Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Jón býður Ingibjörgu forsætisráðherrastólinn Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins, býður Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, formanni Samfylkingarinnar, forsætisráðherrastól í ríkisstjórn Framsóknarflokks, Vinstri grænna og Samfylkingarinnar. Í pistli á heimasíðu Framsóknarflokksins sakar hann sjálfstæðismenn um tvöfeldni. 18.5.2007 11:37
Velferðarsjóður barna styður líberísk börn til mennta Velferðarsjóður barna styður starf ABC barnahjálpar í Líberíu um 18 milljónir króna á næstu þremur árum samkvæmt samningi sem undirritaður var í morgun. Þetta er stærsti einstaki styrkur sem ABC barnahjálp hefur hlotið en fjármunirnir fara í uppbyggingu skólastarfs í landinu. 18.5.2007 11:28
Karlmenn hættir að slá konum gullhamra Karlmenn eru orðnir of meðvitaðir um rétta og viðeigandi háttsemi á vinnustöðum. Þeir eru þess vegna mikið til hættir að slá kvenkyns vinnufélögum sínum gullhamra. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem gerð var fyrir framleiðanda Loire Valley hvítvínsins. Um 65 prósent kvenna grunar einnig að á bakvið jákvæða athugasemd karlkyns samstarfsfélaga, eða nýs kunningja, liggi alltaf eitthvað meira. 18.5.2007 11:27
Framsóknarmenn gerðu sömu mistök og Alþýðuflokkurinn Framsóknarflokkurinn hefði strax átt að biðjast lausnar úr ríkisstjórninni eftir að úrslit kosninganna lágu fyrir og koma með því umboði til stjórnarmyndur í hendur Samfylkingarinnar. Þetta kom fram í máli Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrverandi ráðherra og formanns Alþýðuflokksins, á útvarpi Sögu í morgun. Hann segir sjálfstæðimenn orðna sérfræðinga í undirhyggju. 18.5.2007 11:23
Aðgerðir Sea Shepherd ekki líklegar til árangurs Náttúruverndarsamtök Íslands hafa sent Sea Sherpherd samtökunum bréf og ráðið þeim frá því að koma hingað til lands til að reyna að stöðva hvalveiðar í sumar. Í bréfinu segir að slíkar aðgerðir séu ekki líklegar til árangurs og muni aðeins styrkja yfirvöld í að reyna halda lífi í deyjandi atvinnugrein. 18.5.2007 11:15
Ryksuga veitir raðfullnægingar Heimavinnandi bandarísk húsmóðir hefur fundið upp kynlífshjálpartæki sem tengist við ryksugu og veitir fullnægingu á aðeins tíu sekúndum. 18.5.2007 11:11
Forsætisráðherra kominn með stjórnarmyndunarumboð Fundi Geirs H. Haarde forsætisráðherra og Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands er lokið. Geir fékk lausn fyrir núverandi ríkisstjórn. Jafnframt afhenti forsetinn honum umboð til þess að mynda nýja meirihlutastjórn með Samfylkingunni. Forsetinn telur æskilegt að það taki viku til tíu daga til að fá niðurstöðu í málið. 18.5.2007 10:58
Mikil spenna á fundi Rússa og ESB Jose Manuel Barroso forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins varaði Rússa í dag við einingu innan sambandsins. Ef vandamál væru við eitt ríki innan þess, væri það vandamál allra aðildarlandanna. Ummælin lét Barroso falla eftir fund milli ESB og Rússa. Hann sagði einnig að sambandið væri byggt á lögmálum um samstöðu. Fjölda mómælenda var meinaður aðgangur að ráðstefnustaðnum. 18.5.2007 10:45
Innfæddur ameríkani í stað indíána? Svo gæti farið að orð eins og indíáni, eskimói, dvergur og mongólíti verði bannorð í Noregi ef marka má frétt á vef norska ríkisútvarpsins. 18.5.2007 10:34
Varnarsvæðið opnað almenningi Almenningi verður í fyrsta skipti á sunnudaginn boðið upp á heimsækja gömlu herstöðina á Miðnesheiði. Á sama tíma fer fram kynning á þeim áætlunum sem liggja fyrir varðandi framtíðarnýtingu svæðisins. 18.5.2007 10:25
Varað við hreindýrum við vegi á Austurlandi Vegagerðin varar fólk á ferð á Austurlandi við hreindýrum við vegi og biður vegfarendur að fara þar um með gát. Ófært er yfir Hellisheiði eystri, hálka í Oddskarði og hálkublettir á Fjarðarheiði, Möðrudalsöræfum og á Öxi. 18.5.2007 10:03
Byggingarkostnaður lækkar Vísitala byggingarkostnaðar hefur lækkað um 0,03 prósent frá því í apríl samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Á síðastliðnum tólf mánuðum hefur vísitalan hins vegar hækkað um 10,5 prósent. 18.5.2007 10:02
Mikill ís leynist á Mars Bandaríski vísindamaðurinn Joshua Bandfeld telur að stór hluti af yfirborði reikistjörnunnar Mars geti verið þakinn ís. Þetta segist hann hafa fundið út með nýjum greiningaraðferðum. 18.5.2007 10:00
Lentu í árekstri og veittust að ökumanni Harður árekstur varð á áttunda tímanum í kvöld á gatnamótum Hallsvegar og Strandvegar í Reykjavík. Tveir bílar lentu í árekstri og voru fjórir í öðrum bílnum. Ekki er vitað hversu margir farþegar voru í hinum bílnum. Enginn slasaðist alvarlega þó svo að fjarlægja þurfi báða bílana með krana. Eftir áreksturinn veittust mennirnir fjórir, sem voru allir ölvaðir og á tvítugsaldri, að ökumanni hins bílsins. Lögregla var kölluð á staðinn og mennirnir handteknir. 17.5.2007 20:32
Lögreglan fær súrefnisgeyma gegn mengun Lögreglustöðvar í Kalkútta á Indlandi hafa nú allar fengið súrefnisgeyma til þess að hjálpa lögreglunni að takast á við áhrif mengunarinnar í borginni. Umferðarlögreglumenn í borginni koma til með að njóta góðs af þeim en þeir þurfa að standa í einhverri mestu mengun í heimi. 17.5.2007 20:04
Skemmdarverk unnin á Litlu hafmeyjunni Enn einu sinni hefur Litla hafmeyjan í Kaupmannahöfn orðið fyrir barðinu á skemmdarvörgum. Þegar menn fóru á stjá í gær sáu þeir að rauðri málningu hafði verið slett á andlit, brjóst og kjöltu þessa frægasta kennileiti borgarinnar. 17.5.2007 19:45
Syngur um ástir og örlög malískra kvenna Malíska söngdívan Oumou Sangare sem komin er til landsins segir fjölkvæni í Malí fara verst með konur þar í landi. Söngdívan ætlar sér að syngja um ástir og örlög malískra kvenna fyrir íslendinga á tónleikum á Nasa í kvöld. 17.5.2007 19:27
Tekist á um tryggingaverðmæti Eigendur húsanna við Lækjargötu tvö og Austurstræti tuttugu og tvö, takast enn á um verðmæti húsanna við tryggingafélag sitt. Þá liggur ekkert samkomulag fyrir milli borgarinnar og eigendanna um framtíð byggingareitsins. 17.5.2007 19:13
Eldur á Akureyri Eldur kom upp í dekkjahrúgu hjá fyrirtækinu Hringrás við Krossanes á Akureyri í dag. Slökkviliðið á Akureyri náði fljótlega tökum á eldinum. Um mikla aðgerð er að ræða en starfið hefur engu að síður gengið vel. Mikill reykur er af eldinum en hann leggur ekki yfir bæinn þar sem austanátt er ríkjandi. 17.5.2007 19:10
Norðmenn fagna þjóðhátíðardegi sínum Norðmenn héldu þjóðhátíðardag sinn hátíðlegan í dag, 17. maí. Á þessum degi árið 1814 lýsti Noregur yfir sjálfstæði sínu frá Dönum og stjórnarskrá landsins var undirrituð. Dagurinn var haldinn hátíðlegur um allt land. 17.5.2007 19:09
Sagan endurtekur sig Sagan frá vorinu 1995, virðist nú vera að endurtaka sig með afar keimlíkum hætti. Þá skipti Davíð Oddsson Alþýðuflokki út fyrir Framsóknarflokk eftir nokkurra daga viðræður. 17.5.2007 19:07
22 fórust í skotbardaga í Mexíkó Blóðugur skotbardagi átti sér stað í Mexíkó í gær og létu 22 lífið. Hann er sá stærsti síðan að stjórnvöld hófu átak gegn eiturlyfjasölum fyrir fimm mánuðum síðan. Átökin hófust þegar lögreglan í Mexíkó, með stuðningi hermanna, réðust inn á búgarð þar sem allt að 50 vopnaðir vígamenn höfðust við. 17.5.2007 18:55
Var haldið föngnum í 13 ár Suður-afrískur maður hefur verið ákærður fyrir ofbeldi eftir í ljós kom að hann hafði haldið ungum dreng föngnum í lokaðri kompu í 13 ár. Sagt er að drengurinn sé enn í áfalli og að hann þoli illa ljós. Talið er að maðurinn hafi rænt honum þegar hann var aðeins fimm ára gamall. Honum var bjargað eftir að nágrannar höfðu heyrt öskrin í honum. 17.5.2007 18:39
Stjórnarandstaðan í Tyrklandi sameinast Tveir stjórnarandstöðuflokkar í Tyrklandi hafa sameinast um framboð í þingkosningum sem fara fram í landinu þann 22. júlí. Kosningunum var flýtt þar sem ekki náðist samkomulag um forseta landsins. 17.5.2007 18:34
Samkomulag næst um innflytjendalög Öldungadeild bandaríska þingsins og Hvíta húsið hafa náð samkomulagi um innflytjendalöggjöf sem veitir milljónum ólöglegra innflytjenda búseturétt í Bandaríkjunum. 17.5.2007 17:48
Stjórnarmyndunarviðræður hefjast á morgun Fundi Geirs H. Haarde og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur lauk nú fyrir stundu. Þar sögðu þau að samkomulag hefði náðst um að hefja stjórnarmyndunarviðræður. Geir sagði að hann ætli að ganga á fund Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, klukkan ellefu í fyrramálið og biðjast lausnar. Þá ætlar hann einnig að biðja um umboð til stjórnarmyndunar með Samfylkingunni. 17.5.2007 17:11
Einn lést og fjórir særðust Einn lést og fjórir særðust í loftárásum Ísraelshers á Gaza svæðið í dag. Talsmenn sjúkrahúsa á svæðinu skýrðu frá þessu í dag. Þeir sögðu að sá sem hefði látið lífið hefði verið óbreyttur borgari á unglingsaldri. Ísraelski herinn hefur ekki svarað þessum staðhæfingum. 17.5.2007 17:03
Logar í dekkjum á Akureyri Eldur logar nú í dekkjahrúgu hjá fyrirtækinu Hringrás við Krossanes, þar sem loðnubræðslan var einu sinni, í norðurenda bæjarins. Slökkvilið er á staðnum og er að undirbúa slökkvistarf. Búið er að taka hluta af dekkjahrúgunni til hliðar þess að auðvelda slökkvistarf. 17.5.2007 16:33
Ban stefnir að fundi um loftslagsmál Aðalritari Sameinuðu þjóðanna, Ban Ki-Moon, ætlar sér að koma á fundi háttsettra embættismanna á sama tíma og þjóðarleiðtogar hittast og ávarpa allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í september. Ban sagði að alþjóðasamfélagið væri nú betur að sér um umhverfismál og sérstaklega eftir að skýrsla sérfræðinga á vegum Sameinuðu þjóðana kom út. 17.5.2007 16:05
Geir og Ingibjörg ætla að funda í Alþingishúsinu Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Geir H. Haarde hittast í Alþingishúsinu klukkan hálf fimm í dag. Gert er ráð fyrir að formenn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar eigi viðræður um möguleika á að mynda ríkisstjórn eftir að viðræðum sjálfstæðismanna við Framsóknarflokkinn var hætt. 17.5.2007 15:36
Stéttarfélög í Nígeríu boða til verkfalls Stéttarfélög í Nígeríu hafa boðað til tveggja daga verkfalls daganna 28. til 29. maí til þess að mótmæla framkvæmd forsetakosninga sem haldnar voru í landinu þann 21. apríl síðastliðinn. Framkvæmdastjóri stéttarfélaga skýrði frá þessu í dag. 17.5.2007 14:44
Stjórnarsamstarfi slitið - Sjálfstæðisflokkur og Samfylking í viðræður Geir H. Haarde og Jón Sigurðsson tilkynntu sameiginlega niðurstöðu sína í stjórnarráðinu í dag um að þeir hefðu slitið 12 ára stjórnarsamstarfi flokkanna. Þá sagði Geir að hans fyrsti valkostur væri viðræður við Samfylkinguna. Samstaða var á milli flokkanna um að ekki væri grundvöllur fyrir áframhaldandi samstarfi. 17.5.2007 14:31
Búist við yfirlýsingu innan nokkurra mínútna Yfirlýsingar er búist við frá stjórnarflokkunum tveimur eftir nokkrar mínútur. Framsóknarflokkurinn fundaði í dag í rúma þrjá klukkutíma. Strax eftir fundinn fóru Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins, og Guðni Ágústsson, varaformaður flokksins, í stjórnarráðið á fund með Geir H. Haarde. Niðurstaða þeirrar fundar verður væntanlega efni yfirlýsingarinnar. 17.5.2007 14:23
Jón og Guðni funda með Geir H. Haarde Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins og Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins héldu rakleitt á fund forsætisráðherra í stjórnarráðinu að loknum fundi þingmanna Framsóknarflokksins og fleiri í dag. Fundur þeirra stendur enn yfir. 17.5.2007 14:16
Krían komin á Álftanesið Krían er loksins komin á Álftanesið. Hópur af þeim sást á ströndinni þar um hádegisbil og svo virtist sem hann væri þrekaður. Krían sást fyrst í ár þann 22. apríl síðastliðinn. 17.5.2007 14:01
Viðræður við Þjóðverja um varnamál Þýsk sendinefnd kemur hingað til lands í dag til könnunarviðræðna við íslensk stjórnvöld um hugsanlegt varnarsamstarf. Ekki er um formlegar viðræður að ræða heldur ætla Þjóðverjarnir að skoða varnarsvæðið á Miðnesheiði á morgun með tilliti til aðstöðunnar þar. 17.5.2007 14:00
Jón sagði ekkert eftir fund Framsóknarflokks Fundi Framsóknarflokksins lauk nú fyrir stundu. Jón Sigurðsson formaður flokksins vildi ekkert segja við fjölmiðla þegar hann kom út af fundinum. Aðrir ráðherrar sem sátu fundinn vildu ekkert segja við fjölmiðla. 17.5.2007 13:53
Volta rýkur út Volta, nýjasta plata Bjarkar, hefur rokselst víða um heim og er níunda söluhæsta platan í Bandaríkjunum og sjöunda mest selda í Bretlandi, samkvæmt samantekt Morgunblaðsins. Þetta er besti árangurs íslensks tónlistarmanns á bandaríska listanum. 17.5.2007 13:35
Íslandshreyfingin skuldar tæpar 20 milljónir Íslandshreyfingin - lifandi land skuldar hátt í tuttugu milljónir eftir kosningabaráttu sína. Greitt var fyrir auglýsingar og leiguhúsnæði undir kosningamiðstöðvar um allt land. Samkvæmt lögum um fjárreiður stjórnmálasamtaka og frambjóðenda skal árlega úthluta fé úr ríkissjóði til stjórnmálasamtaka sem hlotið hafa að minnsta kosti tvö og hálft prósent atkvæða í kosningum. 17.5.2007 13:33
Dagar Wolfowitz sagðir taldir Enn einn fundurinn verður haldinn í stjórn Alþjóðabankans í dag um örlög bankastjórans Pauls Wolfowitz en flest bendir nú til að hann muni láta af störfum. 17.5.2007 13:16
Barnaníðingar stöðvaðir Lögregla í Frakklandi og Belgíu hefur handtekið þrjá menn sem voru komnir á fremsta hlunn með að ræna belgískri telpu og misþyrma henni. 17.5.2007 13:15
Sýknaður af morði á Miðnesheiði Herdómstóll í Bandaríkjunum sýknaði í gær hermann sem ákærður var fyrir morð á félaga sínum á varnarsvæðinu á Miðnesheiði í ágúst 2005, þrátt fyrir að sterkar vísbendingar væru fyrir sekt hans. 17.5.2007 13:13
Hamas hóta sjálfsmorðsárásum Hamas samtökin hótuðu því í morgun að hefja aftur sjálfsmorðsárásir gegn Ísrael eftir að ísraelski herinn gerði loftárásir á einar af höfuðstöðvum Hamas á Gaza svæðinu í morgun. „Þetta er opinber stríðsyfirlýsing gegn Hamas. Allir möguleikar standa nú opnir og þar á meðal sjálfsmorðsárásir.“ sagði talsmaður Hamas, Abu Ubaida, í dag. 17.5.2007 12:40
Ker áfrýjar til Hæstaréttar Ker hf. sem áður rak olíufélagið Esso hefur áfrýjað máli Sigurðar Hreinssonar húsasmiðs á Húsavík sem hann vann í héraðsdómi, til Hæstaréttar Íslands. Hinn 20. febrúar dæmdi Héraðsdómur Reykjavíkur Ker hf. til að greiða Sigurði 15 þúsund krónur í bætur með vöxtum, en málið tengdist málaferlum vegna verðsamráðs olíufélaganna. 17.5.2007 12:11
Warhol verk fór á 4,5 milljarða Málverk eftir Andy Warhol var selt á 71,7 milljónir dollara á uppboði hjá christie's í New York. Þetta er hæsta verð sem greitt hefur verið fyrir verk eftir Warhol. Í íslenskum krónum er upphæðin um 4,5 milljarðar. 17.5.2007 11:58