Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Íbúðarsamtökin Betri byggð á Álftanesi ósátt Íbúðarsamtökin Betri byggð á Álftanesi segja vinnubrögð meiri hlutans í bæjarstjórn skammarleg um ný samþykkt deiliskipulag miðsvæðis bæjarinns. Í tilkynningu frá samtökunum segir að um helmingur kosningabærra íbúa Álftaness eða tæplega 700 manns skrifuðu á undirskriftalista í desember s.l. gegn miðbæjarskipulagi Álftaness sem þá var í auglýsingu. Krafan var að fá fram nýtt skipulag og að íbúar fengju að velja á milli ólíkra tillagna. Í kjölfarið lýsti bæjarstjóri því yfir að framkvæmdum á svæðinu yrði frestað fram yfir kosningar svo að íbúarnir gætu kosið um miðbæjarskipulag. Þrátt fyrir yfirlýsinguna lét meiri hlutinn vinna deiliskipulagið áfram og samþykkti það í bæjarstjórn en felldi tillögu minni hlutans að frestað yrði að senda Skipulagsstofnun hið umdeilda deiliskipulag til yfirferðar þar til fram yfir kosningar. Breytingarnar sem gerðar voru taka aðeins til mjög takmarkaðs hluta miðsvæðisins, þ.e. með nýjum aðkomuvegi frá Breiðumýri að skólasvæði. Skilaboð þeirra 700 íbúa sem skrifuðu undir undirskrifalistana voru einfaldlega þau að skipulagstillögunni var hafnað í heild sinni. Öllum að óvörum var kynningarefni, bæklingur á þykkum glanspappír og margmiðlunardiskur, nýlega borið í hús á Álftanesi á kosnað bæjarsjóðs og þeirra hundruða íbúa sem mótmæltu miðbæjarskipulaginu. Spurningin er hvaða tilgangi kynningarefnið þjónar nú og fyrir hvern það er hugsað? Hefði ekki verið eðlilegra að kynna íbúunum miðbæinn áður en deiliskipulagið var samþykkt? Eða er tilgangur kynningarefnisins að afla meiri hlutanum vinsælda á meðal kjósenda nú rétt fyrir kosningar? Íbúasamtökin betri byggð á Álftanesi lýsa undrun sinni og vonbrigðum með framgöngu meiri hlutans í bæjarstjórninni í vinnuferlinu öllu og því virðingarleysi sem megin þorra íbúa sveitarfélagsins Álftaness er sýnt. 5.5.2006 17:58
Amnesty þrýstir á stjórnvöld Amnesty International á Íslandi hefur sent bréf til íslenskra yfirvalda þar sem þess er farið á leit að við kosningu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna á þriðjudag í næstu viku, verði hagsmunir mannréttinda eingöngu hafðir að leiðarljósi, en ekki pólitísk hrossakaup. 5.5.2006 17:56
200 milljóna tap hjá Ríkisútvarpinu Ríkisútvarpið var rekið með tapi upp á tæpar tvö hundruð milljónir á síðasta ári. Eiginfjárstaða fyrirtækisins var rétt yfir núlli í ársbyrjun 2005 en var neikvætt um 186 milljónir í árslok. Þessar upplýsingar koma fram í ársuppgjöri Ríkisútvarpsins sem var gert opinbert í dag. 5.5.2006 17:36
Þjóðleikhúsið og Icelandair undirrita samstarfssamning Þjóðleikhúsið og Icelandair undirrituðu í dag samstarfssamning en arkmið hans er að auðvelda Þjóðleikhúsinu að fara til útlanda með íslenska leiklist segir í tilkynningu frá Þjóðleikhúsinu. 5.5.2006 16:52
Uppgjör Marel undir væntingum Marel skilaði uppgjöri fyrir fyrsta fjórðung ársins í dag. Í tilkynningu frá félaginu segir að tekjur félagsins voru aðeins hærri en spá Greiningardeildar gerði ráð fyrir. Tekjurnar námu samtals 32,7 m. evra en spá okkar hljóðaði upp á 28,5 m. evra. 5.5.2006 16:41
Lögreglan finnur kókaín í bíl Lögreglan í Hafnafirði lagði hald á 2 grömm af kókaíni sem var í eigu ökumanns sem var stöðvaður á Vífilstaðarvegi í dag. Ökumaðurinn sem er 22 ára játaði við yfirheyrslur að hann hafi nýverið keypt kókaínið á 26 þúsund krónur sem var ætlað til einkaneyslu. 5.5.2006 16:36
Vestfirðir kynntir í Perlunni Sýningin Perlan Vestfirðir verður sett í Perlunni í dag. Á sýningunni verða kynntir möguleikar á sviði ferðaþjónustu, atvinnu- og mannlífs á Vestfjörðum. 5.5.2006 16:22
Starfsfólk Varnarliðsins boðað á fund með Geir H. Haarde Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar hefur boðið starfsfólki Varnarliðsins til fundar í sal Fjölbrautaskóla Suðurnesja næstkomandi mánudag. 5.5.2006 16:16
Verkamannaflokkurinn galt afhroð Kosið var í 176 sveitastjórnum í gær og samkvæmt nýjustu tölum hlaut Verkamannaflokkurinn 1174 sæti í 26 stjórnum og tapaði 288 sætum og þar með 18 sveitastjórnum. Á sama tíma hlaut Íhaldsflokkurinn 68 stjórnir. 5.5.2006 14:45
Mannfall í handsprengjuárás á Srí Lanka Þrír öryggissveitarmenn féllu og fjórtán særðust, þar af tíu óbreyttir borgarar, í tveimur sprengingum og handsprengjuárás á norðurhluta Srí Lanka í dag. Talið er að uppreisnarmenn Tamíl tígra bergi ábyrgð á árásunum sem voru gerðar í bæ rúmum tvö hundruð kílómetrum norður af höfuðborginni Colombo. 5.5.2006 14:15
Rafstuðsólar geta gert hunda árásargjarna og sálsjúka Hundaólar með rafstuði, sem seldar eru í verslun í Reykjavík, geta gert hunda árásargjarna og sálsjúka, að sögn hundaatferlisfræðings. Hann vill að bannað verði með lögum að flytja ólarnar inn og selja þær. 5.5.2006 13:45
Ríkissjóður á 50 milljarða króna Ríkissjóður er orðinn svo vel stæður að hann á 50 milljarða króna á reikningi í Seðlabankanum, sem eru umfram það sem þarf til afborgana og vaxtagreiðslna. Bankinn á andvirði Símans þar að auki. 5.5.2006 13:15
Breytingar á friðarsamningum í Súdan Stjórnvöld í Súdan hafa samþykkt breytingar á friðarsamningum milli stríðandi fylkinga í Darfur-héraði. Þetta er haft eftir háttsettum sáttasemjara á vegum Afríkubandalagsins. 5.5.2006 13:00
73 breytingar á bensínverði árið 2005 Talsmenn Atlantsolíu telja víst að lækkun stóru olíufélaganna á bensíni í gær megi rekja til þess að Atlantsolía hafi ekki hækkað sitt verð upp á síðkastið, eins og stóru félögin. Benda þeir á að áður en félagið kom inn á markaðinn hafi stóru félögin aðeins endurskoðað verðlagningu á mánaðar fresti, en sjötíu og þrjár verðbreytingar hafi orðið hjá þeim á síðasta ári. 5.5.2006 12:45
Hálfur annar milljarður í nefndir Nefndir ráðuneytanna kostuðu ríkissjóð nær einn og hálfan milljarð króna á síðasta ári. Rúmlega helmingur þeirrar upphæðar er vegna starfa einkavæðingarnefndar. 5.5.2006 12:15
Segist ekki hafa verið við stýri Jónas Garðarsson, formaður Sjómannafélags Reykjavíkur, segist ekki hafa verið við stýrið þegar skemmtibátur hans steytti á skeri á Viðeyjarsundi, sem leiddi til dauða karls og konu. Málflutningur hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. 5.5.2006 11:52
Þrettán ráðnir fyrstir til starfa Fyrstu starfsmennirnir sem Flugmálastjórn Keflavíkurflugvallar ræður til að vinna við rekstur flugvallarins verða þrettán starfsmenn snjóhreinsunar- og brautadeildar. Vinna við samningagerð og ráðningar fer fljótt í fullan gang. 5.5.2006 10:57
Ráðherrabreytingar í bresku ríkisstjórninni Charles Clarke, innanríkisráðherra í bresku ríkisstjórninni, lætur af embætti sínu og Jack Straw utanríkisráðherra verður forseti neðri deildar þingsins. John Prescott varaforsætisráðherra verður þó ekki látinn víkja en einhver verkefni tekin af honum. 5.5.2006 10:02
Fimm ölvaðir við akstur Lögreglan í Reykjavík stöðvaði 120 ökumenn upp úr miðnætti í nótt. Fimm þeirra reyndust vera undir áhrifum áfengis og þar af var einn réttindalaus. Auk þess voru tveir rétt undir leyfilegum mörkum og fengu ekki að halda áfram akstri í nótt, en verða hinsvegar ekki sektaðir. 5.5.2006 09:30
Sagðir stelast inn í lögsögu Skipstjórar á íslenskum frystitogurum halda því fram að erlendir togarar eigi það til að stelast inn fyrir 200 mílna fiskveiðilögsögumörk Íslands á Reykjaneshrygg þegar Landhelgisgæslan sér ekki til, en slíkt er landhelgisbrot. 5.5.2006 09:15
Heldur í helstu landnemabyggðir Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, hét því að halda í helstu landtökubyggðir Ísraela á Vesturbakkanum þegar ríkisstjórn hans sór embættiseið í gær. Fjórir flokkar eiga aðild að ísraelsku ríkisstjórninni en Olmert sagðist stefna að því að fá fleiri flokka til samstarfs. 5.5.2006 09:00
Fasteignaskattar hafa lækkað um 25% í Árborg Bæjarstjórn Árborgar hefur ákveðið að lækka fasteignaskatta úr núll komma 37 prósentum í núll komma þrjátíu. Þessi lækkun bætist ofan á lækkun sem ákveðin hafði verið í desember í fyrra. Samtals hafa fasteignaskattar því lækkað um 25 prósent í Árborg. Fasteignaskattar hafa lækkað víða á suðvesturhorninu í kjölfar gífurlegrar hækkunar á fasteignaverði enda eru skattarnir reiknaðir út frá fasteignamati. 5.5.2006 09:00
Sagðir ætla að myrða teiknarana Tólf öfgafullir múslimar eru sagðir á leið til Danmerkur til þess að myrða mennina, sem teiknuðu skopmyndirnar af Múhameð spámanni, sem birtar voru í Jótlandspóstinum. 5.5.2006 08:15
Einn og hálfur milljarður í nefndastörf Heildarkostnaður ríkissjóðs vegna nefndastarfa á vegum ráðuneyta nam nær einum og hálfum milljarði króna á síðasta ári. Tæplega helmingur þeirrar upphæðar er til kominn vegna starfa einkavæðingarnefndar. 5.5.2006 08:15
Taka við Keflavíkurflugvelli 1. júlí Íslendingar taka við rekstri Keflavíkurflugvallar 1. júlí næstkomandi. Lög í þessa veru voru samþykkt frá Alþingi í gærkvöldi. Það var þó ekki hægt fyrr en þingmenn voru þrisvar búnir að greiða atkvæði með afbrigðum svo hægt væri að flýta afgreiðslu frumvarpsins. 5.5.2006 08:02
Færri bjóða í lóðir en áður Boðnar voru tíu til fjórtán milljónir króna í hverja lóð í tíu lóða útboði Reykjavíkurborgar í lóðir í Úlfarsárdal, en tilboðin voru opnuð í gær. Alls bárust 143 tilboð í lóðirnar frá aðeins sautján bjóðendum. 5.5.2006 08:00
Vilja gagnsæi í starfskjörum þingmanna og ráðherra Samtök atvinnulífsins segja að ekki skapist sátt um starfskjör kjörinna fulltrúa ef þau verði áfram ógagnsæi og ákvörðuð á mörgum stöðum. Þau vilja að þingmenn og ráðherrar deili lífeyriskjörum með öðrum í landinu en miðað við núverandi stöðu geta lífeyriskjör ráðherra umfram almenna launþega eftir þrjú kjörtímabil verið ígildi yfir 100 milljóna króna starfslokagreiðslu. 5.5.2006 08:00
Blair stokkar upp stjórn sína Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hóf uppstokkun í ríkisstjórn sinni nú í morgun eftir slæmt gengi Verkamannaflokksins í sveitastjórnarkosningum. Blair vill þó ekkert gefa upp um hvaða breytingar sé um að ræða að svo stöddu. 5.5.2006 07:50
Deilt um skattbyrði í ljósi nýrra útreikninga Síðustu þrír fjármálaráðherrar Sjálfstæðisflokksins eru mestu skattpíningarráðherra Íslandssögunnar fyrir fólk með lágar tekjur og meðaltekjur, sagði Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar í umræðum á þingi í kvöld um skattbyrði. Fjármálaráðherra sakaði Samfylkinguna um hentistefnu í skattaumræðum og sagði vitlausar fullyrðingar um skattbyrði ekki verða réttari þótt fleiri endurtækju þær. 4.5.2006 22:53
Hugbúnaður til bjargar mannslífum 100 Íslendingar látast á íslenskum sjúkrahúsum árlega vegna óhappa við lyfjagjöf. Íslenskt fyrirtæki, TM Software, hefur hannað forrit sem tugir spítala víðs vegar um heim hafa keypt til að minnka líkurnar á mistökum. 4.5.2006 22:40
Varúð: bjarnaeitur Lögreglan í Frakklandi leitar nú bjarnahatara sem höfðu komið fyrir krukkum með hunangi blönduðu glerbrotum, sem ætlað var að drepa skógarbirni sem nýlega hafa verið fluttir til Pýreneafjallanna þegar tegundin var nær útdauð út þar. Krukkurnar voru merktar "Varúð: bjarnaeitur". 4.5.2006 22:00
Þrettán sækja um brauðið í Odda Þrettán prestar og guðfræðingar sóttu um stöðu sóknarprests í hinu sögufræga Oddaprestakalli í Rangárvallasýslu. Umsóknarfrestur rann út 2.maí síðastliðinn en dóms- og kirkjumálaráðherra skipar í embættið frá og með 1.júlí næstkomandi, að fenginni umsögn valnefndar. 4.5.2006 21:45
Brá og stökk fyrir vaktstjórabílinn Maður slasaðist á fæti við störf sín í verksmiðju Norðuráls á Grundartanga um hálfsjöleytið í kvöld. Hann var við vinnu við eitt af bræðslukerjum álversins þegar lítil sprenging varð. Ekki var sprengingin þó alvarleg sem slík, fyrir utan það að manninum brá svo mikið að hann stökk niður af kerinu og í veg fyrir vaktstjórabílinn sem kom þar aðvífandi. 4.5.2006 21:42
Þingi frestað fram yfir sveitarstjórnarkosningar Þingi var frestað á níunda tímanum í kvöld eftir að tvenn lög höfðu verið samþykkt. Önnur sneru að stofnun nýrrar Flugmálastjórnar á Keflavíkurflugvelli til bráðabirgða. Margs konar starfsemi á Keflavíkurflugvelli mun heyra undir hina nýju stofnun, meðal annars slökkvilið og rekstur flugbrauta. Þá var samþykkt að breyta lögum um framhaldsskóla á þann hátt að fella niður samræmd stúdentspróf. 4.5.2006 21:21
Maóistar í Nepal samþykkja vopnahlésviðræður Uppreisnarhópar maóista í Nepal hafa samþykkt boð stjórnvalda um vopnahlé og friðarviðræður. Maóistar tilkynntu í dag að þeir myndu sjálfir leggja niður vopn í þrjá mánuði meðan viðræður stæðu yfir. 4.5.2006 21:15
Páfi bannfærir biskupa í Kína Vatikanið hefur bannfært tvo biskupa sem settir voru inn í embætti í Kína í gær og á sunnudaginn án þess að haft væri samráð við Vatikanið. Innsetning biskupanna tveggja setja skarð í reikninginn í sáttaviðræðum Vatikansins og kaþólsku kirkjunnar sem sagði sig frá valdi páfa fyrir um fimmtíu árum síðan. 4.5.2006 21:00
Bandaríkjamenn kynda undir borgarastyrjöld að sögn forseta Sómalíu Forseti Sómalíu, Abdullahi Yusuf, segir Bandaríkjamenn styrkja hópa vígamanna og kynda með því undir borgarstyrjöld í landinu. Fylking vígamannahópa, sem hann segir að njóti stuðnings Bandaríkjamanna, hefur undanfarið átt í blóðugum átökum við hópa múslimskra öfgamanna. 4.5.2006 20:45
Óbyggðahlaup á Vestfjörðum í sumar Nýtt óbyggðahlaup verður háð á Vestfjörðum um miðjan júlí í sumar. Keppnin ber heitið Vesturgatan - víðavangshlaup Höfrungs og er hlaupið um 25 kílómetra leið. Frá þessu er sagt í vefriti Bæjarins besta. Leiðin liggur frá Stapadal í Arnarfirði, út í Lokinhamradal, fyrir Sléttanes og inn að Hrauni/Sveinseyri í Dýrafirði. 4.5.2006 20:30
Gengi bréfa í Kauphöll Íslands hækkaði í dag Úrvalsvísitalan hækkaði um tvö komma þrjú prósent í dag og virðist sem trú landans á markaðinum hafi aukist eftir annars miklar lækkanir að undanförnu. 4.5.2006 20:14
Ástsælasti sálmurinn er Dag í senn Söngmálastjóri þjóðkirkjunnar gerði nýverið könnun meðal presta og organista á því hver sálmanna í nýju sálmabókinni ætti skilið að kallast ástsælastur. Í efsta sæti á lista yfir tíu efstu trónir sálmurinn sem hefst svo: "Dag í senn, eitt andartak í einu", sem er ljóð eftir biskupinn fyrrverandi Sigurbjörn Einarsson við erlent lag. 4.5.2006 20:00
Þyrlusveit gæslunnar varla tilbúin í haust Nær útilokað er að Landhelgisgæslan hafi til reiðu fjögurra þyrlna fullmannaða sveit í haust, þegar áætlað er að herþyrlur fari af landi brott. Það tekur til að mynda lágmark fjóra til fimm mánuði að þjálfa nýjan flugmann. 4.5.2006 19:24
Bankar bregðast seint við Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, gagnrýndi í dag viðskiptabankana fyrir að bregðast seint við í að draga úr útlánum sínum. Jafnframt sagði hann brýnt að breyta fyrirkomulagi opinbera íbúðalánakerfisins fyrir áramót. 4.5.2006 19:19
Unga fólkið í framboð á Akureyri Nýr framboðslisti verður kynntur á Fiðlaranum á Akureyri á opnum fundi klukkan 20:00. Listinn er í nafni Framfylkingarflokksins sem er þverpólitískt framboð ungs fólks á Akureyri sem telur að ekki hafi verið hlustað nægilega á rödd unga fólksins í bæjarfélaginu. 4.5.2006 19:07
Gengi krónunnar hækkað um yfir 4% á 2 dögum Krónan styrktist verulega í dag, annan daginn í röð, og hækkaði gengi hennar um tvö og hálft prósent í kjölfar eins komma sjö prósenta hækkunar í gær. Gengi bandaríkjadals er nú komið niður undir sjötíuogeina krónu og gengi evru er í nítíuogeinni krónu. Íslensk hlutabréf hækkuðu einnig í dag eftir lækkanir síðustu daga, og hækkaði úrvalsvísitalan um 2,3 prósent. 4.5.2006 19:04
Samið um Héðinsfjarðargöng Vegagerðin tilkynnti í dag að lægsta tilboði í Héðinsfjarðargöng hefði verið tekið. Skrifað verður undir 5,7 milljarða króna verksamning á Siglufirði eftir tvær vikur og er stefnt að því að framkvæmdir hefjist fyrir lok þessa mánaðar. 4.5.2006 18:55