Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ákærður fyrir að bana landa sínum: Phu Tién Nguyén er ákærður fyrir að hafa orðið Vu Van Phong að bana, en aðalmeðferð málsins fór fram í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Með aðstoð túlks sagði Phu hvernig hann fór ásamt fjölskyldu sinni í fjölmennt matarboð í Kópavogi í lok maí. Við komuna í Kópavoginn sagðist Phu hafa verið með stóran eldhúshníf vafinn inn í dagblöð í jakkavasanum til að nota sem vernd fyrir þriggja mánaða gamlan son sinn, en samkvæmt víetnamskri hefð rekur hnífur undir dýnu í barnarúmi illa anda burt. 25.10.2005 07:00
Tvö í haldi vegna dópsmygls Karl og kona eru í haldi lögreglu vegna fíkniefnasmygls. Fólkið er grunað um að hafa smyglað fíkniefnum til landsins í þrjú skipti að minnsta kosti. 25.10.2005 06:55
Ætla að stöðva brotleg fyrirtæki Fulltrúar Samiðnar fóru í gær um og ræddu við erlenda verkamenn á vegum íslensku starfsmannaleigunnar B2 ehf. Félögin segja tíma kominn á aðgerðir gegn fyrirtækjum sem upplýsa ekki um kjör erlendra starfsmanna sinna. 25.10.2005 06:45
Íbúar Isabelu ekki í hættu Eldfjallið Sierra Negra á eynni Isabelu í Galapagos-eyjaklasanum í Kyrrahafi byrjaði að gjósa um helgina með miklum látum. Gosefni úr hinu fimmtán hundruð metra háa fjalli breiddust um stórt svæði en íbúar í nágrenninu eru þó ekki taldir í hættu. 25.10.2005 06:45
Tuttugu létust Þrjár bílsprengjur voru sprengdar nánast samtímis fyrir utan hótel erlendra blaðamanna í Bagdad í gær. Í það minnsta tuttugu manns dóu í sprengingunum. 25.10.2005 06:15
Sveinatunga jöfnuð við jörðu Gömlu bæjarskrifstofurnar í Garðabæ hafa nú verið jafnaðar við jörðu. Síðastliðinn áratug hafa listhneigðir grunnskælingar í Flataskóla haft aðstöðu í Sveinatungu, eins og húsið var nefnt. Ekki hefur enn verið tekin ákvörðun um það hvað byggt verði á Sveinatungulóðinni. Þó eru uppi hugmyndir um nýjan miðbæ í Garðabæ og þar er gert ráð fyrir fjölbýlishúsum á svæðinu. 25.10.2005 06:00
Vinnumálastofnun kannar ávirðingar Yfirmönnum Vinnumálastofnunar hefur verið falið að grennslast fyrir um ávirðingar á hendur starfsmannaleigunni B2 og vísa til lögreglu reynist þær á rökum reistar. Gissur Pétursson, forstjóri stofnunarinnar, segir málið hafa verið rætt á fundi stjórnar í hádeginu í gær. 25.10.2005 06:00
Stefnir að lögum fyrir jól "Mér sýnist einsýnt að við förum í einhvers konar lagasetningu en hún þarf að taka mið af okkar alþjóðlegu skuldbindingum, ekki sýst varðandi EES samninginn," segir Árni Magnússon félagsmálaráðherra um starfsemi starfsmannaleiga. 25.10.2005 05:45
Fær tennur bættar Þórhalli Ölveri Gunnlaugssyni, sem gengur nú undir nafninu Þór Óliver, voru í gær dæmdar skaða- og þjáningabætur í kjölfar líkamsárásar sem hann varð fyrir á Litla-Hrauni í maí 2002. 25.10.2005 05:45
Landsbankinn lánar öllum sé trygging til "Ef tryggingar eru í lagi þá fá menn lán hjá Landsbankanum hvort sem þeir eru utan að landi eða úr Reykjavík," segir Ásgeir Friðgeirsson, upplýsingafulltrúi Landsbankans. Eins og fram hefur komið í Fréttablaðinu var írsku stórfyrirtæki hafnað um lán vegna byggingar kalkþörungaverksmiðju á Bíldudal og sögðu forsvarsmenn þess að ástæðan hafi verið sú að fyrirtækið ætti að rísa á landsbyggðinni. 25.10.2005 05:30
Líkt og risastór hönd væri að hrista húsið Fellibylurinn Wilma fór yfir Mexíkóflóa í gær og olli íbúum Kúbu og Flórídaskaga þungum búsifjum. Einn maður lét lífið í veðurofsanum. Þá eru átta manns taldir af á Haítí. 25.10.2005 05:30
Verðvernd og endurgreiðslur Húsasmiðjan blæs til sóknar á bygginga- og heimilsvörumarkaði með því að bjóða viðskiptavinum sínum ávallt lægsta verð. Það byggist á því að þeir fá vöru keypta hjá Húsasmiðjunni endurgreidda sjáist hún auglýst á lægra verði annars staðar innan fimmtán daga frá kaupum. 25.10.2005 05:30
Umræðan á Íslandi hefur áhrif á skoðun Norðmanna Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra hafði orð fyrir forsætisráðherrum Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna á blaðamannafundi í Reykjavík í gærkvöldi. "Viðræður okkar snérust einkum um samband Norðurlanda og Eystrasaltslandanna við ESB og tengslin milli ESB og Evrópska efnahagssvæðisins. Við ræddum einnig sambandið við Rússland og Úkraínu." 25.10.2005 05:00
Keppast um hylli 300.000 flokkssystkina "Davíðarnir tveir" í leiðtogaslag brezka Íhaldsflokksins, David Cameron og David Davis, keppast á næstu vikum um hylli hinna 300.000 flokkssystkina sinna. Stuðningsmenn Camerons trúa honum til að geta endurnýjað flokkinn líkt og Tony Blair endurnýjaði Verkamannaflokkinn. 25.10.2005 05:00
Tólf takast á um fjögur sæti Framboðsfrestur í lokuðu prófkjöri Samfylkingarinnar á Akureyri, vegna sveitarstjórnarkosninganna á næsta ári, rann út á föstudag. Alls sækjast tólf flokksmenn eftir fjórum efstu sætum framboðslistans en samkvæmt reglum prófkjörsins skulu þau skipuð tveimur konum og tveimur körlum. 25.10.2005 05:00
Yfirdýralæknir grípur til ráðstafana Yfirdýralæknir hefur ákveðið að grípa til sérstakra varúðarráðstafana varðandi innflutning hunda. Veira sem veldur inflúensu hjá hestum í Bandaríkjunum hefur breyst og sýkir nú einnig hunda þar í landi. Því sé talið að innflutningur hunda frá Bandaríkjunum geti falið í sér hættu fyrir íslenska hrossastofninn. 25.10.2005 05:00
Ætlar að kæra lognar sakir "Lögfræðingur okkar er að vinna í þessum málum," segir Eiður Eiríkur Baldvinsson, framkvæmdastjóri starfsmannaleigunnar B2 ehf. Hann vísar þar til ásakana á hendur honum og fyrirtæki hans. "Þetta verður klárað fyrir dómstólum, en ekki í fjölmiðlum." 25.10.2005 04:45
Enn hallar á konur Sérrit frá Hagstofu Íslands um stöðu kynjanna á síðustu þremur áratugum sýnir að í nær öllum kimum samfélagsins hallar enn á konur. Þó hefur hlutfall kvenna á ýmsum sviðum aukist jafnt og þétt. 25.10.2005 04:45
Tryggingar kosta hundruð þúsunda Samtök um akstursíþróttir hafa reynt að fá fimmtíu kúbika smábifhjól leyfð hér á landi. Erfitt hefur reynst að skrá hjólin og mörg hundruð þúsund krónur kostar að tryggja þau. 25.10.2005 04:30
Allt á huldu um orsakirnar Nígerísk stjórnvöld reyna nú að finna skýringar á flugslysinu um helgina þegar Boeing 737-þota Bellview Airlines fórst á leið sinni frá Lagos til höfuðborgarinnar Abuja með 117 manns innanborðs. Yfirvöld útiloka ekki að um hryðjuverk sé að ræða þótt það sé talið ólíklegt. Vonast er til að fundur svörtu kassanna svonefndu muni varpa ljósi á málið. 25.10.2005 04:15
Á þriðja þúsund konur komu saman í Sjallanum Konur á Akureyri héldu baráttuhátíð sína í gær í Sjallanum og var húsið orðið yfirfullt tæpum hálftíma áður en skipulögð dagskrá hófst klukkan 15. Sárafáir karlmenn mættu á hátíðina en að mati Sólveigar Hrafnsdóttur, sem þátt tók í undirbúningnum, voru á milli 2.000 og 2.500 konur í Sjallanum og þurfti hópur kvenna að hlýða á dagskrána utandyra þar sem ekki komust fleiri inn. 25.10.2005 04:00
Ker vill borga skaðabætur "Við ætlum að hittast til frekari viðræðna," segir Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögmaður Reykjavíkurborgar um gang mála vegna skaðabótakröfu borgarinnar á hendur olíufélögunum. Fyrir skömmu rann út frestur sem borgin gaf félögunum þremur til að svara skaðabótakröfu sinni. Lögmenn hafa fyrir hönd Skeljungs og Olíss fundað með Vilhjálmi síðan þá, en Ker, sem á Esso, svaraði erindinu formlega. Vilhjálmur segir að í því svari hafi verið boðin fram ákveðin greiðsla, en tæpast í samræmi við kröfur borgarinnar. 25.10.2005 03:45
76 prósentum meira Verðmæti síldarafla af íslenskum miðum á fyrstu sjö mánuðum ársins er tæpum 76 prósentum meiri en á sama tíma í fyrra, en munurinn er um 2,5 milljarðar króna. Þetta kemur fram í Vegvísi Landsbankans í gær. Alls var aflaverðmæti íslenskra skipta 41,8 milljarðar á tímabilinu, samanborið 41,7 milljarða í fyrra, en það er 0,2 prósent aukning. 25.10.2005 03:45
Hyggjast segja upp samningi við TR "Það er einhugur meðal hjartasérfræðinga um að segja upp samningi við Tryggingastofnun ríkisins við óbreyttar aðstæður," segir Axel Sigurðsson, sem sæti á í stjórn Félags sjálfstætt starfandi hjartalækna. Á fundi hjartasérfræðinga fyrir helgi var meðal annars rædd sú staða sem komin er upp um einingakvóta sem samningur TR og sérfræðilækna kveður á um. 25.10.2005 03:30
Sýrlendingar sýni samvinnu Bandaríkin og Frakkar ætla að beita sér fyrir því að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna krefji Sýrlendinga um fulla samvinnu í rannsókninni á morðinu á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, ella sæta refsiaðgerðum. 25.10.2005 03:15
Rækjuaflinn milljarði minni Verðmæti rækjuaflans dróst saman um tæpan milljarð á fyrstu sjö mánuðum ársins ef miðað er við sama tíma í fyrra, eða 66 prósent, að því er fram kemur í tölum frá Hagstofu Íslands. Verðmæti síldaraflans jókst hins vegar um rúman milljarð, eða 76 prósent, og nam 2,5 milljörðum króna. 25.10.2005 03:15
Funda með Sól um ræstingar Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, útilokar ekki að bærinn taki aftur við ræstingum í þeim stofnunum sem hafa verið í verkahring fyrirtækisins Sólar. Fyrirtækið sagði upp samningi sínum við Hafnarfjarðarbæ í síðustu viku. "Þetta er svo nýtilkomið að engin ákvörðun hefur verið tekin í þessu máli," segir Lúðvík en hann mun eiga fund með forsvarsmönnum Sólar á morgun. Kolbeinn Gunnarsson, formaður Verkalýðsfélagsins Hlífar, vonast til að bærinn taki aftur við ræstingunum. 25.10.2005 02:45
Til hagsbóta fyrir þolendur Ríkislögreglustjóri hefur gefið út verklagsreglur um meðferð og skráningu heimilisofbeldismála hjá lögreglu. Guðmundur Guðjónsson yfirlögregluþjónn segir verklagsreglurnar helst til hagsbóta fyrir þolendur heimilisofbeldis. Einnig auðveldi þær skráningu á brotum sem flokkist undir heimilisofbeldi og valdi því að betri yfirsýn náist yfir þessa tegund brota. 25.10.2005 02:45
Stærri gögn, aukinn flutningshraði og lægri kostnaður Og Vodafone hefur tekið í notkun gagnahraðal sem þjappar gögnum saman í GSM kerfinu. Gagnahraðallinn tryggir flutning á stærri gögnum, aukinn flutningshraða og dregur úr kostnaði viðskiptavina. Eingöngu er greitt fyrir niðurhal en ekki fyrir tíma tengingar. 25.10.2005 15:58
Karlar í störf kvenna Þar sem konur gengu út af vinnustöðum í dag, þurftu karlmennirnir að taka við. Félagsmálaráðherra, yfirmaður jafnréttismála, stóð símavaktina í ráðuneytinu. Ekki voru þó öll fyrirtæki á því að leyfa kvenkynsstarfsmönnum að sækja fundinn á Ingólfstorgi. 24.10.2005 22:07
2B ætla að höfða meiðyrðamál Meiðyrðamál verður höfðað gegn formanni Rafiðnaðarsambandsins vegna orða hans um starfsmannaleiguna 2B. ASÍ krefst þess að lögreglurannsókn fari fram á starfsmannaleigunni, en stjórnendur hennar eru sagðir hvetja til þess að pólskir verkamenn séu barðir. 24.10.2005 21:48
Þúsundir bíða enn eftir læknishjálp Þúsundir manna í fjallahéruðum Pakistans bíða enn eftir að komast undir læknishendur, tveimur vikum eftir jarðskjálftann mikla sem varð meira en 50 þúsund manns að bana. 24.10.2005 21:28
Fjölmenni á hátíðarhöldum Um fjörutíu og fimm þúsund konur komu saman í miðborg Reykjavíkur í dag til að knýja á um jafnan rétt kynjanna. Það er töluvert meira en var á kvennafrídaginn fyrir þrjátíu árum. Þrátt fyrir að margt hafi áunnist, er greinilega langt í land enn þá. 24.10.2005 21:21
Niðurskurður og skipulagsbreytingar í norrænu samstarfi Niðurskurður og skipulagsbreytingar í norrænu samstarfi eru meðal umræðuefna á fundi Norðurlandaráðs næstu daga. Um 900 manns eru komin til landsins í tengslum við fundahöldin. 24.10.2005 21:14
Viðræður um myndun nýrrar stjórnar hófust í Póllandi í dag Íhaldsmaðurinn Lech Kaczynski verður næsti forseti Póllands. Stjórnarmyndunarviðræður hófust í dag og gert er ráð fyrir að samningar náist um myndun hægristjórnar. 24.10.2005 20:00
Ekkert óeðlilegt við kaupverð Sterling Fyrrverandi eigandi Sterling er sannfærður um að hann fái meira fyrir félagið en fimmtán milljarða samningurinn við FL-Group segir til um. Hann segir ekkert óeðlilegt við kaupverðið en sjálfur greiddi hann fjóra milljarða fyrir Sterling fyrir hálfu ári. 24.10.2005 19:48
Óljóst hvort launaleynd eigi sér stoð í lögum Ákvæði um launaleynd í ráðningarsamningum, sem fjölmörg fyrirtæki láta starfsmenn sína skrifa undir, vinnur gegn því að konur og karlar fái sömu laun fyrir sömu vinnu. Óljóst er þó hvort launaleynd á sér stoð í lögum og á það hefur enn ekki reynt hér á landi. 24.10.2005 19:30
Wilma fer yfir Flórída Fellibylurinn Wilma fer nú yfir Flórída í Bandaríkjunum og skilur eftir sig slóð eyðileggingar í Mexíkó og á Kúbu. Þetta er áttundi fellibylurinn sem íbúar Flórída fá yfir sig á fjórtán mánuðum. 24.10.2005 18:45
Flugvél flaug á hús í Barcelona Fjórir létust þegar lítil flugvél flaug á fjögurra hæða hús í Barcelona á Spáni síðdegis. Allir sem létust voru um borð í vélinni. 24.10.2005 18:34
Örmögnuðust á fjalli Björgunarsveitin Ísólfur á Seyðisfirði var kölluð út síðdegis í gær vegna gönguhóps sem lent hafði í vandræðum í gönguferð um Vestdal. Tveir úr hópnum höfðu blotnað og voru orðnir nokkuð kaldir þegar Ísólfsmenn komu á vettvang. Björgunarsveitin aðstoðaði fólkið við að komast til byggða og allir komust að lokum heilir heim. 24.10.2005 17:14
Um 40 þúsund manns í miðbænum Lögreglan telur að um fjörutíu þúsund manns séu samankomin í miðbænum í tilefni kvennafrídagsins. Allt hefur gengið vel fyrir sig að sögn varðstjóra á vakt en tveir lögreglubílar og tveir hópar fótgangandi lögreglumanna hafa reynt að sjá til þess að allt gangi snurðulaust. 24.10.2005 17:10
Uppreisnarmenn skutu flugskeytum Palestínskir uppreisnarmenn skutu flugskeytum frá Gaza yfir landamærin í dag. 24.10.2005 16:52
Dræmar viðtökur hjá Samfylkingu Varaformaður Samfylkingarinnar tekur dræmt í þær hugmyndir formanns Vinstri Grænna, að myndað verði rauðgrænt kosningabandalag að norrænni fyrirmynd fyrir næstu alþingiskosningar. Hann segir flokka eiga að ganga óbundna til kosninga og enginn hefð sé fyrir öðru. Hann segir að þó margt sé líkt í stefnu flokkanna tveggja, þá séu enn stór atriði sem flokkunum greini á um. 24.10.2005 16:26
Óslitin mannmergð Miðbær Reykjavíkur er sneisafullur af fólki sem tekur nú þátt í dagskrá kvennafrídagsins. Mannmergðin er þvílík að ef horft er frá horni Skólavörðustígs og Bankastrætis, bæði upp að Hallgrímskirkju og niður að Lækjartorgi, er mannmergðin algjörlega óslitin. 24.10.2005 16:14
Sprengingar við hótel fréttamanna í Bagdad Að minnsta kosti tólf manns létu lífið þegar þrjár sprengjur sprungu við tvö hótel erlendra fréttamanna í Bagdad í dag. Sprengjurnar sprungu við Sheraton-hótelið og Palestínska-hótelið, sem standa hlið við hlið í miðri borginni. 24.10.2005 16:06