13% vinna á höfuðborgarsvæðinu 31. ágúst 2005 00:01
Í Gaulverjabæjarhreppi eru áætlaðar skatttekjur á þessu ári lægri á hvern íbúa en framlag á hvern íbúa hreppsins úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Einar Guðni Njálsson, bæjarstjóri Árborgar, segir að framlög jöfnunarsjóðsins á hvern íbúa á Selfossi og annars staðar í Árborg sé varla nema sjöundi hluti af skatttekjum bæjarfélagsins á hvern íbúa. "Þetta hvetur ekki minni sveitarfélögin til sameiningar," segir Einar Guðni. Þann 8. október næstkomandi verður kosið um sameiningu sex sveitarfélaga í Flóa og Ölfusi. Þetta eru Árborg, Hveragerði, Ölfus, Hraungerðishreppur, Villingaholtshreppur og Gaulverjabæjarhreppur. Samþykki meirihluti kjósenda sameiningu í öllum sveitarfélögunum sex verður til nærri 11 þúsund manna sveitarfélag á Suðurlandi. Í nýrri skýrslu um kosti og galla sameiningar sveitarfélaganna sex segir meðal annars að unnt sé að auka félags- og fjölskylduþjónustu við íbúana með sameiningu þótt svo að þjónustan kunni að verða ópersónulegri en var í litlu sveitarfélögunum þremur. Rætt er í skýrslunni um möguleika til sóknar í leikskólamálum en eftirspurn eftir leikskólaplássum hefur verið langt um fram framboð á undanförnum árum sökum fólksfjölgunar. Sameinað sveitarfélag á Suðurlandi er í skýrslunni talið hafa ákveðna sérstöðu þar sem svæðið sé einskonar útjaðar höfuðborgarsvæðisins. Vitnað er til nýrrar könnunar en þar kemur fram að 13 prósent íbúa í Hveragerði, Árborg og Ölfusi sækja vinnu til höfuðborgarsvæðisins. Nálægðin við höfuðborgina er talin draga úr möguleikum á mikilli fjölgun sérfræðistarfa á svæðinu. Í skýrslunni er vakin athygli á að vegtenging við Keflavíkurflugvöll um Suðurstrandarveg sé þýðingarmikil fyrir byggðarlagið. Í skýrslunni er talið augljóst að hagræða megi í yfirstjórn með sameiningu. Sveitarstjórnarfulltrúum fækki úr 38 í 11 og einn bæjarstjóri leysi af þrjá bæjar- og sveitarstjóra og þrjá oddvita. Einar Guðni Njálsson, bæjarstjóri Árborgar, segir ógerlegt að spá um úrslitin 8. október. Vilji til sameiningar sé mismikill. "Hann er töluverður í Hveragerði en mun minni til dæmis í Þorlákshöfn.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Erlent Fleiri fréttir Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Sjá meira