Fleiri fréttir

Atvinnuleysi á Suðurnesjum eykst

Atvinnuleysi á Suðurnesjum jókst um 10% á milli mánaða, þrátt fyrir að atvinnuleysi hafi minnkað á landsbyggðinni samkvæmt tölum frá Vinnumálastofnun. Alls voru 166 skráðir atvinnulausir á Suðurnesjum í júní meðan 182 voru skráðir í þessum mánuði. Þar af voru 54 karlmenn atvinnulausir og 128 konur, en frá þessu er greint á vef Víkurfrétta.

Hver lítri margskattlagður

"Það versta í þessu er að ríkið notar tækifærið til þess að raka til sín enn meiri fjármunum," segir Stefán Ásgrímsson, ritstjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Félagið hefur skorað á stjórnvöld að lækka álögur sínar á bifreiðaeldsneyti nú þegar heimsmarkaðsverð er í hámarki.

Foreldrar fylgist með

SAMAN samstarfshópur um forvarnir vill hvetja foreldra og forráðamenn til að kynna sér afþreyingar- og skemmtiefni sem börnum þeirra er boðið upp á. Í tilkynningu frá hópnum segir að það geti treyst böndin milli kynslóðanna og gefið tækifæri til umræðna um æskilega og óæskilega hegðun og þær reglur sem foreldrar vilja að börnin fylgi.

Harry Potter bókar vel gætt

Sjötta bókin um galdrastrákinn Harry Potter er komin til landsins og hefst sala á henni í þremur verslunum klukkan eina mínútu yfir tólf í kvöld. Bækurnar eru geymdar í lokuðum kössum og þess er vel gætt að efni þeirra leki ekki út.

Merkel vill ekki

Angela Merkel, formaður kristilegra demókrata og kanslaraefni í komandi kosningum í Þýskalandi, sagði í gær að hún stefni að því að sneiða hjá því að mynda svokallaða "stóra samsteypu" með jafnaðarmönnum eftir kosningarnar. Að hennar sögn væri slíkt stjórnarsamstarf "merki um stöðnun".

Þrjú þúsund á sumarhátíð

Þrjú þúsund starfsmenn Vinnuskóla Reykjavíkur komu saman í Laugardalnum á sumarhátíð skólans sem haldin var í gær. "Það myndaðist ótrúlega góð karnívalstemning í góða veðrinu," segir Höskuldur Darri Ellertsson, upplýsingafulltrúi Vinnuskólans.

Engar aðgerðir ræddar

Ekki hefur verið rætt um að grípa til sérstakra aðgerða vegna erfiðleika sem ferðaþjónusta sem byggir á bílaútgerð sér fram á í kjölfar verðhækkana á dísilolíu að sögn Bergþórs Ólasonar, aðstoðarmanns samgönguráðherra.

Ipod bjargar Apple

Hagnaður Apple tölvufyrirtækisins á þriðja ársfjórðungi nam um 20 milljörðum króna og er það fimm sinnum meiri hagnaður en á sama tíma í fyrra. Velgengni fyrirtækisins má að stærstum hluta rekja til Ipod spilarans en fyrirtækið seldi rúmlega 6 milljónir spilara á þriðja ársfjórðungi og nam salan um þriðjungi af heildarsölu fyrirtækisins.

Fleiri fæða heima

Heimafæðingum hefur fjölgað lítið eitt á síðustu árum. Heimafæðingar á síðasta ári voru 45 talsins og hefur fjölgað um fjórar síðan árið 2003 samkvæmt upplýsingum á vef Tryggingastofnunar ríkisins.

Tvö umferðaróhöpp fyrir vestan

Bíll fór út af veginum á Dynjandisheiði á fjórða tímanum í dag. Tveir voru í bílnum og eru þeir ómeiddir. Þá valt bíll í Dýrafirði klukkan hálfníu í morgun. Ökumaðurinn var fluttur á sjúkrahús á Ísafirði en meiðsl hans eru talin minniháttar.

Komu í veg fyrir árásir

Íraskir hermenn komu í veg fyrir þrjár sjálfsmorðsárásir í Bagdad í dag þegar þeir skutu tvo menn til bana og særðu þriðja manninn þegar þeir nálguðust herstöðvar í borginni. Maðurinn sem særðist var fluttur á hersjúkrahús og verður hann yfirheyrður síðar í dag.

Meintum dópsala sleppt

Ekki var farið fram á frekara gæsluvarðhald yfir manni sem lögregla handtók um mánaðamótin síðustu, en við húsleit hjá honum fundust þrjú kíló af hassi og 400 grömm af amfetamíni, og var hann því látinn laus í gær.

Spáð óbreyttri neysluvísitölu

Greiningardeild Landsbankans gerir ráð fyrir að vísitala neysluverðs í ágúst haldist óbreytt frá fyrri mánuði ef ekki koma til enn frekari hækkanir á olíu- og bensínverði. Gangi spáin eftir verður tólf mánaða verðbólga 3,45 prósent og verður þá tæpu prósentustigi yfir verðbólgumarkmarkmiði Seðlabanka Íslands.

Dæmd fyrir stórfelld fíkniefnabrot

32 ára maður var í gær dæmdur í eins og hálfs árs fangelsi fyrir stórfelld fíkniefnabrot og fleiri brot. Þá var í sama dómi 26 ára gömul kona dæmd í hálfsársfangelsi. Dómarnir voru upp kveðnir í Héraðsdómi Reykjaness, en þeir eru skilorðsbundnir að hluta.

Hlekktist á í lendingu á Flúðum

Flugvöllurinn á Flúðum var lokaður fram eftir degi í gær eftir að konu hlekktist þar á í lendingu eins hreyfils Cessna flugvélar í gærmorgun. Vélin endaði utan vallar, en konuna, sem var ein á ferð, sakaði ekki.

Reiddist eftir lokun apóteks

Frestað var í tvö ár fullnustu tveggja mánaða fangelsisdóms sem kveðinn var upp í Héraðsdómi Reykjaness í gær yfir 25 ára gömlum manni sem réðist á starfsmann apóteks.

Lést af völdum byssuskots í höfuð

Krufning leiddi í gær í ljós að Gísli Þorkelsson, sem myrtur var í Suður-Afríku fyrir rúmum fimm vikum síðan, lést af völdum byssuskots í höfuðið. Lík Gísla fannst 10. júlí falið í tunnu sem fyllt hafði verið með steypu þannig að aðeins sá í fætur þess.

Kennsl borin á hryðjuverkamenn

Einn mannanna sem grunaðir eru um að hafa átt þátt í sprengjuárásunum í London í síðustu viku var stuðningsfulltrúi í grunnskóla. Hann var vel liðinn bæði meðal kennara og foreldra og lagði sig allan fram við að gera vel við börnin. Foreldrar eru efins um að lögreglan gruni rétta manninn en lögreglan segist hafa borið kennsl á alla hryðjuverkamennina.

Brýtur blað í DNA rannsóknum

Richard Kristinsson réttarerfðafræðingur við Denver háskóla í Bandaríkjunum hefur uppgötvað nýja aðferð við rannsókn erfðaefna sem sparar bæði tíma og peninga. Bandarísk stjórnvöld hafa styrkt Richard og leiðbeinanda hans um tæpar 30 milljónir króna. Hann hyggst opna rannsóknarstofu á Íslandi eftir tvö ár. </font /></b />

Leiðtogaslagur á báðum vígstöðvum

Það stefnir í leiðtogaslag í R-listanum ef hann hangir saman fram að næstu kosningum. Bæði Steinunn Valdís Óskarsdóttir og Stefán Jón Hafstein segjast vilja borgarstjórastólinn.

Tuttugu og fimm milljónir á dag

Aldrei hafa jafn margir ferðamenn komið að landi í Reykjavíkurhöfn eins og í gær en þá komu rétt tæp fjögur þúsund farþegar með skemmtiferðarskipunum Sea Princess og Aurora. Ekki eru þá meðtaldar áhafnir skipanna sem flestar ganga úr sér sjóriðuna á íslenskri grundu en um níuhundruð manns eru í áhöfn hvors skips.

Risabor snúið við

Grípa varð til þess neyðarúrræðis við gangagerð á Kárahnjúkum að snúa einum risaboranna við, þegar hann átti aðeins eftir um kílómetra að Hálslóni. Borinn lenti á óþéttu bergi og vatn tók að streyma inn.

Skyndibitastaður og kavíarbar

Sea Princess er annað þeirra listiskipa sem lágu fyrir utan Reykjavíkurhöfn í gær og munu Akureyringar njóta nærveru þess í dag. Þessi tignarlega sjón vakti forvitni fjölmargra borgarbúa um þetta tignarlega ferlíki.</font />

Emily gerir óskunda

Fellibylurinn Emily gekk á land á eynni Grenada í Karabíska hafinu í gær og olli talsverðu tjóni.

Sjóferðamaður svarar

David Griffiths er ferðamaður á skemmtiferðarskipinu Aurora. Hann nýtti tækifærið meðan skipið var við höfn til að bregða sér í Bláa lónið.

Þögn sló yfir Lundúnir

Vika er liðin frá hryðjuverkaárásunum á Lundúnir og var þess víða minnst með tveggja mínútna langri þögn í gær. Búið er að bera kennsl á alla tilræðismennina fjóra.

Stuðningur við hryðjuverk dvínar

Stuðningur við Osama bin Laden og árásir gegn Bandaríkjamönnum og bandamönnum þeirra í Írak fer mjög dvínandi í múslimaríkjum heimsins, sérstaklega þeim sem hafa sjálf orðið fyrir árásum hryðjuverkamanna.

Kerfisbundnar misþyrmingar

Ný rannsókn á vegum Bandaríkjahers leiðir í ljós að hinar illræmdu yfirheyrsluaðferðir sem notaðar voru í Abu Ghraib-fangelsinu í Írak voru ekki einangrað tilfelli.

Umkringdu barnaskóla

Stigamenn stráfelldu 76 manns í þorpi í norðurhluta Keníu í fyrradag. Talið er að ættbálkaerjur séu orsök ódæðanna.

Meðferð á föngum ekki pyntingar

Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, leyfði niðurlægjandi yfirheyrsluaðferðir í Guantanamo-fangelsinu á Kúbu. Þetta kemur fram í dagblaðinu Washington Post í dag. Sérfræðingar á vegum hersins segja aðferðirnar ekki geta talist pyntingar.

Tekinn af lífi án dóms og laga

Ísraelskir hermenn réðust í gær inn á heimili breskrar blaðakonu í bænum Nablus á Vesturbakkanum og skutu þar til bana, Mohammed Alassi, meintan palestínskan uppreisnarmann.

Ókeypis alnæmislyf

Taílendingar sem sýkst hafa af HIV-veirunni eiga þess nú kost að fá ókeypis lyf sem eiga að halda sjúkdómseinkennunum í skefjum.

Öryrkjar ósáttir

Samkvæmt samþykktum Lífeyrissjóðanna mega samanlagðar bætur frá Tryggingastofnun og Lífeyrissjóði ekki vera hærri en nemur mánaðarlaunum fólks, fyrir örorku. Eins og kom fram í fréttum okkar í gær hefur vegna þessa verið kallað eftir allt að tuttugu til þrjátíu ára gömlum gögnum. 

Tívolíið slysagildra

Er ferðatívolíið við Smáralind slysagildra eða er þar allt í góðu lagi? Opinberir eftirlitsaðilar leggja blessun sína yfir starfsemina en maður sem starfað hefur í svipuðum leikgarði og horfði upp á leiktæki bresta við Smáralindina í gær er lítt hrifinn.  Sólveig Bergmann ræddi við hann í dag.

Öryrkinn ósigrandi upp Esjuna

Allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi. Þetta ætlar öryrkinn ósigrandi, eins og hann kallar sig, að sanna í Esjuferð sinni en hann stefnir á að vera kominn á toppinn á miðnætti í kvöld. Ungmennahreyfing Sjálfsbjargar stendur fyrir verkefninu með aðstoð góðra manna.

Vogaskóli rifinn að hluta

Yngstu bekkirnir í Vogaskóla koma til með að stunda nám sitt í gömlu verslunarhúsnæði næsta vetur. Verið er að rífa niður hluta skólans og nýtt húsnæði verður ekki tilbúið fyrr en undir árslok 2006.

Sumarhátíð Vinnuskólans

Þrjú þúsund glaðbeittir unglingar gerðu sér dagamun í Laugardalnum í morgun þegar sumarhátíð Vinnuskólans var haldin í sautjánda sinn. Aðstandendur hátíðarinnar völdu svo sannarlega rétta daginn til hófsins, því sólin skein loks sínu skærasta í höfuðborginni í dag, eftir margar heldur gráar vikur.

Starfsmenn hætta í Landakotsskóla

Ingibjörg Kjartansdóttir, forstöðumaður heilsdagsskólans í Landakotsskóla, sagði upp störfum í vikunni vegna ástandsins í Landakotsskóla. Annar starfsmaður heilsdagsskólans hefur einnig sagt upp störfum, en alls vinna þrír við hann.

Fjórir sækja um Landakot

Fjórir umsækjendur eru um stöðu skólastjóra í Landakotsskóla. Þeir eru Guðlaug Teitsdóttir, Laufey Jónsdóttir, Regína Höskuldsdóttir og einn sem óskar nafnleyndar. Laufey er einn ósáttu kennaranna við skólann og hinir tveir hafa starfað sem skólastjórar.

Sumir öryrkjar gætu misst bæturnar

Landssamtök lífeyrissjóða standa nú að heildarathugun á tekjum þeirra öryrkja sem fá bætur og hefur framkvæmd athugunarinnar sætt nokkurri gagnrýni.

Bréf send til 1300 öryrkja

Alls voru um 1300 öryrkjar krafðir um skattframtöl síðustu þriggja ára fyrir örorkumat. "Skattstofur hafa brugðist vel við fólki sem leitar til þeirra," segir Matthildur Hermannsdóttir, framkvæmdastjóri greiðslustofu lífeyrissjóðanna.

Bjór með Níkótíni

Þýski bjórframleiðandinn Nautilus hefur hafið framleiðslu á bjór með níkótíni sem á að geta komið í stað níkótínsplásturs eða -tyggjós. Bjórinn er 6,3 prósent að styrkleika og ein 25 cl flaska inniheldur einn þriðja af níkótínmagni heils sígarettupakka.

Íbúðalánasjóður í kringum lögin

Af samkomulagi um innheimtu krafna, sem er viðuaki við lánasamning Íbúðalánasjóðs við banka og öðrum gögnum sem Fréttastofa Stöðvar 2 hefur undir höndum, er ekki annað hægt að ráða en að bankarnir leppi í raun lánveitingar Íbúðalánasjóðs til einstaklinga sem eru umfram þær heimildir sem sjóðurinn hefur samkvæmt lögum til að lána eða tæpar sextán milljónir.

Hert landamæraeftirlit

Ríkislögreglustjóri hefur óskað eftir hertri landamæragæslu af ótta við að mótmælendur frá G8- fundinum í Skotlandi komi hingað til lands og mótmæli virkjanaframkvæmdum. Frést hefur af íslenskum mótmælendum þar og þá hefur verið sett upp heimasíða með ferðaleiðbeiningum fyrir mótmælendur. RÚV greindi frá þessu.

Sjá næstu 50 fréttir