Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vill þétta lista sjálfstæðismanna Júlíus Vífill Ingvarsson, fyrrverandi borgarfulltrúi, gefur kost á sér í annað sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. Með framboði sínu vill hann þétta lista flokksins en telur ekki ástæðu til stórtækra breytinga. 18.9.2005 00:01
Öll rök séu fyrir flutningi Gæslu Þingflokksformaður Framsóknarflokksins telur öll rök vera fyrir því að höfuðstöðvar Landhelgisgæslunnar verði fluttar til Keflavíkur. Forstjóri gæslunnar segir hugmyndirnar vel þess virði að skoða vandlega. Þessar hugmyndir gætu jafnvel falið í sér aukið hlutverk á sviði varnarmála dragi Bandaríkjaher enn saman seglin hér á landi. 18.9.2005 00:01
Sökuð um aðskilnaðarstefnu Forseti Írans segir þjóð sína hafa fullan rétt til að framleiða kjarnorku. Hann sakar vesturveldin um kjarnorkuaðskilnaðarstefnu, þar sem sumum löndum sé heimilt að auðga úran og öðrum ekki. 18.9.2005 00:01
Skýstrókur í München Nokkuð óvenjuleg sjón blasti við íbúum í grennd við München í Þýskalandi í dag. Skýstrókur gekk yfir svæðið við Starnberger-vatn og reyndist það töluvert sjónarspil. Þrátt fyrir að strókurinn væri nokkuð öflugur á tímabili olli hann ekki alvarlegu tjóni. Veðurfræðingar höfðu varað við að skýstrókur kynni að ganga yfir vegna slæms veður. 18.9.2005 00:01
Fyrstu þingkosingar í um 30 ár Um tugur manna féll í átökum sem brutust út við kjörstaði í Afganistan í dag. Kosið var til þings í landinu í fyrsta skipti í um þrjá áratugi. 18.9.2005 00:01
Blindur leikur á fiðlu Guðfinnur Vilhelm Karlsson hefur verið blindur frá fæðingu en það aftrar honum ekki að seiða fram úr hljóðfærinu sínu fagra tóna. Hann hefur lært á fiðlu í níu ár og leikur oft á tónleikum og í veislum. Guðfinnur Vilhelm, geriði svo vel. 18.9.2005 00:01
Olíutankar fara af Hvaleyrarholti Fyrsti olíutankurinn af sex á Hvaleyrarholti í Hafnarfirði hefur verið rifinn. Gert er ráð fyrir að byrjað verði að taka grunna fyrir nýrri íbúðabyggð á næstu vikum. 18.9.2005 00:01
Erfitt verður að mynda stjórn Yfir 60 milljónir kjósenda höfðu kost á að greiða atkvæði til klukkan sex að staðartíma og metfjöldi nýtti sér það. Fyrstu útgönguspár benda til að niðurstaðan verði önnur en menn bjuggust við og það gæti reynst erfitt að mynda stjórn. 18.9.2005 00:01
Merkel bíða mörg verkefni Angela Merkel, leiðtogi Kristilegra demókrata, verður næsti kanslari Þýskalands ef marka má útgönguspár eftir þingkosningar. Hennar bíða mörg verkefni. 18.9.2005 00:01
Vantar 60 starfsmenn Sextíu manns vantar til starfa hjá álveri Norðuráls á Grundartanga. Áhersla verður lögð á að ráða konur. 18.9.2005 00:01
Vilja styttu af Tómasi Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins vilja að stytta af Tómasi Guðmundssyni skáldi verði sett upp í Hljómskálagarðinum. 18.9.2005 00:01
Halldór tapar trúnaði flokksins Halldór Ásgrímsson er sagður hafa misst trúnað flokksmanna, bæði innan sem utan ríkisstjórnar, með tilkynningu um framboð Íslands til öryggisráðsins. Enn og aftur hafi hann tekið ákvörðun án samþykkis þingflokksins. Hann þurfi jafnvel að víkja - flokksins vegna - og forystan með. </font /></b /> 18.9.2005 00:01
Segja Siv hafa smalað Ósætti varð milli þátttakenda á þingi framsóknarkvenna vegna smölunar sem stuðningsmenn Bryndísar Bjarnarson, sem kjörin var formaður, stóðu fyrir. Siv Friðleifsdóttir er sögð hafa tekið þátt í smöluninni en hún gagnrýndi áður viðlíka vinnubrögð í tengslum við framsóknarfélagið Freyju í Kópavog </font /></b /> 18.9.2005 00:01
Hætta ekki kjarnorkuframleiðslu Forseti Íran, Mahmoud Ahmadinejad, nýtti sér vettvang þings Sameinuðu þjóðanna til þess að lýsa því yfir að Íranar myndu ekki þiggja tilboð Evrópuþjóða um efnahagsaðstoð samþykki Íranar að hætta framleiðslu á auðguðu úraníumi sem nota má til framleiðslu kjarnorkuvopna. 18.9.2005 00:01
Júlíus Vífill vill annað sætið Júlíus Vífill Ingvarsson gefur kost á sér í annað sætið hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík. </font /></b /> 18.9.2005 00:01
Björk Vilhelms í fyrsta sætinu Stórkostleg tilþrif voru sýnd á golfmóti borgarstjórnar Reykjavíkur á Grafarholtsvellinum. Björk Vilhelmsdóttir bar sigur úr býtum eftir harða baráttu við Kjartan Magnússon. Steinunn Valdís Óskarsdóttir varð þriðja. </font /></b /> 18.9.2005 00:01
Ratsjárstofnun brýtur á sínu fólki Ratsjárstofnun vill ekki að ófaglært starfsfólk sé í stéttarfélagi. Nýafstaðnar eru miklar uppsagnir hjá stofnuninni og starfsfólk, margt hvert utan stéttarfélaga, er uggandi um sinn hag. Bannað er með lögum að meina fólki aðild að stéttarfélagi. 18.9.2005 00:01
Óræk sönnun ölvunaraksturs Ökumaður sem lögreglan á Akranesi stöðvaði aðfaranótt sunnudags, grunaðan um ölvun við akstur, dó áfengisdauða eftir blóðsýnatöku og reyndist lögreglu ómögulegt að vekja hann. 18.9.2005 00:01
Erfitt gæti orðið að mynda stjórn Samsteypa stóru fylkinganna tveggja þykir eftir þýsku kosningarnar í gær líklegri en þriggja flokka stjórn. Tíma gæti þó tekið að ná þeirri lendingu. Nýi Vinstriflokkurinn vill frekar vera í minnihluta en styðja stjórn jafnaðarmanna og græningja. 18.9.2005 00:01
Einn ók niður ljósastaura Ölvaður ökumaður ók niður tvo ljósastaura á Reykjanesbraut við bensínstöð Orku um klukkan hálf ellefu í gærmorgun. Að sögn lögreglu í Kópavogi slapp maðurinn ómeiddur en bíllinn er talinn ónýtur. 18.9.2005 00:01
Braut tönn í lögreglumanni Ungur maður sem sparkaði í andlit lögregluþjóns fyrir utan skemmtistaðinn Players í Kópavogi aðfaranótt sunnudags var látinn laus að loknum yfirheyrslum um miðjan dag í gær. Við árásina brotnaði tönn í lögregluþjóninum. 18.9.2005 00:01
Hraðakstur á Faxabraut Nokkur erill var hjá lögreglu á Akranesi aðfaranótt sunnudags en fyrr um kvöldið fór fram knattspyrnuhátíð ÍA sem lauk með balli með Stuðmönnum og Jónsa í svörtum fötum, að sögn lögreglu. 18.9.2005 00:01
Fleyttu blómum á slysstaðnum Félagar í Snarfara, félagi sportbátaeigenda í Reykjavík, fleyttu í gær blómum þar sem bátur eins félaga þeirra fórst á Viðeyjarsundi um síðustu helgi. Í gær var haldin bænastund í félagsheimili Snarfara í Naustavogi vegna slyssins og felld niður áður fyrirhuguð hátíð vegna 30 ára afmælis félagsins. 18.9.2005 00:01
Hús rýmd vegna sprenginga Gera átti litlar prufusprengingar í Gleiðarhjalla ofan Ísafjarðar í gær til að undirbúa aðgerðir í dag og á morgun til varnar grjóthruni sem náð gæti ofan í byggð. Að sögn lögreglu á Ísafirði verða hús á Urðarvegi rýmd í dag og á morgun frá níu að morgni og fram til klukkan þrjú síðdegis. 18.9.2005 00:01
Einn blóðugur eftir slagsmál Aðfaranótt sunnudags barst lögreglu í Keflavík tilkynning um slagsmál í Sandgerði, en þau voru yfirstaðin þegar komið var á vettvang. Einn var á staðnum blóðugur í andliti og var hann fluttur á sjúkrahús til skoðunar, að því er fram kemur í dagbók lögreglu. 18.9.2005 00:01
Eldamennska fór úr böndum Kveikt var í blaðagámi við Flókagötu í Reykjavík um miðjan dag í gær, en að sögn slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins var fljótgert að slökkva í honum. 18.9.2005 00:01
Einn með leiðindi á réttaballi Einn gisti fangageymslu lögreglu á Blönduósi aðfaranótt sunnudags, en sá hafði að sögn lögreglu verið með leiðindi á réttaballi einn manna. Maðurinn var með óspektir og drykkjulæti. Allir aðrir munu hafa skemmt sér vel. 18.9.2005 00:01
Ófremdarástand undir Óshyrnu Almannavarnanefnd Bolungarvíkur kemur saman seinni partinn í dag til að ræða hættu af grjóthruni á veginn á Óshlíð undir stórri sprungu efst í fjallsbrúninni á Óshyrnu. Jónas Guðmundsson sýslumaður, sem er formaður almannavarnanefndar Bolungarvíkur, segir illgerlegt að sprengja í fjallinu til að losa um hrun. 18.9.2005 00:01
Sameiningarskýrsla kynnt Ný skýrsla sem PARX hefur unnið vegna sameiningar Hafnarfjarðar og Voga verður kynnt á morgun, en vinna við undirbúning sameiningarkosninga stendur nú sem hæst. 18.9.2005 00:01
Efasemdir innan stjórnarflokka Í báðum þingflokkum stjórnarflokkanna eru efasemdir um réttmæti þess að Íslendingar sæki um setu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, lýsti því yfir á leiðtogafundi samtakanna að framboð Íslands stæði en Hjálmar Árnason þingflokksformaður segir að málið sé ekki afgreitt úr þingflokknum. 17.9.2005 00:01
Spenna í Þýskalandi vegna kosninga Mikil spenna ríkir í Þýskalandi vegna kosninganna til sambandsþingsins sem haldnar verða á morgun. Á lokasprettinum fyrir kosningarnar hefur dregið töluvert saman með stjórn og stjórnarandstöðu og samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum er ljóst að á brattan verður að sækja, bæði fyrir Gerhard Schröder, kanslara og leiðtoga Jafnaðarmanna, og Angelu Merkel, leiðtoga Kristilegra demókrata, þar sem gríðarlega margir kjósendur hafa ekki enn gert upp hug sinn. 17.9.2005 00:01
Boðar niðurskurð vegna hamfara George Bush, forseti Bandaríkjanna, segir að stjórnvöld í Bandaríkjunum verði að grípa til niðurskurðar á einhverjum sviðum til að geta greitt kostnaðinn sem hlýst af uppbyggingunni á hamfarasvæðunum í suðurhluta Bandaríkjanna. Forsetinn segir ljóst að uppbyggingin komi til með að kosta gríðarlega mikla peninga, en hann gefur að svo stöddu ekki upp hvar verði skorið niður í efnahagslífinu til að mæta þeim kostnaði. 17.9.2005 00:01
Fleiri treysta Vilhjálmi en Gísla Rétt liðlega 57 prósent Reykvíkinga treysta Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni vel til að gegna starfi borgarstjóra í Reykjavík en rúmlega 42 prósent treysta Gísla Marteini Baldurssyni vel. Vilhjálmur hefur ekki bara vinninginn á helsta keppinaut sinn um forystu fyrir Sjálfstæðisflokkinn í borginni að þessu leyti í nýlegri könnun Gallups, mun fleiri treysta Gísla Marteini en honum illa til að gegna starfi borgarstjóra. 17.9.2005 00:01
Ólafur og Clinton ræddust við Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, átti í gær viðræðufund með Bill Clinton, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, í New York, en Ólafur Ragnar tekur nú þátt í alþjóðlegri ráðstefnu, Clinton Global Initiative, í boði Clintons. Fjölmargir þjóðarleiðtogar víða að úr veröldinni, forystumenn á alþjóðavettvangi, fræðimenn og áhrifamenn í vísindum og viðskiptum sitja einnig ráðstefnuna. 17.9.2005 00:01
Fundu níu lík í Bagdad í morgun Lögregla í Bagdad hefur í morgun fundið lík af níu manns á þremur stöðum í borginni, en fólkið virðist allt hafa verið tekið af lífi með skoti í höfuðið og brjóstið. Þá lést einn Íraki og 17 særðust, þar af þrír hermenn, þegar sjálfsmorðsárásarmaður sprengdi bíl sinn í loft upp nærri hermönnum á eftirlitsferð í bænum Bakúba. 17.9.2005 00:01
Yfirgripsmikil leit að Friðriki Stórtæk leit að Friðriki Ásgeiri Hermannssyni, sem saknað er síðan bátur fórst á Viðeyjarsundi fyrir viku síðan, er hafin. Búist er við að á annað hundrað manns taki þátt í leitinni í dag. 17.9.2005 00:01
Niðurskurður vegna uppbyggingar George Bush, forseti Bandaríkjanna, segir að stjórnvöld í Bandaríkjunum verði að grípa til niðurskurðar til að geta greitt kostnaðinn sem hlýst af uppbyggingunni á hamfarasvæðunum í suðurhluta Bandaríkjanna. 17.9.2005 00:01
Blaðamaður handtekinn á Spáni Lögregla á Spáni hefur nú fréttamann á vegum arabísku sjónvarpsstöðvarinnar Al-Jazeera í haldi vegna gruns um að hann tengist al-Qaida hryðjuverkasamtökunum. Fréttamaðurinn Tayseer Alouni, sem hefur bæði sýrlenskan og spænskan ríkisborgararétt, er sakaður um að hafa nýtt sér stöðu sína í Afganistan og útvegað al-Qaida liðum þar í landi fé til að halda uppi árásum. 17.9.2005 00:01
Stofna kvennahreyfingu í flokki „Pæjur og pólitískt plott“ er yfirskrift stofnfundar kvennahreyfingar Samfylkingarinnar sem stendur yfir í Hveragerði. Saman eru komnar um 120 konur af öllu landinu til að taka þátt í þessum viðburði. 17.9.2005 00:01
Kenna fluguveiði í barnaskóla Grunnskólinn í Shrop-skíri í Englandi hefur tekið upp fluguveiði sem eina af skyldugreinunum í skólanum og er þar með fyrstur ríkisskóla í landinu til að setja þá iðju inn í námsskrána. Það eru nemendur á aldrinum ellefu til þrettán ára sem fá að sækja fluguveiðitíma, en kennarar telja að veiðinámið hafi jákvæð áhrif á krakkana og hjálpi þeim að þróa með sér eldmóð og ákafa. 17.9.2005 00:01
Bjó með látinni móður í fimm ár Það blasti heldur ófögur sjón við lögreglumönnum í Marseille í Frakklandi á dögunum þegar þeir bönkuðu upp á hjá manni þar í borg vegna uppsafnaðra ógreiddra reikninga. Innan um hauga að drasli fundu þeir lík sem reyndist vera af látinni móður mannsins, en hún hafði verið látin í fimm ár. 17.9.2005 00:01
Mjótt á mununum í Þýskalandi Stemningin á lokasprettinum fyrir kosningar í Þýskalandi virðist heldur vera stjórnarandstöðunni í hag. Munurinn er þó ekki mikill og enn óvíst að hægt verði að mynda starfhæfa stjórn eins og staðan er. Nokkur þúsund atkvæði gætu skipt sköpum. 17.9.2005 00:01
Hringlandaháttur sé í ríkisstjórn Samfylkingin styður ákvörðun ríkisstjórnarinnar um framboð til setu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna en í báðum þingflokkum stjórnarflokkanna eru hins vegar komnar upp efasemdir um réttmæti þess. Formaður Samfylkingarinnar kallar það hringlandahátt ríkisstjórnarmeirihlutans. 17.9.2005 00:01
Fagnar niðurstöðu könnunar Reykvíkingar treysta Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni betur en Gísla Marteini Baldurssyni til að gegna starfi borgarstjóra ef marka má nýlega skoðanakönnun Gallups. Gísli Marteinn fagnar niðurstöðunni og segir hana m.a. sýna að vinstrimenn vilji alls ekki fá hann sem andstæðing sinn. 17.9.2005 00:01
Reyndu að sprengja upp stíflu Tuttugu uppreisnarmenn voru handteknir í Suður-Afganistan í morgun þegar þeir reyndu að sprengja stíflu í loft upp. Stíflan er sú strærsta í landinu og við hana er virkjun sem sér einni stærstu borg Afganistans, Kandahar, fyrir raforku. Að sögn lögreglu voru vopn og sprengiefni gerð upptæk við handtökurnar. 17.9.2005 00:01
Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent