Fleiri
Vatn fyrir alla 29.10.2005 13:00 Sjá næstu 50 fréttir
Berlusconi styður yfirmann leyniþjónustunnar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, hefur gefið út stuðningsyfirlýsingu til handa Nicolo Pollari, yfirmanni ítölsku leyniþjónustunnar, sem er sagður hafa komið fölsuðum skjölum til bandarískra stjórnvalda. 31.10.2005 07:55
Eiturlyfjabarón handtekinn í Kólumbíu Kólumbíska lögreglan hefur handtekið John Eildelber Cano sem talinn er vera einn af æðstu mönnum stærsta eiturlyfjasmyglshrings landsins. Hringurinn, sem kallast Norte del Valle, er talinn standa að baki helmings þess magns eiturlyfja sem flutt hafa verið frá Kólumbíu til Bandaríkjanna síðastliðin tíu ár. 31.10.2005 07:49
Þrír Svíar létu lífið á Kanaríeyjum Þrír létu lífið og 22 slösuðust, þar af fimm alvarlega, þegar rúta á vegum sænsku ferðaskrifstofunnar Apollo fór út af vegi og valt á Tenerife, einni af Kanaríeyjunum, í gær. Apollo-ferðaskrifstofan hefur nýhafið sölu hér á landi á ferðum til Kanaríeyja. 31.10.2005 07:32
Rúmlega 100 manns í hrakningum Rúmlega hundrað manns í u.þ.b. þrjátíu bílum lentu í hrakningum á þjóðveginum í Vestur-Húnavatnssýslu í gærkvöldi þegar óveður skall þar á eins og hendi væri veifað. Mikil snjókoma fylgdi hvassviðrinu þannig að ekkert skyggni var og fljótlega fór að hlaða í skafla. 31.10.2005 07:21
Blóðbankinn lýsir eftir hetjum Blóðbankinn lýsir eftir hetjum og óskar eftir blóði til að geta brugðist við alvarlegum slysum, náttúruhamförum og þvíumlíku. Um níu þúsund manns gefa blóð hér á landi reglulega en það er um fimm prósent þjóðarinnar. 31.10.2005 14:00
Hundruð minntust Rosu Parks Hundruð manna voru viðstödd minningarathöfn vegna Rosu Parks, sem vakti aðdáun blökkumanna þegar hún neitaði að víkja fyrir hvítum manni í strætisvangi í Alabama árið 1955. Parks lést á dögunum 92 ára að aldri. Var hún talin hafa átt stóran þátt í baráttunni fyrir jafnrétti í Bandaríkjunum. 31.10.2005 06:00
Félagsmálaráðherra lofar úrbótum Aðstandendur geðfatlaðra vonast til að þjóðarátak verði gert til að virkja fólk með geðraskanir. Árni Magnússon, félagsmálaráðherra, segir að málefni geðfatlaðra verði næsta forgangsverkefni í samfélagshjálp á Íslandi. 30.10.2005 22:15
Fyrst á dagskrá eftir fimmtíu ár? Gísli Marteinn Baldursson segir að byggð í Akurey og Engey komist fyrst á dagskrá eftir hálfa öld. Byggð í eyjunum var í sumar kynnt sem aðalstefnumál Sjálfstæðisflokksins í komandi borgarstjórnarkosningum. 30.10.2005 22:15
Rauði Krossinn býður heimsóknarþjónustu Þeir sem þarfnast vina geta haft samband við Rauða krossinn sem sér um heimsóknarþjónustu. Í sambandi við fréttaröð Stöðvar 2 um einstæðinga tókum við hús á konu sem á fáa að og fær því heimsókn sem bæði hún og gestur hennar hafa gaman af. 30.10.2005 22:00
Íslendingur slapp naumlega Marín Ásmundsdóttir myndlistarmaður var í 25 metra fjarlægð frá einni af þremur sprengingum sem urðu meira en 60 manns að bana í Nýju-Delí í gær. 30.10.2005 22:00
Sex í haldi í Danmörku Danska lögreglan leggur höfuðáherslu á að finna hver sé forsprakki í hópi manna sem eru grunaðir um að hafa ætlað að fremja hryðjuverk. Sex eru í haldi lögreglunnar vegna rannsóknar málsins. 30.10.2005 21:15
Vill skilyrða sölu Landsvirkjunar Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi Frjálslynda Flokksins, hyggst á fundi borgarstjórnar á morgun leggja fram tilögu þar sem hann fer fram á að sala Reykjvíkurborgar á tæplega 45% hlut í Landsvirkjun verði skilyrt . 30.10.2005 21:00
Alvöru stjörnustríð í Kaliforníu Stjörnustríð er háð í Kaliforníu þessa dagana. Hollívúddleikararnir Warren Beatty og Arnold Schwarzenegger, sem jafnframt er ríkisstjóri, vega hvor að öðrum opinberlega. Margir telja að Warren Beatty sé að kanna hvort grundvöllur sé fyrir mótframboði á næsta ári. 30.10.2005 21:00
Komin fram heil á húfi Konan sem lögreglan í Reykjavík lýsti eftir í dag, og hafði ekki látið vita af sér síðan um miðjan dag í gær, er komin fram, heil á húfi. Lögreglu barst ábending um hvar konuna væri að finna eftir að lýst var eftir henni í fréttum Stöðvar 2. 30.10.2005 20:06
Frúarkirkjan í Dresden endurreist Eitthvert þekktasta ummerki sprengjuregnsins í Þýskalandi síðustu daga seinni heimsstyrjaldarinnar er frúarkirkjan í Dresden. Áratugum saman stóðu aðeins fáeinir steinar eftir og rústirnar lágu í hrúgu í miðri borginni. En nú hefur kirkjan verið endurreist. 30.10.2005 20:00
Landamæri Kasmír opnuð Þrátt fyrir spennuna milli Indlands og Pakistans, og hryðjuverkaárásirnar í gær, tókust samningar um að opna landamæri ríkjanna í Kasmír til að hleypa þar neyðarbirgðum í gegn. Það auðveldar hjálparstarfið en dugir þó hvergi nærri til. 30.10.2005 19:30
Mannfall eykst dag frá degi Mannfallið í Írak eykst dag frá degi. Bandarísk yfirvöld hafa í fyrsta sinn gefið út eigið mat á fjölda þeirra Íraka sem fallið hafa í árásum. Það segir sína sögu að tölur þeirra og annarra eru mismunandi, svo að skeikar þúsundum. 30.10.2005 19:00
Ekki hætt við fyrningarleiðina Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, hafnar alfarið fullyrðingum Einars K Guðfinnssonar sjávarútvegsráðherra um að Samfylkingin hafi skipt um stefnu varðandi fyrningar aflaheimilda. 30.10.2005 18:00
Ákærður fyrir ritstuld Dan Brown, höfundi metsölubókarinnar Da Vinci lykillinn, sem selst hefur í tuttugu og fimm milljónum eintaka um allan heim, stendur nú frammi fyrir ákæru um ritstuld. Er það í annað sinn sem hann er borinn slíkum sökum. 30.10.2005 15:45
Hrakandi siðferðisþrek í stjórnartíð Bush Meirihluti aðspurðra Bandaríkjamann segja ákærurnar á Lewis Libby gefa til kynna mun víðtækari siðferðisbrest og spillingu innan stjórnar Bush en þá óraði fyrir. Kemur þetta fram í nýrri könnun sem gerð var á dögunum og þá sagði meira en helmingur aðspurðra að siðferðisþreki og heiðarleika meðal ráðamanna hafi hrakað verulega í stjórnartíð Bush. Niðurstöður könnunarinnar eru skellur fyrir stjórn Bush sem enn sætir hörðum ásökunum vegna slælegra viðbragða við fellibylnum Katrínu. 30.10.2005 15:45
Snjóflóð á Flateyrarvegi Snjóflóð féll á Flateyrarvegi rétt fyrir utan kauptúnið, milli Sólbakka og Hvilftar, um eittleytið í dag . Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði sakaði engan og vegurinn var lokaður fólksbílaumferð í klukkutíma. En þó var snjóflóðið það grunnt að vegurinn var fær jeppum. 30.10.2005 15:09
Bruni í Keflavík í gær Nokkurt tjón hlaust af bruna í iðnaðarhúsnæði í Grófinni í Keflavík síðdegis í gær. Þaðan lagði svartan reyk og þegar slökkvilið Brunavarna Suðurnesja kom á vettvang lék talsverður eldur um rýmið á jarðhæð hússins; þar var rekinn Jóga-salur þar til fyrir nokkrum vikum. Inni voru húsgögn og virðist eldurinn hafa komið upp í sófa. Slökkvilið réð niðurlögum eldsins á nokkrum mínútum. Lögreglan í Keflavík rannsakar málið. 30.10.2005 15:00
Fagna opnun landamæra Sameinuðu þjóðirnar fagna þeirri ákvöðrun Indlands og Pakistan að opna samliggjandi landamæri þeirra í Kasmír fyrir fórnarlömbum jarðskjálftans sem og birgðaflutningum. Á sama tíma segja Sameinuðu þjóðirnar að hjálparstarf til þeirra milljóna sem enn eru í nauðum sé gríðarlegum vandkvæðum bundið og þarfnist mikillar skipulagningar sem seint sjáist fyrir endann á. 30.10.2005 15:00
Litli leikklúbburinn á götunni Þrymskviða, sem Litli leikklúbburinn ætlar að frumsýna á Ísafirði 12. nóvember, verður að öllum líkindum sýnt undir berum himni, samkvæmt héraðsfréttavefnum Bæjarins besta á Ísafirði. 30.10.2005 14:45
Álfar og tröll atvinnuskapandi Álfar, tröll og norðurljósin gætu orðið Stokkseyringum féþúfa ef áform um þjóðfræðisafn verða að veruleika. Sunnlenska fréttablaðið greinir frá kaupum 1200 fermetra húsnæðis í þessu skyni þar sem Hólmaröst er með fiskvinnslu, en hún flytur í Þorlákshöfn í byrjun næsta árs. Haft er eftir Benedikti G. Guðmundssyni, forsvarsmanni félagsins um þetta safn, að það gæti gefið Sunnlendingum forskot í málefnum tengdum þjóðfræði og menningartengdri ferðaþjónustu, ef vel tekst til. 30.10.2005 14:00
Auknar líkur á lækningu þunglyndis Þunglyndissjúklingar eiga nú betri möguleika á lækningu í framtíðinni. Danskir vísindamenn eru bjartsýnir á að rannsóknir undanfarinna ára og nú tækni verði til þess að hægt sé að greina þunglyndi fyrr og meðhöndla. 30.10.2005 14:00
Nýtt skip bætist við flota Eyjamanna Nýtt skip, Bergur VE 44, kom í fyrsta skipti til heimahafnar í Vestmannaeyjum um miðjan dag í gær. Bergur kemur frá Póllandi en var keyptur í Noregi. Bergur er ísfisktogari, smíðaður í Danmörku 1998, er 10,50 metra breiður og 36 metrar á lengd. Skipið er samnefnt útgerðinni sem er fjölskyldufyrirtæki, eftir því sem fram kemur í Eyjafréttum. Þar segir einnig að Bergur sé hrein viðbót við flota Eyjamanna. 30.10.2005 12:45
Ný framsetning á leiðarkerfi Leiðarlykill höfuðborgarsvæðisins, þar sem leiðarkerfi strætisvagna tekur á sig mynd neðanjarðarlestakerfis, kemur út í næstu viku. Höfundur kortsins hefur gengið með hugmyndina í maganum í meira en tuttugu ár og telur að það muni hvetja fleiri til að nota strætisvagna. 30.10.2005 12:30
Indverjar á verði Indverjar eru vel á verði í kjölfar þess að þrjár öflugar sprengjur sprungu í miðborg Nýju Delhi í gær. Ekki færri en sextíu og einn féll, flestir óbreyttir borgarar sem voru að kaupa gjafir fyrir mikilvægar trúarhátíðir hindúa og múslíma. 30.10.2005 12:30
Þrjár milljónir heimilislausar Þrjár milljónir manna eru enn á húsaskjóls og nauðþurfta á skjálftasvæðinu í Kasmír. Sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna segja þörf á tvöhundruð og fimmtíu milljónum dollara þegar í stað eigi fólkið ekki að deyja úr kulda og vosbúð á næstu vikum. 30.10.2005 12:00
Aðstandendur stofna félag Stofnfundur aðstandendahóps Geðhjálpar verður haldinn í dag á Túngötu sjö klukkan tvö. Yfirskrift fundarins er Fram í dagsljósið. Árni Magnússon félagsmálaráðherra verður gestur fundarins og mun greina frá því sem er að gerast í málum geðsjúkra í félagsmálaráðurneytinu. 30.10.2005 11:30
Allar líkur meiri styrkleika Fellibylurinn Beta leikur Nikaragva grátt sem stendur en bylnum hefur vaxið mjög ásmeginn og er hann nú af stærðargráðu þrjú. Veðurfræðingar segja allar líkur á að Beta verði enn sterkari þegar bylurinn skellur á skóglendi við ströndina eftir fáeinar klukkustundir. 30.10.2005 11:02
Nóttin nokkuð erilsöm Nóttin var nokkuð erilsöm hjá lögreglunni í Reykjavík, margir voru á ferli í miðborginni og mikið um pústra en enginn slasaðist alvarlega. Einnig þurfti lögreglan að hafa afkskipti af nokkrum heimilum vegna partíláta og hávaða. Tólf voru teknir grunaðir um ölvun við akstur. Nóttin var hins vegar róleg bæði hjá lögreglunni í Kópavogi og Hafnarfirði og sömu sögu er að segja frá Keflavík. 30.10.2005 10:59
26 þúsund Írakar fallið frá stríðsbyrjun Tuttugu og sex þúsund Írakar hafa verið drepnir eða særðir í árásum uppreisnar- og hryðjuverkamanna í Írak frá því í byrjun árs 2004, að mati sérfræðinga bandaríska varnarmálaráðuneytisins. 30.10.2005 10:53
Fleiri konur stjúpættleiddar Mun fleiri konur eru stjúpættleiddar en karlar. Kynfeður umgangast frekar syni sína en dætur. Opinberar tölur um stjúptengsl eru að öðru leyti ekki til. 29.10.2005 20:30
Hræðsla óþörf Sala á kjúklingakjöti hefur tekið dýfu í Frakklandi vegna hræðslu við fuglaflensu - hræðslu sem er algjörlega ástæðulaus. 29.10.2005 20:15
Íslensk rannsókn hjálpar til Með aukinni hryðjuverkastarfsemi í heiminum hafa heilbrigðisyfirvöld víðs vegar vaknað til meðvitundar um þann möguleika að grípa þurfi til bólusetningar gegn bólusótt í stórum stíl. Viðamikil íslensk rannsókn ætti að geta nýst við þróun á nýju bóluefni og jafnframt sýnt hvort arfgengi skipti máli við vörnum gegn smitsjúkdómum 29.10.2005 20:15
Gagnrýna yfirgang síonista Íranskir ráðamenn vilja má Ísrael af landakortinu en segjast alls ekki hafa í hyggju að fara með ofbeldi gegn landinu. Þeir gagnrýna yfirgang síonista sem þeir segja að stjórni Sameinuðu þjóðunum. 29.10.2005 19:45
Mismunur pólitískur Ísland gengur jafnvel lengra í því að taka upp regluverk Evrópusambandsins en sum aðildarríkin. Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknar sem gerð var við Evrópufræðasetrið á Bifröst. 29.10.2005 19:45
Sátt ekki í augsýn Formaður Samfylkingarinnar hvetur sjómenn til að líta fram á veginn og viðurkenna að fiskurinn í sjónum sé sameign þjóðarinnar. En útvegsmenn eru ekki á þeim buxunum. Þeir íhuga málssókn til að fá viðurkennt að þeir sem eigi kvótann eigi fiskinn. 29.10.2005 19:30
Varað við Íslenskum þorski Auðlinda- og umhverfisskrifstofunni tókst að hafa áhrif á að náttúruverndarsinnar vestra beittu sér ekki sérstaklega gegn íslenska þorskinum - en þeim finnst samt Íslendingar ganga of hart fram í veiðum sínum. 29.10.2005 19:30
Fimmtíu féllu í Nýju Delhi Yfir fimmtíu féllu í röð sprengjuárása í Nýju Delhi, höfuðborg Indlands, í dag. Enginn veit hverjir standa á bak við árásirnar sem ráðamenn segja hryðjuverk. 29.10.2005 19:15
Lagt af á næstunni NMT-farsímakerfið, sem til margra ára hefur þjónað og tryggt öryggi allra landsmanna, hvort sem þeir eru staddir á sjó eða landi, jafnt í alfaraleið sem utan, verður lagt niður. Enn er á huldu hvað tekur við, en forstjóri Póst- og fjarskipastofnunar útilokar ekki að erlendir aðilar komi að uppbyggingu nýs kerfis. 29.10.2005 18:45
Öflugar sprengingar á Indlandi Þrjátíu eru látnir eftir röð sprenginga í miðborg Nýju Delhi, höfuðborgar Indlands, rétt upp úr hádegi. Fyrsta sprengingin mun hafa orðið á fjölsóttum markaði skammt frá meginjárnbrautarstöðinni ekki langt frá þekktum hótelum. Skömmu síðar sprakk önnur sprengja á öðrum markaði. Þriðja sprengjan sprakk í iðnaðarhverfi í suðurhluta borgarinnar. 29.10.2005 13:50