Harðnandi kosningaslagur 31. ágúst 2005 00:01
Jens Stoltenberg, formaður norska Verkamannaflokksins, hitti tvo helstu leiðtoga samtaka launafólks á ráðstefnu um velferð og valfrelsi í gær, en flokkurinn talar fyrir uppstokkun í opinberum rekstri. "Það stendur sem samþykkt var á landsfundi Verkamannaflokksins að við, sem hlynnt erum opinberum umsvifum og þjónustu, viljum jafnframt stokka upp. Hægrimenn tala aðeins fyrir einkavæðingu. Endurnýjun er okkar markmið. Það kemur meðal annars fram í áformum okkar um endurskoðun tryggingabóta sem ætlað er að fækka fólki á framfærslu hins opinbera en fjölga fólki á vinnumarkaði," segir Stoltenberg. Hann kveðst andvígur einkavæðingu innan heilbrigðis- og skólakerfisins og í umönnunarþjónustu. "Ég held mig við það sem ég hef áður sagt að markaðslausnir gilda ekki á þessum sviðum." Frjálslyndi flokkurinn Venstre, sem stutt hefur hægristjórn Bondeviks, telur koma til greina að þrengja verkfallsréttinn og koma þannig í veg fyrir langvinn verkföll sem hafi haft víðtæk neikvæð áhrif á norskt efnahagslíf síðustu misserin. Gerd-Liv Valla, forseti norska Alþýðusambandsins, segir að launamunur aukist og réttindi launamanna verði skert nái hægriflokkarnir völdum á nýjan leik. Kjell Magne Bondevik, forsætisráðherra og formaður Kristilega þjóðarflokksins, heitir auknum stuðningi við þá efnaminnstu. Hann vill bæta hag öryrkja, gera reglur um vinnutíma sveigjanlegri og skapa þeim aukin tækifæri til að bæta fjárhagslegt öryggi sitt umfram þann beina stuðning sem kemur frá hinu opinbera. Verkalýðshreyfingin styður Verkamannaflokkinn í kosningabaráttunni en það er hægriflokkunum mikill þyrnir í augum. Stuðningur samtaka launafólks við Verkamannaflokkinn og "rauðgrænt" bandalag hans við Sósíalíska vinstriflokkinn og Miðflokkinn hefur skerpt hugmyndafræðileg átök í kosningabaráttunni í Noregi. Fréttaskýrendur telja jafnvel að þetta geti stuðlað að nánari samvinnu hægriflokkanna á nýjan leik þótt varla fari þeir í eina sæng fyrir þingkosningarnar 12. september næstkomandi.
Erlent Stj.mál Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Erlent Fleiri fréttir Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Sjá meira