Fleiri fréttir

Endalausar hækkanir

Úrvalsvísitalan stóð í rúmum 4.600 stigum við lokun markaða í gær og hefur aldrei verið hærri. Vísitalan hefur hækkað um 38 prósent frá áramótum og um sextíu prósent á ári undanfarin tvö ár.

Yfir 600 manns tróðust undir

Nú er ljóst að ekki færri en sex hundruð og fjörutíu týndu lífi þegar hundruð sjíta tróðust yfir brú yfir ánna Tígris í Bagdad í morgun. Fólkið var allt á leið tiil Kadhimiya-moskunnar þegar fréttist af sjálfsmorðsárásarmanni í þvögunni.

Flóðavatn rís enn í New Orleans

Flóðavatnið í New Orleans rís ennþá og hafa nú verkfræðingar á vegum Bandaríkjahers verið kallaðir til að reyna að stemma stigu við vatnsflaumnum. Ástandið í borginni er skelfilegt; gamla, franska hverfið er alveg á floti og þyrlum og bátum er beitt við að hjálpa fólki sem hefst við illan leik á húsþökum heimila sinna. Lík hafa sést á floti í vatninu og er óttast að tala þeirra sem týndu lífi í hamförunum muni enn hækka.

Búist við hamförum á Tævan

Á Tævan er búist við hamförum, en fellibylurinn Talim stefnir þangað hraðbyri. Hávaðarok og úrhellisrigning hafa þegar leitt til þess að búið er að loka skólum og opinberum stofnunum. Vindhraðinn er yfir fimmtíu metrar á sekúndu og fer í hviðum upp í sextíu og fjóra metra á sekúndu. Búist er við að stormurinn skelli á Tævan af fullum krafti innan fárra klukkustunda.

Minnast fórnarlamba hörmunganna í Beslan

Nærri ári eftir hörmungarnar í Beslan í Rússlandi, þar sem nærri tvö hundruð börn létust,  eftir að hafa verið tekin í gíslingu, hefur verið sett upp ljósmyndasýning með myndum teknum af börnunum sem komust lífs af.

Til minningar um fórnarlömb hörmun

Nærri ári eftir hörmungarnar í Beslan í Rússlandi, þar sem nærri tvö hundruð börn létust,  eftir að hafa verið tekin í gíslingu, hefur verið sett upp ljósmyndasýning með myndum teknum af börnunum sem komust lífs af.

Til minningar um fórnarlömb hörmun

Nærri ári eftir hörmungarnar í Beslan í Rússlandi, þar sem nærri tvö hundruð börn létust,  eftir að hafa verið tekin í gíslingu, hefur verið sett upp ljósmyndasýning með myndum teknum af börnunum sem komust lífs af.

Brennisteinssýrumaður sýknaður

37 ára gamall Lithái sem ákærður var fyrir að flytja brennisteinssýru í tveimur áfengisflöskum til landsins í síðustu viku, var sýknaður í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Maðurinn var handtekinn fyrir rúmri viku á Keflavíkurflugvelli eftir að tollverðir fundu flöskurnar í bakpoka mannsins.

Stríðsástand í New Orleans

Gríðarleg eyðilegging, dauði og stjórnleysi blasir við hvert sem litið er á svæðunum sem fellibylurinn Katrín lék grátt. Stríðsástand er í New Orleans, sem er á kafi í vatni.

Íslendingur missti heimili sitt

Íslensk kona, Þórdís Harvey, sem býr í Biloxi í Mississippi, þar sem minnst áttatíu manns fórust í fellibylnum Katrínu, missti heimili sitt í hamförunum. Í samtali við fréttastofu í nótt sagði Þórdís að allt væri horfið og stór hluti bæjarins í algerri rúst.

Áhrifa fellibylsins mun gæta lengi

Áhrifa Katrínar mun gæta um langan tíma. Hún eyðilagði stóran hluta þess húsnæðis sem varð á leið hennar, eiturefni og skólp blandast flóðavatninu og áhrifin á efnahagslífið í Bandaríkjunum gætu orðið mikil.

Flestir hinna látnu konur og börn

Ekki færri en sex hundruð og fjörutíu týndu lífi þegar hundruð sjíta tróðust yfir brú yfir ánna Tígris í Bagdad í morgun. Flestir þeirra sem fórust voru konur og börn.

Vilhjálmur vill flugvöllinn burt

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarfulltrúi vill Reykjavíkurflugvöll burt. Þar vill hann sjá rísa íbúða- og atvinnubyggð. Aldrei áður hefur forystumaður innan Sjálfstæðisflokksins tekið svo afdráttalausa afstöðu gegn flugvellinum og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi gerði í Íslandi í dag í gær en Vilhjálmur býður sig fram í fyrsta sæti lista Sjálfstæðismanna í borgarstjórn.

Tugir tilkynninga um aukaverkanir

Tilkynningar frá læknum um aukaverkanir lyfja hafa streymt inn til Lyfjastofnunar það sem af er árinu. Þær eru nú orðnar 50-60 talsins, sem er meira en helmings aukning miðað við mörg undangengin ár, að sögn Magnúsar Jóhannssonar læknis. </font /></b />

Kosningabarátta á Bláhorninu

Gústaf Adolf Níelsson útvarpsmaður gefur kost á sér í áttunda sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Hann er hrifnari af Vilhjálmi en Gísla Marteini. </font /></b />

Verða sameiginlegt efnahagssvæði

Davíð Oddsson utanríkisráðherra og Jóhannes Eidesgaard, lögmaður Færeyja, undirrituðu í dag samning um frelsi í fjárfestingum og viðskiptum með vörur og þjónustu. Þar með verður Ísland og Færeyjar sameiginlegt efnahagssvæði.

Fuglaflensan mun líklega dreifast

Fuglaflensan, sem hefur gert vart við sig víða í Austur-Asíu, mun líklega dreifast til Evrópu, Mið-Austurlanda, Suður-Asíu og Afríku að mati Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna.

37% munur á fartölvutryggingum

Fartölvueigendur geta sparað sér allt að 37 prósent ef þeir leita eftir tilboðum í fartölvutryggingar. Þetta leiðir ný könnun ASÍ í ljóð. Þar kemur fram að dýrasta tryggingin fyrir 150 þúsund króna tölvu kostar 4.290 krónur hjá Tryggingamiðstöðinni en sú ódýrasta 3.135 krónur hjá Íslandstryggingu.

Ánægja með Menningarnótt

Mikill meirihluti Reykvíkinga er sáttur við Menningarnótt eins og hún hefur verið haldin, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Rúm 74 prósent þerira sem tóku afstöðu til spurningarinnar sögðu að Menningarnótt ætti að halda að ári, með svipuðu sniði og nú var gert. Rúm 25 prósent töldu að einhverjar breytingar ætti að gera.

Árásarmaður í gæsluvarðhald

Maður sem réðist á fyrrum sambýliskonu sína og sló ítrekað í höfuðið með felgulykli síðasta sunnudag hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 20. september. Úrskurðurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Vesturlands í gær, en manninum er einnig gert að sæta geðrannsókn.

Veittist að lögreglu með hnífi

Fertugum manni er gefin að sök sérlega hættuleg líkamsárás á lögreglumann, auk eignaspjalla og hótana í garð barnsmóður og fyrrum tengdafólki. Aðalmeðferð fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

Hefði mátt sækja sýruna sína

Ófullnægjandi rannsókn lögregluyfirvalda á Keflavíkurflugvelli er harðlega gagnrýnd í sýknudómi yfir Litháa sem ákærður var fyrir smygl á brennisteinssýru. Litháinn er farinn úr landi, en hefði í raun getað sótt efnið aftur til sýslumanns, því upptökukröfu var hafnað.

Stefnir í verkfall

"Við eigum fund í dag með ríkissáttasemjara og ef ekki næst samkomulag þar er ég ansi smeykur um að það þurfi að koma til verkfalls," segir Árni Stefán Jónsson framkvæmdastjóri stéttarfélagsins SFR sem í sex mánuði hefur reynt að ganga frá kjarasamningum við Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu, SFH, en án árangurs.

Vaxandi óánægja starfsfólks

"Það getur verið mjög erfitt að halda í starfsfólk þegar það býr við þessa óvissu sem manneklan veldur," segir Sæunn Njálsdóttir forstöðumaður á sambýli fyrir fjölfatlaða í Hafnarfirði. Stöðugar breytingar á vaktatöflum valda óánægju starfsfólks sem vill geta gengið að vöktum sínum vísum minnst einn mánuð fram í tímann, að sögn Sæunnar.

Þurftu þúsund manns í 300 störf

"Við höfum tekið það saman og á síðasta ári vorum við með 1036 starsfmenn sem er nokkuð mikið miðað við það að við höfum rétt um þrjú hundruð stöðugildi," segir Sigríður Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Reykjanesi. Það þýðir að Svæðisskrifstofan þarf að meðaltali rúmlega þrjá menn til að fylla hvert stöðugildi.

Tvístruðu okkur með hræðsluáróðri

Laufey Jónsdóttir, fyrrverandi forstöðumaður á gæsluvellinum í Hamravík í Grafarvogi, var tregafull þegar hún læsti honum í hinsta sinn í gær en hún hefur starfað þar í 16 ár. Líklega fundu fleiri til trega því 90 ára sögu gæsluvalla Reykjavíkur lauk í gær.

Óttast um líf þúsund sjía

Allt að eitt þúsund manns eru taldir hafa beðið bana í höfuðborg Íraks í gær þegar helgiganga sjía leystist upp í öngþveiti vegna ótta um að sjálfsmorðsprengjumaður væri í hópnum. Flestir hinna látnu tróðust undir í mannþrönginni en einnig drukknuðu margir í ánni Tígris.

Ástandið versnar stöðugt

Algert neyðarástand ríkir á hamfarasvæðunum í sunnanverðum Bandaríkjunum. Óttast er að hundruð manna hafi týnt lífi af völdum fellibylsins Katrínar.

Áhrifanna verður alls staðar vart

Eftir því sem dagarnir líða kemur tjónið sem fellibylurinn Katrín olli á mánudaginn æ betur í ljós. Tala látinna hækkar dag frá degi og búist er við að efnahagslegar afleiðingar hörmunganna muni ná langt út fyrir Bandaríkin.

Vandar kristilegum ekki kveðjurnar

Gerhard Schröder Þýskalandskanslari réðist harkalega á frambjóðendur Kristilega demókrataflokksins í ræðu í gær. Forskot kristilegu flokkanna er enn mjög mikið og ólíklegt þykir að jafnaðarmönnum takist að vinna það upp.

Heilabólgufaraldur geisar

41 barn dó í gær í Uttar Pradesh-héraði á Indlandi af völdum heilabólgufaraldurs sem þar geisar.

Clarke tekur slaginn

Kenneth Clarke, fyrrverandi fjármálaráðherra, hefur lýst yfir að hann vilji verða leiðtogi breska Íhaldsflokksins

Ár liðið frá harmleiknum í Beslan

Tsjetsjenski uppreisnarleiðtoginn Shamil Basajev hefur lýst því yfir að rússneska leyniþjónustan beri alla ábyrgð á morðunum í barnaskólanum í Beslan í Norður-Ossetíu. Í dag er ár liðið síðan harmleikurinn hófst.

Fé sett í jarðsprengjuþróun

Samtökin Fremtiden i våre hender hafa upplýst að rúmir 2,5 milljarðar íslenskra króna af olíusjóði Norðmanna hafi runnið í fjárfestingar í vopnaiðnaði.

Myrti sjúklinga sína

Bresk hjúkrunarkona sem ákærð var fyrir að hafa ráðið að minnsta kosti þremur sjúklingum sínum bana fannst látin á heimili sínu í vikunni.

Vill grænt samstarf til vinstri

Svandís Svavarsdóttir framkvæmdastjóri Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs ákvað í gær að gefa kost á sér í fyrsta sæti V-listans í forvali flokksins sem fram fer 1. október næstkomandi.

Ár liðið frá harmleiknum í Beslan

Tsjetsjenski uppreisnarleiðtoginn Shamil Basajev hefur lýst því yfir að rússneska leyniþjónustan beri alla ábyrgð á morðunum í barnaskólanum í Beslan í Norður-Ossetíu. Í dag er ár liðið síðan harmleikurinn hófst.

Nánari tengsl Færeyja og Íslands

Davíð Oddsson utanríkisráðherra og Jóhannes Eidesgaard, lögmaður Færeyja, undirrituðu í gær samning um að koma á fót sameiginlegu efnahagssvæði Íslands og Færeyja.

13% vinna á höfuðborgarsvæðinu

Í Gaulverjabæjarhreppi eru áætlaðar skatttekjur á þessu ári lægri á hvern íbúa en framlag á hvern íbúa hreppsins úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Einar Guðni Njálsson, bæjarstjóri Árborgar, segir að framlög jöfnunarsjóðsins á hvern íbúa á Selfossi og annars staðar í Árborg sé varla nema sjöundi hluti af skatttekjum bæjarfélagsins á hvern íbúa. 

Harðnandi kosningaslagur

Jens Stoltenberg, formaður norska Verkamannaflokksins, hitti tvo helstu leiðtoga samtaka launafólks á ráðstefnu um velferð og valfrelsi í gær, en flokkurinn talar fyrir uppstokkun í opinberum rekstri.

Kjartan í þriðja sætið

Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, gefur kost á sér í þriðja sætið í prófkjöri sjálfstæðismanna fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.

Jórunn í fjórða sætið

Varaborgarfulltrúarnir Jórunn Frímannsdóttir og Þorgbjörg Helga Vigfúsdóttir gefa kost á sér í fjórða sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.

Markús Örn kvaddi RÚV

Markús Örn Antonsson lét af störfum sem útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins í dag. Hann kvaddi starfsfólk Ríkisútvarpsins í gær og kom starfsfólk saman í mötuneyti stofnunarinnar af því tilefni þar sem kaffisamsæti var haldið til heiðurs Markúsi Erni.

Skjóta 7.000 máva ár hvert

"Við skjótum mest á urðunarstaðnum í Álfsnesi en þangað sækja mávarnir í leit að æti en við skjótum líka í eyjunum úti á sundunum," segir Guðmundur Friðriksson, skrifstofustjóri neyslu- og úrgangsmála hjá Reykjavíkurborg. Hann segir að alls séu skotnir um sjö þúsund mávar á hverju ári en það dugi ekki til því kvartanir berist í síauknum mæli inn á borð borgaryfirvalda.

Sjá næstu 50 fréttir