvallasýslu í sumar og hefur einungis einn læknir verið starfandi á Hvolsvelli á tímum í sumar. Á Hellu hefur verið læknalaust stóran part sumars þegar tugir þúsundir ferðamanna bætast við íbúafjölda í héraðinu. Landlæknir segir ástandið endurspegla stöðuna víða á landinu. 20.8.2007 18:39
Má aðeins vísa grunnskólanemum úr skóla fyrir fíkniefnasölu Óheimilt verður að vísa nemanda úr skóla fyrir alvarleg agabrot nema annað skólaúrræði sé tryggt fyrir hann samkvæmt nýjum verkferlum sem menntaráð Reykjavíkur samþykkti í dag. Gera má undantekningu ef nemandi hefur orðið uppvís að fíkniefnasölu en þá má vísa nemanda úr skóla á meðan lögregla og Barnavernd rannsaka málið. 20.8.2007 17:05
Annríki hjá björgunarsveitum um helgina Nýliðin helgi var annasöm hjá björgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Meðal verkefna björgunarsveitanna voru útkall í Víta við Öskju þar sem kona lenti í skriðu. Útkall var vegna bíls sem festistí Tungnaá. Slasaður hestamaður var sóttur að Ábæ í Skagafirði og vélarvana bátur var dreginn til hafnar í Grindavík. 20.8.2007 17:00
Felldi úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurði Hæstiréttur felldi í dag úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir tveimur mönnum sem setið hafa í gæsluvarðhaldi frá lokum júnímánaðar vegna gruns um nokkur brot. 20.8.2007 16:56