Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fólksbíll valt Fólksbíll fór út af Ólafsfjarðarvegi við Ársskógsskóla um tvö-leytið í dag. Ökumaðurinn missti stjórn á bílnum í krapi og bíllinn fór út af og valt á hliðina. Ökumaðurinn slapp ómeiddur. Bíllinn er nánast óskemmdur. 31.10.2005 22:01
Sendibíll valt í Vatnsskarði Óhapp varð í Vatnsskarði í kvöld þegar sendibíll með fimm farþegum valt út af. Engin slys urðu á fólki. Björgunarsveitir aðstoðuðu við að ná bílnum upp á veginn aftur og hélt hann svo för sinni áfram. 31.10.2005 21:59
Slys í Skorholtsbrekku Slys varð í Skorholtsbrekkunni í Borgarfirðinum í gær þegar dráttarbíll með gámavagn rann út af í vindhviðu og valt ofan á fólksbíl sem hafði fokið út af nokkru áður. Þetta gerðist upp úr sex í gærkvöld. Umferðin stöðvaðist á þessum stað en bílum var beint niður Melasveitaveginn. Veður var vont fram eftir kvöldi í gær. 31.10.2005 21:56
Gabríela fékk heiðursverðlaun Myndstefs Gabríela Friðriksdóttir myndlistarmaður fékk í dag heiðursverðlaun Myndstefs. Þetta er í fyrsta sinn sem verðlaunin eru veitt, en það var forseti Íslands sem afhenti þau. 31.10.2005 21:52
Óttast aukið ofbeldi Breskt heilbrigðisstarfsfólk óttast aukið ofbeldi þegar lög sem leyfa eigendum öldurhúsa að selja áfengi allan sólarhringinn taka gildi í næsta mánuði. Fólk hefur mátt drekka allan sólarhringinn í Skotlandi og segir starfsfólk bráðamóttökunnar að það fari ekki milli mála að fleiri lendi í alvarlegum slagsmálum og ráðist jafnvel á hjúkrunarfólk. 31.10.2005 21:15
Neita að fara án launaseðla Starfsmannaleigan 2B gerði í dag tilraun til þess að senda átján pólska starfsmenn sína úr landi. Starfsmennirnir neita að fara fyrr en þeir fá launaseðla og staðfestingu á vinnu sinni. 31.10.2005 21:15
Eiga allt sitt undir blóði úr blóðbankanum Nýburarar á vökudeild og fólk sem berst við krabbamein getur átt sitt undir því að nóg sé til af blóði í Blóðbankanum. Bankinn er að hrinda af stað átaki til blóðsöfununar og segir yfirlæknir bankans nauðsynlegt að heilbrigðisyfirvöld tryggi fjármuni til kynningarstarfs. 31.10.2005 20:45
Eldur í fjölbýlishúsi í Álftamýri Verið er að reykræsta í kjallara í fjölbýlishúsi í Álftamýrinni. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kvatt á svæðið eftir að elds varð vart. Ekki er vitað til þess að neinn hafi sakað 31.10.2005 20:18
Óeirðir í Zanzibar Þriðju lýðræðislegu kosningarnar í sögu Zanzibar fóru fram í gær og stuðningsmenn stjórnarandstöðunnar þyrptust út á götur til að fagna sigri sem þeir telja vísan þótt niðurstöður hafi ekki verið kunngerðar. Það kunnu stjórnvöld ekki að meta og sendu óeirðalögregluna til að koma andstæðingum sínum af götunum. 31.10.2005 20:15
Hrekkjavakan á fullt skrið Hrekkjavakan í Bandaríkjunum er nú í fullum gangi. Þá taka menn upp á ýmsu, en við Flórídastrendur voru menn að keppa í graskersútskurði og uppsetningu neðansjávar. 31.10.2005 19:45
Snarvitlaust veður á Norðurlandi í allan dag Snælduvitlaust veður hefur verið í allan dag á Norðurlandi. Um hundrað og þrjátíu manns þurftu að yfirgefa bíla sína á þjóðveginum milli Laugarbakka í Miðfirði og Blönduóss í gærkvöld. Rauði krossinn opnaði fjöldahjálparstöð fyrir fólkið og björgunarsveitir hafa unnið baki brotnu síðan um kvöldmatarleytið í gær. 31.10.2005 19:45
Meðalhiti á Íslandi mun hækka Hækkun meðalhita á Íslandi um tvær til þrjár gráður á næstu hundrað árum mun einkum koma fram í fækkun kuldakasta að vetri fremur en hærri sumarhita. Samkvæmt nýjum tölvuútreikningum mun hlýna meira inn til landsins en út við ströndina. Þá mun úrkoma aukast. 31.10.2005 19:31
Ný prinsessa á Spáni Spænsk prinsessa kom í heiminn í nótt sem leið. Hún heitir Leonor og er dóttir Felipe, krónprins Spánverja og eiginkonu hans til eins og hálfs árs, Letiziu Ortiz. Móður og dóttur heilsast vel, en barnið var tekið með keisaraskurði. 31.10.2005 19:15
Þúsundir vottuðu Parks virðingu sína Þúsundir Bandaríkjamanna vottuðu minningu mannréttindafrömuðarins Rosu Parks virðingu sína í dag þegar kistunni með jarðneskum leifum hennar var stillt upp í Rotunda-hvelfingunni milli þinghúsanna í Washington-borg. 31.10.2005 19:00
Ekkert útboð Byggingaverktakar undrast að ein verðmætasta lóð Reykjavíkur skuli ekki boðin út. Borgin hefur hafið samningaviðræður við dótturfélag Íslandsbanka um lóð Strætós á Kirkjusandi. 31.10.2005 19:00
Danskir háskólar þeir bestu á Norðurlöndum Danskir háskólar eru þeir bestu á Norðurlöndum þegar kemur að hugvísindum, félagsvísindum og náttúruvísindum. Þetta sýnir könnun hins virta breska menntatímarits Times Higher Education Supplements, en tímaritið birtir árlega lista yfir 100 bestu háskóla heims. 31.10.2005 18:09
Göran Person gefur kost á sér Göran Persson, forsætisráðherra Svía, ætlar að gefa kost á sér í næstu þingkosningum í Svíþjóð sem verða haldnar árið 2006. Hingað til hafa skilaboðin um framboð hans verið mjög á reiki. 31.10.2005 17:47
Skipar nefnd um hollara mataræði og meiri hreyfingu Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra hefur skipað nefnd sem greina á vanda sem tengist óhollu mataræði, offitu, átröskun og hreyfingarleysi og koma með tillögur að samræmdum aðgerðum til að taka á vandamálum sem tengjast þessu. 31.10.2005 17:30
Samtök framleiðenda frumlyfja stofnuð Samtök framleiðenda frumlyfja á Íslandi hafa verið stofnuð. Formaður er Hjörleifur Þórarinsson hjá GlaxoSmithKline. Tilgangur samtakanna er að efla og dýpka umræðu um lyfjamál og gæta hagsmuna framleiðenda frumlyfja á Íslandi og á alþjóðavísu. 31.10.2005 17:15
Lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs staðfestar Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur staðfest lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs á langtímaskuldbindingum í erlendri mynt AA- og AA+ fyrir langtímaskuldbindingar í íslenskum krónum. Um leið hefur fyrirtækið staðfest lánshæfiseinkunnina A-1+ fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt og íslenskum krónum og segir að horfur um lánshæfismat séu stöðugar. 31.10.2005 17:03
Segja Bandaríkjaher hafa drepið 40 óbreytta borgara Írakskir læknar segja fjörutíu óbreytta borgara hafa fallið undanfarinn sólarhring í loftárásum Bandaríkjahers í vesturhluta Íraks, nærri landamærum Sýrlands. Bandaríkjamenn verjast fregnum af málinu. 31.10.2005 17:00
Talsvert um smölun Þó nokkur smölun í Sjálfstæðisflokkinn hefur þegar átt sér stað vegna prófkjörs flokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Þá hafa um 250 manns þegar greitt atkvæði utan kjörstaðar. 31.10.2005 16:40
Ályktað um að Sýrlendingar sýni fulla samvinnu Öryggisráð Sameinuðu Þjóðanna samþykkti í dag einróma ályktun um að Sýrlendingum bæri að sína fulla samvinnu vegna rannsóknar á morðinu á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons. 31.10.2005 16:37
Þörf á blóðgjöfum þar sem þjóðin eldist Þörf er á fleiri blóðgjöfum hér á landi þar sem íslenska þjóðin er að eldast. Með hækkandi meðalaldri þurfa fleiri á blóði að halda á meðan þeim fækkar hlutfallslega sem staðið geta undir blóðgjöfum. Þetta segir Sveinn Guðmundsson, yfirlæknir hjá Blóðbankanum sem ætlar ásamt Og Vodafone að standa að auglýsingaherferð þar sem fjölga á blóðgjöfum og vekja fólk til umhugsunar um þessa áskorun framtíðarinnar. 31.10.2005 16:00
Búið að opna þjóðveginn Búið er að opna þjóðveg eitt milli Laugarbakka og Víðihlíðar. Búið er að losa meirihluta þeirra bíla sem fastir voru á veginum milli Laugarbakka og Víðihlíðar enn eru þó nokkrir bílar fastir en Ragnar Árnason, verkstjóri hjá Vegagerðinni, segir mikla hríð á svæðinu. 31.10.2005 15:34
Kirkjusókn jókst um 28% milli ára Kirkjusókn í Reykjavíkurprófastsdæmunum tveimur, vestra og eystra, jókst um tuttugu og átta prósent fyrstu vikuna í október miðað við sama tímabil í fyrra. Þetta kemur fram í tölum frá Reykjavíkurprófastdæmi eystra. Heildarfjöldi kirkjugesta þessa viku í ár nam rúmum tuttugu og fimm þúsundum. 31.10.2005 15:00
Yfir 60 látnir eftir sprengjuárásina Nú er ljóst að yfir 60 manns létust og meira en 200 eru særðir eftir röð sprenginga í Nýju-Delí, höfuðborg Indlands, á laugardaginn. Allar sprengjurnar sprungu á vinsælum markaðstorgum en samtökin Lashkar-e-Tayyaba hafa lýst verknaðinum á hendur sér. 31.10.2005 14:37
Bush tilnefndi Alito sem hæstaréttardómara George Bush, forseti Bandaríkjanna, tilnefndi fyrir stundu nýjan hæstarréttadómara. Það er alríkisdómarinn og íhaldsmaðurinn Samuel Alito sem varð fyrir valinu en hann var talinn líklegastur ásamt öðrum til. 31.10.2005 13:27
Kona greinist með fuglaflensu í Tælandi Tælensk heilbrigðisyfirvöld greindu frá því í dag að 50 ára gömul tælensk kona hefði greinst með fuglaflensu. Hún er tuttugasti einstaklingurinn sem greinist með fuglaflensu í Tælandi, frá því að fuglaflensan kom upp þar fyrir tveimur árum. 31.10.2005 13:24
Selur bítur nef af konu Selur beit nefið af konu í dag við strendur Suður-Afríku þegar hún var að reyna að hjálpa honum aftur út í sjóinn. Selurinn hafði legið á sama stað síðan fyrir helgi en konan reyndi ásamt fleira fólki að koma selnum aftur út í sjóinn. 31.10.2005 13:21
Ekki trygging fyrir því að dragi úr heimilisofbeldi Nýjar verklagsreglur um meðferð og skráningu heimilisofbeldismála tóku gildi í síðustu viku. Það eitt og sér er þó engin trygging fyrir því að dragi úr heimilisofbeldi að sögn framkvæmdastýru Kvennaathvarfs. 31.10.2005 12:48
Bankarnir greiða 5 milljarða í opinber gjöld Fyrirtæki í Reykjavík borga tæplega 35 milljarða króna í opinber gjöld á þessu ári. Bankarnir tróna á toppnum með samanlagt um fimm milljarða króna. 31.10.2005 12:29
25 látnir og 70 þúsund flúnir Að minnsta kosti tuttugu og fimm hafa látist í flóðum og aurskriðum í Víetnam undanfarna daga eftir að fellibylur gekk yfir landið. Tæplega sjötíu þúsund manns hafa flúið heimili sín vegna hamfaranna. 31.10.2005 12:17
Ríkisstjórn mynduð í Póllandi Búið er að mynda nýja ríkisstjórn í Póllandi. Það er minnihlutastjórn flokksins Laga og réttar sem fékk flest atkvæði í þingkosningum í september. 31.10.2005 12:12
Ekki fuglaflensa á Chios Talsmenn Evrópuráðsins greindu frá því í morgun að grunur um fuglaflensu á grísku eyjunni Chios hafi ekki átt við rök að styðjast. 31.10.2005 11:57
Actavis greiddi hæstan skatt Lyfjafyrirtækið Actavis greiddi langhæstan skatt lögaðila í Reykjanesumdæmi í fyrra. 31.10.2005 10:54
Sjö létust í troðningi í Mekka Sjö létust í troðningi og um fjörutíu til viðbótar særðust þegar ringulreið myndaðist við úthlutun ölmusu í hinni helgu borg Mekka í Sádí-Arabíu á laugardag. Mekka er helgasti staður múslíma og var laugardagurinn síðasti dagur Ramadan, föstumánaðar og helgustu hátíðar múslíma og þess tímabils þar sem ölumusugjafir þykja hvað göfugastar. 31.10.2005 10:46
Grunuð um að hafa reynt að drekkja dóttur sinni Norsk kona er grunuð um að vera völd að dauða fimm ára gamallar dóttur sinnar sem lést um helgina, eftir að hafa legið milli heims og helju í viku. 31.10.2005 10:43
Örninn er allur Örninn sem var fangaður í Súðarvíkurhlíð síðastliðinn föstudag var aflífaður í gær. Örninn var illa vængbrotinn svo ekki þótti annað hægt en að aflífa hann. 31.10.2005 10:32
Þjóðarflokkurinn vill banna höfuðklúta í skólum Næstum annar hver Dani er þeirrar skoðunnar að banna eigi stúlkum sem eru múslimatrúar að klæðast höfuðklútum í grunnskólum. Þjóðarflokkurinn er eini stjórnmálaflokkurinn sem vill lögleiða bann og þá að franskri fyrirmynd. 31.10.2005 10:17
Hættir tilraunum til að opna þjóðveginn Veður hefur versnað á ný í Húnavatnssýslum og eru vegagerðarmenn hættir tilraunum sínum til að opna þjóðveg eitt á norðurleiðinni á milli Laugabakka og Víðihlíðar. Langflestir þeirra rúmlega hundrað, sem björgunarsveitarmenn björguðu úr föstum bílum í gærkvöldi og nótt, eru enn strandaglópar í þéttbýliskjörnum á leiðinni. 31.10.2005 10:11
Stórhuga hjá Sterling Stefan Vilner, framkvæmdastjóri Sterling-flugfélagsins í Danmörku, segist fullviss um að innan tíu ára munu að minnsta kosti helmingur Dana nýta sér þjónustu lággjaldaflugfélaga fremur en annarra. Greinilegt er að innan Sterling eru menn stórhuga því í síðustu viku lýsti Hannes Smárason, forstjóri FL Group sem nú á Sterling, því yfir að þar á bæ hyggðust menn fjórfalda verðmæti félagsins á einu ári. 31.10.2005 09:52
Skeljungur og Essó lækkuðu verð um helgina Olíufélögin Skeljungur og Essó lækkuðu bensínverð um helgina og er lítrinn á sjálfsafgreiðslustöðvum hjá báðum félögum kominn niður undir 109 krónur. Samkvæmt heimasíðu Olís í morgun hafði engin lækkun orðið þar. 31.10.2005 09:38
23 teknir fyrir ölvunarakstur Tuttugu og þrír ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur um helgina, þar af tólf í fyrrinótt. Þetta er óvenju mikið að sögn lögreglu og kann hún ekki skýringu á þessu. 31.10.2005 09:23
Erfingi fæddur í spænsku konungsfjölskyldunni Krónprins og krónprinsessa Spánar eignuðust sitt fyrsta barn í nótt, stúlku, þremur vikum fyrr en áætlað var. Sú staðreynd að hinn nýfæddi erfingi sé stúlka vekur upp pólitískar deilur sem áður hafa blossað upp á Spáni þar sem lög um erfingja krúnunnar kveða á um að drengir hafi forgang fram yfir stúlkur. 31.10.2005 09:16