Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ung kona kærði kynferðisbrot Lögreglan í Keflavík rannsakar kynferðisbrot sem átti sér þar stað í heimahúsi um helgina. Kona um tvítugt hefur kært mann á svipuðum aldri fyrir að nýta sér ölvunarástand hennar eftir gleðskap sem stóð á laugardagskvöld og fram á aðfaranótt sunnudags. 15.6.2005 00:01
Vatn lak inn í kjallara Vatnstjón varð í húsi við Fríkirkjuveg í Reykjavík seint á þriðjudagskvöld, en þar hafði garðslanga verið látin ofan í kjallaratröppur þar sem niðurfall var stíflað. Að sögn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins hlaust af þessu nokkuð tjón þegar vatnsyfirborð hækkaði og vatn lak inn í kjallarann. 15.6.2005 00:01
Handteknir fengu bætur Sættir náðust fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær í máli þriggja ungra manna sem sæta máttu handtöku þegar þeir mótmæltu sumarið 2002 við heimsókn Jiang Zemin, forseta Kína, framgöngu kínverskra stjórnvalda í garð Falun Gong hreyfingarinnar. 15.6.2005 00:01
Viðbót við psoriasismeðferð Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra og Eðvarð Júlíusson, stjórnarformaður Bláa Lónsins, afhjúpuðu við opnun lækningalinda Bláa lónsins á föstudag áletraða hraunhellu sem tákna á upphaf framkvæmda við lindina. 15.6.2005 00:01
Sektir upp á tæpar 100 milljónir Fjórir forsvarsmenn Lífsstíls ehf. og dótturfyrirtækja voru í gær dæmdir til greiðslu sekta upp á samtals 96,6 milljónir króna. Til vara voru þeim gerðir fangelsisdómar frá 3 upp í 12 mánuði. Fyrrum aðalféhirðir Landssímans var fundinn sýkn saka. Dómar þriggja eru til refsiauka í Landssímamálinu. 15.6.2005 00:01
Ráðuneyti og lögregla semja Björn Bjarnason dómsmálaráðherra og Böðvar Bragason lögreglustjóri skrifuðu síðdegis í gær undir samning um árangursstjórnum og markmið lögreglunnar í Reykjavík. Lögregluembættið kynnti einnig stefnumótun ársins og kynnt var ársskýrsla lögreglunnar fyrir árið 2004. 15.6.2005 00:01
Dæmdir fyrir stórfelld skattsvik Héraðsdómur Reykjavíkur sakfelldi í dag þrjá af fjórum sakborningum í Landssímamálinu fyrir stórfelld skattsvik. Sveinbjörn Kristjánsson, fyrrverandi aðalféhirðir Landssímans, var sýknaður. 15.6.2005 00:01
Glímt við verðbólguna Alþjóðlegar stofnanir á borð við OECD og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn hafa undanfarið varað við því að hagkerfi Íslands sé að ofhitna. Einkaneysla landsmanna eykst jafnt og þétt, þó svo að launin okkar hækki ekki að sama skapi, krónan er sterk í samanburði við aðra gjaldmiðla og Seðlabankinn keppist við að hækka stýrivexti til að sporna við verðbólgu. 15.6.2005 00:01
Guðmundur Árni til Svíþjóðar Aðspurður hvort hann hlakki ekki til að taka við nýju starfi segir Guðmundur Árni: "Mér líst prýðilega á Svíþjóð og það er heilmikil tilhlökkun í mér en auðvitað dálítill tregi líka. Ég er búinn að vera í pólitísku vafstri nú í 25 ár þannig að þetta er auðvitað mikil breyting. 15.6.2005 00:01
Vísar öllum ásökunum KÍ á bug Kennarasambandið hefur slitið öllu samstarfi við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra um að stytta námstíma til stúdentsprófs. Kennarar segja ráðherra sýna þeim lítilsvirðingu með því að ræða hvorki við þá né svara ósk um viðræður. Ráðherra vísar öllum ásökunum á bug. 15.6.2005 00:01
Misnotaði þriggja ára stúlku Reykvískur karlmaður á fertugsaldri sætir nú rannsókn vegna gruns um kynferðisleg brot á fjórum stúlkubörnum. Stúlkurnar voru á aldrinum þriggja til þrettán ára þegar brotin voru framin. Við rannsókn á heimili mannsins fundust tugir barnaklámmynda í tölvu hans. 15.6.2005 00:01
Hæfismat ekki til dómstóla Sigurður Líndal, fyrrverandi lagaprófessor, telur að Ríkisendurskoðun geti fjallað um vanhæfi. Hann segir að niðurstaða embættisins um hæfi forsætisáðherra hljóti að standa nema Alþingi ákveði annað. 15.6.2005 00:01
Tvöfalt fleiri í búðum en bæ Smíði álvers Alcoa í Reyðarfirði er komin á fulla ferð og fer starfsmannafjöldi á byggingarlóðinni hraðvaxandi með hverjum mánuði. Þegar framkvæmdirnar ná hámarki á næsta ári munu 1.500 manns búa í vinnubúðum við hliðina á 700 íbúum Reyðarfjarðar. 15.6.2005 00:01
Nýir sendiherrar Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri fer til starfa hjá utanríkisþjónustunni 1. september næstkomandi og verður sendiherra í Kanada með aðsetur í Ottawa. Guðmundur Árni Stefánsson þingmaður Samfylkingarinnar verður sendiherra í Stokkhólmi. 15.6.2005 00:01
Undarlegt mat á vanhæfi "Við ætlum að komast að því hjá ríkisendurskoðanda á fundi fjárlaganefndar í dag hvernig hann fari að því að draga vanhæfismörk við 26,3 prósenta eignaraðild forsætisráðherra og fjölskyldu hans," segir Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins. 15.6.2005 00:01
Hæfismat á minnisblaði "Meginatriði þessa máls er að aðeins hefur komið fram minnisblað Ríkisendurskoðunar um hugsanlegt vanhæfi forsætisráðherra í bankasölumálinu," segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar 15.6.2005 00:01
Konur skunda á Þingvallafund Sunnudaginn 19. júní verða níutíu ár liðin frá því að konur fengu kosningarétt og í tilefni af því ætla öll helstu kvenréttindasamtök landsins að efna til Þingvallafunds kvenna á sunnudaginn undir ákallinu "Skundum á Þingvöll og treystum vor heit." 15.6.2005 00:01
Vorleiðangri Hafró lokið Þann 1. júní síðastliðinn lauk árlegum vorleiðangri Hafrannsóknastofnunarinnar. Athuganir voru gerðar á 114 stöðum umhverfis landið. Helstu niðurstöðurnar voru að sjávarhiti væri hár og mikil selta sunnanlands og vestan, en hiti um meðallag og selta undir meðallagi norðan- og austanlands. Gróður var víðast hvar lítill en átumagn við landið var yfir langtímameðaltali á flestum rannsóknarstöðvum. 15.6.2005 00:01
Yfirlýsing allra Háskóla Rektorar allra háskóla á landinu undirrituðu sameiginlega yfirlýsingu um forsendur og frelsi háskóla. Samkvæmt henni er ein mikilvægasta skuldbinding háskóla sú að standa vörð um akademískt frelsi sem sé forsenda þess að háskólastarf þróist áfram. 15.6.2005 00:01
Vilja að nemendur geti valið land Námsmannahreyfingarnar á Íslandi hafa síðustu árin verið sammála um að Lánasjóður íslenskra námsmanna (LÍN) eigi að lána fyrir skólagjöldum í grunnnámi erlendis. Þetta segir Heiður Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka íslenskra námsmanna erlendis. 15.6.2005 00:01
Björgólfur segir konur gáfaðri Björgólfur Guðmundsson, formaður bankaráðs Landsbankans, fór á kostum þegar hann undirritaði styrktarsamning bankans vegna baráttuárs kvenna í gær. "Konur eru sýnilega betur gefnar en karlmenn," sagði hann. 15.6.2005 00:01
Silfur hafsins aftur á Íslandsmið Síldveiðiskip, hlaðin silfri hafsins, bíða í röðum eftir að landa á Norðfirði. Norsk-íslenska síldin er komin aftur á Íslandsmið og fæst hátt verð fyrir hana. Síldarvinnslan í Neskaupstað þrefaldar verðmætið með því að flaka hana til manneldis og dæmi eru um ævintýralega háar tekjur síldarsjómanna. 15.6.2005 00:01
Dró sér fé á vernduðu heimili Starfsmaður í félagslegri heimaþjónustu er talinn hafa dregið sér fé frá fjórum íbúum á vernduðu heimili í að minnsta kosti eitt ár. Starfsmaðurinn, sem hafði unnið lengi hjá borginni, var umsvifalaust leystur frá störfum þegar fjárdrátturinn kom í ljós. 15.6.2005 00:01
Fimm miljóna skemmdir Skemmdir í Nordica hóteli vegna mótmælendanna í fyrradag nema sennilega um 5-6 milljónum að sögn hótelstjóra. Bæði varð tjón á tölvubúnaði og innréttingum á hótelinu. Þrír einstaklingar slettu grænlitaðri súrmjólk yfir gesti á alþjóðlegri ráðstefnu um áliðnaðinn. 15.6.2005 00:01
Enn ósætti í Landakotsskóla Sjö kennarar í Landakotsskóla hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna tölvupósts sem stjórn skólans sendi til foreldra í fyrradag. "Okkur finnst enn og aftur að verið sé að slá ryki í augu nemenda og foreldra varðandi stöðu mála í skólanum. Við höfðum bundið vonir við að nýr formaður myndi bregðast við með það að leiðarljósi að höggva að rótum vandans," segir í yfirlýsingunni. "Því miður hafa þær vonir brugðist." 15.6.2005 00:01
Ný byggð við Elliðavatn Úthlutun á lóðarétti í íbúðabyggðinni í Þingum við suðvesturhluta Elliðavatns hófst fimmtudaginn 16. júní og er umsóknarfresturinn um hálfur mánuður. 15.6.2005 00:01
Klofningur sjaldan meiri í ESB Klofningur hefur sjaldan virst vera meiri í Evrópusambandinu en nú. Djúpstæður ágreiningur um árlegar endurgreiðslur sem Bretar fá úr sjóðum ESB, um niðurgreiðslur til franskra bænda, um stjórnarskrársáttmála sambandsins og veikt gengi evrunnar leggst allt á eitt um að varpa skugga á leiðtogafundinn sem hefst í Brussel í dag. 15.6.2005 00:01
Sextán handteknir á Spáni Spænska lögreglan upplýsti í gær að hún hefði handtekið sextán menn grunaða um tengsl við hryðjuverkahópa íslamskra öfgamanna. 15.6.2005 00:01
OPEC eykur framleiðsluna Ráðherrar OPEC, samtaka olíuútflutningsríkja, ákváðu í gær að auka framleiðslukvóta hráolíu um hálfa milljón fata á dag, með það fyrir augum að lækka heimsmarkaðsverð. Neikvæðra afleiðinga hás olíuverðs hefur í auknum mæli farið að gæta í alþjóðahagkerfinu að undanförnu. 15.6.2005 00:01
Ólæknandi heilaskaði staðfestur Krufning á Terri Schiavo hefur leitt í ljós að heilaskaði hennar var það mikill að bati var útilokaður. 15.6.2005 00:01
Samnorrænt bóluefni Heilbrigðisyfirvöld Norðurlanda ætla að kanna möguleika á að framleiða sameiginlega bóluefni gegn fuglaflensu. 15.6.2005 00:01
Nú er hún Snorrabúð stekkur Þau tímamót urðu í fjölmiðlasögu Bretlands í gær, að síðasta fjölmiðlafyrirtækið flutti frá Fleet Street sem í þrjúhundruð ár var aðsetur virtustu dagblaðanna sem gefin voru út í bresku höfuðborginni. 15.6.2005 00:01
Voru ekki að hafna ESB Franskir og hollenskir kjósendur voru ekki að hafna Evrópusambandinu er þeir greiddu atkvæði gegn stjórnarskrársáttmála Evrópusambandsins í þjóðaratkvæðagreiðslunum um síðustu mánaðamót. Að þessari niðurstöðu var komist í skoðanakönnun sem gerð var í löndunum tveimur. 15.6.2005 00:01
Forsjárlausum unglingum vísað frá Drykkjulæti, sóðaskapur og skemmdarverk hafa undanfarin sumur sett ljótan blett á tjaldstæðin á Akureyri. Um næstu helgi er von á fjölda gesta til bæjarins og fá forsjárlaus ungmenni undir 18 ára aldri ekki að tjalda á Akureyri. 15.6.2005 00:01
Kærður fyrir æluárás Bandarískur menntaskólanemi, sem kastaði upp á spænskukennarann sinn, hefur nú verið ákærður fyrir líkamsárás. 15.6.2005 00:01
Hundruð bíða eftir meðferð Samtals 380 offitusjúklingar eru nú á biðlista eftir meðferð á Reykjalundi. Að meðaltali eru þeir 90 prósentum yfir kjörþyngd og fara langflestir í aðgerð á Landspítala - háskólasjúkrahúsi. Þörfin á auknum fjármunum vegna stóraukinna afkasta á Reykjalundi er brýn. 15.6.2005 00:01
Samstarfi slitið til að fá fund Formaður Kennarasambandsins segir að tilgangurinn með samstarfsslitum við menntamálaráðuneytið hafi verið að vekja athygli á óviðunandi ástandi. Menntamálaráðherra ætlar að funda með kennaraforystunni eftir helgi. 15.6.2005 00:01
Segir bin Laden á lífi Akthar Usmani, háttsettur foringi talebana, sagði í viðtali sem birt var á pakistönsku einkasjónvarpsstöðinni Geo í gær að Osama bin Laden og talebanaleiðtoginn Mullah Omar væru báðir á lífi og við góða heilsu. 15.6.2005 00:01
Ástralskur gísl frelsaður Íraskir og bandarískir hermenn frelsuðu í gær ástralskan gísl sem hafði verið í haldi mannræningja í 47 daga. Þá fórust tugir Íraka í sjálfsmorðssprengjutilræðum. 15.6.2005 00:01
Húsnæðislán valda þenslu Verðbólgan er keyrð áfram af breytingum á húsnæðismarkaði, ekki framkvæmdunum fyrir austan. Þetta sagði Guðmundur Ólafsson hagfræðingur á Talstöðinni fyrir helgi. 14.6.2005 00:01
Samfylking vill R-lista áfram Stjórn Samfylkingarfélagsins í Reykjavík vill ganga til viðræðna um endurnýjað samstarf innan Reykjavíkurlistans. 14.6.2005 00:01
Ræninginn ófundinn Enginn hefur enn verið handtekinn vegna vopnaðs ráns sem framið var á bensínstöð Olís í Hamraborg í Kópavogi í gær. Ræninginn kom á bensínstöðina á sjötta tímanum og ógnaði starfsstúlku með skrúfjárni, spennti upp peningakassann, náði þaðan einhverju fé og hvarf síðan á braut. Hann er talinn vera 170-175 sentímetrar á hæð, grannur og með ljósskolleitt hár. 14.6.2005 00:01
Átta fórust í jarðskjálfta í Chile Átta manns fórust í mjög öflugum jarðskjálfta í norðurhluta Chile í gærkvöldi. Skjálftinn mældist 7,9 á Richter og hans varð vart í nágrannalöndunum Bólivíu og Perú. Hann stóð yfir í um það bil mínútu og olli miklum skriðum og jarðhruni. 14.6.2005 00:01
Stjórnarandstaðan ræðir saman Forystumenn stjórnarandstöðunnar ætla að ræða saman í dag um viðbrögð við niðurstöðu Ríkisendurskoðunar um hæfi forsætisráðherra til að koma að einkavæðingu Búnaðarbankans. Magnús Stefánsson, formaður fjárlaganefndar, segir að niðurstaðan sýni að málflutningur stjórnarandstöðunnar hafi verið ómálefnalegur og innistæðulaus með öllu. 14.6.2005 00:01
Páll Gunnar ráðinn forstjóri Stjórn Samkeppniseftirlitsins hefur ráðið Pál Gunnar Pálsson sem forstjóra Samkeppniseftirlitsins. Páll Gunnar er lögfræðingur og starfar nú sem forstjóri Fjármálaeftirlitsins. 14.6.2005 00:01
Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Erlent