Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þrýstingur á Berlusconi eykst Enn eykst þrýstingurinn á Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, að reka seðlabankastjórann Antonio Fazio eða segja sjálfur af sér ella. Í gær sagði fjármálaráðherrann Domenico Sinisalco af sér í mótmælaskyni við það að seðlabankastjórinn Fazio sæti sem fastast án þess að nokkur gerði neitt. 23.9.2005 00:01
Síminn misnotaði ekki stöðu sína Samkeppniseftirlitið hefur úrskurðað að Síminn hafi ekki misnotað markaðsráðandi stöðu sína í tengslum við tilboð á svokölluðum ADSL-pakka og þráðlausu interneti. Tilboðið var auglýst fyrir tveimur árum og kvartaði fjarskiptafyrirtækið Inter í kjölfarið yfir þessu til Samkeppniseftirlitsins. 23.9.2005 00:01
Síðasta afkvæmi Guttorms Kýrin Búkolla bar kálf í Húsdýragarðinum í Laugardal í morgun og heilsast bæði kálfi og kú vel. Kálfurinn er tuttugasta og fimmta afkvæmi naustins Guttorms, og jafnframt síðasta afkvæmi hans, því honum var lógað í síðustu viku vegna lasleika og borinn til grafar að Hurðarbaki í Kjós. 23.9.2005 00:01
Leggur 6000 heimili í rúst Búist er við að fellibylurinn Ríta muni leggja um 6000 þúsund heimili í rúst í Texas ríki þegar hún gengur þar á land og að borgin Port Arthur munu öll fara undir vatn, samkvæmt síðustu tíðindum frá fellibyljamiðstöð Bandaríkjanna. 23.9.2005 00:01
2 ára fangelsi fyrir líkamsárás Rúmlega fertugur maður, Trausti Finnbogason, var í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í tveggja ára fangelsi fyrir grófa líkamsárás sem hann framdi í félagi við 17 ára ungling. Réðust árásarmennirnir að fórnarlambinu með kylfum og öðrum bareflum og slógu hann ítrekað í höfuðið. 23.9.2005 00:01
Útför þeirra sem fórust í sjóslysi Útför Matthildar Victoríu Harðardóttur og Friðriks Ásgeirs Hermannssonar fór fram frá Hallgrímskirkju í dag. Þau fórust í sjóslysi á Viðeyjarsundi fyrir tveimur vikum, en þrír aðrir komust lífs af úr slysinu. 23.9.2005 00:01
Umferð á næstunni um Svínahraun Nýi vegurinn um Svínahraun verður opnaður fyrir umferð á næstu dögum. Vonast er til að um helgina takist að ljúka malbikun en hún hefur tafist vegna kulda síðustu daga. 23.9.2005 00:01
Kennarar óánægðir með vinnuveitand Fjórðungur starfsmanna grunnskóla og Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur er óánægður með vinnuveitanda sinn. Kennarar eru óánægðari en aðrir starfsmenn. Óánægja hefur aukist frá 2002. 23.9.2005 00:01
Sjálfstæðsflokkur fengi meirihluta Sjálfstæðisflokkur fengi 56,1 prósent atkvæða og 9 borgarfulltrúa ef kosið væri í borgarstjórnarkosningum í dag, samkvæmt nýrri könnun Gallup. 23.9.2005 00:01
Engin sprengja í töskunni Breska lögreglan handtók meintan hryðjuverkamann á flugvellinum í Manchester í morgun. Beita þurfti rafmagnsbyssu til að yfirbuga manninn sem veitti mikla mótspyrnu við handtökuna. Engin sprengja var í tösku mannsins eins og talið var. 23.9.2005 00:01
Hamas-liðar féllu í sprengingu Pallbíll sem hópur grímuklæddra herskárra Palestínumanna ók um á sprakk í loft upp á útifundi Hamas-samtakanna á Gazasvæðinu í gær. Að minnsta kosti tíu Palestínumenn létu lífið og um 85 særðust, að sögn sjúkrahúslækna. 23.9.2005 00:01
Khodorkovskí-mál til Strassborgar Saksóknarar í Moskvu lýstu því yfir í gær að dómsmáli olíuviðskiptajöfursins Mikhaíl Khodorkovskí væri lokið. En lögmenn hans hétu því að málinu yrði skotið til Mannréttindadómstóls Evrópu. 23.9.2005 00:01
Rita talin munu valda miklu tjóni Fellibylurinn Rita nálgaðist strönd Texas og Louisiana óðfluga í gær. Umferð var í hnút á helstu flóttaleiðunum. Jafnvel var óttast að margt fólk yrði enn fast þegar bylurinn skylli á, með vindhraða allt upp í 220 km/klst og hamslausri úrkomu. Miklu tjóni var spáð á olíuiðnaði í Texas. Í New Orleans voru flóðvarnargarðar farnir að gefa sig aftur. 23.9.2005 00:01
Hægriflokkum spáð sigri í Póllandi Þingkosningar fara fram í Póllandi nú um helgina. Tveir miðju-hægriflokkar mælast fylgismestir í skoðanakönnunum og er búist við því að vinstriflokkarnir sem stóðu að fráfarandi minnihlutastjórn bíði mikið afhroð. 23.9.2005 00:01
Ríta nálgast óðum Fellibylurinn Ríta er í þann mund að skella á ströndum Texas og Louisiana. Hann virðist á góðri leið með að verða jafn kröftugur og jafnvel kröftugri en Katrín sem reið yfir Suðurríkin fyrir innan við mánuði með hörmulegum afleiðingum. 23.9.2005 00:01
ESB-búar vilja Ísland í sambandið Sjö af hverjum tíu íbúum Evrópusambandslandanna 25 vilja að Ísland fái aðild að sambandinu. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýjustu Eurobarometer-könnunarinnar, viðhorfskönnunar sem tölfræðistofnun ESB, Eurostat, gerir reglulega í öllum aðildarríkjunum. 23.9.2005 00:01
Breyta þarf nauðgunarskilgreiningu Breyta þarf skilgreiningu á nauðgun í íslenskum lögum í takt við alþjóðlega þróun, að mati Sifjar Konráðsdóttur hæstaréttarlögmanns. Hún telur að það leiddi til þess að frekar yrði hægt að ákæra í kynferðisbrotamálum. 23.9.2005 00:01
Tvö tonn af skyri seld vestanhafs Áhugi Bandaríkjamanna á skyri og öðrum íslenskum mjólkurvörum er slíkur að Baldvin Jónsson verkefnisstjóri segir að bændur á Íslandi verði að auka mjólkurframleiðslu um fimmtung hið minnsta. Í síðustu viku gerðust þau stórtíðindi að tvö tonn af skyri seldust upp á skömmum tíma í verslunum í höfuðborginni Washington. 23.9.2005 00:01
Óttast staðbundið regn Aðeins var byrjað að hvessa í Houston í Bandaríkjunum en ekki byrjað að rigna seint í gær, að sögn Ólafs Árna Ásgeirssonar, ræðismanns sem ætlar að halda kyrru fyrir meðan fellibylurinn Rita gengur yfir. 23.9.2005 00:01
Útgerð krefst skaðabóta Útgerðarfyrirtækið Guðmundur Runólfsson hf. á Grundarfirði ætlar að sækja fyrir dómi bætur vegna ólöglegs samráðs olíufélaganna. Útgerðin er fyrst til að lýsa þessu yfir en fleiri hugsa sinn gang. 23.9.2005 00:01
Tvö ár bætast við fyrri dóm Rúmlega fertugur karlmaður hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að ráðast í mars í fyrra á mann með kylfu og berja hann ítrekað fast í höfuðið. Þá var hann dæmdur fyrir að hafa haft í fórum sínum fíkniefni, hass, amfetamín og MDMA-töflur, og fyrir nokkra smáþjófnaði. 23.9.2005 00:01
Metanpóstbíll brann á gatnamótum Lítil póstflutningabifreið brann á gatnamótum Laugavegs og Nóatúns um klukkan hálf tvö í gær og er ónýt eftir. Ökumaður bifreiðarinnar slapp, en vegfarandi lét hann vita af reyk undir bílnum. 23.9.2005 00:01
Höfðu samráð um kæru gegn Baugi Styrmir Gunnarsson, Jón Steinar Gunnlaugsson og Kjartan Gunnarsson funduðu um Baugsmálið mánuðum áður en það var kært til lögreglu. Ritstjóri Morgunblaðsins og Jónína Benediktsdóttir voru í sambandi við Jón Gerald ítrekað áður en kæran var lögð fram. 23.9.2005 00:01
Eyddu fingraförum Morgunblaðsins Ritstjóri Morgunblaðsins lét blaðamann þýða texta fyrir Jón Gerald Sullenberger og bað Jónínu Benediktsdóttur að eyða fingraförum Morgunblaðsins af verkinu. Jón Gerald var lengi að taka ákvörðun um að fara að ráðum þeirra Styrmis og Jónínu um að leita aðstoðar Jóns Steinars Gunnlaugssonar varðandi hugsanlega kæru á hendur Baugsfeðgum. 23.9.2005 00:01
Vinnum óháð pólitísku ástandi Starfsmenn efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra telja að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, hafi hvorki svarað því hvaða veiðileyfi hafi verið gefið út á Baug né á hvern hátt upphafi rannsóknar máls á hendur fyrirtækinu hafi verið háttað. 23.9.2005 00:01
Sinntu ekki rannsókninni Rannsókn á hópnauðgun konu í ágúst 2002 var ýtt til hliðar vegna alvarlegrar líkamsárásar sem upp kom sömu helgi. Þetta kemur fram í skýringum lögreglu í Reykjavík til Ríkissaksóknara eftir að verjandi konunnar hafði óskað eftir frekari upplýsingum um rannsóknina. 23.9.2005 00:01
Biðlistar standa í stað Biðlistar á Landspítala - Háskólasjúkrahúsi standa nánast í stað miðað við sama tíma í fyrra. Þó hafa þeir lengst í sumum sérgreinum. Yfirstjórn spítalans er ánægð með stöðuna. 23.9.2005 00:01
Milljón yfirgefa heimili sín Meira en milljón manns hefur verið gert að yfirgefa heimili sín í Texas og Louisiana, vegna fellibylsins Rítu, sem var í morgun orðinn þriðji öflugasti fellibylur sögunnar. Ríta er nú orðin fimmta stigs fellibylur, og þar með öflugri en Katrín, sem lagði New Orleans í rúst. 22.9.2005 00:01
Þrír fluttir á sjúkrahús Þrír voru fluttir á sjúkrahús eftir harðan árekstur sendibíls og fólksbíls á Njarðarbraut í Reykjanesbæ í gærkvöldi. Fólksbílinn ók aftan á sendibílinn á mikilli ferð við hraðahindrun. Fólksbílinn gjöreyðilagðist og þurfti að flytja hann burt með dráttarbíl. 22.9.2005 00:01
Öryggisráðherra Mexíkó látinn Öryggismálaráðherra Mexíkó og átta aðrir fórust í gær, þegar þyrla hrapaði í fjallgarði vestur af Mexíkó. Enginn komst lífs af. Ráðherrann var einn nánasti samstarfsmaður Vicente Fox forseta landsins og sá meðal annars um kosningabaráttu hans þegar hann komst fyrst til metorða sem ríkisstjóri. 22.9.2005 00:01
ASÍ vill lög um starfsmannaleigur Miðstjórn Alþýðusambands Íslands skorar á ríkisstjórnina og Alþingi að beita sér nú þegar fyrir setningu laga um starfsmannaleigur. 22.9.2005 00:01
Beraði á sér bossann Fjórtán ára drengur var handtekinn við Ráðhúsið í gær, þar sem Náttúruvaktin hélt mótmæli, vegna ráðstefnu um áliðnað sem haldin er hér á landi þessa dagana. 22.9.2005 00:01
Bush óvinsælli en áður Stuðningur Bandaríkjamanna við Íraksstríðið hefur hríðfallið í kjölfar fellibylsins Katrínar. Samkvæmt nýrri Gallup könnun vilja tveir þriðju hlutar Bandaríkjamanna að brottfluttningur hersveita frá Írak hefjist þegar í stað. 22.9.2005 00:01
Varað við hálkublettum Ótvíræð merki þess að vetur sé að ganga í garð eru farin að sjást. Vegagerðin varar við hálkublettum á Hellisheiði, í Þrengslum, á Bröttubrekku og á Holtavörðuheiði. Víða annars staðar er hálka á vegum og rétt er að vara vegfarendur við og brýna fyrir þeim að fara öllu með gát. Einnig voru hálkublettir í efri byggðum borgarinnar í morgun. 22.9.2005 00:01
Sextíu látnir í flóðum í SA-Asíu Meira en sextíu manns hafa látist af völdum mikilla vinda og flóða í suðurhluta Asíu undanfarna daga. Hundraða er saknað og óttast er að flestir þeirra finnist aldrei. Í Bangladess og á Indónesíu hafa meira en hundrað þúsund manns þurft að yfirgefa heimili sín í strandhéruðum þar sem yfirborð sjávar hefur hækkað um allt að þrjá metra. 22.9.2005 00:01
Þrír slösuðust í árekstri Þrír voru fluttir á sjúkrahús eftir harðan árekstur sendibíls og fólksbíls á Njarðarbraut í Reykjanesbæ í gærkvöldi. Fólksbílinn ók aftan á sendibílinn á mikilli ferð við hraðahindrun. Fólksbílinn gjöreyðilagðist og þurfti að flytja hann burt með dráttarbíl. Bílstjórinn og farþegi slösuðust töluvert og ökumaður sendibílsins var líka fluttur á sjúkrahús. Tildrög slyssin eru óljós. 22.9.2005 00:01
Sagði af sér vegna ágreinings Domenico Siniscalco, fjármálaráðherra Ítalíu, hefur sagt starfi sínu lausu. Fjölmiðlar á Ítalíu segja ráðherrann hafa sagt upp vegna ágreinings innan ríkisstjórnarinnar og óánægju með að seðlabankastjóra landsins hafi ekki verið sagt upp eftir að upp komst um spillingu. 22.9.2005 00:01
Þurfti að nauðlenda vegna bilunar Betur fór en á horfðist þegar farþegaflugvél þurfti að sveima yfir Los Angeles í þrjá klukkutíma í gær þar sem lendingarbúnaðurinn var í í ólagi. Framhjól vélarinnar sneru á hlið og ekki var hægt að ná þeim aftur inn í vélina. Töluverð ringulreið greip skiljanlega um sig og skelfingu lostnir farþegarnir gátu horft á atburðina og þar með eigin örlög í beinni útsendingu inni í vélinni. 22.9.2005 00:01
Jekhanúrov verður forsætisráðherra Úkraínska þingið samþykkti í dag tilnefningu Júrís Jekhanúrovs í embætti forsætisráðherra landsins í annarri tilraun Viktors Júsjenkós forseta til þess að fá hann samþykktan. Jekhanúrov tekur við embættinu af Júlíu Tímósjenkó sem forsetinn rak úr embætti fyrr í mánuðinum vegna meintrar spillingar, en Tímósjenkó og Júsjenkó fóru fyrir hinni svokölluðu appelsínugulu byltingu í landinu á síðasta ári. 22.9.2005 00:01
Hálka og hálkublettir víða um land Hálka eða hálkublettir eru víða um land og er fólk beðið um að fara varlega af þeim sökum. Hálkublettir eru á Hellisheiði, í Þrengslum, á Bröttubrekku, Holtavörðuheiði, Fróðárheiði, Vatnaleið og á milli Grundarfjarðar og Stykkilshólms. Þá er hálka eða hálkublettir víða á Vestfjörðum, Norðausturlandi og Austurlandi. 22.9.2005 00:01
Skar nef og varir af mágkonu sinni Pakistanskur maður skar nefið og varirnar af mágkonu sinni eftir að hún hugðist sækjast eftir skilnaði frá bróður hans. Eftir því sem Reuters-fréttastofan greinir frá skaut maðurinn á konuna og bróður hennar sem voru á leið heim úr dómhúsi í Punjab-héraði á mótorhjóli. Við það féllu systkinin af hjólinu og réðst þá maðurinn á konuna og skar af henni nefið og varirnar. 22.9.2005 00:01
Miklar endurbætur á Alþingishúsinu Umfangsmiklar endurbætur hafa staðið yfir á Alþingishúsinu síðastliðin tvö ár og nú sér brátt fyrir endann á þeim. Ákveðið var árið 2002 að ráðast í endurbæturnar en engar engar heildstæðar viðgerðir höfðu þá verið gerðar á húsinu frá því það var byggt árið 1881. Framkvæmdunum var skipt í nokkra áfanga enda einungis hægt að vinna að þeim að sumarlagi meðan hlé er á þingstörfum. 22.9.2005 00:01
Merkel og Schröder ræðast við Gerhard Schröder, leiðtogi Jafnaðarmanna, og Angela Merkel, leiðtogi Kristilegra demókrata, hefja í dag stjórnarmyndunarviðræður í kjölfar kosninganna til þýska sambandsþingsins á sunnudag. Búist er við erfiðum viðræðum, en bæði Merkel og Schröder hafa fagnað góðum árangri í kosningunum og gera bæði tilkall til kanslaraembættisins. 22.9.2005 00:01
Sérstakt eftirlit vegna innbrota Innbrot í nýbyggingar og vinnuskúra í Hvarfa- og Kórahverfi í Kópavogi hafa verið tíð að undanförnu, samkvæmt lögreglunni í Kópavogi. Talsverðum verðmætum hefur verið stolið, aðallega verkfærum. Til að stemma stigu við þessu ætlar lögreglan halda uppi sérstöku eftirliti í þessum hverfum. 22.9.2005 00:01
Neita að vinna með Bretum í Basra Borgaryfirvöld í Basra lýstu því yfir í dag að þau myndu ekki starfa með breskum hermönnum í borginni fyrr en Bretar bæðust afsökunar og bættu fyrir innrás breska hersins í fangelsi í bænum á mánudag. Breska herliðið réðst inn í fangelsið og frelsaði tvo leyniþjónustumenn en þeir höfðu verið handteknir grunaðir um að hafa skotið tvo írakska lögreglumenn til bana. 22.9.2005 00:01