Fleiri fréttir

Vantreystir Landsvirkjun

Í utandagskrárumræðum um framkvæmdir á Kárahnjúkum í gær spurði Steingrímur J. Sigfússon Valgerði Sverrisdóttir iðnaðarráðherra hvort Landsvirkjun væri treystandi til að halda byggingu Kárahnjúkastíflu áfram.

Frumvarp dregið til baka

Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, dró í gær til baka frumvarp um að leggja niður tryggingadeild útflutningslána sem hún hafði áður mælt fyrir.

Nýtt innflytjendaráð í deiglunni

Stefnt verður að því að stofna innflytjendaráð til að sinna brýnum málefnum innflytjenda og bera ábyrgð á móttöku flóttamanna. Ráðið mun heyra undir félagsmálaráðuneyti, en vera skipað fulltrúum fjögurra ráðuneyta og Sambands sveitarfélaga.

Mun bjóða sig fram

Ágúst Ólafur Ágústsson mun formlega tilkynna í dag að hann muni gefa kost á sér sem varaformaður Samfylkingar á næsta landsfundi.

Vítum mótmælt

Þingflokkur Samfylkingar hefur sent Forsætisnefnd Alþingis bréf, þar sem því er harðlega mótmælt að orð Lúðvíks Bergvinssonar hafi verið af því tagi að forseti Alþingis hefði átt að víta hann á miðvikudag.

Dæmdur fyrir sama brot

Ungur bifhjólamaður, sem lögreglan stöðvaði með því að aka í veg fyrir hann, var í dag sýknaður af því að hafa brotið af sér á þeim tíma. Hann var hins vegar dæmdur fyrir brot fyrr um kvöldið sem annar maður hefur gengist við og gert dómsátt.

Buslað í Elliðaám

Þeir voru hressir guttarnir úr Breiðagerðisskóla sem busluðu í Elliðaánum í gær í sól en einungis fimm gráðu hita. Þeir Gunnar Reynir, Arnar Örn, Guðjón Helgi, Þorsteinn Jón, Erlendur Karl og Jón Hávar eru allir níu og tíu ára gamlir.

Örgjörvakort á markað

Örgjörvakort munu líta dagsins ljós á þessu ári í stað venjubundinna korta með segulrönd. Þetta er gert til að stemma stigu við kortasvindli af ýmsum toga en mun erfiðara, ef gerlegt, verður að afrita kubbinn, að sögn Bergþóru Ketilsdóttur forstöðumanns upplýsingatækni hjá Mastercard.

Vilja ekki hækka leikskólagjöld

Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins vilja falla frá hækkunum á leikskólagjöldum sem samþykktar voru af R-listanum fyrir fjórum mánuðum. Þetta kom fram í bókun sem lögð var fram í borgarráði í gær vegna umræðu um gjaldskrá leikskóla á fundinum.

Kort afrituð og seld á markaði

Kortasvindl er víðfemt vandamál sem þekkist alls staðar í heiminum, segir Jón H. B. Snorrason hjá ríkislögreglustjóra. Hann segir ýmsar aðferðir notaðar til að afrita kort, sem byggist margar á tækniþekkingu.

Málverk af pyntingunum í Írak

Hinn heimsfrægi kólumbíski listmálari, Fernando Botero, hefur málað fimmtíu mynda röð af misþyrmingum fanga í Abu Ghraib fangelsinu í Írak. Botero, sem er einn af ríkustu listamönnum heims, er best þekktur fyrir myndir sínar af þybbnu fólki í friðsælu umhverfi. Fyrir vikið virka myndir hans úr fangelsinu enn sterkari og hrottalegri.

Ný samgönguáætlun

Gunnar I. Birgisson, þingmaður Sjálfstæðisflokks og formaður bæjarráðs í Kópavogi, hyggst fljótlega birta nýja samgönguáætlun sér að skapi.

Kárahnjúkar með axlabönd og belti

Formaður Vinstri - grænna sagði það hneyksli að Kárahnjúkavirkjun hefði verið troðið í gegnum Alþingi um leið og viðvaranir vísindamanna um misgengissprungur hefðu verið þaggaðar niður. Iðnaðarráðherra sagðist hins vegar í þingumræðum í dag þess fullviss að engin hætta væri á ferðum og sagði virkjunina með tvenn axlabönd og tvö belti.

Írsk starfsmannaleiga á Íslandi

Írsk starfsmannaleiga hefur opnað útibú hér á landi og hefst starfsemin innan skamms. Forsvarsmaður leigunnar er bjartsýnn á íslenska markaðinn.

Samgönguráðherra skammaður

Formenn stjórnarflokkanna gáfu skýrt loforð fyrir síðustu þingkosningar um að framkvæmdir við Suðurstrandarveg og Gjábakkaveg yrðu langt komnar á árinu 2004. Hvorugt stóðst og hafa báðir þessir vegir nú verið skornir niður og mátti samgönguráðherrann sitja undir skömmum í þinginu fyrir vikið.

Næsti páfi ítalskur?

Talið er líklegt að margir kardinálar kaþólsku kirkjunnar muni leggja áherslu á að næsti páfi verði ítalskur. Kjör nýs páfa hefst á mánudaginn.

Kona slasast á vélsleða

Ung kona hlaut opið breinbrot þegar hún féll af snjósleða á Lyngdalsheiði, á milli Þingvalla og Rauðavatns, rétt fyrir níu í kvöld.

Fólk má búa í bústað

Hæstiréttur úrskurðaði í gær að fimm manna fjölskylda mætti skrá lögheimili sitt í sumarhús í Bláskógarbyggð. Fjölskyldan flutti í febrúar 2004 í húsið í óþökk sveitarfélagsins þar sem forsvarsmönnum þess þótti of kostnaðarsamt að veita þeim sem það kysu lögbundna þjónustu.

Par stal skarti og réðst á eiganda

Par undir áhrifum fíkniefna lét dólgslega í Gullsmíðaverslun og verkstæði Láru við Skólavörðustíg síðdegis í gær. Maðurinn stal tíu stórum silfurhringjum eftir að hafa hrint gullsmiðnum Láru Magnúsdóttur sem féll og marðist við það illa á baki og stokkbólgnaði á hendi.

Lokunin dapurleg tíðindi

Landbúnaðarráðherra og skrifstofustjóri umhverfisráðuneytisins eru sammála um að lokun kjötmjölsverksmiðjunnar í Hraungerðishreppi séu dapurleg tíðindi og skref aftur á bak. Ráðherra segir að til greina geti komið að leggja úrvinnslugjald á hverja skepnu sem slátrað er.

Ófriðarbálið í Írak magnast á ný

Átján manns biðu bana og 36 særðust þegar tvær bílsprengjur sprungu nálægt skrifstofum innanríkisráðuneytisins í Bagdad í gærmorgun. Al-Kaída í Írak kveðst bera ábyrgð á tilræðunum.

Níu létust í sprengingu

Níu manns féllu í valinn og fjórir særðust þegar bílsprengja sprakk nærri borginni Kirkuk í Írak í morgun. Allir þeir sem létust voru starfsmenn olíufyrirtækis í nágrenninu. Sprengjan sprakk þegar öryggisverðir fyrirtækisins reyndu að aftengja hana.

25.000 hafa yfirgefið heimili sín

Meira en tuttugu og fimm þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín á eyjunni Súmötru á Indónesíu vegna virkni í eldfjallinu Talang. Í morgun voru eldglæringar í fjallinu og eins urðu enn á ný nokkrir litlir jarðskjálftar á svæðinu. Búist er við að enn fleiri íbúar verði fluttir burt frá nágrenni fjallsins þegar líða tekur á daginn.

Dómstóllinn hafnaði beiðninni

Yfirdeild Mannréttindadómstóls Evrópu hefur hafnað beiðni íslenska ríkisins um að taka fyrir bótaþátt í dómi Mannréttindadómstólsins í máli íslensks sjómanns gegn ríkinu.

Ákærðir fyrir ætluð hryðjuverk

Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa ákært þrjá Breta fyrir að hafa lagt á ráðin um stórfelldar hryðjuverkaárásir í New York, New Jersey og Washington á árunum 2000 og 2001. Mennirnir þrír hafa verið í haldi í Bretlandi síðan í ágúst á síðasta ári þar sem þeirra bíða sambærilegar ákærur og í Bandaríkjunum.

Þjófar hlaupnir uppi

Lögreglumenn úr Reykjavík hlupu uppi tvo innbrotsþjófa sem höfðu brotist inn í tölvufyrirtæki í Mörkinni um klukkan fjögur í nótt. Lögreglan í Reykjavík er þar með búin að góma sjö innbrotsþjófa í vikunni, ýmist á vettvangi eða á flótta, og gera þýfi upptækt í öllum tilvikum.

Málþing um fjölmiðlaskýrsluna

Frjálshyggjufélagið stendur fyrir málþingi um lokaskýrslu fjölmiðlanefndar á morgun,</b /> fimmtudag, klukkan 12 í Iðnó við Vonarstræti 3. Á fundinum mun Ingibjörg Sólrún Gísladóttir halda tölu um það starf sem fjölmiðlanefnd hefur unnið, skýra út helstu álitamál og þau rök sem liggja að baki einstökum atriðum í lokaskýrslunni.

Banvæn veira send fyrir mistök

Fjögur þúsund rannsóknarstofum í átján löndum hefur verið gert að eyða sýnishornum af banvænni inflúensuveiru sem rannsóknarstofunum voru send fyrir mistök. Veiran varð fjórum milljónum manna að bana í lok sjötta áratugar síðustu aldar en hennar hefur ekki orðið vart síðan árið 1968.

Fiskmarkaðurinn sviptur leyfi

Fiskistofa hefur svipt Fiskmarkaðinn á Flateyri svonefndu endurvigtunarleyfi, sem takmarkar starfsemi markaðarins verulega, fyrir brot sem virðast hafa verið framin í tvö ár.

Sambærilegt falli Berlínarmúrsins

Fall styttu Saddams Husseins í Bagdad fyrir tveimur árum er sambærilegt falli Berlínarmúrsins, að mati George Bush Bandaríkjaforseta. Á fundi með bandarískum hermönnum í Texas í gær sagði Bush að talað yrði um fallið á styttu Saddams í Bagdad í sömu andrá og fall Berlínarmúrsins þegar fram líða stundir.

Þýfi á uppboð

"Öllu þýfi sem við gerum upptækt við rannsókn mála er skilað til eigenda sinna en fer annars á hið árlega uppboð," segir Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík. Árlega nær lögregla til baka miklu af þýfi misyndismanna en það skilar sér ekki alltaf aftur til eigenda sinna.

Ráðherrann lenti í lífshættu

Helen Clark, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, er illa blá og marin eftir að flugvél hennar lenti í svo mikilli ókyrrð að henni þurfti að nauðlenda. Hurð flugvélarinnar fauk upp í átta þúsund feta hæð.

Málið gegn Arngrími tekið fyrir

Mál Norðmannsins Anders Saethers gegn Arngrími Jóhannssyni, eins stofnenda flugfélagsins Atlanta, verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Saether segir Arngrím hafa gert bindandi samning um kaup á helmingseignarhluta í fyrirtækinu Scandinavian Historic Flight, en hann hafi svo rofið þann samning einhliða.

Þunglyndi eins og blóðþrýstingur?

Læknar í New York bjóða fólki nú upp á að svara einföldum spurningalista sem á að segja til um hvort viðkomandi eigi á hættu að verða þunglyndur. Vonast er til að með tíð og tíma líti fólk þetta svipuðum augum og að láta athuga í sér blóðþrýstinginn eða kólesterólmagn í blóði.

Afleiðingar skilorðsdóma engar

"Mitt mat er að gera þarf greinarmun á þeim sem brjóta af sér í fyrsta skipti og svo aftur síbrotafólki," segir Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík. Athygli hefur vakið að talsverður fjöldi síbrotamanna hljóta ítrekað skilorðsbundna dóma en Geir Jón segir það ekki hlutverk lögreglu að gagnrýna dómstólana.

Lúðvík víttur í þinginu

Halldór Blöndal, forseti Alþingis, vítti Lúðvík Bergvinsson, þingmann Samfylkingar, í umræðum um störf þingsins fyrir stundu. Þetta er í annað sinn á tveimur árum sem forseti vítir þingmanninn.

50 sjómönnum greiddar bætur?

Ríkið gæti þurft að greiða rúmlega fimmtíu sjómönnum bætur eftir þá niðurstöðu Mannréttindadómstóls Evrópu að íslenska ríkið hafi brotið gegn ákvæðum Mannréttindasáttmálans um friðhelgi eignarréttarins, með því að hafa bætur af sjómanni með lagasetningu fyrir ellefu árum.

Veiran send vegna forvarna

Stórhættuleg flensuveira, sem hægt væri að nota til að búa til banvæn sýklavopn, var send fyrir mistök á rannsóknarstofur um allan heim. Aðspurður af hverju verið sé að senda svona hættuleg sýnishorn á milli heimshluta segir sóttvarnalæknir að það sé gert til að hægt sé að búa til prófefni og próf til að geta greint veiruna ef hún færi af stað.

Aðgangur að legstaðnum opnaður

Aðgangur að legstað Jóhannesar Páls páfa II, í grafhvelfingunni í kjallara Péturskirkjunnar í Róm, var opnaður í morgun. Þeir fyrstu mættu í röðina í nótt en hún hefur gengið hratt þar sem bannað er að stoppa við legstaðinn og harðbannað er að skilja eftir blóm eða annars konar gjafir.

Sex grunaðir um mansal í Svíþjóð

Saksóknari í Svíþjóð hefur farið fram á gæsluvarðhaldsúrskurð yfir sex mönnum sem eru grunaðir um mansal og fíkniefnabrot í Norrköping. Útlenskar konur hafa verið fluttar inn til að stunda vændi. Saksóknarinn segist telja að málið tengist alþjóðlegri glæpastarfsemi.

Farsímanotendum fjölgar hratt

Símtölum í farsímakerfum símafyrirtækja hérlendis fjölgar jafnt og þétt á kostnað almenna símkerfisins en notendur þess hafa ekki verið færri síðan 1997. Fjölda smáskilaboða milli farsíma hefur fjölgað þrefalt á síðustu fjórum árum.

Afhenda ráðherra undirskriftir

Einar Árnason mun afhenda heilbrigðisráðherra hátt í fimm þúsund undirskriftir á Alþingi klukkan korter fyrir fjögur. Þessir fimm þúsund einstaklingar skora á heilbrigðisráðherra að sjá til þess að í framtíðinni verði sólarhringsbakvakt á skurðstofunni á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

Fá greitt fyrir kynlífssýningar

Íslenskar stúlkur hafa hagnast á því að senda út myndir af sér við kynferðislegar athafnir á netinu, segir rannsóknarlögreglumaður í Reykjavík. Þá segir hann barnaníðinga eiga msn - netföng hjá fjölda barna. Þeir séu markvisst á veiðum á netinu, öllum stundum, allan sólarhringinn. </font /></b />

Heilsugæsla á brú og bjargi

Kópavogsbúar geta nú státað af nýrri heilsugæslustöð "sem bæði er byggð á brú og bjargi," eins og Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra komst að orði við undirritun samninga um nýtt húsnæði fyrir stöðina.

Rúmlega 40 án ríkisfangs

Rúmlega 40 manns eru skráðir með lögheimili hér á landi en eru án ríkisfangs. Á svonefndri utangarðsskrá eru átta manns.

Sjá næstu 50 fréttir