Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Má ekki horfa á börn annarra Stjórnendur Calderdale Royal sjúkrahússins í Halifax í Englandi hafa lagt blátt bann við að fólk hjali við og stari á nýfædd börn annars fólks á fæðingardeild sjúkrahússins. 27.9.2005 00:01
Segir fjölmiðla Baugs misnotaða Davíð Oddsson segist horfa á með hryllingi hvernig Baugsmiðlarnir hafi verið misnotaðir, en hann telji að ekki séu dæmi um slíkt í hinum vestræna heimi. Davíð var spurður út í Baugsmál þegar hann kom út af síðasta ríkisstjórnarfundi sínum í morgun. 27.9.2005 00:01
Uppsagnir vegna sparnaðar Vestmannaeyjabær skuldar fimm milljarða króna. Bæjaryfirvöld ætla að spara 65 milljónir króna árlega með því að leggja niður stofnanir og segja upp sex til tíu starfsmönnum. 27.9.2005 00:01
Átta milljarðar fyrir borun Orkuveita Reykjavíkur verður að öllum líkindum að greiða um átta milljarða króna fyrir borun háhitaholna auk annara borana við fyrirhugaðar jarðvarmavirkjanir á Hellisheiði og Hengilssvæði. Tilboð voru opnuð í dag. Jarðboranir buðust til að vinna verkið fyrir 7,8 milljarða króna en Íslenskir aðalverktakar og Ístak fyrir 8,3 milljarða. 27.9.2005 00:01
Eldflaugum skotið frá Gasa Tveimur eldflaugum var skotið frá Gasasvæðinu í dag og lentu þær nærri ísraelskum bæjum við landamæri Ísraels og Gasastrandarinnar án þess að valda mann- eða eignatjóni. Ekki er ljóst hver eða hverjir skutu flaugunum en Hamas-samtökin í Palestínu lofuðu á dögunum að hætta slíkum árásum í kjölfar þess að Ísraelar svöruðu þeim með loftárásum. 27.9.2005 00:01
Gísli Gíslason ráðinn hafnarstjóri Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi, hefur verið ráðinn í starf hafnarstjóra Faxaflóahafna frá og með 1. nóvember næstkomandi. Faxaflóahafnir eiga og reka Reykjavíkurhöfn, Grundartangahöfn, Akraneshöfn og Borgarneshöfn. 27.9.2005 00:01
Sætir rannsókn vegna flugslyss Fyrrverandi yfirmaður Concorde-áætlunarinnar í Frakklandi sætir nú rannsókn vegna Concorde-flugslyssins fyrir fimm árum þar sem 113 manns fórust. Henri Perrier er sakaður um að hafa vitað um galla í vélunum en látið hjá líða að gera eitthvað í því. 27.9.2005 00:01
22 lík finnast í Írak Tuttugu og tvö lík fundust nærri bænum Kut, suðaustur af Bagdad, í Írak í dag. Öll líkin voru bundin á höndum, með plastpoka yfir höfuðið og með skotsár. Lögregla segir að fórnarlömbin hafi líklega verið tekin af lífi fyrir nokkrum dögum en bæði virðist vera um að ræða almenna borgara og lögreglumenn. 27.9.2005 00:01
Enn óveður á vestanverðu landinu Enn er varað við óveðri í Staðarsveit og á Fróðárheiði, í Gufudalssveit og á Klettshálsi. Þá er ófært yfir Klettsháls, Hrafnseyrarheiði, Eyrarfjall og Lágheiði. Á Holtavörðuheiði er éljagangur og hálkublettir og hálka er á Steingrímsfjarðarheiði og hálkublettir á Mývatnsöræfum. Annars eru helstu leiðir orðnar auðar. 27.9.2005 00:01
Mótmælir aðkomu ríkis og borgar Frjálshyggjufélagið mótmælir aðkomu opinberra aðila að aðstöðuuppbyggingu Knattspyrnusambands Íslands. Eins og greint var frá á dögunum hyggst ríki og borg leggja 600 milljónir króna í uppbygginu og endurbætur á Laugardalsvellinum sem áætlað er að muni mosta ríflega einn milljarð. 27.9.2005 00:01
16 látnir vegna fellibyls Sextán hafa látist af völdum fellibylsins Damrey sem reið yfir Hainan-eyjuna við suðurströnd Kína í gær. Yfirvöld á svæðinu segja storminn hafa hrifsað með sér um 20 þúsund heimili og eyðilagt um 380 kílómetra af þjóðvegum á eyjunni. 27.9.2005 00:01
Sigríður Dúna verður sendiherra Davíð Oddsson lét það verða sitt síðasta verk sem utanríkisráðherra að skipa Sigríði Dúnu Kristmundsdóttur sendiherra frá og með 1. júní 2006. Mun hún þá flytjast til Pretoriu og taka við embætti sendiherra í Suður-Afríku. 27.9.2005 00:01
Google sjö ára í dag Leitarvélin Google er sjö ára í dag og ber upphafssíða hennar þess glögglega merki. Fyrirtækið var stofnað af skólabræðrunum Larry Page og Sergey Brin í heimavistarherbergi Larrys í Stanford og reka þeir félagar fyrirtækið enn þann dag í dag. 27.9.2005 00:01
2 milljarða afgangur á ríkissjóði Ríkissjóður var rekinn með tveggja milljarða króna afgangi á síðasta ári samkvæmt niðurstöðutölum ríkisreiknings fyrir árið 2004 samanborið við 6,1 milljarðs króna halla árið áður. Þegar afkoman er skoðuð án tilfallandi liða eins og eignasölu, lífeyrisskuldbindinga og afskrifta skattkrafna er afgangur um 23 milljarðar á meðan halli ársins á undan nam rúmum einum milljarði króna á sama grunni. 27.9.2005 00:01
Almenningur afvegaleiddur? Ian Paisley, leiðtogi mótmælenda á Norður-Írlandi, ásakaði í dag hópinn sem stóð að afvopnun írska lýðveldishersins um að afvegaleiða almenning vísvitandi til að friða óánægjuraddir innan IRA. Hann segist sannfærður um að einungis hluta vopna lýðveldishersins hafi verið eytt. 27.9.2005 00:01
Guðmundur Páll verður bæjarstjóri Guðmundur Páll Jónsson, oddviti framsóknarmanna í bæjarstjórn Akraness og forseti bæjarstjórnar, tekur við starfi bæjarstjóra af Gísla Gíslasyni og gegnir því út kjörtímabilið sem rennur út í vor. Skessuhorn segir á heimasíðu sinni að bæjarmálaflokkar Framsóknarflokks og Samfylkingarinnar, sem mynda meirihluta í bæjarstjórn Akraness, hafi komist að samkomulagi um þetta. 27.9.2005 00:01
Logi Bergmann ráðinn til 365 Logi Bergmann Eiðsson hefur verið ráðinn til 365 ljósvakamiðla. Logi Bergmann verður einn af aðallesurum kvöldfrétta 365 ásamt Sigmundi Erni Rúnarssyni og Eddu Andrésdóttur. Hann mun einnig byggja upp og stjórna nýjum þáttum hjá 365. Það eru því litlar líkur á að Logi muni stýra Opnu húsi, nýjum dægurmálaþætti hjá Ríkissjónvarpinu, sem hefur göngu sína í næsta mánuði. 27.9.2005 00:01
Hægri hönd al-Zarqawi skotinn Lík 22 manna fundust sundurskotin í borginni Kut í Írak í gær. Þá var skýrt frá því að bandarískar og íraskar hersveitir hefðu fellt næstráðanda al-Kaída í Írak um helgina. 27.9.2005 00:01
Ný lögreglustöð í Mjóddinni Ný lögreglustöð verður opnuð í Álfabakka í Mjóddinni á morgun. Um leið verður lögreglustöðinni í Völvufelli í efra Breiðholti lokað. 27.9.2005 00:01
Baugur borgaði Jóni Gerald Stjórnarformaður Baugs, segir að fullyrðingar ritstjóra Morgunblaðsins um 120 milljóna króna greiðslur Baugs til Jóns Geralds og einkaspæjaranna, séu óhróður. Aðalatriði málsins sé að áhrifamenn innan Sjálfstæðisflokksins hafi verið að leggja á ráðin um hvernig hrinda mætti lögreglurannsókn af stað. </font /></b /> 27.9.2005 00:01
Slagnum slegið á frest Enda þótt Ariel Sharon hafi unnið áfangasigur í atkvæðagreiðslu í miðstjórn Likud-bandalagsins í fyrrakvöld þýðir niðurstaðan að óvissan um forystuna í næstu þingkosningum heldur áfram. 27.9.2005 00:01
Blátt bann við hjalinu Stjórnendur Calderdale Royal-sjúkrahússins í Halifax í Englandi hafa sett bann við að fólk hjali við og stari á nýfædd börn annars fólks á fæðingardeild sjúkrahússins. 27.9.2005 00:01
Stálu líki Lögregla á Bretlandi hefur handtekið fimm manns í tengslum við ránið á líki hinnar 82 ára gömlu Gladys Hammond úr kirkju í Staffordskíri í október 2004. 27.9.2005 00:01
Mubarak sór embættiseið Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, sór í gærmorgun embættiseið en hann sigraði örugglega í forsetakosningum í landinu fyrr í mánuðinum, þeim fyrstu þar sem frambjóðendum annarra flokka var leyft að bjóða sig fram. 27.9.2005 00:01
Framsóknarmenn á Akureyri álykta Framsóknarfélag Akureyrar hefur ályktað um framtíð Reykjavíkurflugvallar. 27.9.2005 00:01
Sprauta maurasýru í tré Maurar í regnskógum Suður-Ameríku nota eitur til að grisja þær plöntur sem þeir telja óhagstæðar búsetu sinni. Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknar sem greint er frá í vísindaritinu Nature. 27.9.2005 00:01
Venstre vinnur á Þrátt fyrir óheppileg ummæli Evu Kjer Hansen, félagsmálaráðherra Danmerkur, í síðustu viku um að aukinn ójöfnuður myndi leiða af sér kraftmeira samfélag, hefur fylgi Venstre-flokks Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra og flokksbróður Hansen, ekki dalað samkvæmt skoðanakönnun sem Jyllandsposten greinir frá. 27.9.2005 00:01
Damrey gerir usla Fellibylurinn Damrey gekk á land í Thanh Hoa héraði í Víetnam gærmorgun og slösuðust nokkrir í óveðrinu. Áður hafði stormurinn farið yfir Hainan-eyju, sem tilheyrir Kína, og lágu þar níu manns í valnum. 27.9.2005 00:01
Deilt um Atlantshafsbandalagið Vera má að Noregur verði fyrsta aðildarríki Atlantshafsbandalagsins sem dregur sig úr aðgerðum þess á meðan þær standa ennþá yfir. 27.9.2005 00:01
Íslenskur langferðabíll verður til Ari Arnórsson og samstarfsmenn hans eru að leggja lokahönd á smíði 20 manna rútu sem er sérhönnuð fyrir íslenska vegi. Bíllinn nefnist Ísar R2 og er ætlunin að hefja raðsmíði á honum á komandi árum. </font /></b /> 27.9.2005 00:01
Ríta: Margir misstu allt sitt Sorgleg sjón blasir við fjölda íbúa í Texas og Louisiana sem hafa snúið til síns heima eftir að hafa flúið fellibylinn Rítu. Margir hafa misst allt sitt og eru vonlausir um framtíðina. 27.9.2005 00:01
Davíð kveður þakklátur Davíð Oddsson utanríkisráðherra sat sinn síðasta ríkisstjórnarfund í gær, en hann tekur við stöðu seðlabankastjóra 20. október næstkomandi. Ráðherraskiptin urðu á ríkisráðsfundi síðdegis í gær. 27.9.2005 00:01
Undrandi og hneykslaður "Ég er bæði undrandi og hneykslaður á mörgu því sem hefur komið fram síðustu daga," segir Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra um framvindu Baugsmálsins og fjölmiðlaumfjöllun síðustu daga. 27.9.2005 00:01
Segir fjölmiðla Baugs misnotaða Davíð Oddsson, fráfarandi utanríkisráðherra, var spurður um Baugsmálið og fjölmiðla þegar hann kom út af sínum síðasta ríkisstjórnarfundi í gær. Hann kannast ekkert við fundi Kjartans Gunnarssonar, framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins, og Styrmis Gunnarssonar ritstjóra um meðferð upplýsinga sem leiddu til Baugsákæru. 27.9.2005 00:01
Man ekki hvort hún sendi bréfið Jónína Benediktsdóttir hótaði Jóhannesi Jónssyni í Bónus að birta viðkvæmar upplýsingar um hann, léti hann hana ekki hafa tugi milljóna króna og Audi-bifreið. Jónína segist ekki muna hvort hún hafi sent bréfið. 27.9.2005 00:01
Auðvelt að komast í tölvupóst Umræðan upp á síðkastið hefur öðrum þræði fjallað um hvernig Fréttablaðið komst yfir tölvupóstsamskipti um aðdraganda Baugsmálsins. Hægt er að beita ýmsum aðferðum til að komast yfir tölvupóst annarra og svo virðist sem ekki þurfi neina sérþekkingu til. 27.9.2005 00:01
Davíð hættur sem ráðherra Davíð Oddsson gekk úr ríkisstjórn í dag eftir rúmlega fjórtán ára setu með orðið fjölmiðlafrumvarp á vörunum. Nýir menn tóku við lyklavöldum í þremur ráðuneytum í dag. 27.9.2005 00:01
Frækileg björgun Landhelgisgæslan bjargaði í morgun manni í sjávarháska af skútu á milli Íslands og Grænlands. Félagi mannsins féll útbyrðis og er talinn af. 27.9.2005 00:01
Álver í Helguvík fyrir 2015 Gangi allt eftir, verður nýtt tvöhundruð og fimmtíu þúsund tonna álver reist í Helguvík í Reykjanesbæ. Framleiðsla gæti hafist eftir fimm til tíu ár. 27.9.2005 00:01
Sóttur til saka Fyrrverandi yfirmanni Concorde-flugáætlunarinnar í Frakklandi hefur verið stefnt vegna flugslyss Concorde-vélar árið 2000, þar sem á annað hundrað manns lét lífið. 27.9.2005 00:01
Bíða eigenda sinna árum saman Allsnægtasamfélagið Ísland tekur á sig ýmsar myndir og ekki allar jafnfagrar. Skuggahliðarnar er meðal annars að finna í fatahreinsunum og hjá skósmiðum. 27.9.2005 00:01
Karlremban úr þjóðsöngnum Austurríkismenn hafa ákveðið að uppræta karlrembuna í þjóðsöng landsins. Að frumkvæði kvennamálaráðherrans Maríu Rauch-Kallat verður texta þjóðsöngsins nú breytt þannig, að línan "Ættjörð ert þú mikilla sona" verður "Ættjörð mikilla dætra, sona". 27.9.2005 00:01
Bandaríkjaher frá Úsbekistan Bandaríski herinn mun leggja herstöð sína í Úsbekistan niður fyrir lok þessa árs, að því er erindreki Bandaríkjastjórnar greindi frá í gær. Herstöðin hefur þjónað hernaðarumsvifum Bandaríkjamanna í Afganistan. 27.9.2005 00:01
Breskur her ekki heim frá Írak Jack Straw, utanríkisráðherra Bretlands, varaði í ræðu á flokksþingi breska Verkamannaflokksins í gær við því að framundan væru fleiri "myrk augnablik" í Írak. En hann ítrekaði yfirlýsingu forsætisráðherrans Tony Blair frá því daginn áður um að útilokað væri að breska herliðið í Írak yrði kallað heim í bráð. 27.9.2005 00:01
Marcinkiewicz forsætisráðherraefni Jaroslaw Kaczynski, formaður pólska íhaldsflokksins Lög og réttlæti sem hlaut flest atkvæði í þingkosningunum um liðna helgi, sagði í gær að hann hygðist tafarlaust ganga til stjórnarmyndunarviðræðna við frjálshyggjuflokkinn Borgaravettvang. Hann tilkynnti jafnframt að forsætisráðherraefni væri ekki hann sjálfur heldur Kazimierz Marcinkiewicz. 27.9.2005 00:01