Innlent

Þurftu þúsund manns í 300 störf

"Við höfum tekið það saman og á síðasta ári vorum við með 1036 starsfmenn sem er nokkuð mikið miðað við það að við höfum rétt um þrjú hundruð stöðugildi," segir Sigríður Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Reykjanesi. Það þýðir að Svæðisskrifstofan þarf að meðaltali rúmlega þrjá menn til að fylla hvert stöðugildi. Sigríður og Sæunn Njálsdóttir, forstöðumaður á sambýli fyrir fjölfatlaða, segja að mannekla hafi þegar sett mark sitt á starfsemina og komið niður á lífsgæðum fatlaðra en nú vantar um það bil þrjátíu og sex starfsmenn á sambýli og starfsstöðvar fatlaðra á Reykjanesi. Sæunn segir að hún hafi leitað eftir aðstoð aðstandenda vegna manneklunnar. "Það er ekki svo einfalt mál því það getur þurft að flytja heilu sjúkrarúmin og hjálpartækin með einstaklingnum og svo hefur þetta eðlilega mikil áhrif á líf aðstandendanna," segir hún. Hún segir enn fremur að ýmis félagsleg þjónusta við skjólstæðinga sína falli niður meðan staðan er svona. "Starfið snýst að mestu um það að sinna frumþörfum og svo bíður fólkið bara því ekki er nægur mannskapur til að sinna félagslegu þáttunum sem er mjög slæmt því okkar starf felst einnig í því að koma fötluðum út í samfélagið en það starf situr á hakanum þegar svona er," segir Sæunn. Ýmsar leiðir eru reyndar til úrbóta í manneklunni. Til dæmis segir Sigríður að til umræðu hafi komið að lækka lágmarksaldur þeirra sem ráðnir eru til starfa úr 20 árum niður í 19. Mikill skortur er á fagmenntuðu fólki í þessum málaflokki að sögn Sigríðar en hún segir að störfum við umönnun fatlaðs fólks hafi fjölgað síðustu ár en ekki hafi verið hugað að því að mennta fólk til starfanna að sama skapi. "Það er ekki svo að fólk vilji ekki mennta sig til þessara starfa," segir Sigríður og bendir á að færri komist að en vilji til þess að læra þroskaþjálfun í Kennaraháskólanum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×