Erlent

Sjóliðar fluttir heim í dag

Mahmoud Ahmadinejad.
Mahmoud Ahmadinejad. MYND/AP
Bresk stjórnvöld fögnuðu í dag þeirri ákvörðun íranskra yfirvalda að sleppa fimmtán breskum sjóliðum sem verið hafa í haldi í Íran frá 23. mars. Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, tilkynnti um það á fréttamannafundi í dag að sjóliðunum yrði sleppt og að farið yrði með þá á flugvöllin í Teheran í dag og þeim flogið heim.

Eftir því sem íranska ríkissjónvarpið greindi frá fögnuðu sjóliðarnir gríðarlega þegar þeir fengu fréttirnar og þá er haft eftir fjölskyldu eins sjóliðanna á vef BBC að þetta sé besta gjöf sem hún hafi getað fengið.

Deilur Írana og Breta um sjóliðana hafa snúist um það hvort þeir hafi verið á írönsku eða íröksku hafsvæði þegar strandgæsla Írans handsamaði þá 23. mars. Ahmadinejad hefur farið fram á afsökunarbeiðni frá breskum stjórnvöldum vegna málsins en við því hafa þau ekki orðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×