Ferðamenn misstu eigur sínar í eldunum á Ítalíu Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 26. júlí 2007 17:45
Níu hjálparbeiðnir hafa borist til Evrópusambandsins frá löndum í suðaustur Evrópu þar sem skógareldar geisa. Þrír létust í Grikklandi í morgun og ferðamenn þufa að yfirgefa sumarleyfisstaði af völdum eldanna. Íslendingur sem býr á svæðinu er kominn til Íslands og segir ástandið nánast óbærilegt vegna reyks og hita. Hundruð þýskra ferðamanna á Ítalíu eru nú á heimleið eftir að skógareldar gjöreyðilögðu eigur þeirra. Yfir þrjú þúsund manns hafa þurft að flýja heimili sín. Tvö tjaldstæði í Peschini á suðausturhluta Ítalíu urðu fyrir barðinu á eldinum, bílar gjöreyðilögðust, hjólhýsi og tjöld urðu eldinum sömuleiðis að bráð og hundruð íbúa og ferðamanna flýðu niður á strönd. Hundruð þýskra ferðamanna á Ítalíu eru nú á heimleið eftir að skógareldar gjöreyðilögðu eigur þeirra. Yfir þrjú þúsund manns hafa þurft að flýja heimili sín. Tvö tjaldstæði í Peschini á suðausturhluta Ítalíu urðu fyrir barðinu á eldinum, bílar gjöreyðilögðust, hjólhýsi og tjöld urðu eldinum sömuleiðis að bráð og hundruð íbúa og ferðamanna flýðu niður á strönd. Vitni sagði að skyndilega hafi verið ljóst í hvað stefndi og fólk hafi einungis tekið eigur þess sem skipti það mestu, hitt hafi verið skilið eftir. Mest lá á að koma börnum undan og fólkið hélt til strandar. Talsmaður Evrópusambandsins segir að níu hjálparbeiðnir hafi borist frá Búlgaríu, Kýpur, Grikklandi, Ítalíu og fyrrum Júgóslavíu. Ástandið sé sérstaklega slæmt þar sem eldarnir geisi allir á sama tíma. Í Grikklandi hafa svæði við Makedónu orðið verst úti, en þar létust þrír í dag vegna eldanna. Makedónía hefur einnig orðið afar illa úti í eldunum. Auðunn Bjarni Ólafsson hefur búið í Makedóníu í fjórtán ár. Myndirnar sem við sjáum hér eru teknar af heimili hans í Bitola við landamæri Grikklands. Hann segir ástandið hafa verið afar slæmt og atvinnustarfsemi víða lamaða vegna eldanna. Þá hafi íbúar orðið fyrir miklum óþægindum og óviðunandi hafi verið að búa við reyk og hita. Búist er við að hitarnir fari lækkandi fyrir helgina og þá er von um að ástandið batni.
Mest lesið Mölbraut rúðu í Þjóðleikhúsinu Innlent Skutu upp flugeldum í minningu Bryndísi Klöru Innlent Stórhættulegur framúrakstur við Ingólfsfjall Innlent Þétting byggðar hafi ekki slegið í gegn Innlent Grunur um brot gegn fleiri börnum Innlent Algjört hrun í fálkastofninum Innlent Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Innlent Lést við tökur á Emily in Paris Erlent Níu sviptir leyfi meðan á annað hundrað kvartana hafa borist Innlent Nýi brennsluofn göngugarpsins mættur á Sólheima Innlent Fleiri fréttir Lést við tökur á Emily in Paris „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Sjá meira