Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Forystuháskóli á alþjóðavísu í mótun Menntamálaráðherra opnaði í gær nýja stofnun um sjálfbæra þróun og þverfaglegar rannsóknir við Háskóla Íslands. Stofnuninni er ætlað að leika stórt hlutverk í að leysa mörg af alvarlegustu vandamálum alþjóðasamfélagsins. 15.6.2006 08:00
Fíkniefni fundust við leit í bílum á Akureyri Lögreglan á Akureyri fann fíkniefni við leit í tveimur bílum sem stöðvaðir voru við eftirlit í nótt. Í hvorugu tilvikinu var þó um verulegt magn að ræða, en ökumenn beggja bílanna voru handteknir en sleppt að loknum yfirheyrslum. 15.6.2006 08:00
Vonast eftir afsökunarbeiðni Dómsmál Ríkissaksóknara, Boga Nilssyni, þykir ekki vera grundvöllur til að rannsaka það frekar hvort Jón Gerald Sullenberger hafi borið ljúgvitni gegn Jóhannesi Jónssyni í Baugsmálinu og hefur rannsókninni nú verið hætt. Þetta kemur fram í bréfi sem Bogi sendi Einari Þór Sverrissyni, lögmanni Jóhannesar, 8. júní. Jóhannes lagði fram kæru á hendur Jóni Gerald vegna þessa hinn 6. apríl. 15.6.2006 07:45
Úthýsa verkum Hornsleths Aðstandendur Q bar í Ingólfsstræti hafa brugðist við áskorunum um að taka niður listaverk danska myndlistamannsins Hornsleths, sem hafa hangið þar uppi í nokkra daga. Kvartanir bárust frá stúlkum sem hafa tekið þátt í fegurðarsamkeppnum og aðstandendum þeirra, en stúlkurnar eru sýndar í málverkunum ásamt grófum texta. 15.6.2006 07:45
Krían ekki orpin Krían er ekki enn farin að verpa, en væri orpin fyrir hálfum mánuði í venjulegu árferði. Svipaða sögu er að segja af sílamávi og ritu. Fuglaáhugamenn telja þetta stafa af skorti á sandsíli í sjónum, sem er aðalfæða þessara fuglategunda. Mikill ungadauði var hjá kríunni í fyrrasumar vegna fæðuskorts en nú gæti farið svo að hún verpti alls ekki, en um 300 þúsund kríupör komu hingað til lands í vor til að verpa. 15.6.2006 07:45
Samningar Icelandair og sænska ríkisins Icelandair hefur náð samningum við sænska ríkið um að fljúga með starfsmenn þess á milli Svíþjóðar og Íslands annars vegar, og hins vegar á milli Svíþjóðar og Bandaríkjanna. Að sögn Sigmundar Halldórssonar, starfandi upplýsingafulltrúa Icelandair, er samningurinn stór áfangi fyrir félagið. Unnið hafi verið að honum í töluverðan tíma en hann verður undirritaður í Stokkhólmi á morgun. Ekki liggja fyrir nákvæmar tölur um verðmæti samningsins en að sögn Sigmundar ræðst það fyrst og fremst af því hve mikið starfsmenn sænska ríkisins muni fljúga á áðurnefndum flugleiðum. Samningurinn er til eins árs en að sögn Sigmundar er það venja hjá sænska ríkinu hvað varðar flugsamninga að gera ekki lengri samninga en það. 15.6.2006 07:45
Rýrnað um 480 milljarða Áframhaldandi lækkun varð á innlendum hlutabréfum í gær, þriðja daginn í röð, og endaði Úrvalsvísitalan í næstlægsta gildi á árinu, 5.356 stigum. Hefur hún lækkað um 3,23 prósent frá áramótum. 15.6.2006 07:30
Albert Jónsson til Washington Albert Jónsson verður sendiherra Íslands í Bandaríkjunum frá 1. nóvember. Um þá ráðstöfun og breytingar á högum tólf annarra sendiherra var tilkynnt í gær. Var það eitt af síðustu embættisverkum Geirs Haarde sem utanríkisráðherra. 15.6.2006 07:30
Í höndum beggja foreldra Undanfarin fjögur ár hefur verið algengast að forsjá barna eftir skilnað sé í höndum beggja foreldra, samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. 15.6.2006 07:30
Allt að 69% verðmunur á frumlyfjum og samheitalyfjum Verðmunur á frumlyfjum og samheitalyfjum með sömu verkun var allt að 69 prósent í verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði í ellefu lyfjaverslunum á höfuðborgarsvæðinu á þriðjudag. Könnunin var gerð í samráði við Landlæknisembættið. Verðið var oftast lægst í Garðsapóteki en oftast hæst í Skipholtsapóteki og Lyfjum og heilsu í Hamraborg. Fólk sem fer með lyfseðla frá læknum í apótek getur spurt hvort samheitalyf með sömu verkun sé í boði og á þá rétt á að fá það í stað frumlyfsins þótt læknirinn hafi vísað á frumlyf. 15.6.2006 07:30
Átök milli fótboltaáhugamanna í Dortmund Þýska lögreglan handtók í gær nokkur hundruð knattspyrnuáhugamenn eftir að til átaka kom milli þeirra. Fyrstu fimm dagar heimsmeistaramótsins í knattspyrnu höfðu farið friðsamlega fram. Í gær sauð hins vegar upp úr hjá stuðningsmönnum Þjóðverja og Pólverja fyrir leik liðanna sem fram fór í Dortmund. Upptök slagsmálanna virðist mega rekja til aðgerða lögreglu sem skyggði á sjónvörp sem knattspyrnuáhugamenn voru að reyna að fylgjast með. Alls handtók lögreglan um þrjúhundruð manns. 15.6.2006 07:30
Eiffelturninn eitt skotmarkanna Franskur dómstóll dæmdi í gær 25 manns í fangelsi fyrir að skipuleggja árásir á Frakkland, en árásirnar áttu að vera hluti af stuðningi við öfgafulla múslima í Tsjetsjeníu. 15.6.2006 07:15
Menn verða að flytja út í geim Örlög mannkynsins gætu ráðist á því hvort við finnum nýja plánetu til að búa á innan hundrað ára, að sögn Stephens Hawking, hins heimsfræga stjarneðlisfræðings. 15.6.2006 07:15
Segir fyrirtæki hafa kvartað yfir Visa Framkvæmdastjóri Kortaþjónustunnar segir PBS ekki eiga hlut að máli í rannsókn Samkeppniseftirlitsins á Visa Ísland. Hann telur kvartanir fyrirtækja hugsanlega ástæðu og segir Visa beita harkalegum vinnubrögðum í samkeppni. 15.6.2006 07:15
Fatah sakar Hamas um glæpi gegn almenningi í Palestínu Mohammed Dahlan, einn af áhrifamönnum Fatah-hreyfingarinnar, sakaði í gær Hamas-samtökin um glæpi gegn Palestínumönnum og sagði þeim hafa mistekist að stjórna Palestínu. Dahlan þykir hafa mikil áhrif innan Fatah-hreyfingarinnar en er óbreyttur þingmaður eftir að Hamas vann þingkosningarnar í janúar á þessu ári. Í gær ruddust tugir Palestínumanna inn í palestínska þingið og réðust á þingmenn Hamas-hreyfingarinnar til að mótmæla því að hafa ekki fengið laun sín greidd í rúma þrjá mánuði. 15.6.2006 07:15
Aftur ráðist á þinghúsið í Palestínu Palestínskur þingmaður Hamas-samtakanna lagði í gær á flótta undan mótmælendum, sem líklega aðhyllast Fatah-samtökin. Ósætti milli hreyfinganna eykst daglega. Sló í brýnu milli manna í þinghúsinu. 15.6.2006 07:00
Hélt konu í íbúð hennar Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir líkamsárás og frelsissviptingu fyrir að hafa í september í fyrra ráðist á konu og haldið henni nauðugri í íbúð hennar. 15.6.2006 07:00
Ákærður fyrir árás í fjósi Aðalmeðferð í máli manns á sextugsaldri fór fram í gær í héraðsdómi Norðurlands eystra. Maðurinn var ákærður fyrir líkamsárás sem átti sér stað í fjósi í Eyjafjarðarsveit í júní síðastliðnum. 15.6.2006 07:00
Skaut nagla í fótinn á sér Maður á þrítugsaldri varð fyrir því óláni við vinnu seinnipart þriðjudags að skjóta sig í fótinn með naglabyssu. Slysið átti sér stað á sveitabæ skammt vestan við Skóga, rétt hjá Hvolsvelli. 15.6.2006 07:00
Unga fólkið mjög jákvætt Helgi Vilhjálmsson, eigandi sælgætisverksmiðjunnar Góu, boðaði til blaðamannafundar í gær þar sem hann kynnti niðurstöður nýrrar rannsóknar er kannaði viðhorf fólks til málefna lífeyrissjóðanna. 15.6.2006 07:00
Harmleikur í uppsiglingu Leikarinn Robert Redford hélt tölu síðstliðinn mánudag á fundi frjálslyndra stjórnmálasamtaka sem kallast Baráttan fyrir framtíð Bandaríkjanna. 15.6.2006 06:45
7 tonn af grasi Mexíkóskir hermenn fundu á þriðjudag nærri sjö tonn af marijúana í tankbíl við landamæri Bandaríkjanna. Bíllinn var stöðvaður við venjubundið eftirlit á þjóðvegi. 15.6.2006 06:45
Ársfundur um næstu helgi Sendinefnd á vegum íslenskra stjórnvalda er nú farin til St. Kristofer og Nevis í Karíbahafi en um næstu helgi fer ársfundur Alþjóðahvalveiðiráðsins þar fram. Stefán Ásmundsson, skrifstofustjóri í sjávarútvegsráðuneytinu, er formaður nefndarinnar en auk hans eru Ásta Einarsdóttir og Gísli Víkingsson í nefndinni 15.6.2006 06:45
Efast um skynsemi vísindaveiðanna Hvalaskoðunarsamtök Íslands eru algerlega mótfallin fyrirhuguðum veiðum á fimmtíu hrefnum í vísindaskyni. Skynsamlegra að leggja auknar áherslur á rannsóknir á stofnstærðir hvalastofna við Ísland, segir dr. Hilmar Malmquist. 15.6.2006 06:45
Minni bjartsýni fyrirtækja Fimmtíu og sjö prósent svarenda í könnun IMG Gallup á stöðu og framtíðarhorfum í atvinnulífinu telja núverandi aðstæður góðar. Er það talsvert verri niðurstaða en í sambærilegri könnun sem gerð var í febrúar en þá töldu þrír af hverjum fjórum aðstæður góðar. 15.6.2006 06:45
Ekki gerbreyta skattkerfinu Geir H. Haarde utanríkisráðherra segir að ríkisvaldið sé að vinna að sínum ráðstöfunum í efnahagsmálum þannig að endurskoðun kjarasamninga geti farið fram milli aðila vinnumarkaðarins strax í þessari viku, ekki í haust eins og kveðið er á um í samningum. 15.6.2006 06:30
Vitnaleiðslum verjenda lokið Aðaldómarinn í réttarhöldum yfir Saddam Hussein úrskurðaði á þriðjudag að vitnaleiðslum verjenda væri lokið og að ákærendur myndu flytja lokaræðu sína í næstu viku. 15.6.2006 06:15
Írak skaðar orðstír Bandaríkjanna Stuðningur almennings í fimmtán löndum heims við stríð Bandaríkjamanna gegn hryðjuverkum hefur dvínað til muna á síðasta ári. Sífellt fleiri Evrópubúar vantreysta George W. Bush Bandaríkjaforseta. 15.6.2006 06:15
Engar refsiaðgerðir í bili Evrópusambandið hefur langtímaáætlun um lýðræðisþróun á Kúbu í smíðum og lýstu utanríkisráðherrar aðildarríkjanna 25 yfir djúpstæðum áhyggjum af bágri stöðu mannréttindamála í eyríkinu á mánudag. 15.6.2006 06:15
Löglegt á ný að selja byssur Dómari í Kaliforníu hefur komist að því að lögbann á sölu skammbyssna, sem samþykkt var af 58 prósentum borgarbúa í San Francisco í nóvember, standist ekki nánari skoðun. 15.6.2006 06:15
Engin áhrif á starfsemina Að frumvarp um Nýsköpunarmiðstöð Íslands hafi ekki verið samþykkt á vorþingi mun ekki hafa áhrif á störf Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, að sögn Smára Þórarinssonar fjármálastjóra. Hann segir fjárhagslega stöðu sjóðsins vera sterka og að einn milljarður hafi fengist í sjóðinn í kjölfar sölu Símans. 15.6.2006 06:15
Engar breytingar ráðgerðar Gunnar Stefánsson, sviðsstjóri björgunarsviðs Landsbjargar fagnar tillögu Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar um afnám virðisaukaskatts á tækjakost björgunarsveitanna. Í máli Vilhjálms kom fram að ekki eigi að líta á rekstur sveitanna sem fyrirtækjarekstur en þetta sagði hann í ræðu sinni á sjómannadaginn. 15.6.2006 06:15
560 lögskilnaðir á síðasta ári Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands voru lögskilnaðir 560 á síðasta ári og sambúðarslit 631, að því er fram kemur á heimasíðu Hagstofunnar. Frá árinu 1992 hafa foreldrar hér á landi átt þess kost að fara sameiginlega með forsjá barna sinna eftir skilnað. 15.6.2006 06:15
Tæp hálf milljón Kínverja í biðröð Yfir þrjátíu þúsund kínverskir spilarar skráðu sig í fjölspilunarleikinn Eve Online á fyrstu klukkustundunum eftir að opnað var fyrir prófanir á honum í Kína í fyrradag. Þar að auki eru um 350.000 manns á biðlista eftir að fá að spila leikinn, en áætlað er að fullgerð útgáfa komi út í næsta mánuði. 15.6.2006 06:15
Ofbeldismál gegn lögreglu fara sjaldan fyrir dóm Allt að 95 prósent þeirra mála sem lögregla skrifar skýrslu um sem meint ofbeldi í sinn garð fara aldrei fyrir dómstóla, að sögn framkvæmdastjóra Landssambands lögreglumanna. Hann bendir jafnframt á að hafi 15.6.2006 06:00
Veiðist með uppsjávarfiski Landssamband veiðifélaga, í samvinnu við Veiðimálastofnun, fékk IMG-Gallup til að afla upplýsinga um hugsanlegan meðafla á laxi í veiðum íslenskra fiskiskipa. Gerð var símakönnun meðal sjómanna um áramótin 2005-2006. 15.6.2006 06:00
Fá börn taka mark á auglýsingum Íslensk könnun bendir til að 4% barna trúa því sem þau sjá og heyra í auglýsingum. Meirihluti barna er spurður álits þegar stærri innkaup eru gerð fyrir heimilið. 15.6.2006 06:00
Skora á ráðherra að banna hvalveiðar á hvalaskoðunarsvæðum Samtök ferðaþjónustunnar skora á sjávarútvegsráðherra að beina hvalveiðum út fyrir auglýst hvalaskoðunarsvæði til að minnka árekstra milli þeirra sem hafa lifibrauð sitt af að skoða hvali og þeirra sem finnst nauðsynlegt að skjóta þá. Samtökin segja óásættanlegt að hvalveiðimenn skjóti gæfustu hrefnurnar sem einmitt sé mesti fengurinn fyrir hvalaskoðara að sjá. 14.6.2006 23:15
Búið að opna í Kerlingarfjöllum Útivistarsvæðið í Kerlingarfjöllum opnaði formlega nú um helgina þar sem nú er búið að opna fyrir umferð um Kjalveg í báðar áttir og er hann nýheflaður og í góðu standi. Að sögn staðarhaldara hefur umferð til Kerlingarfjalla farið stigvaxandi frá því að skíðaiðkun var þar aflögð árið 2002 og farið að markaðssetja svæðið sem almennt útivistarsvæði yfir sumartímann. 14.6.2006 23:00
25 athugasemdir vegna frummatsskýrslu Fjarðaráls 25 athugasemdir bárust vegna frummatsskýrslu Alcoa Fjarðaráls á umhverfisáhrifum álvers á Reyðarfirði, frá náttúruverndarsamtökum og einstaklingum. Skýrslan gerir meðal annars úttekt á mengun frá álverinu í lofti sem á láði og er það niðurstaða skýrslunnar að með þurrhreinsibúnaði einvörðungu verði öll mengun frá álverinu undir viðmiðunarmörkum. 14.6.2006 22:45
Leiðtogar Mið- og Austur-Asíu funda í Shanghai Aðildarþjóðir Shanghai samvinnustofnunarinnar hittust í dag á aðalfundi hennar. Búist er við að Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, eigi þar tvíhliða fundi með Kína og Rússlandi um afstöðu þeirra til kjarnorkudeilu Vesturveldanna við Íran. 14.6.2006 22:19
Icelandair semur við sænska ríkið Icelandair hefur náð samningum við sænska ríkið um að fljúga með starfsmenn þess á milli Svíþjóðar og Íslands annars vegar, og hins vegar á milli Svíþjóðar og Bandaríkjanna. Að sögn Sigmundar Halldórssonar, starfandi upplýsingafulltrúa Icelandair, er samningurinn stór áfangi fyrir félagið. 14.6.2006 22:19
Segir það ekki hlutverk sjóðanna að byggja og reka hjúkrunarheimili Framkvæmdarstjóri Landsamtaka Lífeyrissjóða segir það ekki vera hlutverk lífeyrissjóðanna að byggja og reka húsnæði fyrir eldri borgara. Hann segir hugmyndina vera andvana fædda. 14.6.2006 20:55
Vill að lífeyrissjóðirnir komi að uppbyggingu húsnæðis fyrir eldri borgara 70,8% þjóðarinnar er hlynt því að lífeyrissjóðirnir komi að uppbyggingu húsnæðis fyrir eldri borgara, samkvæmt nýlegri Gallup könnun. Helgi Vilhjálmsson, stjórnarmaður í Aðstandendafélagi aldraðra, vill lífeyrissjóðirnir skili hluta tekna sinna aftur til sjóðsþega með þessum hætt 14.6.2006 20:50
Miklar breytingar á sendiherraskipan Miklar breytingar verða gerðar á sendiherraskipan íslensku utanríkisþjónustunnar á næstunni. Ráðuneytið sendi frá tilkynningu síðdegis þar sem greint er frá þeim sem nú þegar hafa verið ákveðnar. 14.6.2006 20:39