Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ákærður vegna pyntinga Fyrrverandi yfirmaður við Abu Ghraib fangelsið hefur verið ákærður vegna pyntinga og annarra mannréttindabrota við fangelsið. Steve Jordan, sem lengi vel fór fyrir yfirheyrslum við fangelsið, er æðsti embættismaðurinn sem hefur verið ákærður vegna mannréttindabrotanna. Tíu fyrrverandi undirmenn hans hafa auk þess verið ákærðir fyrir illa meðferð á föngum við Abu Ghraib. 29.4.2006 10:47
Harður árekstur Harður árekstur tveggja fólksbíla varð á mótum Vesturlandsvegar og Skeiðarvogs í Reykjavík rétt upp úr klukkan sjö í morgun. Einn var fluttur á slysadeild Landsspítalann til aðhlynningar en hann er ekki talinn vera alvarlega slasaður. Ökumaður keyrði í gegnum girðingu sem liggur á milli akgreina á miklubrautinni skammt vestan við skeiðavog um sjöleitið í morgun. Ökumaðurinn, sem grunaður er um ölvun við akstur, var með minnitáttar áverka en hann var fluttur á slysadeild til aðhlynningar. Hann var einn í bíl sínum. 29.4.2006 10:45
Tilbúnir að hleypa þeim inn Íranar segjast reiðubúnir að hleypa eftirlitsmönnum Sameinuðu Þjóðanna aftur inn í landið, gegn því að kjarnorkumál landsins verði tekin af borði öryggisráðs Sameinuðu Þjóðanna. Aðstoðar kjarnorkumála ráðherra landsins segir hins vegar að það komi ekki til greina að hætta auðgun úrans. Það er það sem vestræn ríki, með Bandaríkjamenn í broddi fylkingar, hafa lagt ofuráherslu á og því ekkert útlit fyrir annað en að deilan haldi áfram. 29.4.2006 10:43
Lokað fyrir umferð um Dyrhólaey Umhverfisstofnun hefur ákveðið að loka fyrir almenna umferð um Dyrhólaey frá 1. maí næstkomandi og til með 25. júní. Umhverfistofnun mun jafnframt, í samráði við landeigendur og nytjaréttarhafa, fylgjast með varpi á eynni og skoða hvort opna eigi fyrr fyrir umferð á Háey. 29.4.2006 09:15
Kraflar hefur það gott í Húsdýragarðinum Höfðinginn mikli, Kraflar frá Miðsitju, hefur dvalið í góðu yfirlæti í Húsdýragarðinum í vetur. Klárinn lítur ótrúlega vel út og að sögn dýrahirða í garðinum er hann hvers manns hugljúfi. Kraflar er alltaf jafn unglegur og ef ekki væri fyrir gráu hárin í enni hans myndi maður alveg getað trúað því að þarna væri ungfoli á ferð. Feldurinn svartur og glansandi, byggingin létt og fasið unglegt. 29.4.2006 09:02
Vegurinn um Þrengslin lýstur upp Vonast er til að vegurinn um Þrengslin verði upplýstur í kringum næstu áramót. Stjórnarformaður Orkuveitunnar segir þá hafa boðið Vegagerðinni að taka þátt í að lýsa einnig upp Hellisheiðina. 28.4.2006 23:28
Sammála um að aðgerða þörf í málefnum aldraðra Oddvitar stjórnmálaflokkanna í Reykjavík eru sammála um að aðgerða sé þörf í málefnum aldraðra. Formaður Félags eldri borgara segir það kröfu félagsins að málefnin aldraðra verði alfarið færð til sveitafélaganna. 28.4.2006 23:00
Aðeins eftir að semja í Sunnuhlíð Samningar hafa tekist milli ófaglærðra á Hrafnistu og forstöðumanna dvalar- og hjúkrunarheimilisins. Eftir því sem fréttastofa NFS kemst næst, þá eiga aðeins ófaglærðir á Sunnuhlíð í Kópavogi eftir að semja. 28.4.2006 22:45
Kosningarnar framundan lita Gustsmálin Kosningarnar í vor hafa hugsanlega áhrif á deilurnar sem sprottnar eru upp um kaup á húsum á hinu svokallaða Gustssvæði, segir talsmaður viðræðunefndar Gusts. Forsvarsmenn félagsins sáu sig knúna til að kalla til fundar í kvöld til að skýra málin fyrir félagsmönnum. 28.4.2006 22:37
Vill að ráðherrar og þingmenn fái sömu lífeyrisréttindi og aðrir ríkisstarfsmenn Ögmundur Jónasson, þingmaður og formaður BSRB vill að ráðherrar og þingmenn fái sömu lífeyrisréttindi og aðrir ríkisstarfsmenn. Hann ætlar samt sem áður að styðja frumvarp um Kjararáð sem nú liggur fyrir. 28.4.2006 22:34
Chavez hótar stjórnvöldum í Perú Hugo Chavez, forseti Venesúela, hótar því að hætta öllum samskiptum við Perú ef Alan Garcia verði kjörinn forseti landsins. Chavez lét hafa þetta eftir sér í kjölfar þess að Garcia gagnrýndi hann opinberlega. Chavez hefur styður andstæðing Garcia í annarri umferð kosninganna. 28.4.2006 22:30
Háttsettur hermaður ákærður fyrir meðferð á föngum í Abu Ghraib Bandaríkjaher hefur ákært yfirmann í hernum fyrir illa meðferð á íröskum föngum í Abu Ghraib fangelsinu í Bagdad. Enginn hermaður með jafn háa tign hefur áður verið ákærður í málinu. 28.4.2006 22:00
Umferðarteppa við Hvalfjarðargöngin Mikil umferð er nú við Hvalfjarðargöngin en þau eru ný opnuð eftir tuttugu mínútuna lokun. En loka þurfti göngunum eftir að vörubíll með of háan farm keyrði niður hæðarslá við norðurenda ganganna. Vörubíllinn var með gröfu á pallinum en eftir að hafa keyrt niður slána hélt hann áfram sína leið en það var vegfarandi sem keyrði á eftir honum sem lét vita af atvikinu. 28.4.2006 21:23
Íraksstríðið dýrara en stríðið í Víetnam Allt stefnir í að kostnaður Bandaríkjamanna vegna stríðsrekstrarins í Írak verði meiri en við Víetnamstríðið. Samanlögð útgjöld vegna hernáms Afganistans og Íraks nema um 60 þúsund milljörðum króna. 28.4.2006 19:45
Verkmenntaskóli Austurlands 20 ára Það var mikið um fjör á Neskaupsstað í dag þegar Verkmenntaskóli Austurlands fagnaði tuttugu ára starfsafmæli sínu. Á Fréttavefnum Aussturlandið.is kemur fram að fjölmenni hafi verið á afmælishátíðinni og meðal gesta voru Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og bæjarstjóri Fjarðarbyggðar, Guðmundur Bjarnason. 28.4.2006 19:38
Prófessor segir Íslendingum bera að kanna aðra valkosti í varnarmálum Michael Corgan, prófessor við Boston-háskóla telur að Íslendingum beri skylda til að kanna aðra valkosti í varnarmálum, jafnvel á meðan viðræður standi yfir við Bandaríkjamenn. Frakkar séu greinilega reiðubúnir að draga fram hversu óáreiðanlegir Bandaríkjamenn séu sem bandamenn. 28.4.2006 19:30
Kvöldfréttir NFS sauma að kvöldfréttum RÚV Kvöldfréttir NFS sauma nú að kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins í áhorfi samkvæmt nýrri áhorfskönnun IMG Gallup sem opinberuð var í dag. Samkvæmt henni mælist áhorf á kvöldfréttatíma Ríkissjónvarpsins 40.4% miðað við 34.5% áhorf á kvöldfréttatíma NFS. 28.4.2006 19:15
Biðröð á bensínstöðvum vegna tímabundinna verðlækkana Það hljómaði eins og aprílgabb þegar tilkynnt var á útvarpsstöðinni Kiss FM í dag að eldsneytisverð yrði lækkað á bensínstöðvum Bensínorkunnar í höfuðborginni um nærri þriðjung miðað við almennt verð. Svo var þó ekki og því mynduðust langar biðraðir á stöðvunum á meðan tilboðið stóð enda hefur dropinn verið dýr undanfarnar vikur. 28.4.2006 19:00
Íranar halda sínu striki Deilan um kjarnorkuáætlun Írana harðnaði enn í dag þegar í ljós kom að þeir hafa hundsað áskoranir alþjóðasamfélagsins um að láta af auðgun úrans. Stjórnvöld í Teheran eru sögð hafa fest kaup á meðaldrægum norðurkóreskum eldflaugum sem geta náð til Evrópulanda. 28.4.2006 18:45
Þurfa að kanna pólitíks tengsl viðskiptavina Bankar þurfa að kanna pólitísk tengsl viðskiptavina sinna, samkvæmt frumvarpi um peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Í áhættuhópi eru þeir sem eru eða hafa verið háttsettir í opinberri þjónustu og eru búsettir utan Íslands, sem og nánasta fjölskylda þeirra. 28.4.2006 18:45
Íranar virtu kröfur Öryggisráðs SÞ að vettugi Alþjóða kjarnorkumálastofnunin kynnti Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna fyrir stundu nýja skýrslu um stöðu mála í kjarnorkudeilunni við Írana. Þar segir að stjórnvöld í Teheran hafi virt kröfur ráðsins að vettugi. Bandaríkjaforseti segist vona að hægt verði að semja um lausn deilunnar. 28.4.2006 17:30
Frakkar vilja tryggja Palestínumönnum fjárstyrk Frakkar ætla að nota áhrif sín á alþjóðavettvangi til að reyna að fá ríki og stofnanir til að veita Palestínumönnum fjárstyrk á ný. Þetta sagði Jacques Chirac, Frakklandsforseti, fyrir fund sinn með Mahmoud Abbas, forseta Palestínumanna, í París í dag. 28.4.2006 15:30
DV framvegis helgarblað Útgáfu DV verður hætt í núverandi mynd og kemur blaðið framvegis aðeins út um helgar. Tíu manns verður sagt upp störfum á ritstjórninni. Þetta kom fram á starfsmannafundi hjá blaðinu í dag. 28.4.2006 15:25
Þing Nepals koma saman í fyrsta sinn í 4 ár Þing Nepals kom saman til fundar í dag í fyrsta sinn í 4 ár. Þingmenn lögðu þá til að samið yrði um varanlegt vopnahlé við uppreisnarmenn Maóista og að boðað yrði til þingkosninga hið fyrsta. 28.4.2006 15:00
Sveitarfélag Ölfuss og OR semja um samstarf Sveitarfélagsins Ölfuss og Orkuveita Reykjavíkur hafa gert með sér samkomulag sem felst meðal annars í lýsingu Þrengslavegar, samstarf við uppgræðslu og umhverfisvernd, framkvæmdir í sveitarfélaginu og ljósleiðaravæðingu í þar. 28.4.2006 14:15
Starfsfólk DV boðað til starfsmannafundar Starfsfólk DV hefur verið boðað til starfsmannafundar klukkan þrjú. Ritstjórar blaðsins hafa ekki gefið neitt upp um efni fundarins, en búast má við að hann fjalli um framtíð blaðsins. NFS fylgist með og segir fréttir af fundinum um leið og þær berast. 28.4.2006 14:08
Frumvarp um frjálst flæði vinnuafls samþykkt Frumvarp til laga um breytingar á lögum um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan EES og um atvinnuréttindi útlendinga var samþykkt á Alþingi nú á öðrum tímanum með 46 greiddum atkvæðum. Frumvarpið snýr að réttindum ríkisborgara frá átta af tíu hinna nýju Evrópusambandsríkja. Þeir geta nú komið hingað til lands og ráðið sig í vinnu án atvinnuleyfis frá og með 1. maí. 28.4.2006 14:00
Vinnubrögð meirihlutans algjörlega óviðunandi Vinnubrögð meirihlutans í Kópavogi í málefnum Gustssvæðisins eru algjörlega óviðunandi að mati Samfylkingarmanna í bænum. Kópavogsbær hefur ákveðið að ganga til viðræðna við stjórnarmenn Gusts um að taka yfir kauptilboð þeirra á hesthúsum á svæðinu.Forsaga málsins er sú að í ágúst í fyrra hófu fjárfestar að kaupa upp hesthús á Gustssvæðinu sem svo er kallað og fyrr en varði áttu þeir um 40 prósent húsanna. 28.4.2006 13:46
Setuverkfall á Hrafnistu í Reykjavík en ekki Hafnarfirði Ófaglærðir starfsmenn á dvalarheimilinu Hrafnistu í Reykjavík ákváðu á fundi nú í hádeginu að halda til streitu steuverkfalli sínu. Starfsmenn á Hrafnistu í Hafnarfirði ákváðu hins vegar að hætta aðgerðum og ganga að tilboði Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu. 28.4.2006 13:36
Dagsbrún telur RÚV-frumvarp brjóta í bága við EES-samninginn Dagsbrún telur að frumvarp til laga um Ríkisútvarpið hf. brjóti í bága við ákvæði EES-samningsins um ríkisaðstoð. Í tilkynningu frá félaginu segir að það að með því að undanskilja Ríkisútvarpið reglum um eignarhald er óhjákvæmilega verið að lögfesta mismunun á grundvelli þjóðernis sem EES-reglur banni. 28.4.2006 13:26
Bandaríkjamenn fjölga herstöðvum í A-Evrópu Á sama tíma og Bandaríkjamenn draga úr varnarviðbúnaði sínum í Vestur-Evrópu fjölga þeir herstöðvum austar í álfunni. Bandaríkin og Búlgaría undirrituðu í dag samning um herstöð þar í landi. 28.4.2006 13:00
Frumvarp til laga um frjálsa för verkafólks rætt á þingi Nú stendur yfir á þingi önnur umræða um frumvarp um breytingar á lögum um frjálsan atvinnu- og búseturrétt launafólks innan EES og um atvinnuréttindi útlendinga. Lögin eiga að taka gildi 1. maí og því liggur á að samþykkja þau. 28.4.2006 12:45
Rætt hvort halda eigi aðgerðum áfram á Hrafnistu Neyðarástand skapast á dvalar- og hjúkrunarheimilum ef ekki semst við ófaglært starfsfólk á allra næstu dögum. Deilan strandar á svari frá fjármálaráðherra segir formaður Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu. Nú klukkan hálfeitt var boðað til neyðarfundar á Hrafnistu í Reykjavík þar sem ekki er samstaða meðal starfmannanna um hvort halda eigi setuverkfalli til streitu. 28.4.2006 12:34
Ólíklegt að Íslendingar fái breytt varnaráætlun Ólíklegt má telja að Íslendingar fái nokkru breytt um þá varnaráætlun sem sendinefnd Bandaríkjamanna kynnti í íslenska utanríkisráðuneytinu í gær. Ekki síst í ljósi þess að varnarliðið birti í gær áætlun um um lokun allra þjónustustofnana við varnarliðsmenn áður en fundur fulltrúa Íslendinga og Bandaríkjamanna hófst í gær. 28.4.2006 12:30
Vöruskiptahalli ekki meiri í einum mánuði í 17 ár Vöruskiptahallinn við útlönd í síðasta mánuði var 13,4 milljarðar króna og hefur ekki verið meiri í einum mánuði síðastliðin sautján ár. Jöfnuðurinn 16,7 milljörðum króna lakari á fyrsta ársfjórðungi þess árs en á sama tíma í fyrra. Bílainnflutningur jókst um nærri tvo þriðju á tímabilinu en búast má við að hann dragist saman á næstunni vegna lækkunar á gengi krónunnar. 28.4.2006 12:13
Systir fyrrverandi forseta Kólumbíu ráðin af dögum Systir fyrrverandi forseta Kólumbíu, Cesar Gaviria, var í gær drepin af óþekktum glæpamönnum. Atvikið átti sér stað í um 180 kílómetra fjarlægð frá Bogota höfuðborg landsins. Liliana Gaviria, sem var 52 ára fasteignasali, var á ferð með tveimur lífvörðum sínum þegar ráðist var á þau en annar lífvörður hennar féll einnig í árásinni. 28.4.2006 10:30
Sex stéttarfélög semja við LN Sex stéttarfélög samþykktu í vikunni nýgerða kjarasamninga við Launanefnd sveitarfélaga. Félögin eru svokölluð HugGarðsfélög en Félag íslenskra félagsvísindamanna, Félag íslenskra fræða og Stéttarfélag lögfræðinga samþykktu samninginn með öllum greiddum atkvæðum. 28.4.2006 10:15
Fimmti maðurinn í gæsluvarðhald vegna BMW-smygls Fimmti maðurinn hefur verið úrskurðaður í gærluvarðhald vegna rannsóknar á umfangsmiklu fíkniefnasmygli, þar sem reynt var að smygla tugum kílóa af fíkniefnum í bensíngeymi BMW-bifreiðar. Sá fimmti var Íslendingur, en auk fjögurra Íslendinga situr einn Hollendingur í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknarinnar. 28.4.2006 09:45
Skotveiðimenn bjartsýnni á gæsaveiðar í haust en áður Skotveiðimenn eru bjartsýnni með hverjum deginum sem líður á að hægt verði að stunda gæsaveiðar í haust, en eftir að fuglaflensu varð vart á Bretlandseyjum fyrir nokkru var talið víst að hún bærist hingað með farfuglum í vor. 28.4.2006 09:45
Bandaríkjastjórn bindi enda á þjóðarmorð Bandarískir kvikmyndaleikarinn George Clooney krafðist þess á blaðamannafundi í gær að ríkisstjórn Bandaríkjanna gerði allt sem hún gæti til að binda endi á þjóðarmorðin í Darfur-héraði í Súdan. Þá sagði Clooney almenning einnig geta lagt sitt af mörkum. 28.4.2006 09:30
Frakka íhuga að auka umsvif sín á N-Atlantshafi Frakkar íhuga að auka umsvif sín á Norður-Atlantshafi til að tryggja öryggi á svæðinu. Þetta segir Björn Bjarnason dómsmálaráðherra í viðtali við Morgunblaðið eftir viðræður við varnarmálaráðherra Frakklands í París í gær. 28.4.2006 09:15
Öryggisráð verði að vera tilbúið til aðgerða Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði á fundi utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins í Búlgaríu í gær að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna yrði að vera reiðubúið að grípa til aðgerða gegn Íran ef stjórnvöld í Teheran yrðu ekki við kröfum aðþjóðasamfélagsins í tengslum við kjarnorkuáætlanir sínar. 28.4.2006 09:00
Setuverkfall á a.mk. sex dvalarheimilum Setuverkfall ófaglærðra starfsmanna á að minnstakosti sex dvalar- og hjúkrunarheimilum á suðvesturlandi hófst á miðnætti vegna óánægju starfólks þar yfir því að fá laun sín ekki hækkuð til jafns við laun annarsstaðar fyrir sambærilega vinnu, fyrr en í upphafi næsta árs. 28.4.2006 08:33
Lögreglumaður skotinn í Cleveland Maður var skotinn til bana á flugvelli í Cleveland í Bandaríkjunum í gær. Maðurinn náði byssu eins lögreglumanns þegar til átaka koma á milli hans og tveggja lögregluþjóna og skaut annan þeirra tvisvar sinnum í brjóstið. Þá kom þriðji lögreglumaðurinn og skaut manninn til bana. 28.4.2006 08:30
Ákærð fyrir að hafa orðið nýfæddum börnum sínum að bana Réttarhöld hófust í Frankfurt í Þýskalandi í dag yfir konu sem er grunuð um að hafa orðið átta nýfæddum börnum sínum að bana. Líkamsleifar ungbarnanna fundust síðasta sumar. Málið hefur vakið mikinn óhug í Þýskalandi og er þess krafist að barnaverndarlög verði hert. 27.4.2006 23:00