Fleiri fréttir Seldi garð nágrannans 16.10.2006 16:21 Hart deilt á lífeyrissjóði vegna skerðingaráforma Hart var deilt á þá lífeyrissjóði sem hafa tilkynnt um örorkulífeyrisþegum að greiðslur þeirra verði skertar eða felldar niður frá og með næstu mánaðamótum í utandagskrárumræðu á Alþingi í dag. Kallað var eftir því að fjármálaráðherra hnekkti ákvörðuninni en hann sagði málið ekki í sínum höndum. 16.10.2006 16:17 Mannskæð bílsprengjuárás í Bagdad Tuttugu létust og 17 særðust þegar tvær bílsprengjur sprungu samtímis í norðurhluta Bagdad í dag. Sprengjurnar sprungu við sólsetur í Írak skömmu fyrir Iftar, en það er þegar múslímar rjúfa föstu sína sem stendur yfir frá sólarupprisu til sólseturs dag hvern í helga mánuðinum Ramadan. 16.10.2006 15:46 ICES vill veiðibann á þorsk í Norðursjó 16.10.2006 15:45 Menntamálaráðherra snýr við úrskurði þjóðskjalavarðar Menntamálaráðherra hefur ákveðið að fella úr gildi ákvörðun þjóðskjalavarðar um að synja beiðni Kjartans Ólafssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Sósíalistaflokksins, um aðgang að gögnum um símahleranir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá menntamálaráðuneytinu. 16.10.2006 15:18 Vímuvarnarvika sett formlega á morgun Vikan 16.-22. október er Vímuvarnarvika sem nú er haldin í þriðja sinn. Vikan hefst formlega á morgun með kynningarfundi í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu og þá mun Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, undirrita þriggja ára forvarnasamning við Samstarfsráð um forvarnir. 16.10.2006 15:03 Fjölskyldur neyða stúlkur til sjálfsmorða 16.10.2006 14:49 Banaslys á Kjósarskarðsvegi í morgun Sextíu og sex ára karlmaður lést í umferðarslysi í Kjósinni laust eftir klukkan ellefu í morgun. Maðurinn mun hafa misst stjórn á bíl sínum með þeim afleiðingum að hann fór út af veginum og valt. Talið er að maðurinn hafi kastast út úr bílnum og orðið undir honum og látist samstundis. 16.10.2006 14:43 Heimilt að raða börnum eftir tungumálakunnáttu 16.10.2006 14:25 Stofnun rekstrarfélags leiðir til hundraða milljóna króna sparnaðar Stefnt er að því að stofna rekstrarfélag um vinnslu og dreifingu á vörum Mjólkursamsölunnar, Norðurmjólkur og Osta- og smjörsölunnar um næstu áramót en Mjólkursamlag KS verður rekið í nánum tengslum við rekstrarfélagið og selur rekstrarfélaginu allar sínar afurðir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félögunum. 16.10.2006 14:15 Fangar á Skólavörðustíg hóta hungurverkfalli Fangar í hegningarhúsinu á Skólavörðustíg hafa sent fangelsisyfirvöldum bréf þar sem þeir krefjast úrbóta á aðstöðu fanga sem þar dvelja. Fangarnir gagnrýna matinn sem þeir fá í fangelsinu auk sem þeir krefjast þess að aðstaða þeirra verði bætt, eins og loftræsting í fangelsinu. 16.10.2006 14:04 Lögðu hald á kannabisplöntur og marijúana í Hafnarfirði Lögreglan í Hafnarfirði handtók í gær tvo menn eftir að hún lagði hald á um 170 kannabisplöntur og nokkur kíló af niðurskornu marijúana í iðnaðarhúsnæði í bænum. Í tilkynningu frá lögreglu segir að stærsta kannabisplantan hafi verið um 190 sentímetra há en ekki er búið að vigta fíkniefnin. Gera má ráð fyrir að um sé að ræða á annan tug kílóa af marijúna. 16.10.2006 13:50 Lífstíðarfangelsi fyrir morð á ellefu ára dreng Fimmtán ára drengur hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi í Bretlandi eftir að hafa viðurkennt að myrt ellefu ára dreng fyrr á árinu. Joseph Geeling fannst látinn í garði í Bury á Englandi í mars síðastliðnum en hans hafði verið leitað eftir að hann skilaði sér ekki heim eftir skóla. 16.10.2006 13:41 Dagsbrún Media skoðar fleiri markaði Dagsbrún Media skoðar nú dagblaðaútgáfu á fleiri mörkuðum en í Danmörku, eftir því sem fram kemur á vef danska viðskiptablaðsins Börsen. Gunnar Smári Egilsson, forstjóri DaGsbrúnar Media, segir þó ekkert í hendi en telur að Noregur sé góður markaður fyrir fríblað líkt og Fréttablaðið og Nyhedsavisen. 16.10.2006 13:15 Rannsaka fiskvinnslu hér á landi Fiskvinnsla er nú orðin viðfangsefni þjóðháttafræðinga en Þjóðminjasafnið ætlar á næstu dögum að senda út spurningalista til fyrrverandi og núverandi fiskvinnslufólks í leit að sögum og lýsingum á starfinu. 16.10.2006 13:00 Segir nægar vísbendingar til að ákæra Katsav Ísraelska lögreglan telur nægilegar vísbendingar fyrir hendi til að ákæra Moshe Katsav, forseta landsins, fyrir nauðganir og önnur kynferðisbrot. 16.10.2006 12:45 Vill banna hesta í framsæti bifreiða 16.10.2006 12:42 Opinn fyrir öllum kostum í ríkisstjórnarsamstarfi Formaður Sjálfstæðisflokksins segist opinn gagnvart öllum kostum í nýju ríkisstjórnarsamstarfi. Hins vegar sé sundrung meðal stjórnarandstöðuflokkanna, til dæmis í varnarmálum. 16.10.2006 12:26 Æfðu árás á vígi hryðjuverkamanna Sérsveit ríkislögreglustjóra og sprengjusveit Landhelgisgæslunnar æfðu með Bandaríkjaher í morgun árás á vígi hryðjuverkamanna í Hvalfirði. Þyrla frá flumóðurskipinu WASP, sem liggur í Sundahöfn, flaug með vopnaða íslenska sérsveitarmenn á vettvang í gömlu olíustöðinni. 16.10.2006 12:15 Auðmenn og fyrirtæki leigja rjúpnaveiðilendur Auðmenn, fyrirtæki og hópar eru búin að taka svo miklar rjúpnaveiðilendur á leigu til einkanota, að hinn almenni veiðimaður á fótum fjör að launa undan öðrum skyttum á þeim fáu almenningum sem eftir eru. 16.10.2006 12:00 Dómsuppkvaðningu frestað í máli á hendur Saddam Dómstóll í Írak hefur frestað því að kveða upp úrskurð í máli á hendur Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks, vegna aðildar hans að morðum á hátt 150 sjítum í bænum Dujail árið 1982. Talsmaður dómstólsins sagði dómarar þyrftu meiri tíma til að fara yfir vitnisburð í málinu og að rétturinn kæmi saman aftur 5. nóvember. 16.10.2006 11:59 Fjáröflunarráðstefna fyrir Líbanon í París eftir áramót Ákveðið hefur verið að halda fjáröflunarráðstefnu fyrir Líbanon í París í upphafi næsta árs til þess að hjálpa landinu að komast á réttan kjöl eftir stríð Ísraels og Hizbollah-samtakanna í sumar. Frá þessu greindi Fouad Siniora, forsætisráðherra Líbanons í dag, eftir ríkisstjórnarfund. 16.10.2006 11:40 Óttast um áhrif árásanna á friðarviðræður Tæplega sjötíu manns létust í sjálfsmorðsárás Tamíltígra á stjórnarherinn í norðurhluta Sri Lanka í morgun. Óttast er að árásin hafi slæm áhrif á friðarviðræður sem hefjast eiga eftir tíu daga. 16.10.2006 11:34 Benedikt páfi fer til Tyrklands í næsta mánuði Benedikt páfi sextándi mun heimsækja Tyrkland í næsta mánuði þrátt fyrir þær deilur sem orðið hafa um ummæli hans um íslam. Frá þessu greindi Vatíkanið í dag. 16.10.2006 11:14 Taka upp greiðslur til að draga úr fólksfjölgun Kínversk yfirvöld hyggjast grípa til nýrra ráða til þess að sporna við mannfjölgun í landinu og munu frá og með næsta ári greiða fólki á landsbyggðinni tiltekna fjárhæð fyrir það að eignast aðeins eitt barn eða tvær stúlkur. 16.10.2006 11:01 Children in Variety 16.10.2006 10:42 Segja ættleiðingu Madonnu ólöglega Mannréttindasamtök í Malaví hafa leitað til dómstóla þar í landi til að koma í veg fyrir að poppsöngkonan Madonna ættleiði malavískan dreng. Að sögn talsmanns samtakanna fylgdu Madonna og eiginmaður hennar Guy Ritchie ekki malavískum lögum sem kveða á um að fólk þurfi að dvelja með barni í eitt og hálft ár áður en ættleiðing er heimiluð. 16.10.2006 10:30 Biskup styður borgaralega óhlýðni umhverfisverndarsinna 16.10.2006 10:23 Eiturlyf á 20 mínútum Einungis 20 mínútur tekur að verða sér úti um eiturlyf á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kom fram í fréttaskýringaþættinum Kompás í kvöld. Eitt símtal er nóg, en tálbeitan sem þáttarstjórnendur notuðu var sextán ára og þekkti sölumanninn ekki neitt. Í þættinum kom fram að 28% unglinga í 10. bekk hafir orðið ölvaðir á síðustu 30 dögum. Þá kom einnig fram að unglingar, allt niður í 11 ára neyta fíkniefna. 15.10.2006 19:58 Ástæða til að rannsaka Varaformaður Framsóknarflokksins telur ástæðu til að rannsaka hvort sími utanríkisráðherra hafi á sínum tíma verið hleraður. Árni Páll Árnason, sem býður sig fram í fyrsta sæti Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi, fullyrti í Silfri Egils í dag að sími hans hefði verið hleraður meðan hann starfaði sem lögfræðingur hjá Varnarmálaskrifstofu ráðuneytisins. 15.10.2006 19:36 Dýragarðsljón þurfa líka hreyfingu Hugvitssamir umsjónarmenn dýragarðs í Skotlandi og hafa fundið upp tæki sem hermir eftir bráð og á að koma hreyfingu á ljónin sem eru eins og önnur dýragarðsljón, ósköp löt við að hreyfa sig úr stað. Ef þau þurfa ekki að veiða sér til matar liggja þau frekar í leti. Dýragarðshöldurunum í Drummond Park dýragarðinum fannst að við svo búið mætti ekki standa. 15.10.2006 18:59 Fljúgandi vandamál í roki Fimm trampólín tókust á loft á Selfossi í gær og skemmdu tvo bíla. Lögreglan brýnir fyrir fólki að binda þau niður og bendir á að eigendur séu ábyrgir fyrir skemmdum sem lausamunir þeirra valda. Fljúgandi trampolín voru tilkynnt til lögreglu á Akureyri og Selfossi í gær. Á Selfossi tókust fimm trampólín á loft og náði eitt þeirra að skemma tvo bíla. 15.10.2006 18:45 Segja atvinnuleysi aukast með samþykkt ILO Samtök atvinnulífsins hafa staðið í vegi fyrir því að samþykkt frá Alþjóðavinnumálastofnuninni, um reglur um uppsagnir að hálfu atvinnurekanda, taki gildi hér á landi, því þær auki atvinnuleysi. Fyrrverandi starfsmaður hjá Alcan segir sárt að missa af svokölluðum flýttum starfslokum sem fólk með langan starfsaldur í álverinu hefur kost á. 15.10.2006 18:45 Ætlar ekki að beita sér fyrir lagabreytingum Landbúnaðarráðherra segir mikilvægt að mjólkuriðnaður hafi getað haft samráð sem hafi skilað mikilli hagræðingu. Hann ætlar ekki að fara að tilmælum Samkeppniseftirlitsins og beita sér fyrir því að mjólkuriðnaðurinn verði undanþeginn samkeppnislögum. Þessi viðbrögð ráðherra vekja furðu framkvæmdastjóra Mjólku. 15.10.2006 18:30 Mótmæla ráðningu hjá Umhverfisstofnun Kona, sem unnið hefur í sjö ár hjá Umhverfisstofnun, fékk ekki starf fagstjóra hjá stofnuninni heldur karlmaður sem aðeins hafði starfað þar í um þrjár vikur. Forstjóri Umverfisstofnunar vill ekki tjá sig um málið í fjölmiðlum á meðan það er enn óafgreitt. 15.10.2006 18:30 Varað við sjálfviljugri aðskilnaðarstefnu múslima Mikil umræða hefur sprottið upp í Bretlandi síðustu daga eftir að stjórnandi neðri málstofu Breska þingsins Jack Straw upplýsti að hann bæði múslima-konur með slæður að fjarlægja þær þegar þær kæmu á fund hans. Straw sagði að slæðurnar kæmu í veg fyrir árangursrík samskipti. Í viðtali við fréttastofu Sky varaði skuggaráðherra innanríkismála í Bretlandi, David Davis, við sjálfviljugri aðskilnaðarstefnu múslima. 15.10.2006 18:05 Amish-fólkið styrkir ekkjuna Ekkja byssumannsins sem skaut fimm amish stúlkur til bana í barnaskóla í Pensilvaníu í Bandaríkjunum, hefur þakkað samfélagi Amish fólksins fyrir ástríki og stuðning eftir að atburðurinn átti sér stað. Konan, Marie Roberts, sagði að hún og fjölskylda hennar væru djúpt snortin, en Amish fólkið stofnaði peningasjóð í banka í bænum til stuðnings Maríu og börnum hennar. 15.10.2006 17:10 Maður slasaðist þegar ruslabíll valt Ruslabíll frá Hringrás fór út af veginum í Bessastaðabrekku upp úr Fljótsdal undir kvöld í gær. Bíllinn lenti á hliðinni, en bílstjóri hans, karlmaður á þrítugsaldri, slasaðist og var fluttur með sjúkraflugvél til Reykjavíkur. Í sumar fór bíll frá fyrirtækinu út af í sömu brekku. 15.10.2006 17:05 Mjólka undrast ummæli Guðna Ólafur Magnússon framkvæmdastjóri Mjólku hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann undrast viðhorf landbúnaðarráðherra við að mjólkuriðnaðurinn verði ekki undanþeginn samkeppnislögum. Ummælin lét ráðherra falla í hádegisfréttum útvarpsins og sagðist ekki áforma að beita sér fyrir breytingu á búvörulögum, þannig að mjólkuriðnaður verði ekki undanþeginn samkeppnislögum. 15.10.2006 16:14 Hundur truflar akstur Kona á sjötugsaldri ók inn á þjóðveginn í Melasveit í Borgarfirði á öfugum vegarhelmingi og virtist ekki hafa fulla stjórn á bílnum. Snarræði ökumanna sem komu úr gagnstæðri átt bjargaði því að ekki varð árekstur. Í ljós kom að í kjöltu sinni hafði konan miðlungsstóran hund sem orsakaði að hún náði ekki að stýra farartækinu eins og lög gera ráð fyrir. 15.10.2006 15:28 Innbrot í Keflavík Brotist var inn í Holtaskóla í Keflavík í nótt og töluverðar skemmdir unnar á glugga og hurðum sem voru brotnar upp. Víða hafði verið rótað til. Ekki er ljóst hvort einhverju var stolið en talsverð eignaspjöll voru unnin á staðnum. Málið er í rannsókn. 15.10.2006 15:19 Átta látast og 60 slasast í Írak Átta manns létust í dag í röð bílasprengja í borginni Kirkuk í Írak. Samkvæmt lögreglu eru 60 manns slasaðir. Bylgja ofbeldis hefur gengið yfir á meðan föstumánuði múslima, ramadan, stendur, en læknar sögðu í dag að minnsta kosti 31 lík hefði fundist í borginni Balad. 15.10.2006 14:40 Brúðarkjóll úr bollum Konur leggja yfirleitt mikið upp úr brúðarkjólnum sem þær klæðast á brúðkaupsdaginn. Úkraínski bakarinn Valentín Stefanjo ákvað að konan sín tilvonandi skyldi sko klæðast algerlega einstæðum kjól þegar þau gengju í það heilaga. Hann bakaði því tvö þúsund litlar bollur, fyllti þær með rjóma og bjó til brúðarkjólinn úr þeim. Það tók hann tvo mánuði að koma kjólnum saman. 15.10.2006 13:09 Sími Árna Páls hleraður Árni Páll Árnason fyrrverandi starfsmaður varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins fullyrti í þættinum Silfri Egils í dag að sími hans hefði verið hleraður. Hann hafi verið varaður við á sínum tíma að fylgst væri með honum. Árni Páll sagði að það hefði í sjálfu sér ekki komið honum á óvart vegna eðli starfa hans. 15.10.2006 13:00 Stofnandi hryðjuverkasamtaka fær lífstíðardóm Abimael Guzman, stofnandi hryðjuverkasamtakanna Skínandi stígs í Perú, var í gær dæmdur í lífstíðarfangelsi. Guzman stýrði byltingartilraun Skínandi stígs, sem stóð í tólf ár, frá 1980 og fram á tíunda áratuginn. Átökin kostuðu um sjötíu þúsund manns lífið. Guzman sagði sjálfur að blóðbað væri nauðsynlegt til að knýja byltinguna áfram. 15.10.2006 12:36 Sjá næstu 50 fréttir
Hart deilt á lífeyrissjóði vegna skerðingaráforma Hart var deilt á þá lífeyrissjóði sem hafa tilkynnt um örorkulífeyrisþegum að greiðslur þeirra verði skertar eða felldar niður frá og með næstu mánaðamótum í utandagskrárumræðu á Alþingi í dag. Kallað var eftir því að fjármálaráðherra hnekkti ákvörðuninni en hann sagði málið ekki í sínum höndum. 16.10.2006 16:17
Mannskæð bílsprengjuárás í Bagdad Tuttugu létust og 17 særðust þegar tvær bílsprengjur sprungu samtímis í norðurhluta Bagdad í dag. Sprengjurnar sprungu við sólsetur í Írak skömmu fyrir Iftar, en það er þegar múslímar rjúfa föstu sína sem stendur yfir frá sólarupprisu til sólseturs dag hvern í helga mánuðinum Ramadan. 16.10.2006 15:46
Menntamálaráðherra snýr við úrskurði þjóðskjalavarðar Menntamálaráðherra hefur ákveðið að fella úr gildi ákvörðun þjóðskjalavarðar um að synja beiðni Kjartans Ólafssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Sósíalistaflokksins, um aðgang að gögnum um símahleranir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá menntamálaráðuneytinu. 16.10.2006 15:18
Vímuvarnarvika sett formlega á morgun Vikan 16.-22. október er Vímuvarnarvika sem nú er haldin í þriðja sinn. Vikan hefst formlega á morgun með kynningarfundi í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu og þá mun Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, undirrita þriggja ára forvarnasamning við Samstarfsráð um forvarnir. 16.10.2006 15:03
Banaslys á Kjósarskarðsvegi í morgun Sextíu og sex ára karlmaður lést í umferðarslysi í Kjósinni laust eftir klukkan ellefu í morgun. Maðurinn mun hafa misst stjórn á bíl sínum með þeim afleiðingum að hann fór út af veginum og valt. Talið er að maðurinn hafi kastast út úr bílnum og orðið undir honum og látist samstundis. 16.10.2006 14:43
Stofnun rekstrarfélags leiðir til hundraða milljóna króna sparnaðar Stefnt er að því að stofna rekstrarfélag um vinnslu og dreifingu á vörum Mjólkursamsölunnar, Norðurmjólkur og Osta- og smjörsölunnar um næstu áramót en Mjólkursamlag KS verður rekið í nánum tengslum við rekstrarfélagið og selur rekstrarfélaginu allar sínar afurðir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félögunum. 16.10.2006 14:15
Fangar á Skólavörðustíg hóta hungurverkfalli Fangar í hegningarhúsinu á Skólavörðustíg hafa sent fangelsisyfirvöldum bréf þar sem þeir krefjast úrbóta á aðstöðu fanga sem þar dvelja. Fangarnir gagnrýna matinn sem þeir fá í fangelsinu auk sem þeir krefjast þess að aðstaða þeirra verði bætt, eins og loftræsting í fangelsinu. 16.10.2006 14:04
Lögðu hald á kannabisplöntur og marijúana í Hafnarfirði Lögreglan í Hafnarfirði handtók í gær tvo menn eftir að hún lagði hald á um 170 kannabisplöntur og nokkur kíló af niðurskornu marijúana í iðnaðarhúsnæði í bænum. Í tilkynningu frá lögreglu segir að stærsta kannabisplantan hafi verið um 190 sentímetra há en ekki er búið að vigta fíkniefnin. Gera má ráð fyrir að um sé að ræða á annan tug kílóa af marijúna. 16.10.2006 13:50
Lífstíðarfangelsi fyrir morð á ellefu ára dreng Fimmtán ára drengur hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi í Bretlandi eftir að hafa viðurkennt að myrt ellefu ára dreng fyrr á árinu. Joseph Geeling fannst látinn í garði í Bury á Englandi í mars síðastliðnum en hans hafði verið leitað eftir að hann skilaði sér ekki heim eftir skóla. 16.10.2006 13:41
Dagsbrún Media skoðar fleiri markaði Dagsbrún Media skoðar nú dagblaðaútgáfu á fleiri mörkuðum en í Danmörku, eftir því sem fram kemur á vef danska viðskiptablaðsins Börsen. Gunnar Smári Egilsson, forstjóri DaGsbrúnar Media, segir þó ekkert í hendi en telur að Noregur sé góður markaður fyrir fríblað líkt og Fréttablaðið og Nyhedsavisen. 16.10.2006 13:15
Rannsaka fiskvinnslu hér á landi Fiskvinnsla er nú orðin viðfangsefni þjóðháttafræðinga en Þjóðminjasafnið ætlar á næstu dögum að senda út spurningalista til fyrrverandi og núverandi fiskvinnslufólks í leit að sögum og lýsingum á starfinu. 16.10.2006 13:00
Segir nægar vísbendingar til að ákæra Katsav Ísraelska lögreglan telur nægilegar vísbendingar fyrir hendi til að ákæra Moshe Katsav, forseta landsins, fyrir nauðganir og önnur kynferðisbrot. 16.10.2006 12:45
Opinn fyrir öllum kostum í ríkisstjórnarsamstarfi Formaður Sjálfstæðisflokksins segist opinn gagnvart öllum kostum í nýju ríkisstjórnarsamstarfi. Hins vegar sé sundrung meðal stjórnarandstöðuflokkanna, til dæmis í varnarmálum. 16.10.2006 12:26
Æfðu árás á vígi hryðjuverkamanna Sérsveit ríkislögreglustjóra og sprengjusveit Landhelgisgæslunnar æfðu með Bandaríkjaher í morgun árás á vígi hryðjuverkamanna í Hvalfirði. Þyrla frá flumóðurskipinu WASP, sem liggur í Sundahöfn, flaug með vopnaða íslenska sérsveitarmenn á vettvang í gömlu olíustöðinni. 16.10.2006 12:15
Auðmenn og fyrirtæki leigja rjúpnaveiðilendur Auðmenn, fyrirtæki og hópar eru búin að taka svo miklar rjúpnaveiðilendur á leigu til einkanota, að hinn almenni veiðimaður á fótum fjör að launa undan öðrum skyttum á þeim fáu almenningum sem eftir eru. 16.10.2006 12:00
Dómsuppkvaðningu frestað í máli á hendur Saddam Dómstóll í Írak hefur frestað því að kveða upp úrskurð í máli á hendur Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks, vegna aðildar hans að morðum á hátt 150 sjítum í bænum Dujail árið 1982. Talsmaður dómstólsins sagði dómarar þyrftu meiri tíma til að fara yfir vitnisburð í málinu og að rétturinn kæmi saman aftur 5. nóvember. 16.10.2006 11:59
Fjáröflunarráðstefna fyrir Líbanon í París eftir áramót Ákveðið hefur verið að halda fjáröflunarráðstefnu fyrir Líbanon í París í upphafi næsta árs til þess að hjálpa landinu að komast á réttan kjöl eftir stríð Ísraels og Hizbollah-samtakanna í sumar. Frá þessu greindi Fouad Siniora, forsætisráðherra Líbanons í dag, eftir ríkisstjórnarfund. 16.10.2006 11:40
Óttast um áhrif árásanna á friðarviðræður Tæplega sjötíu manns létust í sjálfsmorðsárás Tamíltígra á stjórnarherinn í norðurhluta Sri Lanka í morgun. Óttast er að árásin hafi slæm áhrif á friðarviðræður sem hefjast eiga eftir tíu daga. 16.10.2006 11:34
Benedikt páfi fer til Tyrklands í næsta mánuði Benedikt páfi sextándi mun heimsækja Tyrkland í næsta mánuði þrátt fyrir þær deilur sem orðið hafa um ummæli hans um íslam. Frá þessu greindi Vatíkanið í dag. 16.10.2006 11:14
Taka upp greiðslur til að draga úr fólksfjölgun Kínversk yfirvöld hyggjast grípa til nýrra ráða til þess að sporna við mannfjölgun í landinu og munu frá og með næsta ári greiða fólki á landsbyggðinni tiltekna fjárhæð fyrir það að eignast aðeins eitt barn eða tvær stúlkur. 16.10.2006 11:01
Segja ættleiðingu Madonnu ólöglega Mannréttindasamtök í Malaví hafa leitað til dómstóla þar í landi til að koma í veg fyrir að poppsöngkonan Madonna ættleiði malavískan dreng. Að sögn talsmanns samtakanna fylgdu Madonna og eiginmaður hennar Guy Ritchie ekki malavískum lögum sem kveða á um að fólk þurfi að dvelja með barni í eitt og hálft ár áður en ættleiðing er heimiluð. 16.10.2006 10:30
Eiturlyf á 20 mínútum Einungis 20 mínútur tekur að verða sér úti um eiturlyf á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kom fram í fréttaskýringaþættinum Kompás í kvöld. Eitt símtal er nóg, en tálbeitan sem þáttarstjórnendur notuðu var sextán ára og þekkti sölumanninn ekki neitt. Í þættinum kom fram að 28% unglinga í 10. bekk hafir orðið ölvaðir á síðustu 30 dögum. Þá kom einnig fram að unglingar, allt niður í 11 ára neyta fíkniefna. 15.10.2006 19:58
Ástæða til að rannsaka Varaformaður Framsóknarflokksins telur ástæðu til að rannsaka hvort sími utanríkisráðherra hafi á sínum tíma verið hleraður. Árni Páll Árnason, sem býður sig fram í fyrsta sæti Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi, fullyrti í Silfri Egils í dag að sími hans hefði verið hleraður meðan hann starfaði sem lögfræðingur hjá Varnarmálaskrifstofu ráðuneytisins. 15.10.2006 19:36
Dýragarðsljón þurfa líka hreyfingu Hugvitssamir umsjónarmenn dýragarðs í Skotlandi og hafa fundið upp tæki sem hermir eftir bráð og á að koma hreyfingu á ljónin sem eru eins og önnur dýragarðsljón, ósköp löt við að hreyfa sig úr stað. Ef þau þurfa ekki að veiða sér til matar liggja þau frekar í leti. Dýragarðshöldurunum í Drummond Park dýragarðinum fannst að við svo búið mætti ekki standa. 15.10.2006 18:59
Fljúgandi vandamál í roki Fimm trampólín tókust á loft á Selfossi í gær og skemmdu tvo bíla. Lögreglan brýnir fyrir fólki að binda þau niður og bendir á að eigendur séu ábyrgir fyrir skemmdum sem lausamunir þeirra valda. Fljúgandi trampolín voru tilkynnt til lögreglu á Akureyri og Selfossi í gær. Á Selfossi tókust fimm trampólín á loft og náði eitt þeirra að skemma tvo bíla. 15.10.2006 18:45
Segja atvinnuleysi aukast með samþykkt ILO Samtök atvinnulífsins hafa staðið í vegi fyrir því að samþykkt frá Alþjóðavinnumálastofnuninni, um reglur um uppsagnir að hálfu atvinnurekanda, taki gildi hér á landi, því þær auki atvinnuleysi. Fyrrverandi starfsmaður hjá Alcan segir sárt að missa af svokölluðum flýttum starfslokum sem fólk með langan starfsaldur í álverinu hefur kost á. 15.10.2006 18:45
Ætlar ekki að beita sér fyrir lagabreytingum Landbúnaðarráðherra segir mikilvægt að mjólkuriðnaður hafi getað haft samráð sem hafi skilað mikilli hagræðingu. Hann ætlar ekki að fara að tilmælum Samkeppniseftirlitsins og beita sér fyrir því að mjólkuriðnaðurinn verði undanþeginn samkeppnislögum. Þessi viðbrögð ráðherra vekja furðu framkvæmdastjóra Mjólku. 15.10.2006 18:30
Mótmæla ráðningu hjá Umhverfisstofnun Kona, sem unnið hefur í sjö ár hjá Umhverfisstofnun, fékk ekki starf fagstjóra hjá stofnuninni heldur karlmaður sem aðeins hafði starfað þar í um þrjár vikur. Forstjóri Umverfisstofnunar vill ekki tjá sig um málið í fjölmiðlum á meðan það er enn óafgreitt. 15.10.2006 18:30
Varað við sjálfviljugri aðskilnaðarstefnu múslima Mikil umræða hefur sprottið upp í Bretlandi síðustu daga eftir að stjórnandi neðri málstofu Breska þingsins Jack Straw upplýsti að hann bæði múslima-konur með slæður að fjarlægja þær þegar þær kæmu á fund hans. Straw sagði að slæðurnar kæmu í veg fyrir árangursrík samskipti. Í viðtali við fréttastofu Sky varaði skuggaráðherra innanríkismála í Bretlandi, David Davis, við sjálfviljugri aðskilnaðarstefnu múslima. 15.10.2006 18:05
Amish-fólkið styrkir ekkjuna Ekkja byssumannsins sem skaut fimm amish stúlkur til bana í barnaskóla í Pensilvaníu í Bandaríkjunum, hefur þakkað samfélagi Amish fólksins fyrir ástríki og stuðning eftir að atburðurinn átti sér stað. Konan, Marie Roberts, sagði að hún og fjölskylda hennar væru djúpt snortin, en Amish fólkið stofnaði peningasjóð í banka í bænum til stuðnings Maríu og börnum hennar. 15.10.2006 17:10
Maður slasaðist þegar ruslabíll valt Ruslabíll frá Hringrás fór út af veginum í Bessastaðabrekku upp úr Fljótsdal undir kvöld í gær. Bíllinn lenti á hliðinni, en bílstjóri hans, karlmaður á þrítugsaldri, slasaðist og var fluttur með sjúkraflugvél til Reykjavíkur. Í sumar fór bíll frá fyrirtækinu út af í sömu brekku. 15.10.2006 17:05
Mjólka undrast ummæli Guðna Ólafur Magnússon framkvæmdastjóri Mjólku hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann undrast viðhorf landbúnaðarráðherra við að mjólkuriðnaðurinn verði ekki undanþeginn samkeppnislögum. Ummælin lét ráðherra falla í hádegisfréttum útvarpsins og sagðist ekki áforma að beita sér fyrir breytingu á búvörulögum, þannig að mjólkuriðnaður verði ekki undanþeginn samkeppnislögum. 15.10.2006 16:14
Hundur truflar akstur Kona á sjötugsaldri ók inn á þjóðveginn í Melasveit í Borgarfirði á öfugum vegarhelmingi og virtist ekki hafa fulla stjórn á bílnum. Snarræði ökumanna sem komu úr gagnstæðri átt bjargaði því að ekki varð árekstur. Í ljós kom að í kjöltu sinni hafði konan miðlungsstóran hund sem orsakaði að hún náði ekki að stýra farartækinu eins og lög gera ráð fyrir. 15.10.2006 15:28
Innbrot í Keflavík Brotist var inn í Holtaskóla í Keflavík í nótt og töluverðar skemmdir unnar á glugga og hurðum sem voru brotnar upp. Víða hafði verið rótað til. Ekki er ljóst hvort einhverju var stolið en talsverð eignaspjöll voru unnin á staðnum. Málið er í rannsókn. 15.10.2006 15:19
Átta látast og 60 slasast í Írak Átta manns létust í dag í röð bílasprengja í borginni Kirkuk í Írak. Samkvæmt lögreglu eru 60 manns slasaðir. Bylgja ofbeldis hefur gengið yfir á meðan föstumánuði múslima, ramadan, stendur, en læknar sögðu í dag að minnsta kosti 31 lík hefði fundist í borginni Balad. 15.10.2006 14:40
Brúðarkjóll úr bollum Konur leggja yfirleitt mikið upp úr brúðarkjólnum sem þær klæðast á brúðkaupsdaginn. Úkraínski bakarinn Valentín Stefanjo ákvað að konan sín tilvonandi skyldi sko klæðast algerlega einstæðum kjól þegar þau gengju í það heilaga. Hann bakaði því tvö þúsund litlar bollur, fyllti þær með rjóma og bjó til brúðarkjólinn úr þeim. Það tók hann tvo mánuði að koma kjólnum saman. 15.10.2006 13:09
Sími Árna Páls hleraður Árni Páll Árnason fyrrverandi starfsmaður varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins fullyrti í þættinum Silfri Egils í dag að sími hans hefði verið hleraður. Hann hafi verið varaður við á sínum tíma að fylgst væri með honum. Árni Páll sagði að það hefði í sjálfu sér ekki komið honum á óvart vegna eðli starfa hans. 15.10.2006 13:00
Stofnandi hryðjuverkasamtaka fær lífstíðardóm Abimael Guzman, stofnandi hryðjuverkasamtakanna Skínandi stígs í Perú, var í gær dæmdur í lífstíðarfangelsi. Guzman stýrði byltingartilraun Skínandi stígs, sem stóð í tólf ár, frá 1980 og fram á tíunda áratuginn. Átökin kostuðu um sjötíu þúsund manns lífið. Guzman sagði sjálfur að blóðbað væri nauðsynlegt til að knýja byltinguna áfram. 15.10.2006 12:36