Fleiri
Harry Potter leki 13.7.2005 00:01 Varðhald fellt úr gildi Hæstiréttur felldi í gær úr gildi úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur frá 8. júlí þess efnis að meintur kynferðisglæpamaður skyldi sæta gæsluvarðhaldi til 15. júlí eins og Lögreglustjórinn í Reykjavík hafði farið fram á. 13.7.2005 00:01 Bretar undrandi og reiðir Talið er að mennirnir hafi starfað undir stjórn utanaðkomandi aðila og er óttast að annar hópur tilræðismanna, undir stjórn sömu aðila, sé að undirbúa fleiri árásir á bæði Bretland og víðar. Einn maður var handtekinn í aðgerðum lögreglunnar í Yorkshire í gærmorgun en hann mun vera skyldur einum af meintum tilræðisumönnum. 13.7.2005 00:01 Geimskoti frestað Hætt hefur verið við að skjóta geimferjunni Discovery á loft frá Flórída en áhöfnin var komin um borð og tilbúin að leggja í hann þegar ákvörðunin var tekin nú fyrr í kvöld. Mikil spenna var við Canaveral-höfða, en þúsundir ferðamanna voru þar saman komnir til að fylgjast með atburðinum. 13.7.2005 00:01 Nýjar kartöflur eftirsóttar Fyrsta uppskera ársins af nýjum íslenskum kartöflum úr Þykkvabænum sem komu í verslanir á höfuðborgarsvæðinu í gærmorgun kláruðust úr hillum verslana á nokkrum klukkustundum. 13.7.2005 00:01 Gísli þekkti morðingja sína Fimmtíu og fjögurra ára Íslendingur sem var myrtur í Suður-Afríku hét Gísli Þorkelsson. Hann hafði búið í Suður-Afríku í ellefu ár og starfaði á eigin vegum við viðskipti. Hann á einn uppkominn son sem er búsettur á Íslandi. 13.7.2005 00:01 Eitt og hálft ár fyrir nauðgun Maður var dæmdur í eins og hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Vestfjarða í gær fyrir að nauðga ungri stúlku á heimili hennar á Ísafirði eftir samkvæmi síðasta sumar. Stúlkan hafði lagst til svefns með vini sínum, en maðurinn vakti hann og vísaði burt áður en hann hóf að samfarir við stúlkuna sem þá vaknaði. 13.7.2005 00:01 Óska eftir skattskýrslum öryrkja Greiðslustofa lífeyrissjóðanna hefur krafist þess að þrettán hundruð öryrkjar skili skattframtölum síðustu þriggja ára áður en þeir fengu dæmda örorku. Í sumum tilfellum er um allt að tuttugu ára gömul gögn að ræða. Verði gögnunum ekki skilað fyrir fimmtánda júlí, falla greiðslur til þeirra frá lífeyrissjóðunum niður fyrsta október. 13.7.2005 00:01 Sjá næstu 50 fréttir
Kríuvarp nánast horfið sumstaðar Fádæma lélegt kríuvarp hefur verið við vestanvert landið, í Breiðafirði, á Snæfellsnesi og Reykjanesi og á Norðurlandi. Fuglinn verpir seint eða ekki og sumstaðar er kríuvarp nánast horfið. 13.7.2005 00:01
Fyrsta ferðin síðan Columbia fórst Geimferjunni Discovery verður skotið á loft frá Canaveral-höfða á Flórída á morgun. Þetta er fyrsta ferð ferjunnar í geiminn frá því geimferjan Columbia fórst í ferð sinni til jarðar fyrir tveimur árum en öll áhöfnin lét lífið. 13.7.2005 00:01
Gjaldfrjáls leikskóli um allt land Gjaldfrjáls leikskóli er það sem koma skal um allt land, segir sveitarstjóri Súðavíkurhrepps. Frá og með 1. september borga Súðvíkingar ekkert fyrir að senda börn sín í leikskóla. 13.7.2005 00:01
Þrívíddarskönnun við jarðgangagerð Ný tækni, þrívíddarskönnun með leysigeislum, gefur bormönnum Arnarfells á Eyjabökkum mun nákvæmari mynd af framvindu jarðgangagerðar en hingað til hefur þekkst hérlendis. 13.7.2005 00:01
Lestarlys í Pakistan Að minnsta kosti 150 manns eru látnir eftir árekstur þriggja farþegalesta í suðurhluta Pakistan í morgun. Þá eru yfir 800 hundruð manns slasaðir. Slysið átti sér stað með þeim hætti að verið var að laga eina lestina þegar næturlest kom á fullri ferð og lenti á henni. 13.7.2005 00:01
Gegnumlýsing í Leifsstöð biluð Gegnumlýsingartæki í Leifsstöð bilaði í gær og tókst ekki að gegumlýsa allan farangur einnar flugvélar sem hélt utan í gærdag. Reynt var að notast við sérstaka bifreið sem notuð er til að gegnumlýsa farangur en hún er ekki jafn afkastamikil og tækin inni í flugstöðinni. Því voru tólf töskur skildar eftir og verða þær sendar með öðrum flugvélum í dag, en frá þessu er greint á vef Víkurfrétta. 13.7.2005 00:01
Tveir pakistanskir Bretar grunaðir Tveir mannanna sem grunaðir eru um að hafa framið hryðjuverkaárásirnar á London á fimmtudag voru 19 og 22 ára Bretar, búsettir í Leeds en af pakistönskum uppruna. Mennirnir eru sagðir hafa verið vinir og aldrei verið grunaðir um tengsl við hryðjuverkasamtök. Þeir voru sagðir mjög indælir og virðist sem öllum hafi líkað vel við þá. 13.7.2005 00:01
Sprengiefni fannst í bíl í Luton Sprengiefni fannst í bíl við lestarstöð í Luton, sem er um 50 kílómetra norður af London, í gær. Lögreglan greindi frá því að hún hefði lokað lestarstöðinni á meðan sprengjusérfræðingar skoðuðu málið en þeir sprengdu þrjár sprengjur í bílnum undir eftirliti en fundur þessi er talinn mjög hjálplegur rannsókninni. 13.7.2005 00:01
Óeirðir á N - Írlandi Að minnsta kosti 60 lögreglumenn og tíu óbreyttir borgarar særðust þegar Kaþólikkar á Norður Írlandi hentu heimtilbúnum handsprengjum, bensínsprengjum og annars konar vopnum að lögreglumönnum eftir göngu mótmælenda, svokallaða göngu Appelsínugulu reglunnar, sem farin var um borgir og bæi á Norður-Írlandi. 13.7.2005 00:01
Verð á íbúðarhúsnæði fer lækkandi Vísbendingar eru um að íbúðarhúsnæði sé hætt að hækka í verði og hafi jafnvel lækkað lítillega síðustu daga, að mati Greiningardeildar Íslandsbanka. Deildin byggir þetta á gögnum frá Fasteignamati Ríkisins þar sem fram komi að verð á íbúðum í fjölbýli hafi hækkað mjög lítið síðustu dagana og lækkað um nokkur prósent í sérbýli á sama tímabili. 13.7.2005 00:01
Ofsaakstur á nýju Hringbrautinni Ökumaður var stöðvaður á nýju Hringbrautinni í Reykjavík í gærkvöldi eftir að lögregla hafði mælt hann á hundrað sextíu og fjögurra kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 70 kílómetrar. Hann var því á rösklega tvöföldum leyfilegum hámarkshraða, eða níutíu og fjórum kílómetrum yfir hámarkshraðanum. 13.7.2005 00:01
Maður slasast í Esjugöngu Björgunarsveit og neyðarsveit frá Slökkviliðinu voru kallaðar út í gærkvöld til að leita að rosknum manni sem saknað var í hlíðum Esjunnar. Áður en skipuleg leit hófst, fann kona manninn skammt frá bílastæðunum neðan við aðal uppgönguleiðina í Kollafirði. Hann hafði dottið og meiðst á höfði, og vankast við það. 13.7.2005 00:01
Olíuborpallur mikið skemmdur Olíuborpallur, í eigu BP, er mikið skemmdur eftir að fellibylurinn Dennis reið þar yfir á mánudag. Pallurinn er um 240 kílómetra suðvestur af New Orleans í Bandaríkjunum en búið var að koma öllum í land áður en atvikið átti sér stað. 13.7.2005 00:01
Elsta panda í heimi dáin Elsta panda í heimi er dáin, 36 ára að aldri en það jafngildir 108 mannsárum. Pandan hefur búið undanfarin tuttugu ár í dýragarði í suðurhluta Kína eða frá árinu 1985. Pandabirnir eru orðnir afar fáir, en aðeins er talið að 1600 pandabirnir séu eftir í öllum heiminum, en þar af eru 120 þeirra í dýragörðum víðs vegar um heiminn. 13.7.2005 00:01
Sjálfsmorðsárás í Bagdad Að minnsta kosti 25 börn og einn amerískur hermaður féllu í sjálfsmorðssprengjuárás sem gerð var í Bagdad, höfuðborg Íraks í morgun. Þá er talið að 25 manns til viðbótar hafi særst í árásinni. Sprengingin átti sér stað nálægt herstöð Bandaríkjamanna en hermennirnir voru að gefa börnunum sælgæti þegar atvikið átti sér stað. 13.7.2005 00:01
Kennsl borin á líkið Maðurinn sem fannst myrtur í Boksburg í Suður Afríku á sunnudag hét Gísli Þorkelsson. Hann var fæddur árið 1951 og hafði búið í Suður Afríku í ellefu ár. Dánarorsök er ókunn en búist er við að líkið verði krufið á morgun Kona og karl eru grunuð um að hafa myrt manninn og mæta þau fyrir rétt í dag þar sem þeim verða birtar ákærur. Þau verða ákærð fyrir morð og fjársvik. 13.7.2005 00:01
Danir taki hótanir alvarlega Danmörk er næsta skotmark hryðjuverkamanna í Evrópu, segja samtökin al-Qaida í nýrri yfirlýsingu. Hryðjuverkasérfræðingur segir að Danir verði að taka endurteknar ógnanir um árás alvarlega. Samtökin sem stóðu að baki árásunum í Madríd í fyrra, og kennd eru við Abu Hafs al-Masri, birtu yfirlýsingu á netinu á sunndaginn, skrifar dagblaðið Jyllands Posten í morgun. 13.7.2005 00:01
Atvinnuréttindi útlendinga aukin Vinnuhópur á vegum Félagsmálaráðuneytisins og Dómsmálaráðuneytisins er að vinna hugmyndir að lagabreytingu, sem miða að því að afnema takmarkanir á atvinnuréttindum útlendinga frá nýju Evrópusambandsríkjunum. 13.7.2005 00:01
Sprengdi sektarskala lögreglunnar Ökumaður, sem var stöðvaður á nýju Hringbrautinni í Reykjavík í gærkvöldi eftir að lögregla hafði mælt hann á hundrað sextíu og fjögurra kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 70 kílómetrar, sprengdi sektarskala lögreglunnar. 13.7.2005 00:01
Met í Norðurá Veiðifélagarnir Þórarinn Sigþórsson tannlæknir og Ingólfur Ásgeirsson flugmaður veiddu í sameiningu sjötíu og tvo laxa á eina stöng á þremur dögum í Norðurá í vikunni og hefur aldrei fyrr fengist annar eins afli á eina stöng úr ánni. 13.7.2005 00:01
Stuðningsfundur í Garðasókn Stuðningsmenn og velunnarar séra Hans Markúsar Hafsteinssonar sóknarprests í Garðaprestakalli halda stuðningsfund í kvöld í Hofsstaðaskóla í Garðabæ. Sveinn Andri Sveinsson lögmaður mun mæta á fundinn og svara spurningum sem varða deilurnar í Garðasókn sem staðið hafa lengi yfir. 13.7.2005 00:01
Fyrstu kartöflurnar í búðir í dag Fyrstu nýju íslensku kartöflurnar koma í búðir á höfuðborgarsvæðinu í dag eftir að kartöflubændur í Þykkvabæ hófu að taka upp eldsnemma í morgun. Upptaka hófst sama dag í fyrra. Kartöflubændur ætla nú í fyrsta sinn að bjóða daglega upp á nýuppteknar kartöflur, eða eins lengi og uppskerutíminn stendur, og verða þær í sérmerktum umbúðum. 13.7.2005 00:01
Halldór fundar í Japan Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra átti í dag fund með japönskum þingmönnum í Tókýó þar sem hann hélt erindi um efnahagsmál á Íslandi. Á fundinum ítrekaði forsætisráðherra að lokið yrði við gerð loftferðarsamnings milli ríkjanna og einnig undirstrikaði hann ósk íslenskra stjórnvalda um að gerður yrði tvísköttunarsamningur milli ríkjanna. 13.7.2005 00:01
Aron Pálmi fær námssjóð Stuðningshópur Arons Pálma Ágústssonar sem situr í stofufangelsi í Texas í Bandaríkjunum mun á morgun leggja hálfa milljón króna í sérstakan námssjóð fyrir Aron Pálma, en hann verður tuttugu og tveggja ára á morgun. 13.7.2005 00:01
Konan játar að hafa banað Gísla Konan sem kom fyrir rétt í dag í Boksburg í Suður Afríku hefur játað að hafa orðið Gísla Þorkelsyni að bana, en frá þessu er greint á fréttavef News 24 í Suður Afríku. Konan og maðurinn voru úrskurðuð í gæsluvarðhald til 22. ágúst eða þar til þau koma aftur fyrir rétt þar í landi. 13.7.2005 00:01
Ekki dregur úr flugi til Lundúna Hryðjuverkin í Lundúnum á fimmtudag, þar sem að minnsta kosti 52 biðu bana og fjöldi særðist, hafa lítt eða ekki dregið úr áhuga fólks á að ferðast til borgarinnar. 13.7.2005 00:01
Vígamenn drepa börn í Kenía Talið er að minnsta kosti 60 manns hafi fallið í árásum vígamanna á þorpið Turbi í norðausturhluta Kenýa í gærmorgun. Þorpsbúar í Turbi, sem aðallega er byggt Gabra-fólki, segir hóp Borana-vígamanna frá Eþíópíu hafa ráðist inn í þorpið í dögun og setið fyrir börnum á leið í skóla. 13.7.2005 00:01
18 mánaða fangelsi fyrir nauðgun Þrjátíu og átta ára gamall karlmaður var í Héraðsdómi Vestfjarða í dag dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir að hafa nauðgað átján ára stúlku á Ísafirði í júní í fyrra. Maðurinn, var ákærður fyrir að hafa haft samræði við stúlkuna á heimili hennar gegn vilja hennar, en stúlkan var mjög ölvuð þegar nauðgunin átti sér stað. 13.7.2005 00:01
Atvinnuleysi í lágmarki Atvinnuleysi á landinu var 2,1 prósent í júní og dróst saman um 0,1 prósent frá fyrri mánuði og hefur atvinnuleysi ekki mælst jafn lágt síðan í desember 2001 en þá mældist það 1,9 prósent. Að því er fram kemur í hálf fimm fréttum KB banka jókst atvinnuleysi á höfuðborgarsvæðinu um 01, prósent en minnkaði á sama tíma á landsbyggðinni um 0,2 prósent. 13.7.2005 00:01
Gæsluvarðhald fellt úr gildi Hæstiréttur hefur fellt úr gildi gæsluvarðhald yfir 27 ára gömlum erlendum manni. Maðurinn hafði áður verið úrskurðaður í gæsluvarðhald í héraðsdómi vegna gruns um að hafa framið kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum fæddum árið 1994. 13.7.2005 00:01
202 kærðir fyrir hraðakstur Samkvæmt fréttavef lögreglunnar voru 202 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur í síðustu viku. Nú stendur yfir sérstakt umferðareftirlit á vegum ríkislögreglustjóra sem hófst 28. júní síðastliðinn. 13.7.2005 00:01
Fleiri vilja skrá sig í sumarhús Skipulagsnefnd sveitarfélaga í uppsveitum Árnessýslu hefur lagt til að ekki verði veitt leyfi til lögheimilis í frístundarbyggð nema að umsækjandi færi fram sannanir fyrir fastri búsetu sinni og skuli það gert með lögregluskýrslu þar sem umsækjandi færir einnig rök fyrir því að hann vilji búa í frístundarbyggð. 13.7.2005 00:01
Hrefnukjötið rokselst Hrefnukjötið rýkur út eins og heitar lummur og eftirspurnin fer ört vaxandi," segir Sólmundur Oddsson innkaupastjóri Kaupáss sem rekur Nóatúnsverslanirnar. "Um síðustu helgi fóru 350 kíló," bætir Sólmundur við en hann er ekki í nokkrum vafa um að markaður sé fyrir því hrefnukjöti sem fellur til við veiðarnar sem nú eru hafnar. 13.7.2005 00:01
Á 164 kílómetra hraða Ökumaður á yfir höfði sér sviptingu ökuréttinda eftir að bifreið hans mældist á 164 kílómetra hraða á Reykjanesbraut við Bústaðaveg á ellefta tímanum í fyrrakvöld. Hámarkshraði þar er 70 kílómetrar á klukkustund og keyrði ökumaðurinn því meira en níutíu kílómetrum á klukkustund of hratt. 13.7.2005 00:01
Ekki of fáar málverkasýningar "Ég er ósammála því að of fáar málverkasýningar séu haldnar hér í listasafninu," segir Eiríkur Þorláksson, forstöðumaður Listasafns Reykjavíkur. Einar Hákonarson listmálari gagnrýndi listasafnið í Fréttablaðinu í gær og sagði að þar væri ekki nægileg áhersla lögð á málverkasýningar. 13.7.2005 00:01
Mikil kjaraskerðing Verðhækkanir á dísilolíu hafa í för með sér gríðarlegan kostnaðarauka," segir Hlynur Snæland Lárusson, deildarstjóri bílaútgerðar hjá ferðaskrifstofunni Snæland Grímssyni. "Sérstaklega er um mikla kjaraskerðingu að ræða fyrir þröngan kjarna manna sem lifa á bílaútgerð." 13.7.2005 00:01
Gæsluvarðhald staðfest Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð yfir síbrotamanni sem farið hafði fram á að gæsluvarðhald þða er hann var dæmdur í til 15. júlí yrði fellt niður eða stytt. 13.7.2005 00:01
Varðhald fellt úr gildi Hæstiréttur felldi í gær úr gildi úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur frá 8. júlí þess efnis að meintur kynferðisglæpamaður skyldi sæta gæsluvarðhaldi til 15. júlí eins og Lögreglustjórinn í Reykjavík hafði farið fram á. 13.7.2005 00:01
Bretar undrandi og reiðir Talið er að mennirnir hafi starfað undir stjórn utanaðkomandi aðila og er óttast að annar hópur tilræðismanna, undir stjórn sömu aðila, sé að undirbúa fleiri árásir á bæði Bretland og víðar. Einn maður var handtekinn í aðgerðum lögreglunnar í Yorkshire í gærmorgun en hann mun vera skyldur einum af meintum tilræðisumönnum. 13.7.2005 00:01
Geimskoti frestað Hætt hefur verið við að skjóta geimferjunni Discovery á loft frá Flórída en áhöfnin var komin um borð og tilbúin að leggja í hann þegar ákvörðunin var tekin nú fyrr í kvöld. Mikil spenna var við Canaveral-höfða, en þúsundir ferðamanna voru þar saman komnir til að fylgjast með atburðinum. 13.7.2005 00:01
Nýjar kartöflur eftirsóttar Fyrsta uppskera ársins af nýjum íslenskum kartöflum úr Þykkvabænum sem komu í verslanir á höfuðborgarsvæðinu í gærmorgun kláruðust úr hillum verslana á nokkrum klukkustundum. 13.7.2005 00:01
Gísli þekkti morðingja sína Fimmtíu og fjögurra ára Íslendingur sem var myrtur í Suður-Afríku hét Gísli Þorkelsson. Hann hafði búið í Suður-Afríku í ellefu ár og starfaði á eigin vegum við viðskipti. Hann á einn uppkominn son sem er búsettur á Íslandi. 13.7.2005 00:01
Eitt og hálft ár fyrir nauðgun Maður var dæmdur í eins og hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Vestfjarða í gær fyrir að nauðga ungri stúlku á heimili hennar á Ísafirði eftir samkvæmi síðasta sumar. Stúlkan hafði lagst til svefns með vini sínum, en maðurinn vakti hann og vísaði burt áður en hann hóf að samfarir við stúlkuna sem þá vaknaði. 13.7.2005 00:01
Óska eftir skattskýrslum öryrkja Greiðslustofa lífeyrissjóðanna hefur krafist þess að þrettán hundruð öryrkjar skili skattframtölum síðustu þriggja ára áður en þeir fengu dæmda örorku. Í sumum tilfellum er um allt að tuttugu ára gömul gögn að ræða. Verði gögnunum ekki skilað fyrir fimmtánda júlí, falla greiðslur til þeirra frá lífeyrissjóðunum niður fyrsta október. 13.7.2005 00:01