Fleiri fréttir Frávísun dregin til baka Ragnar Hall dró til baka kröfu um að framhaldsákæra á hendur Sveini R. Eyjólfssyni, Eyjólfi Sveinssyni og átta öðrum sem hafa verið ákærðir fyrir að standa ekki skil á sköttum og launatengdum gjöldum í fyrirtækjarekstri tengdum Frjálsri fjölmiðlun verði vísað frá. 19.9.2005 00:01 Tíu takast á um sex sæti Framboðsfrestur forvals Vinstrihreyfingarinnar- græns framboðs fyrir borgarstjórnarkosningar næsta vor rann út á föstudag, en forvalið verður 1. október. Utankjörfundar atkvæðagreiðsla fer fram 28. og 30. september. 19.9.2005 00:01 Íbúar New Orleans tínast heim Íbúar New Orleans eru nú farnir að hlýða kalli borgarstjórans og tínast heim aftur, þrátt fyrir andstöðu alríkisstjórnarinnar. Alríkisstjórnin í Washington er á móti þessu og segir að borgin sé ennþá hættusvæði. 19.9.2005 00:01 Orrustuþoturnar yfirgefa landið Fjórar orrustuþotur breska flughersins tóku á loft frá Reykjavíkurflugvelli í dag. Þoturnar fóru í æfingaflug til Keflavíkur fyrir helgi en gátu ekki lent þar vegna veðurs. Sjaldgæft er að eins hreyfils orrustuþotum sé lent með blindflugstækjum. 19.9.2005 00:01 Uppgjör söfnunarinnar birt Þjóðarhreyfingin hefur birt uppgjör söfnunarinnar „Innrásin í Írak - ekki í okkar nafni“. Meira en fjögur þúsund manns stóðu straum af kostnaði við birtingu auglýsingar í bandaríska stórblaðinu <em>The New York Times</em> þar sem lýst var andstöðu við þá ákvörðun íslenskra stjórnvalda að styðja innrásina. 19.9.2005 00:01 Ringulreið í Þýskalandi Tveir gera tilkall til kanslaraembættisins í Þýskalandi en hvorugur virðist geta myndað starfhæfa stjórn. Ringulreið er í landinu kjölfar þingkosninganna í gær sem skiluðu í raun engri ákveðinni niðurstöðu. 19.9.2005 00:01 Hærri laun í ræsinu en á leikskóla Pólskur innflytjandi hefur rekið sig áþreifanlega á að hér á landi sé það betur metið að vinna í ræsinu en að annast leikskólabörn. Hann fær rúmum fjörutíu þúsund krónum meira á mánuði í tekjur eftir að hann skipti um starfsvettvang. 19.9.2005 00:01 Geir frekar fylgjandi framboðinu Davíð Oddsson utanríkisráðherra segir ekkert athugavert við ummæli fosætisráðherra á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna um að Íslendingar væru í framboði til Öryggisráðsins. Yfirlýsingin hafi verið gefin í samráði við Geir H. Haarde, verðandi utanríkisráðherra, sem frekar hefði verið fylgjandi framboði en ekki. 19.9.2005 00:01 50 milljónir í umsóknina Alþingi hefur að minnsta kosti fimm undanfarin ár fjallað um og samþykkt aukin framlög til fastanefndar Íslands í New York vegna framboðs til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. 19.9.2005 00:01 Laugalækjarskóli sigraði Skáksveit Laugalækjarskóla tryggði sér sigur á Norðurlandameistaramóti grunnskólasveita sem haldið var í Árósum í Danmörku um síðustu helgi. Vilhjálmur Pálmason og Einar Sigurðsson voru sigursælastir í sigurliðinu; hvor um sig var með fjóra og hálfan vinning en fimm skákir voru tefldar. 19.9.2005 00:01 Þora ekki til Bolungarvíkur "Bolvíkingar láta sig nú flestir hafa það að keyra undir Óshlíðinni þótt þeir séu nú meðvitaðir um þá hættu sem því fylgir, en ég tel að fáir aðrir geri sér ferð til Bolungarvíkur eins og ástandið er," segir Jónas Guðmundsson, sýslumaður í Bolungarvík og formaður Almannavarnanefndar. 19.9.2005 00:01 Tugir húsa rýmd á Ísafirði Rýma þarf tugi heimila á Ísafirði meðan verið er að sprengja stórgrýti í Gleiðahjalla sem er fyrir ofan bæinn. "Þetta eru fimmtíu steinar sem þarf að sprengja og við gefum okkur fjóra daga til verksins," segir Halldór Halldórsson bæjarstjóri en byrjað var að sprengja í gær. Hann segir ennfremur að sprengt sé frá klukkan níu til þrjú en þá eru flestir íbúanna í vinnu og því verður röskun minni en ella. 19.9.2005 00:01 Líf og fjör í réttum Um sex þúsund fjár og tvö hundruð manns voru í Oddstaðarétt í Lundarreykjadal í síðustu viku. Að sögn Davíðs Péturssonar, hreppsstjóra í Skorradal, var glatt á hjalla enda var tappi tekinn úr flösku eins og hefð er fyrir á svona stundum. Hann segir þó að sveitungar á þessum slóðum verði seint lofaðir fyrir mikla sönggleði. 19.9.2005 00:01 Fléttulistar um allt land Landsamband framsóknarkvenna samþykkti ályktun þess efnis að Framsóknarflokkurinn byði fram fléttulista um allt land fyrir sveitastjórnarkosningarnar sem fram fara næsta vor, að sögn Bryndísar Bjarnarsonar nýkjörins formanns sambandsins. 19.9.2005 00:01 Ólína klagar Finnboga Ólína Þorvarðardóttir hefur farið fram á að útvarpsráð fjalli um fréttaflutning Finnboga Hermannssonar, forstöðumanns Svæðisútvarps Vestfjarða, um málefni Menntaskólans á Ísafirði. 19.9.2005 00:01 Gjaldþrot og launalækkanir Gengi íslensku krónunnar hefur ekki mælst hærra í meira en áratug og er farið að hafa sífellt meiri áhrif á stöðu útflutningsgreinanna. Að sögn Friðriks J. Arngrímssonar, framkvæmdastjóra Landssambands íslenskra útvegsmanna, segir að hátt gengi krónunnar hafi þegar haft gríðarlega skaðleg áhrif á sjávarútveginn 19.9.2005 00:01 Margra mánaða bið eftir aðgerð Pör sem þurfa á tæknifrjóvgunaraðgerðum að halda verða að sætta sig við að bíða fram í apríl á næsta ári, nema þau hafi tök á að greiða aðgerðina að fullu úr eigin vasa. Skýringin er sú að fjármagn til tæknifrjóvgunaraðgerða er uppurið. 19.9.2005 00:01 Bæti aðstoð við sjúklinga Heilbrigðisráðherra telur nauðsynlegt að stofnanir í heilbrigðiskerfinu bæti aðstoð sína við sjúklinga og öryrkja sem leita úrræða hjá hinu opinbera. Fréttastofan hefur bent á að ofbeldisbrotaþolar hafi ekki fengið upplýsingar um hvaða hjálp sé að fá heldur villist þeir endalaust í völundarhúsi kerfisins. 19.9.2005 00:01 Fóstureyðing jákvæð lífsreynsla? Bæklingur frá Landspítalanum um fóstureyðingar hefur verið sendur í endurskoðun eftir að yfirlækni kvennasviðs var bent á óskiljanlega setningu í honum. 19.9.2005 00:01 Úrskurður um Baugsmál í dag
Sjá næstu 50 fréttir
Frávísun dregin til baka Ragnar Hall dró til baka kröfu um að framhaldsákæra á hendur Sveini R. Eyjólfssyni, Eyjólfi Sveinssyni og átta öðrum sem hafa verið ákærðir fyrir að standa ekki skil á sköttum og launatengdum gjöldum í fyrirtækjarekstri tengdum Frjálsri fjölmiðlun verði vísað frá. 19.9.2005 00:01
Tíu takast á um sex sæti Framboðsfrestur forvals Vinstrihreyfingarinnar- græns framboðs fyrir borgarstjórnarkosningar næsta vor rann út á föstudag, en forvalið verður 1. október. Utankjörfundar atkvæðagreiðsla fer fram 28. og 30. september. 19.9.2005 00:01
Íbúar New Orleans tínast heim Íbúar New Orleans eru nú farnir að hlýða kalli borgarstjórans og tínast heim aftur, þrátt fyrir andstöðu alríkisstjórnarinnar. Alríkisstjórnin í Washington er á móti þessu og segir að borgin sé ennþá hættusvæði. 19.9.2005 00:01
Orrustuþoturnar yfirgefa landið Fjórar orrustuþotur breska flughersins tóku á loft frá Reykjavíkurflugvelli í dag. Þoturnar fóru í æfingaflug til Keflavíkur fyrir helgi en gátu ekki lent þar vegna veðurs. Sjaldgæft er að eins hreyfils orrustuþotum sé lent með blindflugstækjum. 19.9.2005 00:01
Uppgjör söfnunarinnar birt Þjóðarhreyfingin hefur birt uppgjör söfnunarinnar „Innrásin í Írak - ekki í okkar nafni“. Meira en fjögur þúsund manns stóðu straum af kostnaði við birtingu auglýsingar í bandaríska stórblaðinu <em>The New York Times</em> þar sem lýst var andstöðu við þá ákvörðun íslenskra stjórnvalda að styðja innrásina. 19.9.2005 00:01
Ringulreið í Þýskalandi Tveir gera tilkall til kanslaraembættisins í Þýskalandi en hvorugur virðist geta myndað starfhæfa stjórn. Ringulreið er í landinu kjölfar þingkosninganna í gær sem skiluðu í raun engri ákveðinni niðurstöðu. 19.9.2005 00:01
Hærri laun í ræsinu en á leikskóla Pólskur innflytjandi hefur rekið sig áþreifanlega á að hér á landi sé það betur metið að vinna í ræsinu en að annast leikskólabörn. Hann fær rúmum fjörutíu þúsund krónum meira á mánuði í tekjur eftir að hann skipti um starfsvettvang. 19.9.2005 00:01
Geir frekar fylgjandi framboðinu Davíð Oddsson utanríkisráðherra segir ekkert athugavert við ummæli fosætisráðherra á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna um að Íslendingar væru í framboði til Öryggisráðsins. Yfirlýsingin hafi verið gefin í samráði við Geir H. Haarde, verðandi utanríkisráðherra, sem frekar hefði verið fylgjandi framboði en ekki. 19.9.2005 00:01
50 milljónir í umsóknina Alþingi hefur að minnsta kosti fimm undanfarin ár fjallað um og samþykkt aukin framlög til fastanefndar Íslands í New York vegna framboðs til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. 19.9.2005 00:01
Laugalækjarskóli sigraði Skáksveit Laugalækjarskóla tryggði sér sigur á Norðurlandameistaramóti grunnskólasveita sem haldið var í Árósum í Danmörku um síðustu helgi. Vilhjálmur Pálmason og Einar Sigurðsson voru sigursælastir í sigurliðinu; hvor um sig var með fjóra og hálfan vinning en fimm skákir voru tefldar. 19.9.2005 00:01
Þora ekki til Bolungarvíkur "Bolvíkingar láta sig nú flestir hafa það að keyra undir Óshlíðinni þótt þeir séu nú meðvitaðir um þá hættu sem því fylgir, en ég tel að fáir aðrir geri sér ferð til Bolungarvíkur eins og ástandið er," segir Jónas Guðmundsson, sýslumaður í Bolungarvík og formaður Almannavarnanefndar. 19.9.2005 00:01
Tugir húsa rýmd á Ísafirði Rýma þarf tugi heimila á Ísafirði meðan verið er að sprengja stórgrýti í Gleiðahjalla sem er fyrir ofan bæinn. "Þetta eru fimmtíu steinar sem þarf að sprengja og við gefum okkur fjóra daga til verksins," segir Halldór Halldórsson bæjarstjóri en byrjað var að sprengja í gær. Hann segir ennfremur að sprengt sé frá klukkan níu til þrjú en þá eru flestir íbúanna í vinnu og því verður röskun minni en ella. 19.9.2005 00:01
Líf og fjör í réttum Um sex þúsund fjár og tvö hundruð manns voru í Oddstaðarétt í Lundarreykjadal í síðustu viku. Að sögn Davíðs Péturssonar, hreppsstjóra í Skorradal, var glatt á hjalla enda var tappi tekinn úr flösku eins og hefð er fyrir á svona stundum. Hann segir þó að sveitungar á þessum slóðum verði seint lofaðir fyrir mikla sönggleði. 19.9.2005 00:01
Fléttulistar um allt land Landsamband framsóknarkvenna samþykkti ályktun þess efnis að Framsóknarflokkurinn byði fram fléttulista um allt land fyrir sveitastjórnarkosningarnar sem fram fara næsta vor, að sögn Bryndísar Bjarnarsonar nýkjörins formanns sambandsins. 19.9.2005 00:01
Ólína klagar Finnboga Ólína Þorvarðardóttir hefur farið fram á að útvarpsráð fjalli um fréttaflutning Finnboga Hermannssonar, forstöðumanns Svæðisútvarps Vestfjarða, um málefni Menntaskólans á Ísafirði. 19.9.2005 00:01
Gjaldþrot og launalækkanir Gengi íslensku krónunnar hefur ekki mælst hærra í meira en áratug og er farið að hafa sífellt meiri áhrif á stöðu útflutningsgreinanna. Að sögn Friðriks J. Arngrímssonar, framkvæmdastjóra Landssambands íslenskra útvegsmanna, segir að hátt gengi krónunnar hafi þegar haft gríðarlega skaðleg áhrif á sjávarútveginn 19.9.2005 00:01
Margra mánaða bið eftir aðgerð Pör sem þurfa á tæknifrjóvgunaraðgerðum að halda verða að sætta sig við að bíða fram í apríl á næsta ári, nema þau hafi tök á að greiða aðgerðina að fullu úr eigin vasa. Skýringin er sú að fjármagn til tæknifrjóvgunaraðgerða er uppurið. 19.9.2005 00:01
Bæti aðstoð við sjúklinga Heilbrigðisráðherra telur nauðsynlegt að stofnanir í heilbrigðiskerfinu bæti aðstoð sína við sjúklinga og öryrkja sem leita úrræða hjá hinu opinbera. Fréttastofan hefur bent á að ofbeldisbrotaþolar hafi ekki fengið upplýsingar um hvaða hjálp sé að fá heldur villist þeir endalaust í völundarhúsi kerfisins. 19.9.2005 00:01
Fóstureyðing jákvæð lífsreynsla? Bæklingur frá Landspítalanum um fóstureyðingar hefur verið sendur í endurskoðun eftir að yfirlækni kvennasviðs var bent á óskiljanlega setningu í honum. 19.9.2005 00:01
Kristilegum demókrötum spáð sigri Kosningar til þýska sambandsþingsins hófust í morgun og eru rúmlega 60 milljónir manna á kjörskrá. Samkvæmt síðustu könnunum fyrir kjördag er flokki Angelu Merkel, Kristilegum demókrötum, spáð sigri með um ríflega 40 prósentum atkvæða og bendir því allt til þess að hún verði næsti kanslari Þýskalands og taki við embættinu af Gerhard Schröder, leiðtoga Jafnaðarmanna. 18.9.2005 00:01
Braut framtönn í lögreglumanni Maður braut framtönn í lögreglumanni í Kópavogi í nótt þegar verið var að handtaka hann. Maðurinn, sem hafði verið með ólæti fyrir utan skemmtistaðinn Players, barðist um á hæl og hnakka við handtökuna og sparkaði í andlit lögreglumannsins. Hann var fluttur í fangageymslur þar sem hann er látinn sofa úr sér vímuna. 18.9.2005 00:01
Fyrstu kosningar í áratugi Fyrstu þingkosningar í margra áratugi fara fram í Afganistan í dag. Þrátt fyrir hótanir talibana um að beita þá ofbeldi sem ekki hunsa kosningarnar eru margir mættir á kjörstaði, en óttast er að til átaka komi á nokkrum stöðum. Hamid Karzai, forseti landsins, brýnir fyrir kjósendum að nýta rétt sinn en hann segir kosningarnar geta ráðið úrslitum um framtíð landsins og uppbyggingu þess. 18.9.2005 00:01
Annríki hjá lögreglu í Hafnarfirði Mikið var um að vera í Hafnarfirði í nótt og hafði lögregla í nógu að snúast. Fyrir utan venjulegt skemmtanahald voru tveir dansleikir. Annar þeirra var í Kaplakrika þar sem voru um 1500 manns. Eitthvað var um pústra í tengslum við ölvun í bænum þótt engin hafi meiðst alvarlega. Tveir sitja inni eftir nóttina. 18.9.2005 00:01
Slökkvilið í tvö útköll í nótt Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað tvívegis út í nótt. Á þriðja tímanum var útkall í Vesturbæ þar sem nágrannar tilkynntu um reykskynjara í gangi. Þegar komið var á staðinn reyndist húsráðandi vera að útbúa sér eitthvað í gogginn. Hann fékk aðstoð við að reykræsta. Á sjötta tímanum logaði svo eldur í bifreið í Mosfellsbæ. Vel gekk að slökkva eldinn. 18.9.2005 00:01
Enn hrynur grjót í Óshlíð Lögreglunni í Bolungarvík barst í gærmorgun tilkynning um að grjóthnullungar hefðu fallið á veginn í Óshlíð í grennd við þann stað þar sem stór sprunga er efst í fjallsbrúninni á Óshyrnu. Nokkuð grjóthrun hefur verið þarna að undanförnu. Stórir steinar höfðu fallið á veginn utan við varnarnetið yst á hlíðinni. 18.9.2005 00:01
Þingmaður myrtur í Írak Byssumenn myrtu írakskan þingmann og særðu annan í Írak í gærkvöld. Þingmaðurinn Faris Hussein féll ásamt þremur lífvörðum sínum fyrir hendi byssumannanna en hann var á ferð ásamt öðrum þingmanni nærri bænum Dujail á leið til höfuðborgarinnar Bagdad. 18.9.2005 00:01
Júlíus Vífill sækist eftir 2. sæti Júlíus Vífill Ingvarsson, fyrrverandi borgarfulltrúi, gefur kost á sér í annað sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Hann gældi lengi við að bjóða sig fram í fyrsta sætið gegn þeim Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni og Gísla Marteini Baldurssyni, en niðurstaðan varð að sækja gegn Hönnu Birnu Kristjánsdóttur sem einnig sækist eftir öðru sæti á listanum. 18.9.2005 00:01
Íranar haldi áfram framleiðslu Forseti Írans varði rétt Írana til þess að framleiða kjarnorku þegar hann ávarpaði allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í gær. Vonir manna um sátt í kjarnorkudeilu Írana og vesturveldanna dvínuðu við það og er hugsanlegt að málinu verði skotið til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. 18.9.2005 00:01
Aldrei minni munur á fylkingum Sextíu og tvær milljónir Þjóðverja geta í dag ákveðið hver verður kanslari landsins næstu fjögur ár. Aldrei í nútímastjórnmálasögu Þýskalands hefur munurinn á milli fylkinga verið jafn lítill og kosningabaráttan virðist halda áfram þar til kjörstöðum verður lokað. 18.9.2005 00:01
Breskir lögreglumenn of skotglaðir Margir breskir lögreglumenn eru svo skotglaðir að þeir ættu ekki að bera skotvopn. Þetta fullyrðir fyrrverandi breskur hermaður í viðtali við blaðið <em>Sunday Times</em> í dag, en hann gegnir því starfi að þjálfa lögreglumenn. Hann segir að um leið og þrýstingur aukist á lögreglumennina í starfi, til dæmis í hættuástandi, og adrenlínið flæði um líkama þeirra, þá gleymi þeir hlutverki sínu sem laganna verðir. 18.9.2005 00:01
Spunameistari í vandræðum Fyrrverandi spunameistari danska forsætisráðherrans vill endurgreiða ráðuneytinu símreikning vegna einkasímtala sinna, sem nemur rúmum tveimur milljónum íslenskra króna. Forsætisráðuneytið telur sér ekki heimilt að taka við peningunum og þess vegna fer danska fjármálaráðuneytið í málið í fyrramálið. 18.9.2005 00:01
Skógareldar blossa upp í Portúgal Skógareldar blossuðu upp á ný í Portúgal í nótt. Ríflega 200 slökkviliðsmenn hafa verið kallaðir út til þess að berjast við verstu eldana í norðurhluta landsins auk þess sem þrjár flugvélar eru notaðar við slökkvistarfið. Alls hafa um 70 manns neyðst til að yfirgefa heimili sín vegna eldanna. 18.9.2005 00:01
Blóðugur sólarhringur í Írak Að minsta kosti 30 manns féllu þegar bílsprengja sprakk á markaði í hverfi sjíta í skammt frá Bagdad í gærkvöldi. Þá myrtu byssumenn írakskan þingmann í gærkvöldi. 18.9.2005 00:01
Bætir engu við yfirlýsingu sína Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, lætur skila því gegnum aðstoðarmann sinn að hann hafi engu við yfirlýsingu sína á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna að bæta um framboð Íslands til öryggisráðsins. Þar sagði Halldór í ræðu að framboð Íslands stæði. 18.9.2005 00:01
Stjórnarskrá Íraks loks samþykkt Íraksþing samþykkti í dag síðustu drög að stjórnarskrá landins sem leggja á fyrir þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslu eftir mánuð. Stjórnarskránni verður nú komið til Sameinuðu þjóðanna sem munu prenta fimm milljónir eintaka af henni og dreifa til íbúa landsins. 18.9.2005 00:01
Hermönnum fjölgað ef þurfa þykir Bresk yfirvöld greindu frá því í dag að þau myndu fjölga hermönnum í Írak ef þörf væri á, en ótti manna við borgarastyrjöld í landinu fer vaxandi. Í sjónvarpsviðtali í dag sagði John Reid, varnarmálaráðherra Bretlands, að ekki væri þörf á meiri mannskap þessa stundina en ef ástandið í Írak versnaði yrði hermönnum fjölgað. 18.9.2005 00:01
Blair aftur upp á kant við BBC Svo virðist sem Tony Blair, forsætisráðherra Bretlans, sé aftur kominn upp á kant við breska ríkissútvarpið BBC og þetta sinn vegna frétta BBC af fellibylnum Katrínu. Fjölmiðlakóngurinn Rupert Murdoch, sem á meðal annars götublaðið Sun og Sky-sjónvarpsstöðvarnar, greindi frá því í ræðu í New York í gær að Blair hefði tjáð sér á dögunum að honum fyndist umfjöllun BBC um náttúruhamfarirnar í suðurríkjum Bandaríkjanna uppfull af hatri í garð Bandaríkjanna. 18.9.2005 00:01
Vinna að ályktun vegna Írans hafin Evrópusambandsríkin þrjú sem staðið hafa í samningaviðræðum við Írana um kjarnorkuáætlun þeirra hafa þegar hafið vinnu að ályktun um að vísa málinu til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Þetta hefur Reuters-fréttastofan eftir erindreka innan ESB sem vinnur að málinu. 18.9.2005 00:01
Bryndís nýr formaður LFK Bryndís Bjarnason var í dag kjörin formaður Landssambands framsóknarkvenna á landsþingi sem fram fór á Ísafirði. Bryndís tekur við af Unu Maríu Óskarsdóttur sem ekki gaf kost á sér í embættið aftur. Með Bryndísi í stjórn LFK eru Gerður Jónsdóttir, Inga S. Ólafsdóttir, Kolbrún Ólafsdóttir og Margrét Þórðardóttir. 18.9.2005 00:01
Lítið mannfall á kosningadag Þingkosningar fóru fram í Afganistan í dag án þess að uppreisnarmenn næðu að valda miklum skaða. Kjörstöðum var lokað klukkan fjögur að afgönskum tíma og segja yfirvöld að kjörsókn hafi verið jöfn og stöðug allan daginn þótt ekki sé talið að jafnmargir hafi kosið og nú og í forsetakosningunum í fyrra, en þá var kjörsókn rúmlega 70 prósent. 18.9.2005 00:01
Vilja styttu af Tómasi í miðbæinn Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sakna myndastyttu af Tómasi Guðmundssyni borgarskáldi úti undir beru lofti og vilja að borgarstjórn samþykki að gerð sé slík stytta og henni komið fyrir á áberandi stað í hjarta Reykjavíkur. 18.9.2005 00:01
Tala látinna nálgast 900 Tala látinna í hamförunum í suðurríkjum Bandaríkjanna nálgast nú 900 og enn finnast lík á þeim svæðum þar sem vatn flæddi yfir allt. Yfirvöld í Louisana, sem varð verst úti í hamförunum, tilkynntu í dag að 646 hefðu látist af völdum fellibylsins Katrínar, en tæplega 70 manns hafa fundist látnir síðustu tvo daga. Þá eru 218 sagðir hafa látist í Mississippi og 19 í Flórída, Alabama, Georgíu og Tennessee. 18.9.2005 00:01
Fólk snúi ekki strax til baka Thad Allen, yfirmaður björgunarmála á hamfarasvæðunum við suðurströnd Bandaríkjanna, ráðleggur fólki frá því að snúa strax aftur til New Orleans, en það er þvert á yfirlýsingar borgarstjórans Rays Nagins sem tilkynnti í gær að til stæði að hleypa um 200 þúsund manns aftur inn í borgina á næstu tíu dögum. 18.9.2005 00:01
Naumur sigur stjórnarandstöðu Kristilegir demókratar, flokkur Angelu Merkel, fá flest atkvæði í þingkosningunum í Þýskalandi en ekki nóg til þess að mynda stjórn hægri- og miðflokka, ef marka má útgönguspár sem birtar voru í Þýskalandi fyrir stundu. Stjórn Gerhards Schröders virði því fallin en möguleikar á stjórnarmyndun eru ekki margir. 18.9.2005 00:01
Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent