Fleiri fréttir

Pinochet sæti fjársvikaákæru

Áfrýjunardómstóll í Chile hefur svipt Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra landsins, friðhelgi þannig að hægt verði að sækja hann til saka fyrir skattsvik og annars konar fjármálamisferli.

Slapp við frekari refsingu

Maður á þrítugsaldri slapp við refsingu eftir að hann var fundinn sekur um að hafa gengið í skrokk á öðrum manni og lamið hann ítrekað í höfuðið.

Þrjú innbrot sömu nóttina

Maður á fertugsaldri var í gær dæmdur í þrjátíu daga fangelsi fyrir þrjá þjófnaði og þrjár tilraunir til innbrots.

Fangelsuð fyrir búðarhnupl

Kona á fimmtugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmd í níutíu daga fangelsi fyrir þjófnað.

Fimm menn ákærðir vegna banaslyss

Fimm menn, sem allir störfuðu við framkvæmdirnar á Kárahnjúkasvæðinu, hafa verið kærðir fyrir brot á lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, þann 15. mars í fyrra er ungur maður lést í vinnuslysi þegar tæplega fjörtíu kílóa þungt grjót hrundi ofan á hann úr hlíð Hafrahvammsgljúfurs.

Undrast aðgerðaleysi stjórnvalda

Guðný Hrund Karlsdóttir, sveitastjóri í Raufarhafnarhreppi, segist hafa orðið fyrir vonbrigðum með lítinn stuðning stjórnvalda, sem vilyrði var gefið fyrir þegar staðurinn gekk í gegnum mikla erfiðleika. "Ég hélt að það væri meira kjöt á þessum beinum ríkisstjórnarinnar, því það hefur ekki farið mikið fyrir þeim stuðningi sem talað var um".

Mannskætt umferðarslys í Úganda

Að minnsta kosti 30 ferðmenn frá Rúanda létust þegar rúta á leið til Kenía og flutningabíll rákust saman í suðurhluta Úganda í dag. Reuters-fréttastofan hefur eftir lögreglu á svæðinu að 20 hafi lifað slysið af en að meirihluti þeirra sé mjög alvarlega slasaður. Tildrög slyssins eru ókunn en vegarkerfið í Úganda er sagt mjög bágborið.

39 hrefnur verði veiddar í ár

Hafrannsóknastofnunin leggur til að leyft verði að veiða 39 hrefnur til vísindarannsókna í ár. Sjávarútvegsráðherra segir að hrefnur verði veiddar þetta sumarið en hefur ekki tekið ákvörðum um hversu margar þær verða.

Tapaði á áhættufjárfestingum

Málræktarsjóður hefur ekki úthlutað styrkjum síðustu þrjú ár vegna fjármagns sem tapaðist með áhættufjárfestingum árið 2000 og sennilega eru tvö ár í að hann geti úthlutað næst.

Alþjóðleg samkeppni um Vatnsmýri

Undirbúningur er nú hafinn að alþjóðlegri samkeppni um framtíðarskipulag Vatnsmýrarinnar. "Við teljum að þetta sé einstakt tækifæri til að halda alþjóðlega samkeppni um stórt lykilsvæði í hjarta höfuðborgar," segir Dagur B. Eggertsson. "Þetta hefur allt til að bera til að vekja heimsathygli meðal arkitekta og skipulagsfræðinga."

Reykjavík vart flokkuð sem borg

"Með hliðsjón af viðmiðum um þéttbýli og þéttleika byggðar þá er ég ekki viss um að Reykjavík félli annars staðar undir þá skilgreiningu að vera borg," segir Orri Gunnarsson, verkfræðingur.

Kostnaður meiri en tekjurnar

Samkvæmt skýrslu sem unnin var fyrir Náttúruverndarsamtök Íslands og International Fund for Animal Welfare er kostnaður við hvalveiðar í vísindaskyni mun meiri en þær tekjur sem hafa mætti af sölu afurðanna. Reynslan af markaðssetningu á Íslandi, Noregi og Japan gefi til kynna að neytendamarkaður fyrir hvalkjöt sé lítill og fari minnkandi, segir einnig í skýrslunni.

Unglæknar fá leiðréttingu

Landspítalinn hefur skipað starfsnefnd sem fer yfir vinnutíma unglækna með það fyrir augum að laga hann að ákvæðum vinnutímatilskipunar Evrópusambandsins. Nefndin á að koma með tillögur að nýju vaktafyrirkomulagi unglækna fyrir 27. júní, en í því verður þá farið eftir ákvæðum um lágmarkshvíldartíma og hámarksvinnutíma.

Slökkvilið með jafnréttisáætlun

Slökkvilið Akureyrar hefur fyrst stofnana bæjarins sett sér jafnréttisáætlun í samræmi við jafnréttislög og jafnréttisstefnu bæjarins. Á vef Akureyrarbæjar kemur fram að frá því um áramót hafi margar stofnanir bæjarins unnið að gerð jafnréttisáætlana, þar á meðal grunnskólar bæjarins, Framkvæmdamiðstöð, Heilsugæslustöð og Öldrunarheimili.

Níræð kona barði þjóf

Katherine Woodworth, 91 árs gömul kona, barði töskuþjóf með innkaupapoka sínum og hrakti á endanum á flótta á bílastæði verslunar í Toledo í Bandaríkjunum um helgina. "Ég var ekki með heyrnartækið og vissi í fyrstu ekki hvað hann sagði," sagði hún.

Sýkna í pyntingarmáli í Líbíu

Níu líbískir lögreglumenn og einn læknir voru í gær sýknaðir af ákæru um að hafa náð fram með pyntingum játningu fimm búlgarskra hjúkrunarkvenna. Þær voru sakaðar um að hafa viljandi smitað 430 börn með alnæmisvírusnum og voru ásamt palestínskum lækni dæmd til dauða.

Kínverjar ritskoða bloggsíður

Stjórnvöld í Kína hyggjast taka upp sérstakt eftirlit með bloggsíðum og umræðuvefjum. Opinberrar skráningar vefsíðna hefur lengi verið krafist í Kína. Breska ríkisútvarpið greindi frá því í gær að yfirvöld hefðu nú ákveðið að bloggsíður skyldu einnig lúta ríkisvaldi.

Hringróðurinn: Hvíldi sig í gær

Kjartan Jakob Hauksson, sem nú rær hringinn í kringum landið, hélt kyrru fyrir fram eftir degi í gær og hvíldi sig eftir átökin í fyrsta áfanga. Það viðraði ekki vel til siglinga um morguninn en búist var við betra veðri í dag. Hann dvaldist yfir daginn í góðu yfirlæti hjá ættingjum sínum í Reykjafirði.

Skipulagsmál helsta kosningamál

Tæpu ári fyrir næstu borgarstjórnarkosningar bendir flest til þess að skipulagsmál verði helsta kosningamálið. Fyrir rúmri viku kynntu sjálfstæðismenn hugmyndir um eyjabyggð í Reykjavík en í dag kynnti borgarfulltrúi R-listans tillögu um framtíðarbyggð á Vatnsmýrarsvæðinu með tengingu við Álftanes.

Milljónatjón á einkavirkjunum

Milljónatjón varð þegar stífla brast í Sandá í gærkvöldi. Eigendurnir, sem eru bændur í nágrenninu, eru ekki vissir um orsökina, en grunar að þurrkar undanfarinna daga hafi átt einhvern hlut að máli. Þeir þakka þó fyrir að enginn skyldi slasast þegar flóðbylgjan æddi niður árfarveginn.

Fordæmdi hjónabönd samkynhneigðra

Hjónabönd samkynhneigðra eru gervihjónabönd, fóstureyðingar á að banna og takmarkanir skulu vera á frjósemisaðgerðum. Þannig hljóma skilaboð páfa til heimsbyggðarinnar.

Ákært fyrir fjöldamorðin í Dujail

Fjöldamorð á íbúum smábæjarins Dujail í Írak verður fyrsti ákæruliðurinn sem tekinn verður fyrir í réttarhöldunum yfir Saddam Hussein, fyrrverandi Íraksforseta. Fastlega er búist við að réttarhöldin hefjist innan tveggja mánaða.

Enn eitt gæluverkefnið

"Það er óþolandi að forsvarsmenn Orkuveitunnar séu sýknt og heilagt að vasast í gæluverkefnum sem borgarbúum er svo sendur reikningur fyrir," segir Guðlaugur Þór Þórðarson. Hann gagnrýnir að Orkuveita Reykjavíkur ætli sér að fjárfesta í heilsutengdri ferðaþjónustu eins og fyrir liggur.

Vilja heilsulind að Nesjavöllum

Til stendur að hefja rekstur heilsulindar í ætt við þá sem rekin er í Hveragerði, á Nesjavöllum. Orkuveita Reykjavíkur á í samningaviðræðum við félag sem vill nýta jarðvarmann þar og segja forsvarsmenn félagsins að gangi allt vel, geti framkvæmdir hafist á næsta ári.

Fjöldabrúðkaup í Aceh-héraði

Mikil hátíðahöld voru í flóttamannabúðum í Aceh-héraði í Indónesíu í gær, þegar tuttugu og þrjú pör, á aldrinum 22 til 63 ára, gengu í það heilaga.

Á hlaupahjólum yfir hálendið

Tólf daga ferð tveggja Hollendinga yfir hálendið á sérútbúnum hlaupahjólum er nýlokið. Ferðina fóru þeir til styrktar langveikum börnum í Hollandi.

Blair fer til fundar við Bush

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, flaug til fundar við George W. Bush Bandaríkjaforseta í gær. Meðal þess sem efst verður á dagskrá viðræðna þeirra eru útgjöld til þróunarmála í Austur-Afríku, en Blair er í mikið í mun að eyða ágreiningi um það mál áður en leiðtogafundur G8-hópsins hefst í Skotlandi síðar í þessum mánuði.

Vilja að trúarleiðtogar hafi áhrif

Trúrækni skilur á milli Bandaríkjamanna og sumra af nánustu bandamönnum þeirra. Bandaríkjamenn eru mun afdráttarlausari í trú sinni á guð og styðja það að blanda saman trúarbrögðum og stjórnmálum í mun ríkari mæli en fólk í öðrum löndum. Þetta er niðurstaða skoðanakönnunar sem AP-fréttastofan lét gera.

Baktjaldamakk og valdabrölt

Séra Hjalti Þorkelsson skólastjóri Landakotsskóla sagði upp stöðu sinni á föstudag vegna samstarfsörðugleika við skólanefnd. Afsögnin er afleiðing illinda skekið hafa skólann undanfarna mánuði.

KEA vill Neytendastofu norður

Kaupfélag Eyfirðinga svf. hefur boðist til að leggja lóð á vogarskálarnar til að Neytendastofa sem fyrirhugað er að setja á fót verði á Akureyri.

Mynd á þili er komin út

"Þetta er menningarlegt stórvirki," segir Jóhann Páll Valdimarsson bókaútgefandi en í gær kom út á vegum JPV útgáfu bókin Mynd á þili eftir Þóru Kristjánsdóttur list- og sagnfræðing.

Skorrdælingum hótað öllu illu

Skorrdælingar mega þakka fyrir ef börn þeirra fá pláss í leikskólanum þegar eftirspurn eftir leikskólaplássi eykst. Nágrannarnir hyggjast beita þá hörðu eftir að þeir höfnuðu sameiningu.

Helmingun þorskveiða við Færeyjar

Alþjóða hafrannsóknarráðið leggur til að dregið verði úr sókn í þorskstofninn við Færeyjar um 50 prósent á næsta ári. Jakob Rænert yfirmaður fiskirannsókna í Færeyjum sagði í samtali við Fréttastofu útvarpsins í gær að þetta  væri afleiðing ofveiði og rangrar ráðgjafar Jóns Kristjánssonar fiskifræðings. Jón vísar því hins vegar algerlega á bug.

Aldrei nein uppskeruhátíð

Sjávarútvegurinn bíður enn eftir að spá um auknar þorskveiðar rætist. Ýmsir eru að vísu orðnir vondaufir eftir 20 ára bið en gleðjast þó yfir góðu ástandi ýsustofnsins og góðum fyrirheitum um aukna veiði á öðrum tegundum.

Sjá næstu 50 fréttir