Fleiri fréttir

Afstaðinn vetur fór öfga á milli

Snjóflóð, hafís, metkuldi og óvenju mikil hlýindi eru meðal þess sem Vetur konungur bauð upp á. Hálendisvegir verða líklega opnaðir fyrr en venjulega.</font /></b />

Molinn opnaður á Reyðarfirði

Ný skrifstofu- og verslunarmiðstöð, Molinn, var formlega tekin í notkun á Reyðarfirði í gær að viðstöddu fjölmenni. Byggingin er 2.500 fermetrar að stærð og í fyrstu verða þrjár verslanir með starfsemi í húsnæðinu, Krónan, Veiðiflugan og PEX tískuverslun, en fleiri fyrirtæki flytja starfsemi sína í húsnæðið á næstu vikum.

Vilja halda rekstrinum á Akureyri

Kaupfélag Eyfirðinga hefur keypt 70 prósenta hlut í Ásprenti-Stíl á Akureyri af Burðarási en Burðarás eignaðist hlutinn við sameiningu við fjárfestingafélagið Kaldbak.

Lögðu hald á 200 kíló af matvælum

Tollayfirvöld á Seyðisfirði lögðu á þriðjudaginn hald á um tvö hundruð kíló af matvöru sem fundust í farangri nokkurra farþega sem komu til landsins með Norrænu. Allt árið í fyrra var lagt hald á um 1.700 kíló á matvöru og því var magnið sem nú var tekið af farþegunum óvenjumikið en aðeins 51 farþegi kom með ferjunni.

1.400 á hverja bensínstöð

Í Evrópu er talið skynsamlegt að 5.000 íbúar séu á hverja bensínstöð, á Íslandi eru þeir um 1.400. Á Vestfjörðum eru þó ekki nema tæplega 400 íbúar á hverja bensínstöð.</font /></b />

Heita vatnið lækkar í verði

Heita vatnið lækkar um eitt og hálft prósent í verði á markaðssvæði Orkuveitu Reykjavíkur frá og með 1. júní. Þetta var samþykkt á síðasta stjórnarfundi Orkuveitunnar. Þar var enn fremur ákveðið að rafmagnsverð myndi standa í stað.

Munar allt að 75% á lyfjaverði

Sjúklingar geta sparað sér allt að 75 prósent í lyfjakostnað með því að kanna verðið frá einu apóteki til annars. Þetta má lesa út úr verðkönnun verðlagseftirlits Alþýðusambands Íslands.

Sprengja sprakk við híbýli Allawis

Öflug sprengja var sprengd fyrir utan híbýli bráðabirgðaforsætisráðherra Íraks, Iyads Allawis, í gærkvöldi. Í morgun lýsti al-Qaida í Írak því yfir að samtökin hefðu sent hryðjuverkamenn sína til þess að ráða Allawi af dögum. Mennirnir hefðu verið sendir til höfuðstöðva trúleysingjanna og bandamanna þeirra úr röðum gyðinga og kristinna. Allawi komst undan þessari ör, segir í tilkynningunni, en það eru fleiri örvar til.

Erill hjá lögreglunni á Selfossi

Mikill erill var hjá lögreglunni á Selfossi í nótt. Annars vegar þurfti lögreglan að stöðva slagsmál milli tveggja manna við pylsuvagninn þar í bæ um klukkan fjögur í nótt og aftur stuttu síðar þegar önnur slagsmál brutust út við Kaffibarinn en greiðlega gekk að ganga frá málum og slasaðist enginn í átökunum.

Ólæti í miðbæ Hafnarfjarðar

Annasamt var hjá lögreglunni í Hafnarfirði í nótt og fengu tveir að gista í fangageymslum hennar vegna mikillar ölvunar og láta í miðbænum. Skýrsla verður tekin af þeim nú í morgunsárið þegar mesta víman er runnin af þeim.

Greiðfært um helstu þjóðvegi

Greiðfært er um alla helstu þjóðvegi landsins. Búið er að opna Gjábakkaveg milli Laugarvatns og Þingvalla fyrir almennri umferð en þar gilda 5 tonna takmarkanir á ásþunga. Þungatakmarkanir eru víða á vegum á Vestfjörðum, Norðurlandi og Austfjörðum og er það merkt við viðkomandi vegi. Umferð um hálendisvegi er almennt bönnuð vegna aurbleytu og hættu á skemmdum.

Afskipti ekki sögð tímabær

Utanríkisráðherrar NATO-ríkjanna ræddu í gær hlutverk bandalagsins í Miðausturlöndum og komust að þeirri niðurstöðu að ekki væri tímabært fyrir NATO að hafa afskipti af framgangi mála þar. Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdastjóri NATO, hefur lagt til að bandalagið styðji friðarsamkomulag fyrir botni Miðjarðarhafs verði þess farið á leit en þær hugmyndir voru ekki studdar.

Kannar stuðning við Berlusconi

Carlo Azeglio Ciampi, forseti Ítalíu, ræðir sem stendur við fulltrúa allra flokka á ítalska þinginu til að reyna að skera úr um hvort að Silvio Berlusconi njóti nægs stuðnings til að fá umboð til stjórnarmyndunar. Berlusconi sagði af sér embætti í gær en vill mynda nýja stjórn með sömu flokkum og mynduðu fyrri stjórnina.

Fjölbreytt dagskrá í dag

Það verður fjölbreytt dagskrá víða um land í tilefni sumardagsins fyrsta. Á höfuðborgarsvæðinu verður boðið upp á skoðunarferðir, söfn verða opin og ýmiss konar afþreying í boði. Dagskrá sumardagsins fyrsta er auglýst í dagblöðunum í dag.

Þyrla skotin niður í Írak

Níu eru taldir látnir eftir að þyrla var skotin niður í Írak í morgun. Þetta hefur Reuters-fréttaveitan eftir heimildarmanni innan Bandaríkjahers. Þyrlan var á ferð fyrir norðan Bagdad þegar henni var grandað, en um borð voru þrír í áhöfn og sex farþegar, allt óbreyttir borgarar. Ekki er vitað hverrar þjóðar þeir voru.

Útiloka ekki trúarbragðastríð

Blóðsúthellingar og pólitískar deilur magna spennuna í Írak og virðist sem trúarbragðastríð sé ekki útilokað. Í dag stóð til að greina frá skipan nýrrar ríkisstjórnar Íraks en því hefur verið frestað eftir að til deilna kom enn á ný í gærkvöldi.

Öðrum manna úr skotárás sleppt

Annar mannanna sem skaut á sautján ára dreng á Akureyri um síðustu helgi hefur játað árásina og gefið greinargóða lýsingu á atburðarrásinni. Honum var sleppt í gær.

Ósvör opnuð eftir breytingar

Í dag klukkan tvö, sumardaginn fyrsta, verður sjóminjasafnið Ósvör opnað í Bolungarvík eftir miklar breytingar. Þar hefur meðal annars verið byggt þjónustuhús sem tekið verður í notkun í dag. Finnbogi Bernódusson hefur verið ráðinn safnvörður Ósvarar og tekur við af Geir Guðmundssyni sem verið hefur safnvörður um árabil en hann hefur í gegnum tíðina verið burðarásinn í uppbyggingu safnsins í Bolungarvík.

Vill breytingar í Hvíta-Rússlandi

Hvíta-Rússland er síðasta einræðisríkið í Mið-Evrópu og þar er tímabært að breytingar verði gerðar, segir Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna.

Jemenar læra af Íslendingum

Stjórnvöld í Jemen hafa ákveðið að leita á náðir Íslendinga og læra af reynslu íslenskra stjórnvalda af rafrænum ríkisrekstri. Jemenar vilja fara að íslenskri fyrirmynd, segir í þarlendum fjölmiðlum, og auka færni, skilvísi og samskipti innan hins opinbera. Í <em>Yemen Times</em> segir að íslenska tilraunin hafi leitt í ljós að rafræn samskipti og samvinna ráðuneyta auki mjög á skilvirkni.

Þorskkvótinn ekki aukinn

Stofnavísitala þorsks lækkaði um 16 prósent frá mælingu á síðasta ári og dreifing stofnsins bendir til þess að árgangurinn frá því í fyrra sé mjög lélegur. Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra segir þetta þýða að kvótinn verði ekki aukinn á næsta ári.

Aukin framlög tryggi rekstur skóla

Formaður menntaráðs Reykjavíkurborgar segir að með ákvörðun Reykjavíkurlistans um stóraukin framlög til einkarekinna grunnskóla verði hægt að tryggja rekstur þeirra. Sjálfstæðismenn telja ekki nógu langt gengið þar sem nemendum verði áfram mismunað eftir skólum.

Creuzfeld-Jakob finnst í Hollandi

Hollensk stjórnvöld greindu frá því í dag að fyrsta tilfellið af Creuzfeld-Jakob sjúkdómnum hefði greinst í landinu. Að sögn talsmanna innanríkisráðuneytis Hollands greindist maður sem lagður var inn á sjúkrahús í borginni Utrecht með veikina, en hana má rekja til neyslu á kúariðusýktu kjöti. Heilbrigðisyfirvöld innan Evrópusambandsins hafa  þegar verið látin vita af tilfellinu.

Magnús inn fyrir Sigurjón

Magnús Þór Hafsteinsson hefur skipt sæti við Sigurjón Þórðarson sem áheyrnarfulltrúi Frjálslynda flokksins í menntamálanefnd Alþingis.

Gutierrez fær hæli í Brasilíu

Lucio Gutierrez, hinum brottrekna forseta Ekvadors, var í dag veitt pólitískt hæli í Brasilíu, daginn eftir að þing landsins vék honum úr embætti. Gutierrez leitaði til brasilíska sendiráðsins í Quito, höfuðborg Ekvadors, í gær í kjölfar brottvikningarinnar en eftirmaður hans, varaforsetinn Alfredo Palacio, hafði gefið út handtökuskipun á hendur honum.

Hestadagar í Skagafirði

Alþjóðlegu hestadagarnir <em>Tekið til kostanna</em> hefjast í dag í Skagafirði og standa fram á sunnudag. Hugmyndin er búa til markaðstorg fyrir íslenska hestinn og hefur hátíðin m.a. verið markaðssett í Danmörku, Svíþjóð og Noregi. Meðal þess sem boðið er upp á eru fræðsluerindi, reiðkennsla, töltkeppni, kynbótadómar, skeifukeppni Hólaskóla og þá verða stórsýningar föstudags- og laugardagskvöld.

Skemmtun í miðri viku

Á nær öllu landinu voru skemmtistaðir opnir síðasta vetrardag og dansleikir víða. Alls sóttu 160 nemendur Menntaskólans á Akureyri dansleik í félagsheimili Ólafsfirðinga, Tjarnaborg. Lögreglan segir ballið hafa farið vel fram.

Ungt fólk með efni á Suðurnesjum

Tvö fíkniefnamál komu upp í umdæmi lögreglunnar í Keflavík í fyrrinótt. Þrír menn yfir tvítugu voru teknir með minniháttar magn af hassi við Narðvík.

Létust í rútuslysi í Víetnam

Þrjátíu og einn maður lét lífið þegar rúta ók út af fjallvegi í Kon Tum héraði í Víetnam í dag. Hinir látnu voru allir fyrrverandi hermenn á leið til Ho Chi Minh borgar til að minnast þess að 30 ár eru síðan Víetnamstríðinu lauk. Aðeins tveir úr rútunni lifðu slysið af, annar þeirra rútubílstjórinn.

Og Vodafone yfirtekur Fjöltengi

"Þetta held ég að allir hafi séð fyrir nema Alfreð Þorsteinsson og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir á sínum tíma," segir Guðlaugur Þór Þórðarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, en fjarskiptafyrirtækið Og Vodafone hefur að mestu lokið yfirtöku á Fjöltengi, internetfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur.

Segja 11 hafa farist með þyrlu

Eigendur þyrlunnar sem skotin var niður í Írak í dag segja að ellefu hafi látist þegar hún féll til jarðar. Aðsögn talsmanna Heli Air, búlgarsks fyrirtækis sem átti þyrluna, lést þriggja manna búlgörsk áhöfn og sex bandarískir farþegar auk tveggja varða, en þjóðerni þeirra er ekki á hreinu.

Sprengjuhótun í Tromsö

Rýma þurfti flughöfnina í Tromsö í dag vegna sprengjuhótunar sem barst um síma. Það var klukkan rúmlega hálfþrjú að staðartíma, eða klukkan eitt að íslenskum tíma, sem maður hringdi í lögregluna í Tromsö og greindi frá því að búið væri að koma fyrir sprengju í flughöfninni og hún myndi springa klukkan þrjú.

Lifði af tvær bjarndýrsárásir

Fimmtugur maður í Alaska lenti í heldur óskemmtilegri reynslu snemma í síðustu viku þegar björn réðst á hann þar sem hann var að skokka. Þetta væri kannski ekki í frásögur færandi ef þetta væri ekki annað sinn sem hann verður fyrir árás bjarndýrs. Fyrir 38 árum réðst björn á hann þar sem hann var í göngutúr í skógi í Alaska en þá slapp hann með skrámur á höndum og fótum.

Vilja fresta brottflutningi

Ísraelsk varnarmálayfirvöld hafa lagt það til að því verði frestað um nokkrar vikur að hefja brottflutningi landnema af Gasasvæðinu. Til stóð að hefja flutningana síðla júlímánaðar en nú fara Ísraelar fram á það að þeir byrji ekki fyrr en um miðjan ágúst. Ástæða seinkunarinnar er sú að brottflutningurinn stangast á við sorgartímabil gyðinga en þá minnast þeir þess að tvö hof frá tímum Biblíunnar hafi voru eyðilögð.

Samþykktu hjónabönd samkynhneigðra

Spánn færðist í dag skrefi nær því að leyfa hjónabönd samkynhneigðra þegar neðri deild spænska þingsins samþykkti frumvarp þessa efnis. Það var sósílaistastjórn Joses Luis Zapateros sem lagði fram frumvarpið, en hún hefur beitt sér fyrir ýmsum umbótum frá því að hún komst til valda í landinu í fyrra.

Andstaða í Frakklandi eykst

Andstæðingum stjórnarskrár Evrópusambandsins í Frakklandi vex enn ásmegin því samkvæmt skoðanakönnun sem birt var í dag eru 58 prósent andvíg henni. Þetta er mesta andstaða sem mælst hefur gegn stjórnarskránni í landinu, en gengið verður til þjóðaratkvæðagreiðslu 29. maí næstkomandi.

Sodano aftur æðsti maður Páfagarðs

Benedikt sextándi, nýkjörinn páfi, skipaði í kardínálanna Angelo Sodano aftur æðsta yfirmann Vatíkansins, en hann gengdi því starfi einnig þegar Jóhannes Páll annar var við völd í Vatíkaninu. Þá verða flestir æðstu menn Páfagarðs áfram í sínum störfum sem bendir til þess að Benedikt vilji starfa í anda Jóhannesar Páls.

Stjórnmálaþjark í skugga árása

Trúarbragðadeilur fara harðnandi í Írak og árásum hryðjuverkamanna fjölgar sífellt. Á meðan þjarka stjórnmálamenn um embætti og völd en leysa ekki ærinn vanda sem við blasir. Varað er við myndum í þessari frétt.

Skotárás hefur verið upplýst

Skotárás á Akureyri um síðustu helgi hefur verið upplýst að sögn lögreglunnar, sem annars þegir þunnu hljóði um rannsóknina. Tveimur mönnum hefur verið sleppt, sem grunaðir voru um að hafa flutt ungan mann nauðugan upp á Vaðlaheiði, látið hann afklæðast og sært hann með loftbyssu í tengslum við fíkniefnauppgjör. Að minnsta kosti annar hinna grunuðu hefur játað.

Sumar og vetur frusu saman

Sumar og vetur frusu saman, sem samkvæmt þjóðtrúnni boðar gott sumar. Landsmenn víða um land fögnuðu sumarkomunni í betra veðri en þeir eiga að venjast á þessum degi. Í Reykjavík gengu skátar frá Arnarhóli að Hallgrímskirkju þar sem haldin var guðsþjónusta eins og hefð er fyrir. Víða í hverfum höfuðborgarinnar voru síðan hverfahátíðir þar sem ýmislegt var gert sér til gamans og einkum hugað að áhugamálum yngri kynslóðarinnar.

Vonast til að halda embætti

Silvio Berlusconi vonast enn til að halda forsætisráðherraembættinu á Ítalíu en forseti landsins kannar hvort hann nýtur til þess stuðnings. Fleiri vandamál blasa þó við Berlusconi en hugsanlegar þingkosningar.

Samvinna um markaðssetningu

Sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu og ferðamálasamtök höfuðborgarsvæðisins skrifuðu í dag undir samning um að vinna sameiginlega að upplýsingamiðlun, kynna alla viðburði sem tengjast ferðaþjónustu og markaðssetja höfuðborgarsvæðið sem eina heild. Tilgangurin er að skapa heildstæða mynd af svæðinu í huga ferðamanna.

För geimskutlu frestað um viku

Fyrsta flugi geimskutlu frá Columbiu-slysinu árið 2003 hefur verið frestað um viku. Geimskutlan Discovery átti upphaflega að taka á loft 15. maí en því var frestað til 22. Þannig er unnt að binda alla lausa enda og tryggja örugga ferð, segja yfirmenn bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA.

Styrkir til starfa í þágu barna

Þrjú verkefni fengu styrk frá Barnavinafélaginu Sumargjöf í gær, en alls bárust 30 umsóknir um styrk.Anna C. Leplar myndmenntakennari og Margrét Tryggvadóttir bókmenntafræðingur fengu styrk vegna gerðar listaverkabókar fyrir börn.

Gutierrez flúinn til Brasilíu

Brasilísk stjórnvöld hafa skotið skjólshúsi yfir Lucio Gutierrez, fyrrum forseta Ekvador, sem ekvadorska þingið svipti völdum á miðvikudag. Gutierrez, sem um hríð hefur verið sakaður um valdníðslu, dvelur nú í brasilíska sendiráðinu í Quito en verður fluttur til Brasilíu innan skamms.

Sjá næstu 50 fréttir