Fleiri
Norðurlönd efst í samkeppnisfærni 24.4.2007 16:29 Velferð fyrir alla í beinni á visir.is Bein útsending verður á visir.is frá opnum fundi um velferðarmál sem haldinn verður í kvöld klukkan átta á Grand hótel. „Velferð fyrir alla“ er yfirskrift fundarins. 24.4.2007 16:20 BBC maður við góða heilsu Fréttamaður BBC sjónvarpsstöðvarinnar, sem rænt var á Gaza ströndinni í síðasta mánuði er við góða heilsu, að sögn aðstoðarforsætisráðherra Palestínumanna. Alan Johnston var rænt þar sem hann var á ferð í bíl sínum 12. mars síðastliðinn. Hann hafði flutt fréttir frá Miðausturlöndum í þrjú ár. 24.4.2007 16:15 Dagur umhverfisins - hrein orka og loftslagsmál Dagur umhverfisins verður haldinn hátíðlegur í níunda sinn á morgun. Að þessu sinni er hann tileinkaður hreinni orku og loftslagsmálum. Í tilefni dagsins verður samkoma á Kjarvalsstöðum í hádeginu. Þar verða meðal annars veittar viðukenningar í verkefnasamkeppni grunnskólanna, Varðliðum umhverfisins. 24.4.2007 15:40 Vinnueftirlitið lokaði aðrennslisgöngum Kárahnjúka Vinnueftirlitið hefur stöðvað vinnu í aðrennslisgöngum Kárahnjúkavirkjunar vegna loftmengunar í göngunum, og hefur þeim verið lokað. Í tvígang í síðustu viku komu menn úr göngunum með veruleg eitrunareinkenni vegna eiturefna í loftinu; fjórir menn í hvort skipti. Vegna ólofts glíma menn við andþyngsli og asma. 24.4.2007 15:36 Slæmar fréttir fyrir Súpermann Nýtt steinefni hefur fundist í námu í Serbíu sem hefur samskonar efnasamsetningu og grænu Kryptónít kristallarnir úr kvikmyndinni „Superman Returns“. 24.4.2007 14:59 Amtsbókasafnið á Akureyri 180 ára Amtsbókasafnið á Akureyri er 180 ára á morgun. Í tilefni þess verður boðið upp á ýmislegt góðgæti, útlán verða frí auk þess sem morgundagurinn verður sektarlaus dagur. Amtbókasafnið var stofnað árið 1827 af Grími Jónssyni amtmanni á Möðruvöllum. Hann fékk dyggan stuðning frá ýmsum aðilum bæði hérlendis og í Danmörku. 24.4.2007 14:28 Hamas gerir árás -aflýsir vopnahléi Hamas samtökin skutu í dag 30 eldflaugum og 60 vörpusprengjum á Ísrael, frá Gaza ströndinni. Jafnframt lýsti einn talsmanna þeirra því yfir að fimm mánaða vopnahléi væri lokið. Heimastjórn Palestínumanna hvatti hinsvegar til þess að staðið væri við vopnahléið. 24.4.2007 14:02 Safe at Last 24.4.2007 14:01 Sjá næstu 50 fréttir
Ný eyja fannst við strendur Grænlands Ný eyja er fundin við austurströnd Grænlands. Hún er margra kílómetra löng og er í laginu eins og hönd með þrjá fingur. Eyjan er um 640 kílómetra norðan við heimskautsbaug. Hún er komin í ljós vegna bráðnunar grænlensku íshellunnar. 25.4.2007 11:14
Ríkið styður sjúkraþjálfun á hestbaki Tryggingastofnun ríkisins mun framvegis taka þátt í kostnaði við sjúkraþjálfun á hestbaki fyrir fólk sem er með skaða í miðtaugakerfi eftir að heilbrigðisráðherra undirritaði reglugerð þessa efnis. 25.4.2007 11:06
Nunnur myrtar fyrir fjársjóð Lögregla í suðurhluta Grikklands leitar nú morðingja tveggja eldri nunna sem voru myrtar í klaustri sínu. Rán á munum úr klaustrinu virðist liggja að baki morðunum. Meðal þess sem hvarf var viðarbútur sem talinn er vera úr krossinum sem Jesú var krossfestur á. 25.4.2007 11:04
Krefjast þess að Johnston verði sleppt Tugir erlendra og palestínskra blaðamanna söfnuðust í dag saman á landmærum Ísraels og Gasasvæðisins til þess að krefjast þess að Alan Johnston, blaðmanni BBC, yrði sleppt. 25.4.2007 10:52
Samið við Norðmenn án samráðs við þjóðina Samningar við erlend ríki um varnaraðstoð er ekkert smámál sem ber að afgreiða á nokkrum dögum að mati formanns Samtaka herstöðvaandstæðinga. Hann segir nauðsynlegt að þjóðinni sé gefinn kostur að ræða innihald og efni varnarsamningsins við Noreg áður en hann er undirritaður. 25.4.2007 10:50
Kirkjan ekki golfvöllur heldur íslenskur úthagi Herra Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, sagði í yfirlitsræðu sinni á Prestastefnu á Húsavík að kirkjan væri ekki golfvöllur heldur eins og íslenskur úthagi þar sem rými væri fyrir fjölbreyttar skoðanir. Lét hann þau orð falla í tengslum við umfjöllun um staðfesta samvist fyrir samkynhneigða. 25.4.2007 10:36
Konum að kenna ef þeim er nauðgað Annar hver norskur karlmaður er þeirrar skoðurnar að ef léttklædd kona daðrar opinskátt við mann, sé það henni sjálfri að kenna ef henni er nauðgað. Þetta kemur fram í könnun sem Amnesty International gerði í landinu. Jens Stoltenberg, forsætisráðherra, er sleginn yfir þessum tölum. 25.4.2007 10:28
Borís Jeltsín borinn til grafar Útför Borísar Jeltsíns, fyrrverandi forseta Rússlands, fór fram í Moskvu í morgun að viðstöddum fjölmörgum þjóðarleiðtogum fyrr og nú. 25.4.2007 09:58
Ný súper-stjarna finnst í geimnum Stjörnufræðingar hafa fundið plánetu utan við sólkerfi okkar sem líkist jörðinni mest annarra hnatta. Talið er að vatn geti verið á yfirborði hennar. Plánetan er á sporbraut við stjörnuna Gliese 581, sem er 20,5 ljósár í burtu í stjörnumerki Vogarinnar. Vísindamenn áætla að hitastig á plánetunni sé á milli 0-40 stig á celsíus. 25.4.2007 09:58
Fóstureyðingar heimilaðar í Mexíkóborg Löggjafaryfirvöld í Mexíkóborg samþykktu í dag að heimila fóstureyðingar í borginni og nær það til fyrstu tólf vikna meðgöngu hjá konum. 46 þingmenn studdu frumvarp þessa efnis en 19 voru andsnúnir því. 24.4.2007 23:30
Prestastefna sett á Húsavík í kvöld Prestastefna var sett með formlegum hætti á Húsavík í kvöld. Gengu prestar hempuklæddir frá Fosshótelinu á Húsavík að Húsavíkurkirkju þar sem dr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir predikaði. 24.4.2007 23:00
Kanadískt ungmenni ákært fyrir hryðjuverk Bandaríkjaher hefur ákært tvítugan Kanadamann, Omar Khadr, fyrir meðal annars morð og hryðjuverkastarfsemi og verður hann dreginn fyrir sérstakan stríðsglæpadómstól sem Bandaríkjastjórn kom á í Guantánamo-búðunum við Kúbu í fyrra. 24.4.2007 22:39
Cheney deilir hart á demókrata vegna Íraksfrumvarps George Bush Bandaríkjaforseti og Dick Cheney varaforseti skiptust á hörðum skotum við demókrata í dag í tengslum við frumvarp um aukafjárveitingu fyrir Íraksstríðið. 24.4.2007 22:21
Fimmtán látnir eftir sjálfsmorðsárás í Ramadi Fimmtán hið minnsta eru sagðir látnir og 25 særðir eftir sjálfsmorðsárás manns í útjaðri Ramadi í Írak í dag. Maður á stórum flutningabíl sprengdi sig í loft upp þegar lögregla í eftirlitsferð átti leið hjá markaði í norðurhluta borgarinnar. 24.4.2007 21:52
Sammála um að einfalda þurfi almannatryggingakerfið Fulltrúar allra stjórnmálaflokka voru sammála um það á fundi um velferðarmál í kvöld að einfalda þyrfti almannatryggingakerfið og gera það aðgengilegra notendum þess. 24.4.2007 21:33
Rooney hetja Manchester United gegn Milan Wayne Rooney var hetja Manchester United sem lagði AC Milan 3-2 í fyrri leik undanúrslita í Meistaradeild Evrópu á Old Trafford í kvöld. Rooney tryggði United sigur með marki þegar hálf mínúta var komin fram yfir venjlegan leiktíma. 24.4.2007 20:45
Myrtu yfir 70 manns á olíuvinnslusvæði í Eþíópíu Uppreisnarmenn í Eþíópíu myrtu í dag að minnsta kosti 74 menn í árás á olíuvinnslusvæði nærri landamærum Sómalíu. 65 þeirra voru Eþíópíumenn en níu kínverskir verkamenn. Þá voru sjö Kínverjar teknir í gíslingu í árásinni. 24.4.2007 20:30
Hundruð manna votta Jeltsín virðingu sína Hundruð manna hafa lagt leið sína Frelsarakirkjuna í Moskvu í dag þar sem lík Borisar Jeltsín, fyrrverandi Rússlandsforseta, hefur staðið uppi á viðhafnarbörum. 24.4.2007 20:00
Eltu uppi bílþjóf í Ölfusi Lögreglan á Selfossi veitti í morgun manni eftirför sem stolið hafði sendibíl í Keflavík í nótt. Eftir því sem segir í tilkynningu frá lögreglu var hún að svipast um eftir bílnum í sínu umdæmi og mættu lögreglumenn honum á Krísuvíkuvegir í Selvogi. 24.4.2007 19:53
Þurfum að passa upp á sama heimilið, jörðina Það er sama hvar við staðsetjum okkur á pólitíska litrófinu, á endanum þurfum við að passa upp á sama heimilið, jörðina. Þetta segir Orri Vigfússon sem í gærkvöldi tók við hinum virtu Goldman-verðlaunum fyrir baráttu sína til verndar villtum laxi í Atlantshafinu. 24.4.2007 19:45
Kosningafundur um velferðarmál Fulltrúar stjórnmálaflokkanna sátu fyrir svörum á opnum fundi um velferðarmál sem hófst klukkan 20 á Grand-hóteli. Bein útsending var frá fundinum á Vísi. 24.4.2007 19:35
Segir fátt koma í veg fyrir álver í Helguvík Fátt kemur í veg fyrir byggingu álvers í Helguvík eftir undirritun orkusamnings í gær segir bæjarstjórinn í Reykjanesbæ. En álversandstæðingar Sólar á Suðurnesjum eru á öðru máli. 24.4.2007 19:27
Stóru flokkarnir einhuga í skólamálum Starfs- og iðnnám verður hafið til vegs og virðingar og jafnréttiskennsla tekin upp í skólum á næstu árum, ef marka má afstöðu allra flokka, nema Frjálslynda flokksins, til skólamála. Flokkarnir eru flestir sammála um að sporna þurfi við brottfalli íslenskra og erlendra nemenda úr framhaldsskólum. 24.4.2007 19:15
ABC berast milljónir eftir umfjöllun Kompáss ABC bjarnahjálpinni hafa borist milljónir í fjárstuðning og aðstoð eftir að fréttaskýringaþátturinn Kompás á Stöð 2 fjallaði um starf samtakanna í Kenýa á sunnudagskvöld. 24.4.2007 19:00
Misáberandi frambjóðendur í baráttunni Það var setið í hverju sæti í Litlu kaffistofunni í hádeginu þegar Árni Johnsen, frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, og Bjarni Harðarson, frambjóðandi Framsóknarflokksins í kjördæminu, héldu þar kosningafund. 24.4.2007 18:45
Svíar gefa Íslendingum 800 fornmuni Svíar hafa ákveðið að afhenda Íslendingum til eignar hunduð fornmuna sem nú eru í geymslu í Norræna safninu í Stokkhólmi. Munirnir verða í framtíðinni geymdir í Þjóðminjasafni Íslands. 24.4.2007 18:45
Ósamræmi í þjóðhagsspám fjármálaráðuneytis og Seðlabanka Töluvert ósamræmi er í nýrri þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins og í spám Seðlabanka Íslands um horfur í efnahagsmálum. Seðlabankinn er svartsýnni á efnahagshorfur en fjármálaráðuneytið, sem spáir því að verðbólga lækki hratt á næstu mánuðum og að verulega dragi úr viðskiptahalla. 24.4.2007 18:30
Samið við Dani og Norðmenn, enn rætt við Breta og Kanadamenn Samningar um samstarf Íslendinga við Dani og Norðmenn í varnar- og öryggismálum á friðartímum verða undirritaðir á fimmtudaginn á NATO fundi í Ósló. Ekki fæst gefið upp hvað felst í þeim fyrr en eftir undirritun. Utanríkisráðherra segir Breta og Kanadamenn einnig áhugasama um samstarf en einhverjar vikur eða mánuði taki að ljúka samningum við þá. 24.4.2007 18:30
Skilorðsbundið fangelsi fyrir vörslu amfetamíns Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjaness í dag dæmdur í níu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir vörslu rúmlega 40 gramma af amfetamíni, en efnið fannst í bíl hans við leit lögreglu í september í fyrra. 24.4.2007 18:16
Lygi að matarskortur sé á Kárahnjúkum Verkamennirnir fjörutíu á Kárahnjúkum sem fengu magakveisu fyrir helgi hafa náð sér, segir Ómar R. Valdimarsson, talsmaður Impregilos. Hann segir ummæli fyrrum starfsmanns um að mennirnir hafi unnið tólf tíma samfleytt neðanjarðar án matar eða drykkjar í besta falli ósönn en í versta falli hreinar lygar. 24.4.2007 18:16
Kærir Ísland í dag vegna umfjöllunar um aðbúnað verkamanna Fyrirtækið Húsaleiga ehf. fól í dag lögmanni sínum að leggja fram kæru á hendur forsvarsmönnum Íslands í dag vegna umfjöllunar þáttarins um aðbúnað erlendra verkamanna á Íslandi. 24.4.2007 17:55
Fjögurra mánaða fangelsi fyrir gáleysislegan akstur Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt Pólverja í fjögurra mánaða fangelsi, þar af þrjá skilorðsbundna, og svipt hann ökuleyfi í þrjú ár fyrir að aka bíl undir áhrifum áfengis en bíllinn endaði á steinblokkum skammt frá IKEA-versluninni í Garðabæ og lést farþegi í bílnum við það. 24.4.2007 17:38
Færri umferðaróhöpp vegna umferðaröryggisviku? Átján umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á síðasta sólarhring og segir lögregla það með minnsta móti. Óhöppin voru nær öll minni háttar og ekki er vitað um nein teljandi meiðsli á fólki. 24.4.2007 17:18
Fimm ára útlegð fyrir rangan klæðaburð Yfirsaksóknarinn í Teheran sagði í dag að konur sem ekki klæddu sig siðsamlega verði gerðar útlægar frá höfuðborginni í fimm ár. Eftir múslimabyltinguna sem gerð var í Íran árið 1979 voru sett sharía lög sem kveða á um að konur skuli hylja hár sitt og klæðast síðum víðum flíkum til þess að hylja kvenleika sinn. 24.4.2007 17:04
Nokkuð um innbrot í gær Sex innbrot voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Að sögn lögreglu var farið inn á þrjú heimili í austurborginni og eitt í Breiðholti en mismiklu var stolið. Á síðastnefnda staðnum var lyfjum meðal annars stolið en í austurborginni hurfu ferðatölva og myndavél á einum stað og sparibaukur á öðrum 24.4.2007 16:57
Hjóluðu 172 hringi í kringum landið Fyrirtækjakeppnin „Hjólað í vinnuna“ fer fram um land allt dagana 2.-22. maí. Þetta er fimmta árið sem hvatningarverkefnið fer fram, en þáttakan hefur tífaldast á tímabilinu. Í fyrra voru farnir rúmlega 230 þúsund kílómetrar. Það samsvarar 172 hringjum í kringum landið eða tæplega sex hringjum í kringum hnöttinn. 24.4.2007 16:40
Velferð fyrir alla í beinni á visir.is Bein útsending verður á visir.is frá opnum fundi um velferðarmál sem haldinn verður í kvöld klukkan átta á Grand hótel. „Velferð fyrir alla“ er yfirskrift fundarins. 24.4.2007 16:20
BBC maður við góða heilsu Fréttamaður BBC sjónvarpsstöðvarinnar, sem rænt var á Gaza ströndinni í síðasta mánuði er við góða heilsu, að sögn aðstoðarforsætisráðherra Palestínumanna. Alan Johnston var rænt þar sem hann var á ferð í bíl sínum 12. mars síðastliðinn. Hann hafði flutt fréttir frá Miðausturlöndum í þrjú ár. 24.4.2007 16:15
Dagur umhverfisins - hrein orka og loftslagsmál Dagur umhverfisins verður haldinn hátíðlegur í níunda sinn á morgun. Að þessu sinni er hann tileinkaður hreinni orku og loftslagsmálum. Í tilefni dagsins verður samkoma á Kjarvalsstöðum í hádeginu. Þar verða meðal annars veittar viðukenningar í verkefnasamkeppni grunnskólanna, Varðliðum umhverfisins. 24.4.2007 15:40
Vinnueftirlitið lokaði aðrennslisgöngum Kárahnjúka Vinnueftirlitið hefur stöðvað vinnu í aðrennslisgöngum Kárahnjúkavirkjunar vegna loftmengunar í göngunum, og hefur þeim verið lokað. Í tvígang í síðustu viku komu menn úr göngunum með veruleg eitrunareinkenni vegna eiturefna í loftinu; fjórir menn í hvort skipti. Vegna ólofts glíma menn við andþyngsli og asma. 24.4.2007 15:36
Slæmar fréttir fyrir Súpermann Nýtt steinefni hefur fundist í námu í Serbíu sem hefur samskonar efnasamsetningu og grænu Kryptónít kristallarnir úr kvikmyndinni „Superman Returns“. 24.4.2007 14:59
Amtsbókasafnið á Akureyri 180 ára Amtsbókasafnið á Akureyri er 180 ára á morgun. Í tilefni þess verður boðið upp á ýmislegt góðgæti, útlán verða frí auk þess sem morgundagurinn verður sektarlaus dagur. Amtbókasafnið var stofnað árið 1827 af Grími Jónssyni amtmanni á Möðruvöllum. Hann fékk dyggan stuðning frá ýmsum aðilum bæði hérlendis og í Danmörku. 24.4.2007 14:28
Hamas gerir árás -aflýsir vopnahléi Hamas samtökin skutu í dag 30 eldflaugum og 60 vörpusprengjum á Ísrael, frá Gaza ströndinni. Jafnframt lýsti einn talsmanna þeirra því yfir að fimm mánaða vopnahléi væri lokið. Heimastjórn Palestínumanna hvatti hinsvegar til þess að staðið væri við vopnahléið. 24.4.2007 14:02