Fleiri fréttir

Mótmæla virkjun áa fyrir álbræðslu

Náttúruverndarsamtök Íslands mótæla harðlega áformum um virkjun Jökulsánna í Skagafirði og Skjálfandafljóts í þágu álbræðslu. Ályktun þessa efnis var samþykkt á aðalfundi félagsins í gær. Þar segir einnig að álver á Norðurlandi krefjist gífurlegrar orku og sé hætt við að horft verði til virkjunar Jökulsár á Fjöllum þrátt fyrir gefin fyrirheit um að hún ásamt tilheyrandi vatnasviði verði friðlýst innan þjóðgarðs.

Bin Laden sagður við hestaheilsu

Osama bin Laden er við hestaheilsu að sögn háttsetts talibana. Sá vísar sögusögnum um heilsubrest leiðtoga al-Qaida á bug og segir þær ekki eiga við rök að styðjast. Mullah Akhtar Usmani sagði einnig að leiðtogi talbana, Mullah Mohammed Omar, væri hraustur og stýrði aðgerðum talibana í Afganistan.

Fresta gildistöku vegabréfa

Bandaríkjastjórn ætlar að veita 27 Evrópuríkjum enn lengri frest til að ganga frá rafrænum vegabréfum með stafrænum myndum og fingrafari. Ísland er meðal ríkjanna en borgarar þeirra þurfa ekki vegabréfsáritun hyggist þeir dvelja skemur en þrjá mánuði í Bandaríkjunum. Mörg ríkjanna hafa greint bandarískum yfirvöldum frá því að þau sjái sé ekki fært að uppfylla öll skilyrðin fyrir lok október næstkomandi þegar nýjustu reglurnar eiga að taka gildi.

Víkurfréttavefur tíu ára í dag

Vefur <em>Víkurfrétta</em> er tíu ára í dag en þetta er líklegasta elsti fréttavefur landsins af þessu tagi. <em>Víkurfréttir</em> voru fyrsti íslenski fréttamiðillinn sem bauð lesendum ókeypis aðgang að fréttaefni á Netinu. Á upphafsárunum var efni sett vikulega á vefinn en fyrir rúmum fimm árum var byrjað að setja efni inn á hann daglega og oft á dag.

Ástandið hafi ekkert batnað í Írak

Ástandið í Írak hefur ekkert batnað frá því að Saddam Hussein var steypt af stóli, að mati Donalds Rumsfelds, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna.

Rússi enn á gjörgæsludeild

Rússneski sjómaðurinn, sem Landhelgisgæslan sótti í togarann Ostrovet frá Dóminíku í fyrrinótt, liggur enn á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi en er þó ekki í lífshættu. Maðurinn hlaut stungusár á kvið við fiskvinnslu um borð og fer ræðismaður sendiráðs Rússlands á Íslandi fyrir máli hans.

Sunny Jane á leið til Kalíngrad

Flutningaskipið Sunny Jane, sem tók við afla úr svokölluðum sjóræningjaskipum suður af Íslandi, er nú á leið til Kalíngrad sem tilheyrir Rússlandi með aflann. Skipinu var neitað um löndun í Hollandi. Síðasta föstudag tók skipið olíu og kost í Hollandi og lét úr höfn áleiðis til Kalíngrad.

Slíta öllu samstarfi við ráðherra

Kennarasambandið hefur slitið öllu samstarfi við menntamálaráðherra um að stytta námstíma til stúdentsprófs. Formaður Kennarasambandsins segir að með þessu sé verið að mótmæla afskiptaleysi ráðherra sem hvorki ræði við kennara né svari ósk þeirra um viðræður vegna áformanna.

Sakfelldir fyrir skattsvik

Fjórir menn voru í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdir fyrir að standa ekki skil á tugmilljónum króna í virðisaukaskatt og staðgreiðslu opinberra gjalda. Þrír menn úr Landssímamálinu voru sakfelldir en einn þeirra, Sveinbjörn Kristjánsson, var sýknaður af ákærum.

Þvær hendur sínar af mótmælanda

Náttúruvaktin þvær hendur sínar af Ólafi Páli Sigurðssyni, sem er einn þriggja mótmælenda, sem skvettu grænleitum vökva á ráðstefnugesti á álráðstefnu á Nordica-hóteli í gær. Þremenningarnir voru enn í haldi lögreglu skömmu fyrir hádegisfréttir.

Ætlar ekki að selja flugvallarland

Samgönguráðherra ætlar ekki að selja land ríkisins sem Reykjavíkurflugvöllur er á og byggja nýja flugvöll verða þar með við áskorun flokksbræðra sinna á Akureyri. Þá telur hann ekki tímabært að gera hálendisveg á meðan enn er margt óunnið við hringveginn.

Vísar ásökunum kennara á bug

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra vísar því á bug að hún hafi hvorki viljað tala við kennara né hlustað á sjónarmið þeirra vegna áforma um að stytta nám til stúdentsprófs. Hún segir það slæmt ef forysta kennara vilji ekki vera með í því umfangsmikla ferli að endurskoða öll skólastigin því um sé að ræða mikla hagsmuni til framtíðar.

Farið fram á gæsluvarðhald

Farið hefur verið fram á gæsluvarðhald yfir Paul Gill, breska atvinnumótmælandanum, sem var einn þremenninganna sem mótmæltu á álráðstefnu á Nordica-hóteli í gær. Náttúruvaktin þvær hendur sínar af Ólafi Páli Sigurðssyni, einum mótmælendanna, þrátt fyrir að fram komi á heimasíðu samtakanna að þegar hún varð að fullgildum samtökum í október síðastliðnum gegndi Ólafur Páll Sigurðsson starfi framkvæmdastjóra þar.

Vilja styrkja háskóla enn frekar

Tímamót urðu í sögu háskólastigsins í morgun þegar rektorar allra háskóla landsins undirrituðu sameiginlega yfirlýsingu um að styrkja háskólana enn frekar og standa vörð um akademískt frelsi.

Samið um vátryggingavernd

Fulltrúar Hrafnistu, Sjómannadagsráð og fleiri aðilar þeim tengdir hafa skrifað undir samning við Tryggingamiðstöðina hf. um víðtæka vátryggingavernd. Nær hún til ábyrgðartrygginga, eignatrygginga, slysatrygginga og ökutækjatrygginga og er m.a. samið um tryggingar á yfir tuttugu þúsund fermetrum af fasteignum og tryggingar fleiri en eitt þúsund starfsmanna.

Önnur mannskæð árás í Írak

Að minnsta kosti tíu létust og 29 særðust í bílsprengjuárás á hóp írakskra lögreglumannna sem voru á eftirlitsferð um Suður-Bagdad í dag. Meðal hinna látnu voru bæði almennir borgarar og lögreglumenn og segja yfirvöld í borginni að sprengingin hafi verið svo öflug að stór gígur hafi myndast eftir hana og þá eyðilögðust einnig nokkrir bílar.

95% sóttu um framhaldsskólavist

95 prósent nemenda úr 10. bekk, eða 4.231 nemandi, sóttu um framhaldsskólavist í ár en aldrei hafa hlutfallslega jafnmargir sótt um skólavist í framhaldsskólum úr einum árgangi. Rafrænni innritun í framhaldsskóla lauk á miðnætti í nótt en þetta var í fyrsta sinn sem nemendum 10. bekkjar gafst færi á að sækja um á Netinu.

Hersveitir frelsa ástralskan gísl

Írakskar og bandarískar hersveitir hafa frelsað Ástralann Douglas Wood sem hefur verið haldi írakskra uppreisnarmanna í sex vikur. Frá þessu greindi John Howard, forsætisráðherra Ástralíu, á ástralska þinginu í dag. Ekki er ljóst hvort um var að ræða skipulagða aðgerð til að frelsa hann eða hvort hann hafi fundist í áhlaupi hersveita á aðsetur uppreisnarmanna en Howard sagði að hann nyti nú verndar ástralskra hersins.

Kanna auglýsingar Ego

Áfengis- og vímuvarnadeild Lýðheilsustofnunnar hyggst kanna hvort auglýsingar þær sem uppi hafa verið á bensínstöðvum Ego síðustu daga brjóti í bága við áfengis- og tóbaksvarnarlög.

Fundu frænku jarðar

Frænka jarðarinnar er fundin. Pláneta, sem líkist jörðinni mjög, hefur fundist og það alls ekki langt frá sólkerfi okkar.

Hlakka til að byrja að ganga

Á mánudag hefst Íslandsganga þeirra Bjarka Birgissonar og Guðbrands Einarssonar hringinn í kringum landið. Þeir félagar ganga undir kjörorðinu "Haltur leiðir blindan, til betra lífs" og vilja þeir vekja athygli á aðstæðum fatlaðra á Íslandi.

Dótturfyrirtæki Össurar fær bætur

Bandaríska stoðtækjafyrirtækið Bledsoe Brace Systems hefur verið dæmt af alríkisdómstól í Seattle í Washington-ríki til að greiða dótturfélagi stoðtækjafyrirtækisins Össurar, Generation Orthotics, tæplega sjö milljónir bandaríkjadala, jafnvirði 455 milljóna íslenskra króna í bætur, fyrir brot á einkaleyfum fyrirtækisins.

Slegist um garðsláttinn

Samkeppnin í garðslættinum er hörð og heyrst hefur af undirboðum á markaðnum. Á meðan sumir óttast ástandið eru aðrir rólegir og benda á að nóg sé af görðum. </font /></b />

Vigfús veiðir lúðu

Vigfús Vigfússon á Dögg SF landað 2-3 tonnum af lúðu á þriðjudag, að því er fram kemur á fréttavefnum horn.is. Lúðurnar ku vera af öllum stærðum og mældust þær stærstu um tveir metrar að lengd. Samkvæmt horn.is lagði Vigfús lúðulínuna við Ingólfshöfðann og verður aflinn seldur ferskur til Englands.

Í gæsluvarðhaldi fram á mánudag

Paul Gill, breski atvinnumótmælandinn, sem var einn þremenninganna, sem mótmæltu álráðstefnu á Nordica-hóteli í gær, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni fram á mánudag. Hinum tveimur mótmælendunum var sleppt eftir yfirheyrslur í dag.

Frakkar sakna frankans

Þrír af hverjum fimm Frökkum sakna frankans, gjaldmiðilsins sem evran leysti af hólmi fyrir þremur árum. Þetta er niðurstaða skoðanakönnunar sem gerð var fyrir franska tímaritið <em>Valeurs Actuelles</em> og undirstrikar frekar afstöðu margra Frakka til samstarfs innan Evrópusambandsins, en eins og kunnugt er felldu Frakkar stjórnarskrá sambandsins í þjóðaratkvæðagreiðslu á dögunum.

Allt að 42 daga bið eftir einkunn

Þrátt fyrir reglur Háskóla Íslands um að kennarar hafi að hámarki þrjár vikur til að fara yfir prófin og skila einkunnum eru dæmi um allt að 42 dagar líði frá prófdegi, eða einn og hálfur mánuður án þess að einkunn hafi verið skilað. Flestum einkunnum hefur þegar verið skilað en sjö áfangar eru nú í vanskilum að því er greint er frá á vefnum prof.is.

Markús og Guðmundur halda utan

Utanríkisráðuneytið hefur í dag staðfest að Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri og Guðmundur Árni Stefánsson, þingmaður Samfylkingarinnar, taki við sendiherrastöðum - eins og fréttastofa Stöðvar 2 og Bylgjunnar greindi frá fyrir þremur vikum. Þá könnuðust hvorki Guðmundur Árni né Markús við að þetta stæði til og sögðust „koma af fjöllum“.

Fá ekki greiðslur úr ríkissjóði

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag íslenska ríkið af kröfum bænda á bænum Hjallalandi í Sveinsstaðahreppi í Austur-Húnavatnssýslu, en þeir vildu að viðurkennt yrði með dómi að þeir ættu rétt á greiðslum úr ríkissjóði sem handhafar beingreiðslna sauðfjárbúsins á bænum. Þeir töldu sig eiga rétt á skaðabótagreiðslum úr ríkissjóði vegna breytinga á lögum um framleiðslu, verðlagningu og sölu á landbúnaðarafurðum sem tóku gildi árið 2000.

Vifta bilar á Grundartanga

Mikinn reyk leggur þessa stundina frá Járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga. Að sögn Ingimundar Birnis framleiðslustjóra bilaði ein vifta fyrir filter í ofni þrjú í verksmiðjunni en ekki er vitað hvað olli biluninni. Hann segir að unnið sé að því að koma viftunni í lag.

UNICEF aftur til starfa í Sómalíu

Starfsmenn Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna sneru aftur til starfa í norðausturhluta Sómalíu í dag, þremur vikum eftir að þeir höfðu fengið líflátshótanir. Í tilkynningu frá barnahjálpinni segir hún hafi leyst deilur við yfirvöld í Puntland-héraði og að unnið verði sameiginlega að velferð barna í héraðinu. Barnhjálpin lokaði í síðasta mánuði skrifstofum sínum í héraðinu eftir að starfsmenn hennar höfðu fengið nokkrar líflátshótanir, en róstusamt hefur verið í landinu í 14 ár.

Reynir aftur við nektargöngu

Einn frægasti strípalingur Bretlandseyja, Stephen Gough, sem reyndi fyrir rúmu ári að ganga nakinn frá syðsta odda Bretlands til þess nyrsta, hefur aftur komist í fréttirnar. Hann hyggst nú reyna í annað sinn að fara þessa 1400 kílómetra leið og þetta sinn með kærustu sinni.

Bíður með að staðfesta sáttmála

Stuðningsmenn stjórnarskár Evrópusambandsins urðu fyrir enn einu áfallinu í dag þegar Horst Köhler, forseti Þýskalands, tilkynnti að hann myndi ekki undirrita stjórnarskrársáttmálann fyrr en dómstólar í Þýskalandi hefðu staðfest að hann samræmdist stjórnarskrá Þýskalands. Bæði neðri og efri deild þýska þingsins samþykktu stjórnarskrársáttmálann í síðasta mánuði en forsetinn þarf að staðfesta hann með undirskrift.

Grunaður um kynferðislegt ofbeldi

Reykvíkingur á fertugsaldri er grunaður um að hafa beitt fjórar ungar stúlkur kynferðislegu ofbeldi. Á heimili mannsins fundust tugir barnaklámsmynda í tölvu hans.

Býr sig undir herskáar aðgerðir

Landsvirkjun býr sig undir herskáar mótmælaaðgerðir við Kárahnjúka í næstu viku eftir uppákomuna á Nordica-hóteli í gær. Þremenningarnir sem ruddust inn á álráðstefnu á hótelinu og slettu grænu gumsi gætu átt yfir höfði sér allt að tveggja ára fangelsi.

Gagnrýnd fyrir að nýta þotu Baugs

Þingmenn gagnrýna að Dorrit Moussaieff, forsetafrú, hafi þegið boð um að ferðast með einkaþotu Baugs til að vera við tískusýningu Mosaic Fashion Group.

Utanríkisþjónustan vex enn

Utanríkisþjónustan vex og vex. Tveir uppgjafapólitíkusar bættust í dag í hóp sendiherra og virðist sem nægt rúm sé innan þjónustunnar til að finna fleiri samastað.

Fulltrúa Samfylkingar vanti enn

Nefnd um endurskipulagningu lagalegrar umgjarðar um stjórnmálastarfsemi á Íslandi hefur ekki tekið til starfa þar sem Samfylkingin hefur enn ekki tilnefnt fulltrúa í hana. Forsætisráðuneytið segir í svari við fyrirspurn fréttastofu Stöðvar 2 að aðrir stjórnmálaflokkar hafi tilnefnt fulltrúa sína áður en fresturinn til þess rann út fyrir rúmum mánuði. Ítrekað hafi verið við Samfylkinguna að hún tilnefni tvo menn í nefndina.

Vöxtur í flugi í Miðausturlöndum

Það hljómar nánast ótrúlega að í heimshluta sem einkennist af átökum og ólgu sé blússandi uppgangur í flugbransanum og það á sama tíma og stóru, vestræna flugfélögin ramba á barmi gjaldþrots.

Ung kona kærði kynferðisbrot

Lögreglan í Keflavík rannsakar kynferðisbrot sem átti sér þar stað í heimahúsi um helgina. Kona um tvítugt hefur kært mann á svipuðum aldri fyrir að nýta sér ölvunarástand hennar eftir gleðskap sem stóð á laugardagskvöld og fram á aðfaranótt sunnudags.

Vatn lak inn í kjallara

Vatnstjón varð í húsi við Fríkirkjuveg í Reykjavík seint á þriðjudagskvöld, en þar hafði garðslanga verið látin ofan í kjallaratröppur þar sem niðurfall var stíflað. Að sögn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins hlaust af þessu nokkuð tjón þegar vatnsyfirborð hækkaði og vatn lak inn í kjallarann.

Handteknir fengu bætur

Sættir náðust fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær í máli þriggja ungra manna sem sæta máttu handtöku þegar þeir mótmæltu sumarið 2002 við heimsókn Jiang Zemin, forseta Kína, framgöngu kínverskra stjórnvalda í garð Falun Gong hreyfingarinnar.

Viðbót við psoriasismeðferð

Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra og Eðvarð Júlíusson, stjórnarformaður Bláa Lónsins, afhjúpuðu við opnun lækningalinda Bláa lónsins á föstudag áletraða hraunhellu sem tákna á upphaf framkvæmda við lindina.

Sektir upp á tæpar 100 milljónir

Fjórir forsvarsmenn Lífsstíls ehf. og dótturfyrirtækja voru í gær dæmdir til greiðslu sekta upp á samtals 96,6 milljónir króna. Til vara voru þeim gerðir fangelsisdómar frá 3 upp í 12 mánuði. Fyrrum aðalféhirðir Landssímans var fundinn sýkn saka. Dómar þriggja eru til refsiauka í Landssímamálinu.

Sjá næstu 50 fréttir