Fleiri fréttir

Ríkisstjórn Sýrlands segir af sér

Forsætisráðherra Líbanons, Omar Karami, tilkynnti fyrr í dag að ríkisstjórn landsins hygðist segja af sér, en hún hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir hollustu sína við yfirvöld í Sýrlandi sem sökuð eru um að hafa staðið á bak við morðið á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, fyrir um tveimur vikum.

Hrognavinnsla á ný í Grindavík

Hrognavinnsla fór af stað í frystihúsi Samherja hf. í Grindavík í dag eftir mikinn bruna fyrir tæpum þremur viku og landaði Háberg GK tæpum 600 tonnum að loðnu í gær til hrognatöku. Þetta kemur fram á heimasíðu Samherja.

Manndráp af gáleysi

Tvítugur maður var fundinn sekur um að hafa ollið banaslysi í maí síðastliðnum þegar hann bakkaði bifreið sinni á tæplega níræða kona sem lést skömmu síðar af áverkum sínum.

Ekki grunur um manndráp

"Það er auðvitað ríkissaksóknara að taka ákvörðun um hvort framhald verður á rannsókninni en að okkar mati leikur enginn grunur á neinu misjöfnu," segir Björn Mikaelsson, yfirlögregluþjónn á Sauðárkróki, vegna dauðaslyss þess sem þar varð í eldsvoða í desember síðastliðnum.

Rannsóknir enn í gangi

"Rannsókn þessara mála er enn í fullum gangi og engar upplýsingar gefnar meðan svo er," segir Jón H. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra um rannsókn þeirra á Baugsmálinu svokallaða og meintu samráði íslensku olíufélaganna.

Sætta sig ekki við heildarþak

Sjúkraþjálfarar eru tregir til að lækka verð fyrir þjónustu sína eftir að ákveðnum fjölda skjólstæðinga er náð eins og heilbrigðisráðuneytið fer fram á. Þörfin fyrir sjúkraþjálfun eykst stöðugt vegna breyttrar aldurssamsetningar þjóðarinnar og breyttrar heilbrigðisstefnu sem felst meðal annars í styttri legutíma á sjúkrahúsum.

Mikil eftirsjá af Bryndísi

Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, segir mikla eftirsjá af Bryndísi Hlöðversdóttur sem hættir störfum á Alþingi fyrsta ágúst.

Ósátt innan tekjustofnanefndar

Sveitarstjórnarmenn tekjustofnanefndar eiga von á fundarboði til að ræða endanlega tillögu um tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga í dag eða næstu daga.

Ákvörðun tengist ekki formannsslag

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, varaformaður Samfylkingarinnar, tekur við þingmennsku af Bryndísi Hlöðversdóttur, sem gerist deildarstjóri lagadeildar Viðskiptaháskólans á Bifröst. Bryndís neitar því að hún sé að rýma til fyrir Ingibjörgu Sólrúnu í tengslum við framboð hennar til formanns Samfylkingarinnar.

Telur þingmennsku styrkja framboð

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir telur að það styrki framboð sitt til formanns Samfylkingarinnar að hún taki við þingmennsku í haust því að það hafi verið notað sem rök gegn framboðinu að hún sitji ekki á Alþingi.

Gunnar í varaformanninn

Gunnar Örlygsson alþingismaður Frjálslynda flokksins ætlar að bjóða sig fram gegn Magnúsi Þór Hafsteinssyni, varaformanni, á landsþingi flokksins sem fram fer um næstu helgi.

Hagræðingu náð með kvíðaástandi

Þjóðleikhússtjóri skapaði viljandi kvíðaástand í röðum leikara til að ná fram hagræðingu. Sjö leikarar ákváðu að segja upp samningum sínum í kjölfar yfirlýsinga leikhússtjórans en samningum þriggja yngstu leikaranna verður sagt upp.

Ríkisstjórn Líbanons segir af sér

Ríkisstjórn Líbanons hefur sagt af sér völdum en hún hefur sætt mikilli gagnrýni fyrir að vera of höll undir sýrlensk yfirvöld.

Réttarhaldið yfir Jacko hafið

Málflutningur hófst í gær í réttarhöldunum yfir Michael Jackson en hann er ákærður fyrir að hafa misnotað ungan pilt

Harmleikur í Hillah

Að minnsta kosti 115 manns týndu lífi í Írak í gær þegar bílsprengja var sprengd í bænum Hillah. Aldrei hafa jafn margir farist í einni hryðjuverkaárás í landinu síðan hernám þess hófst.

Ástralir ekki hrifnir af Karli

Karl Bretaprins er í opinberri heimsókn í Ástralíu. Meirihluti þjóðarinnar vill ekki hafa hann sem þjóðhöfðingja yfir sér.

Sérfræðingar til varnar hundi

Umhverfis- og heilbrigðisnefnd hefur nú til skoðunar úrskurð um að tíu ára collie-hundur skuli aflífaður. Hundurinn glefsaði í barn í annað sinn í fyrra og hefur nú lögmann, heilbrigðisvottorð og vitnisburði.</font /></b />

Stór ákvörðun að hætta

Bryndís Hlöðversdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hættir á þingi 1. ágúst og tekur við starfi deildarforseta lögfræðideildar á Bifröst. Hún segir að lögfræðin hafi togað í sig og hún hafi ekki viljað sleppa þessu tækifæri. </font /></b />

Segir Evrópuumræðu leikrit

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - grænna, segir Evrópuumræðu Framsóknarflokksins um helgina að öllum líkindum leikrit til að breiða yfir innanbúðarátök í flokknum. Sé hins vegar um raunverulega stefnubreytingu að ræða geti það þrengt hjónabandsmarkaðinn fyrir Framsókn eftir næstu kosningar.

Súnnítar sagðir á bak við árásina

Að minnsta kosti eitt hundrað og fimmtán eru nú látnir eftir sprengjutilræði í Írak í morgun. Mörgum í viðbót er ekki hugað líf. Talið er að uppreisnarmenn úr röðum súnníta beri ábyrgð á árásinni.

Árásin í Tel Aviv verk Sýrlendinga

Ísraelar fullyrða að Sýrlendingar hafi gefið fyrirskipun um hryðjuverkaárás í Tel Aviv um helgina. Fimm manns létu lífið og friðarferlið er í hættu.

Leyfa undanþágur á þýðingarskyldu

Formaður allsherjarnefndar Alþingis telur ekki ástæðu til að óttast undanþágur frá þýðingarskyldu á lagatexta þar sem þeim verði markaðar þröngar skorður.

Býður Gæslunni eldsneyti

Markaðsstjóri Atlantsolíu hvetur Landhelgisgæsluna til að kaupa eldsneyti af Atlantsolíu þegar kaupin fara fram hér á landi. Hann telur Skeljung hafa fyrirgert þeim rétti sínum að vera birgir Gæslunnar.

Geta skuldbreytt námslánum

Námsmenn sem tóku lán eftir árið 1992 geta nú skuldbreytt lánunum og breytt afborgunarkjörum þeirra. Um er að ræða tæplega 27 þúsund námsmenn sem geta lækkað greiðslubyrði sína um tugi þúsunda á ári.

Sjö leikarar sögðu upp

Þremur fastráðnum leikurum við Þjóðleikhúsið var sagt upp störfum í gær. Sjö aðrir leikarar höfðu þá sagt störfum sínum lausum að fyrra bragði í kjölfar yfirlýsingar Tinnu Gunnlaugsdóttur þjóðleikhússtjóri um að tíu leikurum yrði sagt upp.

Vísir mest sótti vefur landsins

Vísir.is er orðinn fjölsóttasti vefur landsins. Þetta kemur fram í samræmdri vefmælingu Modernus fyrir vikuna 21. til 27. febrúar. Tæplega 160 þúsund manns heimsóttu Vísi síðustu heilu vikuna í febrúar og varð það til þess að vefurinn er kominn í efsta sæti á lista Modernus yfir þá vefi sem flestir netnotendur fara inn á.

Eimskip gert að rýma fyrir öðrum

Bæjarráð Akureyrar vill að leigusamningi um lóð Eimskipafélags Íslands á hafnarsvæðinu á Akureyri verði sagt upp. Bæjaryfirvöld vilja geta boðið öðrum skipafélögum aðgang að hafnarsvæðinu en Eimskipafélagið hefur eitt skipafélaga haft aðstöðu á Oddeyrarhöfn.

Kanna ráðningar útlendinga

Víðtækt samstarf er að hefjast í stjórnkerfinu um að kanna ráðningar byggingafyrirtækja og verktaka á útlendingum með þjónustusamningum og í gegnum starfsmannaleigur en í mörgum tilfellum er réttur brotinn á þessum mönnum.

Samningar tókust

Félag sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara og nefnd heilbrigðisráðherra undirrituðu nýjan kjarasamning í gærkvöldi svo og samninganefndir BHM og fjármálaráðherra.

Lögbannið staðfest

Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Norðurlands vestra um lögbann við því að stofnfé í Sparisjóði Skagafjarðar verði aukið.

Þinglýst til að verjast braski

Borgarráð tekur á næstunni ákvörðun um hvort 30 lóðum undir einbýlishús við Lambasel í Breiðholti verði úthlutað með hefðbundnum hattardrætti eða haldið verði útboð eins og gert var í Norðlingaholti. Lóðirnar verða fyrst auglýstar á næstunni í Stjórnartíðindum.

Heimilið varð eldinum að bráð

„Við fjölskyldan vorum úti að borða þegar það var hringt í mig og sagt að það væri kviknað í,“ sagði Hjálmar Diego Haðarson niðurbrotinn á meðan hann horfði á heimili sitt við Rjúpufell brenna í gærkvöldi.

Vannýtt stóriðja í Eyjafirði

Norðurskel hefur áform um stórfellt kræklingaeldi í Eyjafirði. Ef björtustu vonir ganga eftir verða til hundruð nýrra starfa í Eyjafirði innan fárra ára. </font /></b />

Vill að gengið verði fram af hörku

Verkalýðshreyfingin vill að gengið verði fram af fullri hörku gagnvart fyrirtækjum sem hafa erlenda starfsmenn án leyfa og brjóta lög og kjarasamninga á þessum starfsmönnum.

Fannst látinn í Sandgerðishöfn

Roskinn karlmaður fannst látinn í Sandgerðishöfn í nótt. Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Sandgerði og Garði voru kallaðar út um miðnættið en þá voru ættingjar mannsins farnir að hafa af honum áhyggjur.

Undirbúa aðildarviðræður en ...

„Framsóknarflokkurinn á þegar að hefja vinnu við mótun samningsmarkmiða og undirbúning aðildarviðræðna við Evrópusambandið en bera niðurstöðu þeirrar vinnu undir næsta flokksþing, til samþykktar eða synjunar.“ Á þessa leið hljóðar texti ályktunar Framsóknarflokksins um Evrópumál.

Verður að þurrka út skæruliðahópa

Mahmoud Abbas verður að þurrka út palestínska skæruliðahópa. Þetta eru viðbrögð Ariels Sharons, forsætisráðherra Ísraels, við sjálfsmorðsárásinni á næturklúbb í Tel Aviv á föstudagskvöld. Að öðrum kosti væru Ísraelsmenn tilneyddir að beita hersveitum sínum í baráttunni gegn skæruliðahópunum.

Rúðubrot í Stjórnarráði og Alþingi

Þrír karlmenn um tvítugt voru handteknir undir morgun eftir að þeir höfðu brotið rúðu í Stjórnarráðinu. Um tíu mínútum áður hafði verið brotin rúða í Alþingishúsinu og segir lögregla eftir að kanna hvort sömu menn hafi verið þar að verki. Þeir gista nú fangageymslur.

Námskynning í Háskóla Íslands

Árleg námskynning Háskóla Íslands hefst nú klukkan 11. Þar kynna kennarar og nemendur ellefu deilda skólans námsframboð og rannsóknarverkefni, bæði í grunn- og framhaldsnámi. Þá geta áhugasamir hlýtt á örfyrirlestra um ýmsar hliðar raunvísinda og verkfræði í Öskju.

Hálfbróðir Saddams handtekinn

Hálfbróðir Saddams Husseins, Sabawi Ibrahim Hasan, hefur verið handtekinn að sögn írakska forsætisráðuneytisins. Hasan er sagður hafa verið náinn ráðgjafi bróður síns í stjórnartíð hans í Írak.

Opið í Bláfjöllum og Skálafelli

Opið er í Bláfjöllum í dag frá 10 til 18. Allar lyftur eru opnar nema stólalyftan í Suðurgili en stefnt er að því að hún opni síðar í dag. Veður er mjög gott, norðvestlæg átt um 3 metrar á sekúndu og frost 1 stig. Skíðafæri er hart, enda um unnið harðfenni að ræða. Einnig er opið í Skálafelli frá 10 til 18 í dag.

Páfi biður um fyrirbæn

„Biðjið fyrir mér.“ Þessi skilaboð bárust frá Jóhannesi Páli páfa fyrir stundu, samkvæmt því sem aðstoðarmenn hans greina frá. 

Bifröst fékk leyfi frá ráðuneytinu

Viðskiptaháskólinn á Bifröst hefur fengið heimild menntamálaráðuneytis til að hefja nýtt grunnám til BA-gráðu í haust þar sem fléttað verður saman heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði. Námið verður vistað í nýrri háskóladeild, félagsvísinda- og hagfræðideild, og hefur Magnús Árni Magnússon verið ráðinn deildarforseti.

Kjarnorkuvopnaáætlun í bígerð?

Íranar keyptu upplýsingar af pakistönskum vísindamönnum um hvernig koma ætti af stað kjarnorkuvopnaáætlun, segja rannsóknarmenn Bandaríkjastjórnar. 

Stöðugur flótti stuðningsmanna ESB

Enn er hart tekist á um afstöðu til Evrópusambandsins á flokksþingi Framsóknarflokksins. Stuðningsmenn aðildar eru á stöðugum flótta og hafa andstæðingar náð fram verulegum breytingum frá upphaflegri tillögu að ályktun. Þá stefnir í að Framsóknarflokkurinn álykti að flugvöllurinn eigi að vera áfram í Vatnsmýrinni.

Sjá næstu 50 fréttir