Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Urðu bensínlausir eftir innbrot Tveir menn, 22 og 25 ára gamlir, voru í Héraðsdómi Austurlands í gær dæmdir í mánaðarfangelsi hvor, en báðir eru dómarnir skilorðsbundnir í tvö ár. Þá er þeim gert að greiða hvor um sig Olíuverslun Íslands hf. 51.790 krónur með vöxtum. 16.6.2005 00:01
Geymdi þýfi fyrir litla bróður Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær þrítugan mann í sjö mánaða fangelsi fyrir að taka við og geyma þýfi fyrir sex árum yngri bróður sinn. Fimm mánuðir refsingarinnar eru skilorðsbundnir í þrjú ár. 16.6.2005 00:01
Baugur stofnar styrktarsjóð Baugur Group hefur ákveðið að verja 300 milljónum króna til að stofna sérstakan styrktarsjóð. Gert er ráð fyrir að framlög úr sjóðnum verði 40 til 60 milljónir króna á ári og verður það til að styðja margvísleg líknar- og velferðarmál barna auk menningar og listar. 16.6.2005 00:01
Snyrtileg höfuðföt á Ascot Það er höfuðmál að vera glæsilegur til höfuðsins á konunglegu Ascot-veðreiðunum í Bretlandi en þær standa nú sem hæst. Það þykir að vísu reginhneyksli að aðallinn sem sækir þessar veðreiðar heim þurfi nú að fara alla leið til York til að vera við þær og hattatískan virðist ekki hafa batnað við flutningana. Hattarnir gætu þó komið að góðum notum því að í gær var veðrið heldur nöturlegt: rok og rigning. 16.6.2005 00:01
Sameining dæmd lögleg Sveitarstjórn Norður-Héraðs fór að lögum þegar sameining sveitarfélagsins Fellahrepps og Austur-Héraðs stóð fyrir dyrum og því hafnaði Hæstiréttur í gær kröfu átta einstaklinga sem kröfðust þess að staðfesting Félagsmálaráðuneytisins á sameiningunni væri dæmd ógild. 16.6.2005 00:01
Samherji styrkir Stöðvarfjörð Samherji hefur ákveðið að leggja tuttugu milljónir í uppbyggingu smærri fyrirtækja á Stöðvarfirði. Fyrsta september næstkomandi munu 32 Stöðfirðingar missa vinnu sína hjá Samherja þegar fyrirtækið lokar frystihúsi sínu á staðnum. 16.6.2005 00:01
Brutu lögin í góðri trú Héraðsdómur Suðurlands sýknaði í gær Humarvinnsluna í Þorlákshöfn fyrir brot á lögum um stjórn fiskveiða. Framkvæmdastjórinn sagðist hafa brotið lögin fyrir mistök, en hann hefði verið nýbyrjaður í útgerð. Átti brotið sér stað sumarið 2003. 16.6.2005 00:01
Eignin 34 en ekki 25 prósent Ríkisendurskoðandi gat ekki veitt fullnægjandi svör um eignarhald venslamanna forsætisráðherra í Ketillaugu ehf. og eign félagsins í Skinney Þinganesi á fundi fjárlaganefndar í gær. 16.6.2005 00:01
Þungur rekstur skóla og sendiráða Ráðuneyti utanríkismála og landbúnaðarmála fóru um og yfir tíu prósent fram úr fjárheimildum á síðasta ári samkvæmt bráðabirgðayfirliti fjármálaráðuneytisins, samtals um 550 milljónir króna. 16.6.2005 00:01
Ríkisendurskoðandi lauk rannsókn Ríkisendurskoðandi lauk nú undir kvöld endurskoðun sinni á hæfi forsætisráðherra varðandi sölu ríkisbankanna eftir að hafa fengið enn eitt atriðið til úrlausnar í dag. Nýjar upplýsingar, sem lagðar voru fram á fundi fjárlaganefndar Alþingis, bentu til að eignarhlutur Halldórs Ásgrímssonar og fjölskyldu hans í fyrirtækjum, sem tengdust bankasölunni, væri stærri en gert var ráð fyrir í fyrri könnun Ríkisendurskoðanda. 16.6.2005 00:01
Holræsagjald ekki lagt niður Dælustöðin í Gufunesi er tilbúin og þar með lýkur hreinsun strandlengju borgarinnar af skólpi. Holræsagjaldið verður samt ekki fellt niður, en því var ætlað að standa straum af þessum framkvæmdum. 16.6.2005 00:01
Fáir mótmæltu varðhaldi yfir Gill Fáir sinntu því kalli að mótmæla gæsluvarðahaldi yfir Paul Gill við dómsmálaráðuneytið í dag. Gill er einn þremenninganna sem skvettu grænu skyri á ráðstefnugesti á Nordica-hóteli og sá eini sem situr í gæsluvarðhaldi vegna verknaðarins. 16.6.2005 00:01
Fjárdráttur kærður til lögreglu Lögreglu verður sent fjárdráttarmál starfsmanns Reykjavíkurborgar til rannsóknar komi í ljós við athugun að hann hafi dregið sér fé frá geðsjúkum. 16.6.2005 00:01
Gerð Kárahnjúkastíflu hálfnuð Gerð Kárahnjúkastíflu, stærsta mannvirkis Íslands, er nú hálfnuð og er endanleg mynd komin á hluta stíflunnar. Eftirlitsaðilar segja verktakann kominn yfir erfiðasta hjallan og fram undan sé beinn og breiður vegur. 16.6.2005 00:01
Svartsýni á árangur Við upphaf tveggja daga leiðtogafundar Evrópusambandsins í Brussel í gær kallaði Jacques Chirac Frakklandsforseti eftir því að efnt verði til sérstaks leiðtogafundar aðildarríkjanna 25 um framtíð sambandsins. "Þetta er einn erfiðasti leiðtogafundur sem við höfum nokkru sinni haldið," sagði Jean Asselborn, utanríkisráðherra Lúxemborgar. 16.6.2005 00:01
Heppin amma Donna Goeppert, 55 ára gömul amma í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum, vann eina milljón dollara, andvirði um 65 milljóna króna, í lottói í vikunni. Það væri ekki sérstaklega í frásögur færandi nema vegna þess að hún hafði áður unnið milljón dollara hámarksvinninginn. 16.6.2005 00:01
Segir bin Laden ekki í Afganistan Sendiherra Bandaríkjanna í Afganistan, Zalmay Khalilzad, fullyrti í gær að hvorki Osama bin Laden né fyrrverandi talibanaleiðtoginn Mullah Omar væru í landinu. 16.6.2005 00:01
Danir styðja afnám hvalveiðibanns Eina leiðin til að vernda hvali er að afnema hið algera bann við veiðum í atvinnuskyni sem verið hefur í gildi frá því árið 1986. Þetta hefur danska blaðið Politiken eftir Per Stig Møller, utanríkisráðherra Danmerkur. 16.6.2005 00:01
Gagnrýna ESB fyrir Hamas-tengsl Ísraelsk stjórnvöld sögðust í gær hafa lagt inn formleg mótmæli hjá Evrópusambandinu gegn auknum samskiptum þeirra við hin herskáu Hamas-samtök Palestínumanna. Talsmenn Hamas staðfestu að tengsl við erindreka ESB færust í aukana. 16.6.2005 00:01
Hyggjast sniðganga kosningar Íranar hyggjast margir hverjir sniðganga kosningar á morgun þar sem þeir vilja breytingar í landinu. Þeir eru hins vegar ekki sammála um hvaða breytingar. Hver sem verður kosinn munu harðlínumenn eftir sem áður ráða mestu. 16.6.2005 00:01
Samið við súnní-araba Sex bandarískir hermenn féllu í sprengju-og skotárásum í vesturhluta Íraks í gær og minnst átta írakskir lögreglumenn létu lífið í sjálfmorðs-bílsprengjuárás nærri Bagdadflugvelli. Ofbeldisverkin eru talinn liður í baráttu uppreisnarmanna gegn því að nýju stjórnkerfi Íraks takist að festa sig í sessi. 16.6.2005 00:01
Lengri frestur á stafræn vegabréf Bandarísk yfirvöld hafa ákveðið að gefa borgurum 27 landa sem hafa mátt ferðast til Bandaríkjanna án vegabréfsáritunar, þar á meðal Íslands, eins árs lengri frest til að verða sér úti um vegabréf sem uppfylla nýjustu öryggiskröfur. 16.6.2005 00:01
Gott veður á þjóðhátíðardaginn Það er þjóðsaga á Íslandi að það sé alltaf rigning á 17. júní en þann dag árið 1911 var glampandi sól um allt land og hiti 8-15 stig, hlýjast í höfuðborginni. Þannig verður það einnig á morgun. 16.6.2005 00:01
Nýtt síldarævintýri í uppsiglingu? Munum við aftur upplifa síldarævintýri eins og í gamla daga þar sem ungar stúlkur og piltar flykktust þúsundum saman til Norður- og Austurlands til að vinna í síld? Endurkoma norsk-íslensku síldarinnar inn í íslenska lögsögu vekur slíkar spurningar. 16.6.2005 00:01
Mikil vatnsnotkun í Reykjavík Meðalvatnsnotkun á höfuðborgarsvæðinu hefur vaxið gríðarlega að undanförnu vegna þurrka, samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitu Reykjavíkur. Hefur hún farið upp í 85.630 þúsund tonn á sólarhring en er í eðlilegu árferði 47.520 þúsund tonn á sólarhring. 16.6.2005 00:01
Sjóræningjaskip á karfaslóð Nokkur skip sáust í eftirlitsflugi TF-SYN, flugvélar Landhelgisgæslunnar, á karfaslóð á Reykjaneshrygg utan íslenskrar lögsögu í gær. 16.6.2005 00:01
Skutu barn til bana Fjórir grímuklæddir byssumenn tóku tugi barna í gíslingu í alþjóðlegum skóla nærri Ankor Wat hofunum í Kambódíu í gær. Mennirnir skutu eitt barnið, þriggja ára gamlan kanadískan strák til bana því hann grét of mikið. 16.6.2005 00:01
Páfi vill sátt við aðra kristna Samuel Kobia, leiðtogi Heimsráðs kirkja, lýsti því yfir í gær á fundi með páfa að hann vildi sættast við rómversk-kaþólsku kirkjuna og auka sameiginlegan skilning. Benedikt sextándi páfi tók vel í umleitanir hans um að bæta sambandið. 16.6.2005 00:01
Vísitala fasteignaverðs hækkar enn Vísitala fasteignaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 3,8 prósentustig í maí og heldur því áfram að hækka. 16.6.2005 00:01
Miklar framkvæmdir í Leifsstöð Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar að undanförnu og í dag var opnuð ný komuverslun Fríhafnarinnar. 16.6.2005 00:01
Arftaki Concorde Frakkar og Japanir hafa hafið samstarf um þróun á nýrri háhraðaþotu sem gæti tekið við hlutverki Concorde-þotanna sem lagt var fyrir fullt og allt í fyrra. Fyrirtæki frá báðum löndum hafa skuldbundið sig til að verja samtals 1,84 milljónum Bandaríkjadala árlega næstu þrjú ár til að þróa hugmyndina. 16.6.2005 00:01
Deep Throat gerir útgáfusamning Mark Felt, maðurinn sem nýverið gekkst við því að vera hinn svokallaði "Depp Throat" í Watergatemálinu, hefur nú selt Public Affairs útgáfufyrirtækinu réttinn á bæði ævisögu sinni og því að gera kvikmynd um líf sitt. 16.6.2005 00:01
Kasparov gagnrýnir lögreglu Garrí Kasparov, fyrrverandi heimsmeistari í skák, hefur gagnrýnt rússnesku lögregluna harðlega fyrir að hafa ráðist að mótmælendum með ofbeldi við réttarhöldin yfir Mikhail Khodorkovsky. 16.6.2005 00:01
Danir styðja afnám hvalveiðibanns Eina leiðin til að vernda hvali er að afnema hið algera bann við veiðum í atvinnuskyni sem verið hefur í gildi frá því árið 1986. Þetta hefur danska blaðið Politiken eftir Per Stig Møller, utanríkisráðherra Danmerkur. 16.6.2005 00:01
Koizumi hættir á næsta ári Junichiro Koizumi, forsætisráðherra Japans, ætlar að hætta í september á næsta ári. Kouzumi tilkynnti þetta í dag og sagðist ætla að segja af sér um leið og formennskutími hans í LDP-flokknum rennur út. Koizumi komst til valda árið 2001 þegar hann var kjörinn með miklum meirihluta en eitt af loforðum hans var að knýja fram endurbætur á flokknum, sem verið hafa lítt áberandi. 15.6.2005 00:01
Mótmælendur enn í haldi Þrír eru enn í haldi lögreglunnar vegna mótmælaaðgerða á Nordica-hóteli í gær. Mótmælendurnir ruddust inn á alþjóðlega ráðstefnu um álframleiðslu sem haldin var á hótelinu og skvettu grænleitum vökva yfir ráðstefnugestu. Vökvinn fór einnig á innréttingar og tölvubúnað. Tveir mótmælendanna eru Íslendingar, en sá þriðji Englendingur. Þau verða yfirheyrð frekar með morgninum. 15.6.2005 00:01
Sótt gegn uppreisnarmönnum Sjö afganskir uppreisnarmenn hafa verið drepnir og tíu handteknir í áhlaupi Bandaríkjahers og afghanskra öryggissveita á vígi uppreisnarmanna nærri borginni Kandahar. Mjög róstursamt hefur verið í Afghanistan síðan í mars eftir nokkuð rólega tíð í marga mánuði þar á undan. 15.6.2005 00:01
Allharður skjálfti í Kaliforníu Jarðskjálfti upp á sjö á Richter varð skammt undan ströndum Kaliforníu í Bandaríkjunum í nótt. Hvorki hafa borist fregnir af skaða á fólki eða skemmdum á mannvirkjum. Strax í kjölfar skjálftans var gefin út flóðbylgjuviðvörun fyrir svæðið allt frá Mexikóflóa og alla leið að landamærum Kanada en viðvörunin var svo afturkölluð nú í morgunsárið. 15.6.2005 00:01
Talinn hafa ekið drukkinn á stöð Það fór líklega öðruvísi en til stóð hjá ökumanni sem kom á lögreglustöðina í Keflavík í gærkvöldi. Hann mætti á stöðina í þeim tilgangi að láta geyma fyrir sig bíllyklana væntanlega af því að hann hefur metið stöðuna sem svo að hann ætti ekki að aka. Lögreglan virðist hafa verið á sama máli því umræddur maður var handtekinn grunaður um að hafa ekið bíl sínum á stöðina undir áhrifum áfengis. 15.6.2005 00:01
Ungmenni fá rétt til nefndarsetu Bæjarstjórn Hafnarfjarðar ákvað í gær að veita ungmennum rétt til nefndarsetu á vegum bæjarins. Bæjarstjórnin samþykkti að fulltrúi Ungmennaráðs Hafnarfjarðar ætti rétt til setu á fundum íþrótta- og tómstundanefndar bæjarins. Sá verður áheyrnarfulltrúi en með tillögurétt og málfrelsi. 15.6.2005 00:01
Vill bíða með atkvæðagreiðslur Forseti Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins segir rétt að bíða með frekari atkvæðagreiðslu um stjórnarskrá sambandsins eftir að Hollendingar og Frakkar höfnuðu henni. Jose Manuel Barroso segir að stjórnarskráin sé alls ekki endanlega búin að vera en hins vegar sé skynsamast að bíða með frekari atkvæðagreiðslur að sinni. 15.6.2005 00:01
Írak ekki öruggara en fyrir innrás Írak er ekki öruggara en árið 2003 þegar ráðist var inn í landið, segir Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Rumsfeld viðurkenndi í viðtali við sjónvarpsstöðina <em>BBC</em> í gærkvöldi að öryggi óbreyttra borgara væri síst meira nú en fyrir innrásina. Það mætti ekki síst rekja til þess að stjórnvöld í Sýrlandi og Íran gerðu ekki nóg til þess að loka landamærunum að Írak fyrir uppreisnarmönnum. 15.6.2005 00:01
Ármann tekur við af Gunnsteini Ármann Kr. Ólafsson var kosinn forseti bæjarstjórnar Kópavogs í gærkvöldi og tekur hann við embættinu af Gunnsteini Sigurðssyni. Aðrir í bæjarráði þessa næststærsta bæjar landsins eru Gunnar I. Birgisson, Halla Halldórsdóttir, Hansína Björgvinsdóttir, Ómar Stefánsson og Flosi Eiríksson. 15.6.2005 00:01
Vinnuvél stórskemmdist í bruna Vinnuvél stórskemmdist eða eyðilagðist í bruna í Kópavogi í gær. Tilkynnt var um eldinn seint í gærkvöldi en vinnuvélin var við Vatnsenda. Engan sakaði. 15.6.2005 00:01
Réðst á tólf ára dreng 44 ára vörubílsstjóri, Hreggviður Heiðarsson, réðst á tvo unga drengi, tólf og þrettán ára síðasta laugardagskvöld. Hluti árásarinnar var tekin upp á GSM síma og hefur DV myndskeiðið undir höndum. Ennfremur má sjá myndskeiðið hér á Vísi. 15.6.2005 00:01