Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Óttast um líf sitt vegna Rítu Aron Pálmi Ágústson, sem búsettur er í Beaumont í Texas, óttast um líf sitt þar sem hann fær ekki að yfirgefa heimabæ sinn þrátt fyrir yfirvofandi fellibyl. Hann er hræddur um að ef hann fái leyfi til að fara þá verði það orðið of seint. 22.9.2005 00:01
Konur leggi niður vinnu Íslenskar konur er hvattar til að leggja niður vinnu þann 24. október næstkomandi, en þá verða liðin 30 ár frá kvennafrídeginum árið 1975. Rósa Erlingsdóttir, verkefnisstjóri hins nýja kvennafrídags, segir að konur verði ekki hvattar til að leggja niður störf með sama hætti gert hafi verið fyrir 30 árum heldur sé því beint til kvenna að leggja niður störf frá klukkan 14.08, en reiknað hafi verið út að þá hafi þær unnið fyrir launum sínum ef litið sé til munar á atvinnutekjum karla og kvenna. 22.9.2005 00:01
Næturlinsur dragi úr nærsýni Næturlinsur, sem settar eru í augun áður farið er að sofa, gera linsu- eða gleraugnanotkun óþarfa yfir daginn. Þessar linsur, sem eiga að draga úr nærsýni, eru fáanlegar hér á landi. 22.9.2005 00:01
Aron fær leyfi til að fara Aron Pálmi Ágústson hefur nú fengið leyfi til að yfirgefa heimabæ sinn vegna yfirvofandi fellibyls en hann óttast að það sé um seinan. Aron Pálmi, sem sætir refsivist í Bandaríkjunum, býr í bænum Beaumont sem er rétt við ríkjamörk Texas og Louisiana. Hann óskaði eftir því í gær að fá að yfirgefa borgina en fékk ekki leyfi til þess vegna skilorðsins sem hann er á. 22.9.2005 00:01
Segja umræðu í fjölmiðlum einhliða Starfsmenn efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjórans hafa sent frá sér yfirlýsingu í tilefni af umræðum í fjölmiðlum og yfirlýsingum alþingismanna um rannsókn á málefnum stjórnenda Baugs Group hf. 22.9.2005 00:01
Olíufélög krafin um 150 milljónir Reykjavíkurborg krefur stóru olíufélögin þrjú um 150 milljónir króna auk vaxta í bætur vegna samráðs þeirra við gerð tilboða í viðskipti við borgina fyrir árin 1996 til ársins 2001. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi borgarlögmaður, hefur sent olíufélögunum bréf þar sem hann krefur þau um bótagreiðslu ekki síðar en 14. október næstkomandi. 22.9.2005 00:01
Embætti hafi brugðist skyldum Ríkislögreglustjóraembættið hefur brugðist skyldum sínum í rannsókn og útgáfu ákæru í Baugsmálinu að sögn Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, formanns Samfylkingarinnar. Hún vísar hins vegar ásökunum efnhagsbrotadeildar frá því í morgun um að hún hafi sagt embættinu handstýrt af yfirboðurum sínum alfarið á bug. 22.9.2005 00:01
Hussein kominn til Bretlands Osman Hussein, sem sakaður eru um að vera einn fjórmenninganna sem stóðu á bak við misheppnaðar sprengjuárásir í Lundúnum 21. júlí, kom í dag til Bretlands. Hussein, sem einnig gengur undir nafninu Hamdi Issac, var handtekinn á Ítalíu skömmu eftir tilræðin og fyrr í mánuðinum féllst ítalskur dómstóll á að hann yrði framseldur til Bretlands vegna málanna. 22.9.2005 00:01
Kastaði eggjum í stjórnarráðið Lögrelgan handtók í hádeginu í dag ungan mann sem hent hafði tveimur eggjum í stjórnarráðið. Maðurinn veitti ekki mótþróa við handtöku en að sögn lögreglu er ekki ljóst hvers vegna maðurinn ákvað að tjá álit sitt á valdstjórninni með eggjakastinu. Hann verður yfirheyrður í dag. 22.9.2005 00:01
Vopnað rán í Laugarnesapóteki Vopnað rán var framið fyrir stundu í Laugarnesapóteki við Kirkjuteig í Reykjavík. Tveir grímuklæddir menn ruddust inn í apótekið vopnaðir litlum hnífum og ógnuðu starfsfólki. Þeir höfðu á brott með sér peninga og lyf en meiddu þó engan starfsmann. Mennirnir voru báðir handsamaðir skammt frá ránsstaðnum stuttu eftir ránið. 22.9.2005 00:01
Saola nálgast strendur Japans Það er víðar en í Bandaríkjunum sem fellibyljir ógna mannabyggðum. Fellibylurinn Saola nálgast nú strendur Japans og jafnvel óttast að hann fari nærri höfuðborginni Tókýó um helgina. Fellibylurinn er enn að styrkjast og stefnir á stærstu eyjar Japans og telur Veðurstofa Japans að hugsanlegt sé að Saola fari rétt austan við Tókýó. 22.9.2005 00:01
Vill ræða fulla aðild Færeyinga Forsætisnefnd Norðurlandaráðs ætlar að óska eftir fundi með forsætisráðherrum Norðurlanda um fulla aðild Færeyinga að Norðurlandaráði og Norrænu ráðherranefndinni. Nefndin ræddi óskir Færeyinga um fulla aðild í dag og Rannveig Guðmundsdóttir, forseti Norðurlandaráðs, segir að þær hafi fengið mjög góðar undirtektir eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Norðurlandaráði. 22.9.2005 00:01
Gagnrýnir Ríkislögreglustjóra hart Það liggur fyrir að hjá Ríkislögrelgustjóraembættinu eru stunduð óvönduð og óheiðarleg vinnubrögð sem nú hitta fyrir yfirmenn stofnunarinnar og þeir kveinka sér undan í fjölmiðlum. Þetta segir Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, í harðorðri yfirlýsingu sem barst fjölmiðlum fyrir stundu. 22.9.2005 00:01
Aron Pálmi flýgur til Austin Aron Pálmi Ágústson er nú á leið frá heimabæ sínum Beumont í Texas. Aron hefur reynt síðan í gær að komast burtu vegna fellibylsins Ritu sem er yfirvofandi. Hann fékk fyrst leyfi fyrir nokkrum klukkutímum til þess að fara. Hann er nú á leið í rútu upp á flugvöll en hann mun fljúga til Austin í Texas. 22.9.2005 00:01
Belti og loftpúðar björguðu miklu Öryggisbelti og til þess búnir loftpúðar eru taldir hafa bjargað ökumönnum tveggja bíla sem lentu saman á gatnamótum Dragháls og Bitruháls laust eftir hádegi í dag. Ekki er ljóst með hvaða hætti slysið varð en bílarnir voru að mætast þegar þeir lentu harkalega saman á gatnamótunum. 22.9.2005 00:01
Hefja brátt prófun á bóluefni Fyrirtæki í Ástralíu hyggst í næsta mánuði hefja prófun á bóluefni gegn þeim stofni fuglaflensunnar sem dregið getur fólk til dauða. Að sögn talsmanns fyrirtækisins CLS, sem er með stærstu framleiðendum blóðvökva í heiminum, stendur til að prófa bóluefnið á 400 sjálfboðaliðum og er von á niðurstöðum áður en árið er liðið. 22.9.2005 00:01
Furða sig á seinagangi nefndar Fulltrúar Alþýðusambands Íslands furða sig á því að nefnd sem Árni Magnússon félagsmálaráðherra skipaði og átti að kanna hugsanlega lagasetningu á starfsemi starfsmannaleiga hér á landi skuli enn ekki hafa lokið störfum. 22.9.2005 00:01
Uppskipting Burðaráss var jákvæð Ingimar Ísak Bjargarson er þrettán ára nemi í Laugarlækjaskóla. Auk þess að spila íshokkí, æfa sig á gítar og leika sér með fjarstýrða bílinn sinn fylgist hann með gengi hlutabréfa í Landsbankanum og Straumi. </font /></b /> 22.9.2005 00:01
Vill ekki tjá sig um stefnu ÖBÍ Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra vill ekki tjá sig um fyrirhugaða stefnu Öryrkjabandalags Íslands á hendur ríkisstjórninni vegna vanefnda á samningum um hækkun lífeyris frá árinu 2003. 22.9.2005 00:01
Fann ekki Íbúðalánasjóð Sophus Klein Jóhannsson er ósáttur vegna merkingaleysis. "Ég ók fram og til baka um Borgartúnið og marga hringi kringum hringtorgin tvö," segir Sophus Klein sem átti erindi í Íbúðalánasjóð á dögunum. </font /></b /> 22.9.2005 00:01
Tíu mánuðir fyrir fjölda brota Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag tæplega tvítugan mann í tíu mánaða fangelsi fyrir bílþjófnaði, innbrot, þjófnaði og fyrir að aka bifreið í ein tíu skipti án ökuréttinda. Maðurinn játaði brot sín sem hann framdi að hluta til í félagi við annan mann á þrítugsaldri. Mál eldri mannsins voru hins vegar aðskilin frá máli þess yngri og því verður dæmt í því máli síðar. 22.9.2005 00:01
Hvetja íbúa í strandbæjum að fara Yfirvöld í Louisiana hvetja nú alla íbúa meðfram ströndum fylkisins að yfirgefa heimili sín. Nýjust veðurfréttir benda til þess að fellibylurinn Ríta muni ganga mun innar en búist var við. Suðvesturhluti Louisiana er talinn vera í mestri hættu. 22.9.2005 00:01
Funda um val fulltrúa á landsfund Heimdallur, félagsskapur ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, mun í dag funda sérstaklega um val á fulltrúum á landsfund ungra sjálfstæðismanna. Fundurinn sem hefst klukkan 16:30 og er haldinn af kröfu 50 félagsmanna í Heimdalli sem telja fram hjá sér og öðrum félagsmönnum gengið með vali stjórnar Heimdallar á fulltrúum á landsfundinn fyrr í mánuðinum. 22.9.2005 00:01
Hafna nýrri tillögu um mál Írans Rússar hafa hafnað nýrri ályktun Evrópusambandsins í tengslum við kjarnorkumál Írana þrátt fyrir að þar sé ekki kveðið á um að máli Írana verði vísað strax til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Þetta hefur Reuters-fréttastofan eftir erindreka á vegum Evrópusambandsins. 22.9.2005 00:01
Vernda þarf kóral við Íslandsmið Gera þarf ráðstafanir til þess vernda kóral á hafsbotninum við Íslandsmið. Þetta er niðurstaða skýrslu sem skilað var til sjávarútvegsráðherra í dag. Í henni er lagt til að þrjú hafsvæði, sem eru um það bil 73 ferkílómetrar að stærð, verði friðuð til þess að vernda kóralinn. Í skýrslunni er jafnframt lagt til að gert verði sérstakt átak í að kortleggja hafstbotninn á Íslandsmiðum. 22.9.2005 00:01
64% Svía hafa lesið SMS maka Níu af hverjum tíu Svíum hafa daðrað í gegnum SMS-skilaboð og 64 prósent hafa lesið SMS-skilaboð í síma maka síns. Það var debetkortafyrirtækið Halebop sem gerði könnunina en í henni kom einnig fram að flestir sem lásu SMS-skilaboð í síma maka síns gerðu það á meðan hann var í sturtu eða á klósettinu. 22.9.2005 00:01
Greiði bætur fyrir naugðun Stúlka sem sakaði þrjá menn um nauðgun fékk í dag dæmdar 1,1 milljón í miskabætur í Hæstarétti. Mennirnir eru taldir hafa brotið gegn kynfrelsi hennar með því að hafa samfarir við hana gegn hennar vilja. Talið var nægilega sannað að mennirnir þrír hefðu með athöfnum sínum brotið sameiginlega gegn frelsi og persónu stúlkunnar. Þeir eru dæmdir til að greiða henni bætur, en verður ekki refsað fyrir sjálfa nauðgunina. 22.9.2005 00:01
Efling ósátt við viðbrögð FL Efling-stéttarfélag er ósátt við viðbrögð Félags leikskólakennara í umræðunni um kjör leikskólakennara undanfarið. Í yfirlýsingu frá Eflingu-stéttarfélagi segir að almennir starfsmenn leikskólanna haldi uppi starfsemi þeirra í ríkum mæli og ef krafta þeirra nyti ekki við væri starfsemin meira og minna lömuð. 22.9.2005 00:01
Lýsir yfir neyðarástandi í ríkjum Georg Bush, forseti Bandaríkjanna, hefur lýst yfir neyðarástandi bæði í Texas og Louisiana vegna komu fellibylsins Rítu. Þung umferð og skortur á mat og bensíni hamlar þeim gífurlega fjölda fólks sem reynir nú að flýja heimili sín við Mexíkóflóa vegna fellibylsins. Talið er að yfir ein milljón manna sé að reyna að yfirgefa svæði þar sem talið er að Ríta muni ganga yfir. 22.9.2005 00:01
Vill ræða um uppsagnir á Blönduósi Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri - grænna, fór í dag fram á það við Sturlu Böðvarsson, fyrsta þingmann Norðvesturkjördæmis og samgönguráðherra, að hann kalli þingmenn kjördæmisins saman til fundar. Ástæðan er lokun starfstöðvar Símans og uppsagnir þriggja starfsmanna þeim samfara á Blönduósi sem kynntar voru starfsmönnunum í gær. 22.9.2005 00:01
Sakfelldur fyrir mannskæða árás Dómstóll í Ísrael sakfelldi í dag Hamas-liða fyrir að skipuleggja sprengjuárás á hótel árið 2002 sem kostaði 30 Ísraela lífið. Árásin var sú mannskæðasta í fimm ára uppreisn Palestínumanna sem lauk fyrr á þessu ári. Abbas al-Sayed, sem fór fyrir herskáum hópi Hamas í Tulkarm á Vesturbakkanum, var einnig sakfelldur fyrir að hafa staðið á bak við sprengjuárás í verslunarmiðstöð árið 2001 en þar létu fimm manns lífið. 22.9.2005 00:01
Boðið upp á stöðupróf í tungumálum Háskólinn í Reykjavík hyggst á morgun bjóða upp á stöðupróf í tungumálum fyrir alla í tilefni af tungumála degi Evrópu. Gefst fólki kostur á að þreyta prófin frá klukkan 15 til 18 í húsakynnum Háskólans að Reykjavík að Ofanleiti 2. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skólanum 22.9.2005 00:01
Skiptar skoðanir um sænsku leiðina Vonast er til að nefnd um mismunandi löggjöf um vændi, klámiðnað og mansal í Evrópu muni skila af sér niðurstöðum fyrir lok mánaðarins. Líklegt þykir að nefndin skili af sér fleiri en einu áliti þar sem skiptar skoðanir eru innan hennar um ágæti sænsku leiðarinnar um að gera kaup á vændi refsiverð. 22.9.2005 00:01
Borgin fer fram á 151 milljón Á fundi borgarráðs í gær var kynnt krafa Reykjavíkurborgar gegn olíufélögunum vegna samráðs í útboði árið 1996. Krafist er rúmlega 150 milljóna auk dráttarvaxta og innheimtukostnaðar. 22.9.2005 00:01
Dómsmálanefnd staðfestir Roberts Dómsmálanefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings samþykkti í dag tilnefningu George Bush Bandaríkjaforseta um að John Roberts verði næsti forseti Hæstaréttar. Verður tilnefningin send öldungadeildinni til staðfestingar. Reiknað er með að það verði í næstu viku og þar sem repúblikanar eru í meirihluta í deildinni er talið líklegt að tilnefning hans verði einnig staðfest þar. 22.9.2005 00:01
Um viðhorf foreldrar fyrirbura Foreldrar fyrirbura með fæðingarþyngd minni en 1000 grömm við fæðingu vilja sjálfir vera þátttakendur í ákvörðun um það hvort hætta beri meðferð á barninu eða ekki en börn sem fæðast svo lítil verður að meðhöndla sérstaklega eigi þau að halda lífi og hætta er á að fatlanir eða alvarleg veikindi hráji þau sem lifa af. 22.9.2005 00:01
Búa sig undir það versta George Bush, forseti Bandaríkjanna, segir að stjórnvöld búi sig undir það versta vegna fellibylsins Rítu. Ríkisstjórar Texas og Louisiana hafa fyrirskipað tafarlausan brottflutning allra íbúa í strandhéruðum ríkjanna vegna fellibylsins. Þegar hefur meira en ein og hálf milljón manna flúið heimili sín. 22.9.2005 00:01
Aron Pálmi enn í Beaumont Nýjustu fréttir af Aroni Pálma eru þær að hann enn staddur í Beumont. Rútuferðinni til Austin hefur verið frestað og er hann nú í umsjón Rauða krossins í borginni og er verið að skipuleggja brottflutning fjölda manns. Ekki er vitað hvert farið verður með fólkið. 22.9.2005 00:01
Ráðherrar fóru gegn ráðgjöf HSBC Ráðgjafi einkavæðingarnefndar í sölu ríkisbankanna 2002, HSBC, vildi að skilyrði yrðu sett um verðtilboð Samson í Landsbankann svo tryggja mætti hæsta verðið. HSBC mælti einnig gegn því að farið yrði í viðræður við Samson svo snemma í söluferlinu. Ráðherranefndin hunsaði ráðin. </font /></b /> 22.9.2005 00:01
Ekki refsað fyrir nauðgun Hæstiréttur hefur dæmt konu, sem var fórnarlamb hópnauðgunar, 1,1 milljón króna í bætur. Nauðgararnir ganga samt lausir og þurfa ekki að óttast að fara í fangelsi. 22.9.2005 00:01
Málaferli ef olíufélög borgi ekki Reykjavíkurborg krefur olíufélögin um 150 milljónir króna í bætur vegna verðsamráðs olíufélaganna við útboð á olíuviðskiptum borgarinnar árið 1996. Borgarstjóri hótar málaferlum ef þau borga ekki. 22.9.2005 00:01
Ógnuðu starfsfólki með hnífum Vopnað rán var framið í Laugarnesapóteki um klukkan tvö í dag. Tveir menn vopnaðir hnífum ógnuðu starfsfólki og vitorðsmaður þeirra beið í bíl skammt frá og komst hann tímabundið undan. 22.9.2005 00:01
Lyf með kódíni úr lausasölu Parkódín og önnur lyf með kódíni verða tekin úr lausasölu eftir rúma viku eða þann 1.október. Læknar og lyfjaverslanir hafa fæstar verið látnar vita hvað dag bannið tekur gildi. 22.9.2005 00:01
Vill að ákæruvald verði þrískipt Ríkissaksóknari vill að ákæruvald verði þrískipt en ekki tvískipt, og að stofnað verði embætti héraðssaksóknara. Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður telur að taka verði ákæruvaldið af lögreglustjórunum svo að girt sé fyrir að sömu menn bæði rannsaki og ákæri í málum. 22.9.2005 00:01
Fylgdust með eigin örlögum Farþegar um borð í þotu JetBlue flugfélagsins fylgdust skelfingu lostnir með eigin örlögum í beinni sjónvarpsútsendingu í gærkvöldi þegar vélin þurfti að nauðlenda eftir að lendingarbúnaður bilaði. Betur fór þó en á horfðist. 22.9.2005 00:01