Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sótt að vígamönnum í Ramadi Bandarískar og íraskar hersveitir streymdu inn í Ramadi, settu upp vegatálma, leituðu í bílum og lokuðu nokkrum borgarhlutum af í gær. Aðgerðirnar voru hluti af sókn þeirra gegn íröskum vígamönnum í borginni og nokkrum öðrum borgum og bæjum við Efrat-fljót. 21.2.2005 00:01
Gamalt vín á nýjum belgjum Ahmed Qureia forsætisráðherra tryggði sér stuðning tuga þingmanna við breytta ríkisstjórn á stormasömum fundi með þingmönnum Fatah-hreyfingarinnar í fyrrinótt. Óvíst er hins vegar hversu langt það dugir því mikillar andstöðu gætir meðal þingmanna við nýju ríkisstjórnina. 21.2.2005 00:01
Vara við áhugaleysi Forystumenn Evrópusambandsins lýstu áhyggjum af lítilli þátttöku í spænsku þjóðaratkvæðagreiðslunni um stjórnarskrá Evrópusambandsins og vöruðu við því að áhugaleysi almennings kynni að valda vandamálum þegar kæmi að því að afla stuðnings við stjórnarskrána. 21.2.2005 00:01
Bókhaldsvandi í Sellafield Ástæðan fyrir því að þrjátíu kíló af plútoníum koma ekki fram við birgðatalningu í Sellafield-kjarnorkuendurvinnslustöðinni er bókhaldslegs eðlis, að því er fram kemur í svari breskra stjórnvalda við fyrirspurn Sigríðar Önnu Þórðardóttur umhverfisráðherra. 21.2.2005 00:01
Tugþúsundir mótmæltu Sýrlendingum Tugþúsundir Líbana tóku þátt í mótmælum gegn stjórn landsins og kröfðust þess að hún færi frá völdum. Efnt var til mótmælanna viku eftir að Rafik Hariri, fyrrum forsætisráðherra, var ráðinn af dögum. 21.2.2005 00:01
Viðhorf Þjóðverja hafa ekki breyst "Ég trúi því ekki að viðhorf Þjóðverja hafi breyst í raun og veru. Hætta kann að stafa af Þjóðverjum vegna þess hversu landakröfur þeirra eru verulegar," sagði Bogdan Michalski, prófessor í lögfræði og fjölmiðlun við Varsjárháskóla, sem undirbýr nýja útgáfu Mein Kampf eftir Adolf Hitler. 21.2.2005 00:01
Flug úr skorðum vegna þoku Þoka hefur legið yfir vestanverðu landinu í dag og hefur innanlandsflug af þeim sökum farið úr skorðum. Þokan hefur mest verið við Faxaflóa og Breiðafjörð en einnig náð inn á Vestfirði. Skyggni hefur farið niður í nokkra tugi metra og hefur Reykjavíkurflugvöllur verið meira og minna lokaður frá hádegi og flugvélum beint til Keflavíkur. 21.2.2005 00:01
Þjófar stálu sundlaug Fátt er svo fast að þjófar geti ekki stolið því. Að því komst Norðmaðurinn Arild Nicolaysen þegar hann kom að sumarbústað sínum og sá að þjófar höfðu haft sundlaugina á brott. 21.2.2005 00:01
Dæmdur fyrir fjársvik og innbrot Rúmlega tvítugur maður var dæmdur í tveggja mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í gær fyrir fjársvik, þjófnað og að taka við þýfi. Maðurinn hafði meðal annars framvísað greiðslukorti fyrirtækis í leyfisleysi og brotist inn í íbúðarhúsnæði og stolið þaðan verðmætum. 21.2.2005 00:01
Tæpt ár fyrir kjálkabrot Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í gær 33 ára gamlan karlmann í tíu mánaða fangelsi fyrir líkamsárás, innbrot og þjófnað. Manninum var gefið að sök að hafa ráðist á konu í íbúð sinni að morgni gamlársdags árið 2003 og misþyrmt henni með þeim afleiðingum að hún kjálkabrotnaði. 21.2.2005 00:01
Stal buxum, kaffi og frönskum Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í gær nítján ára Keflvíking í hundrað daga skilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnaðartilraun. Pilturinn hafði aðfaranótt 26. maí í fyrra farið inn á Flughótel í Keflavík og látið þar greipar sópa. 21.2.2005 00:01
Skilorð fyrir árás með flösku Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í gær mann á 23. aldursári í fjögurra mánaða fangelsi, skilorðsbundið í þrjú ár, fyrir að hafa slegið mann með bjórflösku í andlitið og sparkað í höfuð hans með þeim afleiðingum að bein í andliti brotnuðu. 21.2.2005 00:01
Atlansolía með sjö nýjar stöðvar Atlantsolía ætlar að byggja sjö nýjar bensínstöðvar á þessu ári. Í dag verður tekin skóflustunga að nýrri stöð í Njarðvík en á næstu mánuðum stendur til að byggja stöðvar við Kaplakrika í Hafnarfirði, á Dalvegi í Kópavogi, á Sprengisandi, í Skeifunni og á Höfða. 21.2.2005 00:01
Hættulegt litarefni í matvælum Umhverfisstofnun barst viðvörun frá bresku matvælastofnuninni á föstudaginn um matvæli og fóður sem greinst hafa með ólöglegt rautt litarefni sem kallast Sudan-1. Yfir 350 vörutegundir í Bretlandi hafa greinst með litarefnið sem talið er krabbameinsvaldandi. 21.2.2005 00:01
Framhúsið ekki rifið Ekki er heimilt að rífa framhúsið við Laugaveg 17, að sögn Dags B. Eggertssonar, formanns skipulagsnefndar Reykjavíkurborgar. Samkvæmt deiliskipulagi eru hús við Laugaveg 17 meðal þeirra sem heimilt verður að rífa en Dagur segir að sú heimild nái aðeins til bakhúsanna á reitnum, þar sem verslanirnar Plastikk og Oni eru meðal annars. 21.2.2005 00:01
2500% munur á lyfjaverði Lítið hefur áunnist á því ári sem liðið er frá því að Ríkisendurskoðun kallaði eftir úrbótum vegna mikils verðmunar á lyfjum hér á landi og í Danmörku. Dæmi eru um allt að 2500 prósenta mun á heildsöluverði lyfja milli landanna, þrátt fyrir að þau komi frá sama framleiðanda: Actavis. 21.2.2005 00:01
Siv undrast að vera ekki boðið Nýtt félag framsóknarkvenna í Kópavogi var stofnað í gær. Að því félagi standa konurnar sem nýlega reyndu að hrifsa til sín völdin í Freyju, félagi framsóknarkvenna í Kópavogi. Oddvita flokksins í kjördæminu, Siv Friðleifsdóttur, var ekki boðið á fundinn og undrast hún það. 21.2.2005 00:01
Gleðitár runnu í Palestínu Gleðitár runnu um gervalla Palestínu í dag þegar fimm hundruð palestínskir fangar sneru aftur til síns heima úr ísraelskum fangelsum. Lausn fanganna er hluti af nýsamþykktu vopnahléi Ísraela og Palestínumanna. 21.2.2005 00:01
Ágreiningur á bak við vinarþelið Vinsemd og friður svífur yfir vötnum á ferðalagi Bush Bandaríkjaforseta í Evrópu, enda er tilgangurinn að styrkja tengslin á Atlantshafsásnum eftir erfið misseri. En fréttamaður Stöðvar 2 komst að því að hátíðarbragur og tignarlæti duga ekki til að dreifa athyglinni frá grundvallarágreiningi stórveldisins og stækkandi Evrópusambands. 21.2.2005 00:01
Hringleið umhverfis Miðnesheiði Hringleið mun opnast umhverfis Miðnesheiði með nýjum vegi, sem boðinn verður út í vor. Um leið fær almenningur aðgang að fögrum og sögufrægum stöðum í næsta nágrenni Leifsstöðvar á svæði sem í meira en hálfa öld hefur tilheyrt Varnarliðinu. 21.2.2005 00:01
Ódýrara að taka lán fyrir skálanum Ódýrara hefði verið fyrir Reykjavíkurborg að taka lán fyrir sýningarskálanum sem hýsir landnámsminjarnar í Aðalstræti en að selja hann og endurleigja. Það hefur varafulltrúi F-lista í skipulagsráði reiknað út. Hann vill að málið verði tekið upp, enda hljóti að vera um mistök að ræða hjá borgaryfirvöldum. 21.2.2005 00:01
Sjóðirnir liggja frystir í banka Sjóðir Bandalags jafnaðarmanna liggja frystir í Landsbankanum og svo virðist sem enginn geti gert tilkall til þeirra. Stefán Benediktsson, fyrrverandi alþingismaður, segir flokkssystkin sín hafa ásælst sjóðina á sínum tíma en ekki haft erindi sem erfiði. 21.2.2005 00:01
Dylgjur óheimilar Samkeppnisráð úrskurðaði í gær að Hnit hf., hafi brotið gegn samkeppnislögum með því að gefa í skyn í bréfi til ýmissa sveitarfélaga að keppinautur noti gamlan og úreltan búnað við loftmyndatöku. 21.2.2005 00:01
Siv og Una María víki Siv Friðleifsdóttur og Hansínu Björgvinsdóttur var ekki boðið á stofnfund Brynju, félags framsóknarkvenna í Kópavogi. Óskað er eftir undanþágu til að félagið geti sent fulltrúa á flokksþing og farið fram á að Siv og Una víki sæti úr landsstjórn á meðan fjallað er um málið. 21.2.2005 00:01
Lögregla yfirheyrir tvo vegna ráns Lögreglan í Reykjavík handtók um miðnætti tvo karlmenn sem grunaðir eru um vopnað lyfjarán í Árbæjarapóteki í gær. Mennirnir, sem báðir hafa komið við sögu lögreglu áður, voru handteknir í heimahúsi og verða yfirheyrðir í dag. Ræningjarnir réðust inn í apótekið um hádegisbil klæddir bláum samfestingum og með hettur á höfði, vopnaðir hnífum. Þeir náðu nokkru af lyfjum. 20.2.2005 00:01
Gærdagurinn einn sá blóðugasti Að minnsta kosti fjörtíu létust og 130 særðust í sjálfsmorðsárásum súnnímúslíma í Írak í gær. Þar með er gærdagurinn einn af blóðugustu dögum landsins eftir kosningarnar 30. janúar, en sjítamnúslímar fögnuðu í gær Ashura-trúarhátíðinni. 20.2.2005 00:01
Spánverjar kjósa um stjórnarskrá Þjóðaratkvæðagreiðsla hófst í morgun á Spáni um stjórnarskrá Evrópusambandsins. Spánn er fyrsta landið þar sem slík atkvæðagreiðsla fer fram, en alls eru það 10 Evrópuríki sem kjósa um stjórnarskrána. 20.2.2005 00:01
Þingkosningar í Portúgal Fjórða ríkisstjórnin á þremur árum verður kjörin í dag í Portúgal. Þjóðin er ein sú fátækasta í Evrópusambandinu, en þar búa tíu milljónir manna. Skoðanakannanir benda til þess að sósíalistar, sem nú eru í stjórnarandstöðu, sigri í kosningunum. 20.2.2005 00:01
Ók á tvo ljósastaura Mikil mildi þykir að ekki varð stórslys þegar fólksbíl var ekið á tvo ljósastaura á Drottningarbraut á Akureyri í gærkvöldi. Tvennt var í bílnum og slapp það ómeitt en bíllinn er gjörónýtur eftir áreksturinn. 20.2.2005 00:01
Átta handteknir á Akureyri Átta manns voru handtekin á Akureyri í gærkvöldi og í nótt vegna fíkniefna í tveimur aðskildum málum. Fyrra málið kom upp um kvöldmatarleytið. Fernt var handtekið og hald lagt á tæki og tól til fíkniefnaneyslu sem og hass og amfetamín. Þeim var sleppt seint í gærkvöldi eftir yfirheyrslu og telst málið upplýst. 20.2.2005 00:01
Skíðasvæði opin þrátt fyrir hlýju Skíðasvæðið í Tindastóli verður opið frá klukkan 12 til 17 síðdegis. Þar er logn og fjögurra stiga hiti en gott færi. Verið er að opna skíða- og snjóbrettasvæðið í Hlíðarfjalli og það verður opið sömuleiðis til fimm. Þar er 6 stiga hiti og blæs að sunnan, tveir til sex metrar á sekúndu. Skíðafærið er troðinn, blautur snjór. Opið er í Bláfjöllum til klukkan sex í kvöld og á Hengilssvæðinu til fimm en skíðasvæðið í Skálafelli er lokað. 20.2.2005 00:01
Vill eitt gagnaflutningsnet Flokksráð Vinstri - grænna hvetur til þess að grunnnet Landsímans, Orkuveitu Reykjavíkur og Landsvirkjunar verði sameinuð í eitt gagnaflutningsnet í eigu ríkis og sveitarfélaga. Fundurinn telur mikilvægt að slíkt fjarskiptanet þjóni öllum landsmönnum og verði aðgengilegt öllum aðilum í fjarskiptaþjónustu en einkavæðing Landsímans með grunnnetinu muni leiða af sér mismunun og offjárfestingu sem almenningur þurfi á endanum að borga. 20.2.2005 00:01
Atlantsolía opnar í Reykjavík Borgarstjóri opnar fyrstu bensínstöð Atlantsolíu í Reykjavík klukkan hálfþrjú í dag. Bensínstöðin er staðsett á Sprengisandi við enda Bústaðavegar á mótum Reykjanesbrautar. Bensínstöðin er sjálfsafgreiðslustöð fyrir bensín- og díselbíla. Fyrstu mánuðina mun starfsmaður leiðbeina nýjum viðskiptavinum við sjálfsafgreiðslu og notkun kortasjálfsala. 20.2.2005 00:01
Vill ekki lækna útlendinga Heimilislæknir nokkur í Harstad í Noregi hefur gefið heilbrigðisyfirvöldum í fylkinu ákveðin skilaboð um að hann vilji ekki hafa neitt með útlendinga að gera á læknastofu sinni. Þeir verði að leita annað með veikindi sín. Einnig þverneitar hann að meðhöndla konur með ófrjósemisvandamál og segist gjarnan vilja vera laus við kröfuharða sjúklinga. 20.2.2005 00:01
43 látnir í ferjuslysi Að minnsta kosti 43 létust þegar ferja sökk á fljótinu Buriganga í suðurhluta Bangladess. Ferjan var á leiðinni frá borginni Dhaka þegar hún lenti óveðri með fyrrgreindum afleiðingum. Talið er að um 200 manns hafi verið um borð og er um 150 enn saknað, en óttast er að fjölmargir hafi ekki komist frá borði áður en skipið sökk. 20.2.2005 00:01
Lokadagur Vetrarhátíðar í dag Lokadagur Vetrarhátíðar er í dag og margt í boði fyrir alla fjölskylduna. Nefna má Heimsdag barna í Hlíðaskóla, en þar verður hægt að taka þátt í listsmiðjum, leika á óvenjuleg hljóðfæri, prófa ævintýraspuna og dansa bæði hipphopp og taílenska dansa. 20.2.2005 00:01
Búist við dræmri kosningaþátttöku Spánverjar hófu í morgun að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá Evrópusambandsins. Búist er við dræmri kosningaþátttöku en að stjórnarskráin verði samþykkt. 20.2.2005 00:01
Fundað um landnemabyggðir Ísraelska ríkisstjórnin situr nú á fundi til að ákveða hvort styðja eigi áætlanir Ariels Sharons forsætisráðherra um að loka landnemabyggðum gyðinga á Gaza-svæðinu, en það er eitt af mestu deilumálum Palestínumanna og Ísraela. 20.2.2005 00:01
Bílbeltaundanþága barn síns tíma Undanþága leigubílstjóra frá bílbeltaskyldu er barn síns tíma, segir talsmaður Umferðarstofu. Hjón, sem tóku leigubíl með níu ára syni sínum í gærkvöld, kröfðust þess að bílstjórinn setti á sig öryggisbelti enda fór bílstjórinn fram á það, eðlilega, að farþegar hans sætu spenntir. 20.2.2005 00:01
Horfið frá landnemabyggðum Ríkisstjórn Ísraels samþykkti á fundi sínum í dag áætlun um að Ísraelar hverfi frá landnemabyggðum á Gaza-svæðinu. Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, hefur barist fyrir stuðningi við þessa áætlun, en hún er ákaflega mikilvæg varðandi friðarhorfur fyrir botni Miðjarðarhafs, þar sem landnemabyggðirnar hafa verið þyrnir í augum Palestínumanna. 20.2.2005 00:01
Átök sjíta og súnníta á Indlandi Til átaka kom á milli sjíta og súnníta í héraðinu Uttar Pradesh í norðurhluta Indlands í dag með þeim afleiðingum að þrír létust og 13 særðust. Deilurnar milli trúarhópanna snerust um það hvaða leið ganga á vegum sjítanna ætti að fara, en þeir halda um Ashura-trúarhátíðina hátíðlega um þessar mundir eins og sjítar í öðrum löndum. 20.2.2005 00:01
Fleiri finnast látnir í Bangladess Nú hafa 74 fundist látnir og rúmlega 120 er enn saknað eftir að áætlunarferja með um 200 manns sökk á fljótinu Buriganga í suðurhluta Bangladess í dag. Ferjan var á leiðinni frá borginni Dhaka þegar hún lenti óveðri með þeim með afleiðingum að henni hvolfdi og í kjölfarið sökk hún. 20.2.2005 00:01
Fíll í dýragarði drepur mann Starfsmaður í dýragarðinum í Vínarborg í Austurríki lést í dag eftir að fíll í garðinum stakk hann á hol. Starfsmaðurinn var að sprauta vatni á fílinn þegar hann trylltist og rak aðra skögultönnina í gegnum maga mannsins. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem dýr í garðinum verður manni að bana því fyrir þremur árum réðst jagúar á starfsmann og drap hann frammi fyrir gestum í garðinum. 20.2.2005 00:01
Sagðir ræða um frið Bandarískir erindrekar og yfirmenn í leyniþjónustu Bandaríkjanna eiga í leynilegum viðræðum við uppreisnarmenn súnníta í Írak til þess að reyna að binda enda á árásir þeirra í landinu. Frá þessu greinir tímaritið Time í dag og hefur eftir ónafngreindum heimildarmönnum í Washington og Írak. 20.2.2005 00:01
Manntjón í snjóflóðum á Indlandi Mikið fannfergi í Kasmír-héraði á Indlandi hefur kostað 21 mann lífið og 28 er saknað, en þar hafa snjóflóð fallið á afskekkt þorp. Ekki hefur snjóað jafnmikið í héraðinu í nær tvo áratugi og hafa margir bæir í Himalajadalnum verið einangraðir í þrjá daga þar sem vegir eru lokaðir og víða er rafmagns- og símasambandslaust. 20.2.2005 00:01
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Innlent
Munaði minnstu að hún væri sjálf komin út í þegar árásin varð: „Það verður bara allt í blóði í sjónum“ Erlent