Fleiri fréttir

Blótin fara vel fram

Landsmenn blótuðu þorrann víða á bóndadag en samkvæmt upplýsingum frá lögreglu um allt land fóru þorrablótin almennt vel fram og fólk var víðast hvar prútt og stillt.

Tveimur vélsleðum stolið

Tveimur vélsleðum var stolið frá Litlu kaffistofunni aðfaranótt laugardags. Að sögn lögreglunnar á Selfossi liggur ekki fyrir hvernig sleðunum var stolið eða hver hafi gert það en málið er í rannsókn.

45 gætu misst vinnuna

Þetta kemur kannski ekki á óvart en ég ætla að vona að svona mörg störf tapist ekki. Maður getur rétt ímyndað sér ef annað eins hlutfall starfa myndi glatast á einu bretti á höfuðborgarsvæðinu," segir Kristján L. Möller, þingmaður Samfylkingarinnar fyrir Norðaustur kjördæmis um fréttir þess efnis að Samherji muni hugsanlega leggja niður landvinnslu á Stöðvarfirði.

Listinn ekki lengur notaður

Ísland er ekki lengur á neinum lista yfir bandamenn Bandaríkjanna í Íraksmálinu, samkvæmt því sem Reuters-fréttastofan hafði eftir ónefndum bandarískum embættismanni í gær.

Hafa fallist á vopnahlé

Abu Muhammed, einn af talsmönnum Al Aksa píslarvottarsveitanna, sagði í gær að sveitirnar gætu fallist á vopnahlé, svo framarlega sem Ísraelsmenn samþykkja einnig að hætta árásum á Palestínumenn og leysi jafnframt palestínska fanga úr haldi.

Bjargað eftir 25 daga

Michael Mangal var bjargað af örlítilli eyju í Indlandshafi á föstudaginn. Hann hafði verið þar einn í 25 daga, eða allt frá því flóðbylgjan mikla reið yfir á jóladag.

Fátækt nýja ógnin

Hagsmunum Norðurlandaþjóðanna er best borgið innan alþjóðlegra stofnana líkt og Sameinuðu þjóðanna, NATO og Evrópusambandsins. Þetta sagði Thorvald Stoltenberg, fyrrum utanríkisráðherra Noregs og forseti norska Rauða Krossins, á málþingi framtíðarhóps Samfylkingar í gær.

Mikil viðbrögð

Mikil viðbrögð hafa borist vegna auglýsingar Þjóðarhreyfingarinnar sem birtist í dagblaðinu New York Times á föstudag, að sögn Ólafs Hannibalssonar.

Sprenging við mosku sjíta

Að minnsta kosti átta féllu í valinn í morgun þegar bílsprengja sprakk utan við mosku sjíta í vesturhluta Bagdad í Írak. Að minnsta kosti 38 slösuðust í árásinni en að sögn lögreglu er talið líklegt að tala látinna og slasaðra eigi eftir að hækka.

Al-Zarqawi býst við löngu stríði

Hryðjuverkaleiðtoginn Abu Musab al-Zarqawi í Írak segir fylgismönnum sínum að búa sig undir að stríðið gegn Bandaríkjamönnum kunni að vara í áraraðir. Á nýrri hljóðupptöku, sem sögð er frá al-Zarqawi, segir hann jafnframt að Omar Hadid, einn af leiðtogum al-Qaida í borginni Fallujah, hafi fallið í bardögum við Bandaríkjamenn en talið var að hann hefði komist lífs af.

Allir fái nauðsynleg næringarefni

Neyðaraðstoð í Ache-héraði í Indónesíu miðar nú að því að fólk fái öll nauðsynleg næringarefni en ekki bara magafylli af hverju sem er. Nær allir sem voru matarþurfi hafa nú fengið mat en að sögn yfirnæringarfræðings Sameinuðu þjóðanna er óttast að einhæf fæða geti leitt til þess að fórnarlömb hamfaranna veikist.

Grunaður um sölu á hassi

Lögreglan í Keflavík fann 70 grömm af hassi við húsleit hjá manni í Njarðvík í gærkvöldi og lagði hald á efnið. Í fyrrakvöld, þegar lögreglumenn þurftu að hafa tal af sama manni, fundust sjö grömm á honum. Hann er grunaður um að hafa ætlað að selja efnið og er málið í frekari rannsókn.

Reyndist heill á húfi

Maður á níræðisaldri, sem farið var að óttast um í Kópavogi í gærkvöldi, kom fram heill á húfi rétt eftir að búið var að kalla út fjörutíu björgunarsveitarmenn með leitarhunda til að leita að honum. Hann hafði villst á göngu sinni og maður sem sá til hans og grunaði að ekki væri allt með felldu ræddi við hann og ók honum heim eftir að ljóst varð hvernig á stóð.

Fjölmenn mótmæli í Washington

Tugþúsundir manna mótmæltu þegar George Bush sór embættiseið með mikilli viðhöfn í Washington í gær. Þrátt fyrir gríðarlega öryggisgæslu náði hluti mótmælendanna að brjóta sér leið inn á svæði, sem lögregla hafði girt af, við Pennsylvaníu-breiðstræti. Lögreglumenn beittu piparúða til þess að brjóta mótmælin á bak aftur.

Jeb Bush verði arftaki bróður síns

Í nýjasta tímariti The Economist er Jeb Bush, bróður núverandi Bandaríkjaforseta, slegið upp sem vænlegasta arftaka hans innan Repúblikanaflokksins. Dick Cheney, núverandi varaforseti, hefur lýst því yfir að hann muni ekki bjóða sig fram árið 2008. Það opnar leiðina fyrir Jeb Bush, sem nú er ríkisstjóri í Flórída og verður það til ársins 2006.

Gæsluvarðhald rennur út í dag

Gæsluvarðhald yfir íslenskri konu, sem handtekin var í Leifsstöð á þriðjudag með fíkniefni í fórum sínum, rennur út í dag. Ekki hefur verið gefið upp hversu mikið af fíkniefnum fannst en hún var bæði með efni innvortis og innan klæða. Konan var að koma frá Kaupmannahöfn þegar hún var handtekin.

Fjölmörg loðnuskip í Norðfirði

Það er óvenju líflegt í og á Norðfirði þessa stundina. Nokkur stór, norsk loðnuskip lóna á firðinum og keppast áhafnir þeirra við að frysta loðnu um borð. Íslensk loðnuskip eru á þönum inn og út. Ýmist landa þau frystum loðnuafurðum eða ferskri loðnu til bræðslu eða frystingar í landi. Loks er von á flutningaskipi til að flytja afurðirnar til út.

Innlendir aðilar á fund Impregilo

Fundur sem verktakafyrirtækið Impregilo boðaði til með fulltrúum Samtaka atvinnulífsins og fulltrúum ítalskra og íslenskra verkalýðshreyfinga hófst klukkan níu. Tilgangur hans er óljós. Fyrr í morgun hittust fulltrúar íslenskra verkalýðsfélaga og fulltrúar Alþjóðasambands byggingarverkamanna þar sem farið var yfir gildandi lög hér á landi og samninga við Impregilo.

Fjórtán látnir í sprengjuárás

Nú er ljóst að 14 hafa látist og 40 særst í sjálfsmorðssprengjuárás nærri mosku sjíta í vesturhluta Bagdad í morgun. Fjölmargir voru á leið til bæna í moskunni þegar bíl var ekið að henni og hann sprengdur í loft upp, en í gær hófst Eid al-Adha, trúarhátíð múslíma.

Cheney viðrar áhyggjur af Íran

Íran er efst á lista bandarískra stjórnvalda yfir vandræðasvæði víðs vegar um heiminn, að sögn Dicks Cheneys, varaforseta Bandaríkjanna. Þetta kom fram í útvarpsviðtali í gær, en undanfarna daga hafa borist af því fregnir að Bandaríkjastjórn leggi á ráðin um innrás í Íran. Talsmenn stjórnvalda hafa neitað þessu.

Boston skotmark hryðjuverkamanna

Boston-borg er talin líklegt skotmark alþjóðlegra hryðjuverkamanna sem sagðir eru ætla sér að nota svokallaðar óhreinar sprengjur, en það eru hefðbundnar sprengjur blandaðar geislavirkum bútum sem ætlað er að valda sem mestri ringulreið.

Kaupmáttarauking í fyrra aðeins 2%

Kaupmáttaraukningin hér á landi í fyrra var aðeins tvö prósent, sem er langt undir meðaltali síðastliðinna tíu ára. Þá var verðbólgan talsvert yfir meðaltali í löndum á Evrópska efnahagssvæðinu.

Sakaðir um stórfelld skattsvik

Þremur af fyrrverandi stjórnendum Skjás eins, sem hlutu dóma í fyrra vegna stórfellds þjófnaðar frá Landssímanum, er nú gefið að sök að hafa svikið hátt í 60 milljónir króna undan skatti. Það er vegna fimm fyrirtækja sem þeir ráku og Ríkislögreglustjóri hefur rannsakað. Brotin ná meðal annars til vangoldinna vörsluskatta.

Óskar eftir skýringum sýslumanns

Bogi Nilsson ríkissaksóknari segir að óskað hafi verið eftir skýringum frá sýslumanninum í Vestmannaeyjum vegna frétta um að kæra fyrir líkamsárás hafi verið fyrnd þegar loks var ákært í málinu.

Vill útrýma harðstjórn í heiminum

Geogre Bush Bandaríkjaforseti hét því að brúa gjána á milli andstæðra hreyfinga í Bandaríkjunum og að útrýma harðstjórn um allan heim í setningarræðu sinni í gær. Ríflega helmingur Bandaríkjamanna efast um fyrirætlanir forsetans.

Fórnarlömb hamfaranna þurfa vinnu

Vinna er það sem fórnarlömb hamfaranna í Suðaustur-Asíu þurfa helst á að halda. Annars er hætta á að fólk venjist matargjöfum og að frumkvæði lognist út af. Þetta er mat stjórnenda hjálparstarfs á svæðinu, sem segja uppbyggingarstarf nú taka við af neyðarhjálp.

Íslenskrar stúlku leitað í Álaborg

Lögreglan í Álaborg í Danmörku leitaði í nótt að14 ára íslenskri stúlku sem yfirgaf heimili sitt í Álaborg eftir miðnætti. Hún skildi eftir kveðjubréf sem gaf lögreglu tilefni til að ætla að hún hygðist vinna sér mein. Að sögn lögreglunnar í Álaborg fannst stúlkan fyrir rúmri hálfri klukkustund og hafði hún falið sig hjá vinkonu sinni.

Má banna slæður á vinnustað

Dansk Supermarked, sem er stærsta matvörukeðja Danmerkur, er í fullum rétti til að banna starfsfólki sínu að bera slæður og klúta sem tengjast trúarbrögðum þess. Hæstiréttur Danmerkur kvað upp dóm þessa efnis í morgun og staðfesti þar með dóm undirréttar.

Fundargerð orðin opinber

Fréttablaðið birtir í morgun orðréttan texta upp úr fundargerðum utanríkismálanefndar Alþingis. Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur farið fram á að trúnaði verði aflétt af fundargerðum nefndarinnar og ríkisstjórnarinnar þar sem fjallað var um aðdraganda ákvörðunarinnar um stuðning Íslands við innrásina í Írak og um að Ísland skyldi vera sett á lista hinna staðföstu þjóða.

Dreifbýli megi síst við hækkunum

Húshitunarkostnaður á Vestfjörðum hækkar um 70 til 80 milljónir króna á ári, eða um hátt í tíu þúsund krónur á hvert mannsbarn, í kjölfar breytinga á rekstrarumhverfi raforkufyrirtækja. Einar K. Guðfinnsson alþingismaður segir að strjálbýlið megi alls ekki við slíku og að leita verði allra leiða til að koma í veg fyrir þetta.

Ráðherra vill aukið eftirlit

Eftirlit með erlendu ólöglegu vinnuafli hér á landi er á hendi lögreglu, segir dómsmálaráðherra. Ráðuneyti hans hefur ekki haft þessi mál sérstaklega til skoðunar að undanförnu, þrátt fyrir fullyrðingar um ólöglega atvinnustarfsemi hér. Félagsmálaráðherra vill hert eftirlit. </font /></b />

Ráðleggur körlum breyttan lífsstíl

Mikilvægt er að hlusta á karla sem hafa einkenni minnkandi karlhormóns og breytingaskeiðs og gefa þeim góð og lífsstílsbreytandi ráð, segir Jón Gunnars Hannesson heimilislæknir.

Karlar hópast í kynhormónameðferð

Íslenskir karlar fara í síauknum mæli í kynhormónameðferð, þegar þeir fara að kenna einkenna breytingaskeiðsins. Þau eru helst þreyta, framtaksleysi og depurð, jafnvel þunglyndi, sem og minnkandi áhugi og geta til kvenna. </font /></b />

Miltisbrandur girtur af

Nú stendur yfir girðingavinna á bænum Sjónarhóli á Vatnsleysuströnd, þar sem miltisbrandur drap hross á dögunum.

Sviðakjammar og gervihnattadiskar

Augu handboltaunnenda beinast að Túnis meðan Heimsmeistaramótið stendur yfir. Landið sker sig úr Miðjarðarhafinu inn í norðanverða Afríku og lúrir þar milli Alsír, Líbýu og hafs. Túnis er nokkuð stærra en Ísland og íbúarnir tæpar tíu milljónir. Landið laut yfirráðum Frakka um árabil og franskra áhrifa gætir í menningu og mannlífi. </font /></b />

Danskir hermenn sóttir til saka

Fimm danskir hermenn hafa verið ákærðir fyrir að beita írakska fanga harðræði í höfuðstöðvum danska herliðsins í Suður-Írak í fyrra. Um er að ræða hershöfðingja og fjóra herlögreglumenn sem er gefið að sök að hafa kúgað fangana við yfirheyrslur.

Draga þarf úr þjónustu hjá LSH

Samkvæmt rekstraráætlun Landspítalans fyrir árið 2005 verður enn dregið úr þjónustu spítalans, meðal annars með lengri sumarlokunum og minni þjónustu við sjúklinga um helgar. Lækka þarf rekstrarkostnað spítalans um tvö prósent miðað við afkomuna í fyrra.

Boða viðræður um skatta og laun

Samráðsnefnd íslensku verkalýðsfélaganna og ítalska verktakafyrirtækisins Impregilo ætla að hefja viðræður um skattamál og launakjör starfsmanna við Kárahnjúka. Þetta kom fram á blaðamannfundi sem fulltrúar íslenskra og ítalskra verkalýðsfélaga, Alþjóðasambands byggingarverkamanna og Impregilo héldu í dag.

Lenín endist í 100 ár í viðbót

Líkið af Lenín sem er til sýnis í grafhýsi hans á Rauða torginu er enn í góðu standi og endist að minnsta kosti eitt hundrað ár í viðbót, en í dag er 81 ár síðan byltingarleiðtoginn lést. Einn sérfræðinganna sem annast líkið, segir að það fari hins vegar að líða að því að leiðtoginn þurfi að fá ný föt.

ESB íhugar auglýsingabann

Evrópusambandið íhugar að banna auglýsingar á sælgæti og skyndibitamat grípi framleiðendur ekki sjálfir til sinna ráða. Offituvandi barna og unglinga í Evrópu er alvarlegur að mati matvælaráðherra sambandsins sem ætlar að leggja fram tillögur að samræmdum reglum sem fyrirtækin geti sett sér í þessu efni.

Ekki minnst á Gallup

Auglýsing Þjóðarhreyfingarinnar þar sem íraska þjóðin er beðin afsökunar á stuðningi íslenskra stjórnvalda við innrásina í Írak birtist í New York Times í gær.

Íhugar að flytja landvinnslu

Samherji íhugar nú að breyta eða hætta alveg landvinnslu á Stöðvarfirði á næstunni og færa hana til Dalvíkur, eftir því sem fram kemur á heimasíðu fyrirtækisins. Gestur Geirsson, framkvæmdastjóri landvinnslu Samherja, greindi starfsmönnum, trúnaðarmönnum þeirra og fulltrúum verkalýðsfélaga frá þessu á fundi í gær.

Laus úr haldi

Rúmlega þrítug íslensk kona sem handtekinn var á Keflavíkurflugvelli á þriðjudag var með tæp 390 grömm af hassi innvortis og í fórum sínum. Hún var úrskurðuð í gæsluvarðhald til gærdagsins en var sleppt úr haldi á fimmtudagskvöld.

Unir dómi

27 ára hollensk kona sem var, í Héraðsdómi Reykjavíkur, dæmd í eins árs fangelsi fyrir kókaínsmygl í nóvember síðastliðinn hefur ákveðið að una dómnum.

Í fangelsi fyrir ölvunarakstur

Tveir menn fæddir árin 1947 og 1949 voru í Héraðsdómi Reykjaness á föstudag dæmdir í þrjátíu daga fangelsi og til sviptingar ökuréttar ævilangt fyrir ölvunarakstur.

Sjá næstu 50 fréttir