Fleiri
Ashley Turner update 16.4.2007 14:55 Útiloka stuðninssamning til að sigra Sarkozy Bæði Segolene Royal, frambjóðandi sósíalista í frönsku forsetakosningunum, og Francois Bayrou, frambjóðandi miðjumanna, útiloka á þessum tímapunkti að gera einhvers konar samning sín á milli um gagnkvæman stuðning til að sigra Nicolas Sarkozy, forsetaframbjóðanda hægri manna. 16.4.2007 14:53 Sjá næstu 50 fréttir
Byssumaðurinn var asískur nemandi í skólanum Forseti skólans hefur staðfest að byssumaðurinn var asískur karlmaður sem var við nám í skólanum. Hann bjó á einni af heimavistum skólans. Blaðið Chicago Sun-Times sagði hann hafa verið kínverskan og að hann hafi ekki verið tengdur hryðjuverkahópum. Vitni í heimavistinni sögðu manninn hafa gengið á milli herbergja í leit að fyrrverandi kærustu sinni. Lögreglan hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir viðbrögð sín við árásinni. 17.4.2007 10:51
James Bond er látinn Fyrsti leikarinn sem lék njósnarann James Bond er látinn, 89 ára gamall. Barry Nelson lék 007 í sjónvarpsútgáfu af Casino Royal árið 1954. Það var átta árum áður en Sean Connery kom til sögunnar í Dr. No. Barry Nelson var á samningi hjá MGM á fjórða og fimmta áratug síðustu aldar. Þá söðlaði hann um og lék mest í á sviði eftir það. 17.4.2007 10:46
Fyrsta Boeing-vél Primera til landsins í dag Fyrsta þotan af fimm sem flugfélagið Primera Air ætlar að kaupa kemur til Íslands í dag og verður frumsýnd á Reykjavíkurflugvelli klukkan tvö. Vélin er af gerðinni Boeing 737-800 og er þriggja ára gömul. Bráðlega koma tvær vélar af sömu gerð til viðbótar, beint frá verksmiðjum Boeing í Bandaríkjunum. 17.4.2007 10:42
Skilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnaði Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag 19 ára pilt í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi og til ríflega 30 þúsund króna sektar fyrir þjófnaði og tilraun til þjófnaðar. Þá var jafnaldri piltsins dæmdur til að greiða 100 þúsund krónur í sekt fyrir líkamsárás og vörslu fíkniefna. 17.4.2007 10:42
Þýski liðþjálfinn rekinn með skömm Þýski liðþjálfinn sem skipaði svo fyrir að hermenn í æfingabúðum hjá sér myndu ímynda sér sem svo að þeir væru að skjóta á blökkumenn í Bronx hverfi Bandaríkjanna var rekinn með skömm. Liðþjálfinn lét hermenn ímynda sér að blökkumennirnir hefðu móðgað mömmu þeirra og það eina sem þeir gætu gert væri að skjóta þá. 17.4.2007 10:17
Nakin Moss á milljónir Búist er við tilboðum upp á milljónir króna þegar áður óbirtar ljósmyndir af fyrirsætunni Kate Moss verða seldar á uppboði hjá Christies uppboðshúsinu í lok maí. Meðal þeirra eru tvö nektarportrett. Annað þeirra tók hinn heimsfrægi ljósmyndari Irwin Penn árið 1996. Hitt tók Albert Watson, annar frægur ljósmyndari. 17.4.2007 10:15
Starfsmenn Berlingske snúa aftur til vinnu Starfsmenn á danska dagblaðinu Berlingske Tidende ákváðu í morgun að snúa aftur til vinnu en þeir lögðu niður vinnu í gær til þess að mótmæla sparnað í rekstri blaðsins. 17.4.2007 10:12
Knútur lasinn Hvítabjörnshúninum heimsþekkta Knúti líður ekki sem best þessa dagana og var færður inn frá sýningarsvæði sínu í dýragarðinum Berlín í gær. 17.4.2007 09:48
100 lögreglumenn handteknir í Mexíkó Hermenn í Mexíkó handtóku í kvöld fleiri en 100 lögreglumenn í aðgerðum sem miða að því ráða niðurlögum voldugra eiturlyfjahringja og lögreglumanna sem eru á launaskrá hjá þeim. Herinn gerði áhlaup á lögreglustöðvar víðsvegar í norðurhluta Mexíkó og fylkinu Nuevo Leon. Þar hafa margar aftökur, sem tengdar eru valdabaráttu eiturlyfjahringja, átt sér stað á síðastliðnu ári. 16.4.2007 23:09
Héðinn og Jón Viktor í 2.-4. sæti Alþjóðlegu meistararnir Héðinn Steingrímsson (2482) og Jón Viktor Gunnarsson (2406) eru í 2.-4. sæti, með 4,5 vinning, að lokinni 6. umferð Reykjavík International - Minningarmótsins um Þráin Guðmundsson, sem fram fór í kvöld í skákhöllinni Faxafeni. 16.4.2007 22:36
KR Íslandsmeistari KR tryggði sér í kvöld Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta eftir dramatískan 83-81 sigur á Njarðvík í framlengdum fjórða leik liðanna í vesturbænum . KR hafði aldrei forystu í venjulegum leiktíma, en hafði betur frá fyrstu mínútu í framlengingunni og vann því einvígið 3-1. 16.4.2007 22:07
Framtíðarlandið segir álverin hefta útrás orkuiðnaðar Framtíðarlandið sendi í kvöld frá sér fréttatilkynningu þar sem því er mótmælt að samningar við alþjóðleg álfyrirtæki séu að styrkja íslenskan orkuiðnað. 16.4.2007 21:56
Framlengt í vesturbænum Leikur KR og Njarðvíkur hefur verið framlengdur eftir að Jeremiah Sola jafnaði fyrir KR 73-73 um leið og lokaflautið gall. KR-ingar höfðu aldrei forystu í leiknum en náðu að knýja framlengingu eftir að Njarðvíkingar höfðu verið yfir allan leikinn. 16.4.2007 21:52
Royal saxar á Sarkozy Nicolas Sarkozy, frambjóðandi hægri manna í forsetakosningunum í Frakklandi, hefur tapað forskoti sínu á Segolene Royal, frambjóðanda sósíalista. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun sem sýnir að ef þau fara í aðra umferð skiptist atkvæðin jafnt á milli þeirra. Könnunin var í dagblaðinu Le Parisien. 16.4.2007 21:12
Njarðvík yfir í hálfleik Njarðvík leiðir í hálfleik í viðureign sinni við KR, 39 - 44. Njarðvík leiddi allan fyrri hálfleik en KR-ingarnir fóru að sækja í sig veðrið eftir rólega byrjun. Umgjörðin í kringum leikinn er glæsileg og gríðarleg stemning er í húsinu. 16.4.2007 20:50
33 létu lífið í skotárásunum í Virginíu 33 létust, þar á meðal byssumaðurinn, í skotárásunum í tækniháskólanum í Virginíu í dag. Forseti skólans sagði frá því á fréttamannafundi sem fram fór í kvöld og var í beinni útsendingu hér á Vísi. Aldrei áður hafa jafnmargir látið lífið í skotárás á skólalóð í sögu Bandaríkjanna. 16.4.2007 20:37
Bush harmar fjöldamorðið í Virginíu George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, staðfesti í kvöld að fleiri en 30 hefðu látið lífið í skotárásinni í tækniháskólanum í Virginíu í dag. Í ávarpi sem hann hélt í kvöld sagðist hann vera harmi sleginn vegna atburðarins. Hann sagði jafnframt að stjórnvöld myndu reyna að aðstoða á alla mögulega vegu. 16.4.2007 19:57
Slökktu á öryggiskerfi Slökkt hafði verið á öryggiskerfi, sem átti að koma í veg fyrir að námuverkamenn myndi vinna við hættulegar aðstæður, áður en gassprenging varð í rússneskri námu með þeim afleiðingum að fleiri en 100 verkamenn létu lífið. Vinnueftirlit rússneska ríkisins skýrði frá þessu í dag. 16.4.2007 19:56
Fimm þúsund kanínur á hraðbrautinni Umferð um fjölförnustu hraðbraut Ungverjalands stöðvaðist í margar klukkustundir í dag þegar bíll með fimm þúsund kanínur innanborðs lenti í árekstri og valt um koll. Allar kanínurnar sluppu úr búrum sínum og hlupu eins og fætur toguðu út á þjóðveginn. 16.4.2007 19:30
Hafísinn enn á sömu slóðum Hafís er nú 27 sjómílur norðaustur af Horni. Hafísinn hefur ekki breyst mikið síðan að Landhelgisgæslan fór síðast í ískönnunarflug en það var 12. apríl síðastliðinn. 16.4.2007 19:26
Alcan fundaði með iðnaðarráðherra og Landsvirkjun Wolfgang Stiller, stjórnarformaður Alcan á Íslandi, og Rannveig Rist forstjóri funduðu í dag með iðnaðarráðherra og ráðamönnum Landsvirkjunar um stöðu mála eftir álverskosninguna í Hafnarfirði. Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra neitar að ræða um það hvort til greina komi að Alcan fái Keilisnes undir nýtt álver. 16.4.2007 19:04
Krefjast framsals Beresovskís Rússnesk yfirvöld hafa óskað eftir því við bresku ríkisstjórnina að þau framselji auðkýfinginn Boris Berezovskí vegna áforma hans um að steypa Vladimír Pútín af stóli. 16.4.2007 19:00
Heyrnarmælingar nýbura hafnar Heyrnarmælingar nýbura á Landspítalanum hófust fyrir skömmu og er þetta í fyrsta skipti sem slíkar mælingar fara fram hér á landi. Með þessu er hægt að greina heyrnarskert börn miklu fyrr sem skiptir sköpum fyrir málþroska þeirra. Tuttugu börn að meðaltali mælast heyrnarskert eða heyrnarlaus á hverju ári. 16.4.2007 18:59
Kveikir í skónum á íslenskri bloggsíðu Íslenskur strákur leikur sér að því að kveikja ítrekað í skónum sínum í myndbandi á íslenskri bloggsíðu. Hann er hvattur áfram af lesendum. Forstöðumaður Forvarnarhúss segir fylgni á milli slíkra áhættuleikja og sýningu þátta á borð við Strákana. 16.4.2007 18:58
Krefjast 10 milljóna króna í skaðabætur Skipuleggjendur klámráðstefnunnar, sem átti að halda hér á landi krefja Hótel Sögu um rúmlega 10 milljónir króna í skaðabætur fyrir að meina þeim um gistingu. Náist ekki samningar milli hótelsins og skipuleggjenda verður málið rekið fyrir dómstólum. 16.4.2007 18:57
Grænt ljós á samgöngumiðstöð Samgönguráðherra hefur falið Flugstoðum að hefja undirbúning að smíði samgöngumiðstöðvar á Reykjavíkurflugvelli. Ráðherra segir niðurstöðu nefndar um flugvöllinn vera þá að þjóðhagslega hagkvæmt kunni að vera að gera nýjan flugvöll á Hólmsheiði eða Lönguskerjum en fyrst þurfi fjögurra ára rannsóknir á flugtæknilegum þáttum. 16.4.2007 18:49
Gaf út ábyrgð fyrir 13,1 milljarða króna Fyrrverandi framkvæmdastjóri Verðbréfaþjónustu sparisjóðanna gaf út ábyrgðaryfirlýsingu upp á 13,1 milljarð króna. Eitt af því sem efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra rannsakar er hvort einn eða fleiri Íslendingar tengist bandarísku fyrirtæki sem ábyrgðin var gefin út til. 16.4.2007 18:30
Framsókn tapar fimm kjördæmakjörnum þingmönnum á landsbyggðinni Framsóknarflokkurinn tapar fimm af átta kjördæmakjörnum þingmönnum sínum á landsbyggðinni, samkvæmt samanlögðum könnunum Stöðvar tvö í landsbyggðarkjördæmunum. Sjálfstæðisflokkurinn stendur í stað en Vinstri grænir bæta við sig fjórum. 16.4.2007 18:30
Sex mánaða drengur lenti næstum í aurflóði Sex mánaða gamall drengur var hársbreidd frá því að lenda í aurflóði á Sauðárkóki í gær. Sum hús eru illa farin eða ónýt eftir hamfarirnar en hreinsunarstarf gengur vel. 16.4.2007 18:30
Kolviði hleypt af stokkunum í dag Umhverfisverkefninu Kolviði var formlega hleypt af stokkunum í Þjóðminjasafninu í dag. Það á að gera Íslendingum kleyft að jafna útblástur samgöngutækja sinna með skógrækt. Að verkefninu standa íslenska ríkið, Kaupþing og Orkuveita Reykjavíkur. 16.4.2007 18:30
N4 ætlar að leita réttar síns vegna N1 N4, norðlenskt fjölmiðlafyrirtæki, kannar nú réttarstöðu sína vegna nafns og firmamerkis N1. Í fréttatilkynningu frá N4 segir að nafn og firmamerki N1 sé sláandi líkt merki og nafni N4 og að líkindin geti ruglað neytendur. Þar að auki muni N4 brátt hefja dreifingar á N4 sjónvarpi á landsvísu og því sé ljóst að firmamerkin verði afar áberandi um allt land. 16.4.2007 17:50
Ölvaður á bíl með þýfi Tuttugu og einn ökumaður var tekinn fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Tíu voru stöðvaðir á laugardag og jafnmargir á sunnudag og einn í nótt. 16.4.2007 17:04
Fangelsi og sekt fyrir skatta- og hegningarlagabrot Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag fyrrverandi framkvæmdastjóra tveggja félaga í hálfs árs fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár, fyrir brot gegn lögum um virðisaukaskatt, staðgreiðslu opinberra gjalda og almennum hegningarlögum. 16.4.2007 16:59
Dæma konur öðruvísi en karlar ? Konum hefur fjölgað mjög í embættum dómara, í Danmörku. Þær eru rúmlega helmingur dómara landsins. Og menn hafa að sjálfsögðu tekið umræðuna um hvort þær dæmi öðruvísi en karlmenn. Kemur varla á óvart að þar eru ekki allir á einu máli. Kynjafræðingurinn Kenneth Reinicke við háskólann í Hróarskeldu, segir í viðtali við danska blaðið Nyhedsavisen að það sé alls ekki hægt að útiloka það. 16.4.2007 16:44
Dæmdir fyrir stórfellda líkamsárás og íkveikju Þrír karlmenn voru dæmdir í 9 til 24 mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir meðal annars húsbrot, þjófnað og stórfellda líkamsárás. Einn þeirra skaut úr haglabyssu inn um eldhúsglugga í Hafnarfirði á síðasta ári og særði mann. 16.4.2007 16:23
32 látnir eftir skotárás í bandarískum háskóla Byssumaður skaut 31 til bana og lét lífið sjálfur í skotárás í Virgina-tækniháskólanum í Blacksburg í Virginiuríki í Bandaríkjunum í dag. Um 20 manns eru á spítala með skotsár. Talið er að maðurinn hafi verið einn að verki, en hafi gert tvær árásir, eina í kennslustofu og hina á heimavist. Dagmar Kristín Hannesdóttir, sem er í doktorsnámi í sálfræði við háskólann, segir að alger skelfing hafi gripið um sig í skólanum þegar ljóst varð hversu margir voru drepnir. 16.4.2007 16:09
Metþátttaka í golfsýningu Vel á annað hundrað sýnendur hafa boðað þátttöku sína á golfsýningu sem fram fer í Fífunni í Kópavogi næstu helgi. Er þetta ein stærsta sýning í tengslum við golf sem haldin hefur verið hér á landi. 16.4.2007 16:05
Sendinefnd á leið til Kaliforníu Sólveig Pétursdóttir, forseti Alþingis, og eiginmaður hennar, Kristinn Björnsson, heimsækja næstu daga Kaliforníu í boði efri deildar fylkisþings Kaliforníu. 16.4.2007 15:52
Sæll, þetta er....aaaghhh Skelfing greip um sig í Afganistan, í dag, þegar þær fregnir fóru sem eldur í sinu að verið væri að breiða út banvænan vírus í gegnum farsíma. Margir hringdu í ættingja sína og vini og vöruðu þá við að svara í símann, ef hringt væri úr ókunnu númeri. Líkur væru góðar á því að það væri dreifari hins voðalega víruss. 16.4.2007 15:47
Samræmd próf burt og fræðsluskylda til 18 ára aldurs Starfshópur menntamálaráðherra sem falið var að fara yfir skipulag náms og námsframboðs leggur til að samræmd próf verði lögð niður og að gjaldfrjáls fræðsluskylda verði til 18 ára aldurs. 16.4.2007 15:35
Mistök að leyfa sjóliðum að selja sögu sína Varnarmálaráðherra Bretlands hefur viðurkennt að það hafi verið mistök að leyfa sjóliðunum sem Íranar handtóku, að selja fjölmiðlum sögu sína. Des Brown tók fulla á byrgð á þeirri ákvörðun, sem var harðlega gagnrýnd, bæði á þingi meðal almennings. Salan var talin móðgun við breska hermenn sem hafa látið lífið í Írak. Leyfið var dregið til baka daginn eftir að það var gefið. 16.4.2007 15:34
Menningarsjóður veitir 53 styrki Alls fengu 53 aðilar styrk úr Menningarsjóði að þessu sinni en úthlutað var úr sjóðnum í síðustu viku. Hæsta styrkinn að upphæð einni milljón króna hlaut Hið íslenska bókmenntafélag fyrir rit eftir Kristínu Bragadóttur um Daníel Willard Fiske. 16.4.2007 15:15
Þrír háskólar vinni að vottun jafnra launa Starfshópur á vegum félagsmálaráðherra sem falið var að undirbúa vottun jafnra launa hér á landi leggur til að komið verði á laggirnir samvinnuverkefni Háskóla Íslands, Háskólans á Bifröst og Háskólans í Reykjavík með það að markmiði að fá fyrirtæki til að afla sér vottunar á því að unnið sé með markvissum hætti að launajafnrétti kynjanna. 16.4.2007 15:11
Útiloka stuðninssamning til að sigra Sarkozy Bæði Segolene Royal, frambjóðandi sósíalista í frönsku forsetakosningunum, og Francois Bayrou, frambjóðandi miðjumanna, útiloka á þessum tímapunkti að gera einhvers konar samning sín á milli um gagnkvæman stuðning til að sigra Nicolas Sarkozy, forsetaframbjóðanda hægri manna. 16.4.2007 14:53
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent