Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Neytendur kannabisefna líklegir til að fá geðklofa Neytendur kannabisefna eru 40% líklegri en aðrir til þess að fá geðsjúkdóma á borð við geðklofa. Þetta kemur fram í nýrri grein eftir sérfræðinga við háskóla í Bristol og Cardiff í Bretlandi. 27.7.2007 10:19
Nýr formaður Félags vélstjóra og málmtæknimanna Örn Friðriksson hefur tekið við formennsku í VM - Félagi vélstjóra og málmtæknimanna af Helga Laxdal sem nú gegnir stöðu varaformanns. Þetta er í samræmi við samkomulag sem gert var við sameiningu Félags járniðnaðarmanna og Vélstjórafélags Íslands í VM – Félag vélstjóra og málmtæknimanna. 27.7.2007 10:14
Villipen sætir rannsókn Formleg rannsókn er hafin á framferði Dominiques de Villepin, fyrrverandi forsætisráðherra Frakklands í tengslum við meinta rógsherferð gegn Nicolas Sarkozy fyrir síðustu forsetakosningar. Dreift var fölsuðum lista yfir menn sem áttu innistæðu í fjármálafyrirtæki í Luxembourg. Nafn Sarkozys var á þeim lista. 27.7.2007 09:44
Tvö mest notuðu sykursýkislyfin tvöfalda hættu á hjartasjúkdómum Talið er að lyfin Avandia og Actos, sem eru tvö af mest notuðu sykursýkislyfjum í Bretlandi, tvöfaldi hættuna á hjartasjúkdómum. Í Bretlandi hefur notkun lyfjanna tvöfaldast á síðustu þremur árum, vegna aukinna offituvandamála. 27.7.2007 09:21
Nýr togari Brims getur dregið þrjú troll í einu Nýi togarinn Brimnes, sem kom til heimahafnar í Reykjavík í gær, getur dregið þrjú troll í einu, en venjulegur togari dregur aðeins eitt. Þá er hann með liðlega átta þúsund hestafla vél, sem er stærsta vél í íslenskum togara og er togkrafturinn um hundrað tonn. 27.7.2007 08:17
Tveir létust þegar sprenging sprakk í geimflaugaverksmiðju Tveir létust og fjórir slösuðust alvarlega þegar sprengja sprakk í Mojave geimflaugaverksmiðjunni í Kalíforníufylki í Bandaríkjunum í gær. Ekki er ljóst hvað olli sprengingunni en slökkviliðsmenn á staðnum sögðu að í verksmiðjunni væri unnið með níturoxíð sem sé mjög eldfimt efni. Þar er verið að þróa geimskip sem ætlað er að gefa ferðamönnum tækifæri til að skoða geiminn. 27.7.2007 08:16
Sérstakt Prúðuleikarasafn Fjölskylda Jims Henson, höfundar Prúðuleikaranna, hefur ákveðið að gefa brúðusafni í Atlanta allar brúður Hensons. Opnuð verður ný deild innan safnsins sem tileinkað verður honum. 27.7.2007 08:14
Danir geta ekki boðið Írökum landvistarleyfi vegna fjölskylduhaga þeirra Babb er nú komið í bátinn hjá dönskum stjórnvöldum, eftir að þau ákváðu að bjóða á annað hundrað írökum, sem störfuðu fyrir danska herinn í Írak, landvistarleyfi í Danmörku. 27.7.2007 08:12
Varp sjófugla misfórst í Færeyjum Varp sjófugla hefur misfarist eitt árið enn í Færeyjum og óttast Færeyingar að sumir stofnanna, þeirra á meðal lundinn, séu við það að deyja út, ef ekki verður breyting á. Líkt og hér á Íslandi virðist vera fæðuskortur í hafinu þannig að ungar komast ekki á legg. Þá er talið að ofbeit sauðfjár í sumum eyjunum kunni að skerða lífslíkur unganna, því þeir hafa ekki skjól af grasi þegar vargfuglinn leitar fanga. 27.7.2007 08:10
Rússar aðstoða Grikki í baráttunni við skógarelda Rússar ætla að senda fimm flugvélar til Grikklands sem eiga að aðstoða við að slökkva skógarelda sem geisa í landinu. Karamanlis, forsætisráðherra Grikklands, hafði samband við Vladimir Putin, forseta Rússlands, og bað hann um aðstoð við að slökkva skógareldana. 26.7.2007 23:09
Lögregla lýsir eftir vitnum að umferðaslysi á Kringlumýrarbraut Umferðarslys varð á gatnamótum Kringlumýrarbrautar, Laugavegs og Suðurlandsbrautar klukkan 21:00 mánudaginn 23. júlí síðastliðinn. Þar skullu saman jepplingur og fólksbifreið. 26.7.2007 22:19
Rúta með ferðamönnum nærri oltin Rúta með 26 ferðamönnum innanborðs var nálægt því að velta á grjótgarði sem liggur að Dyrhólaey rétt eftir klukkan átta í kvöld. Rútan vék út í kannt þegar hún var að mæta fólksbíl með þeim afleiðingum að kanturinn gaf sig. 26.7.2007 21:54
Fullir geimfarar Geimfarar hjá Nasa hafa að minnsta kosti tvisvar farið út í geim undir áhrifum áfengis. Þetta kemur fram í rannsókn sem stendur nú yfir á starfsemi stofnunarinnar og sagt er frá í tímaritinu Aviation Week & Space Technology. 26.7.2007 21:36
Búlgörsk börn boðin til sölu Búlgörsk börn eru boðin til sölu á um 60 þúsund evrur með loforði um að þeim verði smyglað til annarra landa. Þetta kemur fram í nýjum sjónvarpsþætti sem fréttamenn á vegum BBC hafa unnið. 26.7.2007 20:39
Tugir gætu átt von á ákærum frá Helga Rafni Helgi Rafn Brynjarsson, sá sem sakaður var um hrottalegt morð á hundinum Lúkasi á spjallsíðum internetsins, hefur kært þá sem harðast gengu fram í hótunum þegar málið stóð sem hæst. 26.7.2007 20:13
Grátbað um hjálp Suður-kóresk kona, sem Talibanar hafa haldið í gíslingu í rúma viku, grátbað um hjálp í símaviðtali sem bandaríska sjónvarpsstöðin CBS spilaði í dag. Konan er ein af 23 Suður-Kóreubúum sem Talibanar rændu fyrir viku síðan. Talibanarnir myrtu einn gíslanna í gær. 26.7.2007 19:34
Eyjagöng aldrei í einkaframkvæmd Vestmannaeyjagöng verða aldrei fjármögnuð með einkafé, slík er óvissan og stærðargráðan á verkefninu, segir Gísli Gíslason, stjórnarformaður Spalar. Hann segir eyjagöng tæplega raunhæf í náinni framtíð. 26.7.2007 19:01
Höfða mál gegn umhverfisráðherra Landeigendur í Þorskafirði, Náttúruverndarsamtök Íslands og Fuglaverndarfélag Íslands hafa ákveðið að höfða mál gegn umhverfisráðherra vegna ákvörðunar um að heimila lagningu Vestfjarðavegar um Þorskafjörð með þverun Djúpafjarðar og Gufufjarðar. 26.7.2007 19:00
Heilbrigðisráðherra vill bjór í búðir Heilbrigðisráðherra styður sölu léttvíns og bjórs í matvöruverslunum. Þjóðin drekkur í dag tæplega þriðjungi meira en markmið heilbrigðisáætlunar stjórnvalda gerir ráð fyrir. 26.7.2007 18:59
Uppáferðir eða bílferðir? Travelling in Iceland? Need a ride? Þannig hljómar auglýsing sem Goldfinger birti í blaði Víkingahátíðarinnar í Hafnarfirði í júní. Gömul auglýsing sem gerð var til að auglýsa limmósínu, segir Ásgeir Þór Davíðsson, eigandi Goldfinger. 26.7.2007 18:53
Vikan nú hættulegust í umferðinni Vikan nú er sú hættulegasta í umferðinni, en rúmlega 24 einstaklingur slasast að meðaltali á viku hverri í umferðinni. Hættulegasti dagurinn í umferðinni er 21. júlí og sá öruggast 26. janúar að því er tölur Umferðarstofu um slysatíðni síðustu ára sýna. 26.7.2007 18:32
Krefjast ákæru á hendur foreldrum Madeleine Portúgalskir fjölmiðlar beina nú spjótum sínum að foreldrum Madeleine McCann og vinum þeirra sem voru með þeim kvöldið örlagaríka þegar stúlkunni var rænt. Þá hefur þess verið krafist að ákæra verði gefin út á hendur þeim fyrir að skilja börnin eftir. 26.7.2007 18:30
Fjörtíu ára bindindi lokið Fjörtíu ára sögu bindindishreyfingarinnar í Galtalækjarskógi er lokið með sölu landsins til systkyninanna Ingunnar, Karls og Steingríms Wernersbarna. Það eina sem ákveðið er með framtíð landsins er að halda þar áfram skógrækt en ekki er ljóst hvort svæðið verði opið almenningi í framtíðinni. 26.7.2007 18:30
Þrír látnir í flóðunum í Bretlandi Hitarnir í Suðaustur Evrópu og flóðin í Bretlandi eru talin afleiðing þess að loftstraumar og lægðir ganga nú sunnar en verið hefur. Þetta hefur orsakað einmuna veðurblíðu hér á landi í sumar. Þrír eru látnir í flóðunum í Bretlandi í dag. Hundruð íbúa flóðasvæðanna í Bretlandi snúa nú til síns heima, en flóðin eru í rénun. 26.7.2007 18:27
Reynt að innheimta miskabætur vegna nauðgunar í tvö ár en án árangurs Fórnarlamb hópnauðgunar hefur í tvö ár reynt að innheimta miskabætur sem því voru dæmdar en án árangurs. Lögmaður þess segir ekki forsvaranlegt að þolendur þurfi að innheimta bætur hjá gerendum. 26.7.2007 18:23
Vegið að viðkvæmum stofni górilla Fjórar skepnur af hinum fágætu fjallagórillum fundust drepnar í þjóðgarðinum Virunga í Lýðveldinu Kongó á sunnudaginn. Górillurnar eru friðaðar enda í bráðri útrýmingarhættu með stofn sem telur um 700 skepnur. Um er að ræða eitt karldýr, eða silfurbak, og þrjú kvendýr. 26.7.2007 18:11
Mótmælaborðar hengdir upp í Hafnarfirði Hópur fólks hengdi í dag upp mótmælaborða á Ráðhús Hafnarfjarðar með áletruninni: Nei þýðir nei – stækkun er glæpur. Hópurinn strengdi einnig borða á verslunarmiðstöðina Fjörð með eftirfarandi skilaboðum til Hafnfirðinga: Kæru Hafnfirðingar. Nietzsche drap guð - Lúðvík drap lýðræðið. 26.7.2007 18:08
4 1/2 árs fangelsi fyrir tilraun til manndráps Héraðsdómur Vestfjarða dæmdi í dag Ólaf Þór Guðmundsson í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir tilraun til manndráps, en Ólafur skaut af haglabyssu að konu sinni á heimili þeirra í Hnífsdal í síðasta mánuði. Þá var Ólafi gert að greiða konunni eina milljón í miskabætur og tæplega eina og hálfa milljón króna í sakarkostnað. 26.7.2007 18:03
Shambo færður til slátrunar Farið var með heilaga nautið Shambo til slátrunar í dag. Shambo sem er í eigu munka í hindúaklaustri í Wales greindist með berkla í apríl og hefur áfrýjunardómstóll skipað svo fyrir að honum skuli slátrað til að koma í veg fyrir smit. 26.7.2007 17:58
Ferðamenn misstu eigur sínar í eldunum á Ítalíu Níu hjálparbeiðnir hafa borist til Evrópusambandsins frá löndum í suðaustur Evrópu þar sem skógareldar geisa. Þrír létust í Grikklandi í morgun og ferðamenn þufa að yfirgefa sumarleyfisstaði af völdum eldanna. Íslendingur sem býr á svæðinu er kominn til Íslands og segir ástandið nánast óbærilegt vegna reyks og hita. 26.7.2007 17:45
Evrópsk dagblöð vilja stöðva Tour de France Dagblöð víðs vegar um Evrópu vilja flauta Tour de France keppninna af vegna mikils hneykslis sem við kemur lyfjanotkun hjólreiðkappa. Þrír keppendur hafa verið dæmdir úr leik vegna þessa, tveir féllu á lyfjaprófi og einn mætti ekki í lyfjapróf. Michael Rasmussen, Cristian Moreni og Alexandre Vinokourov hafa verið dæmdir úr leik. 26.7.2007 17:23
Raul Castro tilbúinn að opna landið fyrir erlendri fjárfestingu Sitjandi forseti Kúbu, Raul Castro, lofaði í dag því að bæta efnahaginn á Kúbu og bauð viðræður við Bandaríkjastjórn þegar að ríkisstjórn George W. Bush væri farin frá völdum. Í dag var byltingardagur Kúbu en þá er haldið upp á fyrstu árás Fidels Castro á herstöð stjórnarinnar árið 1953. 26.7.2007 16:42
Tvö björgunarskip kölluð út í morgun Björgunarskipin Húnabjörg á Skagaströnd og Þór í Vestmannaeyjum voru kölluð út í morgun til að aðstoða báta sem að þurftu aðstoð. Húnabjörgin aðstoðaði fiskibátinn Hópsnes sem að strandaði á skeri skammt frá innsiglingunni til Skagastrandar. 26.7.2007 16:19
Íslenskir karlmenn eru sko alls engar gungur Íslenskir karlmenn lifa lengst allra karlmanna, eða 79,4 ár. Í öðru sæti koma Japanir með 79 ár slétt. Japanskar konur lifa hins vegar lengst kvenna, eða 85,8 ár. Á eftir þeim koma konur frá Taívan, Spáni og síðan Sviss. Þær íslensku geta vænst þess að lifa 82,6 ár. 26.7.2007 15:56
Brim hf. keypti nýjan togara Brim hf. tók í dag á móti fullkomnum frystitogara sem hefur fengið heitið Brimnes. Skipið lagði að bryggju í Reykjavík á hádegi. Kaupverð skipsins er rúmir 2 milljarðar króna. 26.7.2007 15:52
Þór Jónsson tekur að sér almannatengslamál fyrir Kópavogsbæ Þór Jónsson, upplýsingafulltrúi félagsmálaráðuneytisins, hefur sagt upp störfum hjá ráðuneytinu. Hann mun taka að sér almannatengslamál fyrir Kópavogsbæ í næsta mánuði. Þetta staðfesti Þór í samtali við Vísi. 26.7.2007 15:48
Garðsláttur í bikini Umsvifin hjá litlu garðsláttufyrirtæki í Memphis í Tennessee hafa margfaldast eftir að það byrjaði að senda bikini klæddar stúlkur til þess að slá garðana hjá fólki. Karlmenn sem áratugum saman hafa slegið garða sína sjálfir eru allt í einu búnir að fá í bakið, og þurfa nauðsynlega að fá aðra til þess að slá fyrir sig. 26.7.2007 15:40
20 létust og 60 særðust í bílsprengju í Bagdad í dag 20 létust og fleiri en 60 særðust þegar að bílsprengja sprakk við gatnamót í Karrada hverfinu í miðborg Bagdad í dag. Það kviknaði í að minnsta kosti einni byggingu við sprenginguna og fjölmargir bílar urðu eldinum að bráð. Mestmegnis sjía múslimar búa í Karrada hverfinu í Bagdad. 26.7.2007 15:40
Gripin glóðvolg með þýfi Karl á fertugsaldri og kona á þrítugsaldri voru handtekin í Kópavogi um kvöldmatarleytið í gær en þau höfðu farið ránshendi um tvær verslanir í bænum. Þau stálu bæði fatnaði og tækjum en varningurinn fannst í bíl þeirra. 26.7.2007 15:31
Logandi kráka kveikti í akri Slökkviliðsstjórinn í Enköping segist aldrei hafa upplifað nokkuð þessu líkt. Atburðarrásin var þannig að krákan flaug á rafmagnslínu og drapst. Það kviknaði í henni og logandi hræið féll niður á akurinn. Þar lá þurrt hey sem kviknaði í. 26.7.2007 15:20
Fleiri en 50 talibanar felldir í Afganistan í dag Bandarískar hersveitir, með stuðningi flughersins, drápu fleiri en 50 uppreisnarmenn talibana í bardögum í suðurhluta Afganistan í dag. Ekkert mannfall varð hjá bandaríska hernum í átökunum sem stóðu yfir í tólf tíma. 26.7.2007 14:46
Dæmdur fyrir tilraun til manndráps Héraðsdómur Vestfjarða dæmdi í dag Ólaf Þór Guðmundsson í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir tilraun til manndráps með því að hafa skotið að eiginkonu sinni úr haglabyssu á Hnífsdal þann 8. júní síðastliðinn. Að auki var hann dæmdur til að greiða konunni skaðabætur að upphæð 1 milljón króna. Skotið fór í gegnum peysu konunnar við hægri öxl, auk þess sem hún hlaut tvær rispur í andliti. 26.7.2007 14:45
Gefa út bækling til að stuðla gegn hrað- og ölvunarakstri útlendinga Vátryggingarfélag Íslands hefur gefið út bækling fyrir útlenda ökumenn á Íslandi til að stuðla gegn vaxandi hrað- og ölvunarakstri í þeirra hópi. Um 20 prósent þeirra sem kærðir vorur fyrir ölvunarakstur á fyrri hluta þessa árs eru erlendir ríkisborgarar. Bæklingurinn kemur út á fimm tungumálum. 26.7.2007 14:45
Einn æðsti stjórnendi ETA handtekinn Alfredo Perez, innanríkisráðherra Spánar, skýrði frá því í dag að franska lögreglan hefði handtekið einn af æðstu yfirmönnum ETA. aðskilnaðarhreyfingar Baska, Juan Cruz Maiza Artola. Hann og tveir aðrir meðlimir ETA voru handteknir í bænum Rodez. Perez sagði Artola hafa stjórnað flutningum og aðföngum hjá ETA og því augljóst að handtaka hans sé mjög mikilvægur atburður. 26.7.2007 14:16
Esjan brátt snjólaus sjöunda sumarið í röð Allt bendir til þess að snjór hverfi alveg úr suðurhlíðum Esjunnar í sumar og verður það sjöunda árið í röð sem slíkt gerist. Páll Bergþórsson, veðurfræðingur, segir þetta mjög óvenjulegt og aldrei áður hafi snjór horfið úr hlíðum fjallsins svona mörg ár í röð. 26.7.2007 14:12
Atvinnurekendur í Grindavík argir: „Míga inn um bréfalúguna, dingla og spyrja hversu langt þú dreifst“ Innlent