Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ætluðu að myrða krónprinsinn Sádi-Arabar hafa kallað sendiherra sinn í Líbíu heim þar sem þeir þykjast hafa heimildir fyrir því að Líbíumenn hafi lagt á ráðin um að ráða Abdullah, krónprins Sádi-Arabíu, af dögum. Krónprinsinn er sá sem í raun og veru hefur völdin í landinu. 23.12.2004 00:01
Hlupu þjófana uppi Lögreglumenn á Akureyri hlupu í nótt uppi tvo menn, grunaða um að hafa brotist inn í verslunarmiðstöðina við Sunnuhlíð. Tilkynnt var um innbrot þar og sáust mennirnir í grennd. Þegar lögregla ætlaði að hafa tal af þeim tóku þeir til fótanna en höfðu ekkert að gera í sprettharða lögreglumennina sem handtóku þá. 23.12.2004 00:01
Annan vill ekki fara til Darfur Tilraunir Sameinuðu þjóðanna til að stilla til friðar í Darfur-héraði í Súdan hafa ekki skilað neinum árangri, segir Kofi Annan, framkvæmdastjóri samtakanna. Hann telur rétt að hugsa upp á nýtt hvernig taka beri á málum. Annan neitar að fara til Darfur. 23.12.2004 00:01
Stálu ísskáp úr íbúð á 3. hæð Bíræfnir þjófar stálu stórum tvöföldum ísskáp með ísmolavél úr íbúð á þriðju hæð í fjölbýlishúsi í Breiðholti í gærdag. Þeir slitu ísskápinn úr sambandi, og þar með vatnslögnina til ísmolavélarinnar, með þeim afleiðingum að vatn fór að leka úr leiðslunni. Þegar flætt hafði um alla íbúðina tók vatnið að leka niður í tvær íbúðir fyrir neðan. 23.12.2004 00:01
Dularfull viðskipti með Yukos Það vakti furðu fyrr í vikunni þegar dularfullt, áður óþekkt fyrirtæki, með höfuðstöðvar sínar í farsímaverslun úti í sveit, keypti stærstu eignir rússneska olíufyrirtækisins Yukos á uppboði. Atburðir næturinnar eru ekki síður dularfullir en þó ekki óviðbúnir. Rússneska ríkisolíufyrirtækið Rosneft hefur keypt Baikal Finance Group, fyrirtækið sem keypti eignir Yukos. 23.12.2004 00:01
Skíðasvæðið í Tungudal opið Skíðasvæðið í Tungudal verður opið frá 11-15 í dag og göngusvæðið í Seljalandsdal opnar klukkan 13. Stillt veður á svæðinu en mikið frost, -15 gráður. Skíðasvæðin í Bláfjöllum og í Skálafelli eru hins vegar lokuð fram yfir jól í það minnsta. 23.12.2004 00:01
Kosningar í Palestínu í dag Fyrstu borgar- og sveitarstjórnarkosningar í þrjá áratugi á sjálfsstjórnarsvæðum Palestínumanna fara fram í dag en litið er á þær sem einskonar æfingu fyrir forsetakosningar í landinu í janúar. Mikill fjöldi kjósenda virðist hafa tekið þátt í kosningunni sem ætti einnig að gefa nokkra mynd af fylgi megin stjórnmálahreyfinga á sjálfsstjórnarsvæðunum. 23.12.2004 00:01
Fuglaflensa víða í Víetnam Fuglaflensa hefur fundist í sex umdæmum í Víetnam undanfarnar þrjár vikur og hefur yfir tíuþúsund fuglum verið fargað til að koma í veg fyrir faraldur. Í Kína búa stjórnvöld sig jafnframt undir fuglaflensu í vetur og í því augnamiði að hefta útbreiðslu er nú unnið að því að þjálfa heilbrigðisstarfsfólk í að greina flensuna og meðhöndla. 23.12.2004 00:01
Leikskólakennarar skrifuðu undir Samningamenn leikskólakennara og sveitarfélaga undirrituðu nýjan kjarasamning í gærkvöldi hjá Ríkissáttasemjara en leikskólakennarar voru búnir að vera með lausa samninga síðan í sumar. Samningurinn gildir til 30. september árið 2006 eða nokkuð skemur en samningar sem gerðir hafa verið að undanförnu. 23.12.2004 00:01
Hnífstunguárásir í Lundúnum Einn maður er látinn og í það minnsta fimm eru alvarlega slasaðir eftir að maður eða menn réðust á fólk í Norður-Lundúnum í morgun og stungu það. Einn maður hefur verið handtekinn og svo virðist sem hann hafi ráðist á fólkið handahófskennt í æðiskasti. Hvorki hefur þó verið útilokað að fleiri eigi hlut að máli né að árásirnar hafi verið fleiri. 23.12.2004 00:01
Læknar skrifuðu undir í gær Samninganefnd heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra og fulltrúar Læknafélags Reykjavíkur undirrituðu í gær samninga um lækningar utan sjúkrahúsa fyrir sjúkratryggða. Samningurinn er til tæplega fjögurra ára og tekur til allra sérfræðilækna annarra en bæklunarlækna. 23.12.2004 00:01
Sjúkragögnum drengs stolið Mikilvæg sjúkragögn um ungan dreng, sem er á förum til Bandaríkjanna til að gangast undir læknismeðferð, eru meðal þess sem er í svartri leðurtösku sem stolið var af konu í Bónus í Hafnarfirði í gær. Rannsóknalögreglan í Hafnarfirði skorar á þjófinn að skila gögnunum sem eru drengnum afar mikilvæg. 23.12.2004 00:01
Yfirheyrður vegna málverkaránsins Norska lögreglan hefur yfirheyrt mann sem grunaður er um aðild að ráninu á málverkum Munchs, <em>Ópinu</em> og <em>Madonnu</em>, af safni í Ósló í sumar. Fram að þessu hafði lögreglu ekkert orðið ágengt við rannsóknina og hafði enga hugmynd um hver kynni að hafa verið að verki. Maðurinn neitar sök og var sleppt að loknum yfirheyrslum. 23.12.2004 00:01
Fegin að málinu sé lokið Guðmundur Guðlaugsson, bæjarstjóri á Patreksfirði, segir að fórnarlömb mannsins sem fékk fjögurra ára fangelsisdóm í Héraðsdómi Vestfjarða í gær hafi öll fengið aðstoð vegna áfallsins. Yfirheyrslur og rannsókn málsins hafi reynt mikið á og hann sé feginn að málinu sé lokið. Nanna Sjöfn Pétursdóttir, skólastjóri grunnskólans þar, tekur í sama streng. 23.12.2004 00:01
Olíuauðlindir landsins þjóðnýttar Pútín Rússlandsforseti telur sanngjarnt að þjóðnýta olíuauðlindir landsins. Þannig megi verja hagsmuni ríkisins gegn áhrifum ósanngjarnrar og ólöglegrar einkavæðingar undanfarinn áratug. Þetta sagði hann nú þegar ríkið hefur náð tökum á helstu eignum olíufyrirtækisins Yukos. 23.12.2004 00:01
Búist við miklum kulda í kvöld Ástæða er til að vara fólk við því að víða í þéttbýli á láglendi má búast við tíu stiga frosti í kvöld og vindhraða upp á fimmtán metra á sekúndu. Við þær aðstæður svarar kuldinn til allt að þrjátíu stiga frosti í logni, segir Kristín Hermannsdóttir veðurfræðingur. 23.12.2004 00:01
Friðargöngur víða um land Gengið er til friðar víða um land í dag eins og venja er á Þorláksmessu. Samstarfshópur friðarhreyfinga efnir til blysfarar niður Laugaveginn sem hefst á Hlemmi klukkan sex. Gengið verður niður á Ingólfstorg þar sem flutt verða ávörp og Hamrahlíðarkórinn syngur. 23.12.2004 00:01
Óþefurinn úr eldhúsinu er svo ... Skötuilm, eða -óþef, leggur nú úr eldhúsum og frá veitingastöðum samkvæmt vestfirskum sið. Helgi Hafliðason, fyrrverandi fisksali í Fiskbúð Hafliða, á ættir að rekja til Vestfjarða. Hann vill hafa skötuna vel kæsta. Að sögn Sigurðar eru sögusagnir um að Vestfirðingar migi á skötuna, og grafi hana síðan til að hafa hana vel kæsta, tóma þvælu. 23.12.2004 00:01
Velflestir misstu velflest Á annan í jólum í fyrra reið jarðskjálfti yfir Bam í Íran með þeim afleiðingum að 27.000 manns létu lífið. Ári síðar reyna eftirlifendurnir að færa samfélagið í samt horf eins og frekast er kostur 23.12.2004 00:01
Kostnaðarhækkun upp á milljarð Kostnaðarhækkun sveitarfélaganna í landinu vegna kjarasamnings við leikskólakennara nemur rétt rúmum milljarði króna í heildina. 23.12.2004 00:01
24 féllu í Nepal Að minnsta kosti tuttugu og fjórir eru sagðir hafa fallið í bardögum nepalska hersins og skæruliða úr röðum maóista í Nepal í dag. 22 hinna látnu voru skæruliðar. Yfir hundrað manns hafa þar með látist í átökum deiluaðilanna síðastliðna viku. 23.12.2004 00:01
Þagnarskyldan mismunandi Þagnarskylda lögreglumanna er mismunandi eftir málefnum og aðstæðu hverju sinni og metin í samræmi við það. 23.12.2004 00:01
Danir blekktu ekki Grænlendinga Danski forsætisráðherrann, Anders Fogh Rassmussen, vísar því á bug að danska ríkisstjórnin hafi afvegaleitt Grænlendinga þegar Grænland var innlimað í Danmörku fyrir hálfri öld. 23.12.2004 00:01
14 létust og 33 særðust í Írak Fjórtán létust og þrjátíu og þrír særðust þegar tvær sprengjur sprungu í tveimur árásum suður af Bagdad í gærkvöld. Níu létust og þrettán særðust í sjálfsmorðsárás þegar bifreið hlaðin sprengiefnum ók inn í vegatálma. Þeir sem létust voru úr þjóðvarðliðinu og lögreglunni, auk nokkurra óbreyttra borgara. 23.12.2004 00:01
Ánægð með kjarasamningi leikskóla Enn vantar upp á að jafna laun leikskólakennara að kjörum grunnskólakennara, segir Björg Bjarnadóttir, formaður Félags leikskólakennara. Á það verði stefnt með næstu samningum árið 2006. 23.12.2004 00:01
Qureia gagnrýnir fyrirhugaðan fund Ahmed Qureia, forsætisráðherra Palestínu, gagnrýndi í dag harðlega fyrirhugaðan fund í Lundúnum um umbætur í Palestínu. Hann sagði að það sem þyrfti til væri friðarráðstefna. Hann er ekki í aðstöðu til að ákveða hvort Palestínumenn sæki fundinn en afstaða hans er engu að síður merki um ágreining meðal leiðtoga Palestínumanna eftir dauða Jassirs Arafats. 23.12.2004 00:01
Í skóinn fyrir 200 milljónir Fjármálaráðuneytið áætlar að sextíu og fimm þúsund börn yngri en fjórtán ára fái í skóinn fyrir þessi jól. Verðmæti gjafanna sé að meðaltali um 250 krónur og alls þurfi jólasveinarnir því að kaupa gjafir fyrir hátt í 200 milljónir. Ráðuneytið hefur fyrir satt í þessari hávísindalegu könnun að Kertasníkir sé gjafmildastur bræðranna. 23.12.2004 00:01
Nefndin hættir skrifstofurekstri Kjararannsóknarnefnd og Hagstofa Íslands hafa gert með sér samstarfssamning um launakannanir og aðrar vinnumarkaðsrannsóknir. Frá og með 1. janúar 2005 verður launakönnun Kjararannsóknarnefndar framkvæmd af Hagstofunni og hættir nefndin skrifstofurekstri frá þeim tíma. 23.12.2004 00:01
Landspítalinn tekur við rekstrinum Landspítalinn hefur tekið við rekstri sjúkrahótels af Rauða krossinum sem hefur staðið fyrir rekstri þess í þrjá áratugi, nú síðast í samvinnu við Landspítalann og Fosshótel. Landspítalinn hefur samið við Fosshótel til næstu fimm ára um áframhaldandi samstarf um rekstur sjúkrahótels. 23.12.2004 00:01
Útvarpsbylgjur skaða DNA-erfðaefni Ný alþjóðleg rannsókn bendir til þess að útvarpsbylgjur frá farsímum geti skaðað DNA- erfðaefni í manneskjum og dýrum. Niðurstöður frá tólf rannsóknarhópum í sjö löndum leiða í ljós að útvarpsbylgjurnar skemma og breyta erfðaefninu. Forsprakki rannsóknarinnar telur að þörf sé á nýjum rannsóknum í kjölfarið á þessum niðurstöðum. 23.12.2004 00:01
Ríkið sýknað af 25 milljóna kröfu Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði íslenska ríkið í dag af tuttugu og fimm milljóna króna skaðabótakröfu vegna meintra mistaka við mæðraeftirlit á Kvennadeild Landspítalans. Það voru foreldrar sem stefndu ríkinu fyrir hönd ólögráða sonar síns sem er mikið fatlaður. 23.12.2004 00:01
Fagna yfirlýsingu ráðherra Stjórn Sálfræðingafélags Íslands fagnar yfirlýsingu heilbrigðisráherra sem fram kom í fréttum Stöðvar 2 í gær um að markmið ráðuneytisins væri að auka notkun viðtalsmeðferðar vegna þunglyndis. Um leið lýsir stjórnin yfir undrun sinni á því að ráðherra skuli ekki fylgja orðum sínum eftir með samningum við sálfræðinga um greiðsluþátttöku Tryggingastofnunar í sálfræðiviðtölum. 23.12.2004 00:01
Slæm færð á vegum Þjónusta Vegagerðarinnar verður í lágmarki yfir hátíðarnar. Það lítur út fyrir slæmt veður á aðfangadag og jóladag, einkum um norðan og austanvert landið, og því útlit fyrir slæma færð á vegum. Á aðfangadag verður Vegagerðin með þjónustu fram til hádegis að jafnaði en í einhverjum tilvikum til þrjú ef nauðsyn krefur. Á jóladag verður rutt á helstu vegum. 23.12.2004 00:01
Afhentu netföng í heimildarleysi Háskóli Íslands afhenti Tryggingamiðstöðinni lista yfir netföng stúdenta í heimildarleysi. Nemandi kærði atvikið til Persónuverndar sem hefur úrskurðað í málinu. 23.12.2004 00:01
Dularfullur sjúkdómur í mörgæsum Dularfullur sjúkdómur sem leggst á hálfstálpaða mörgæsaunga hefur gert mikinn usla í Suðureyjum Nýja-Sjálands í stofni mörgæsa með gul augu sem eru á lista yfir tegundir í útrýmingarhættu. Áttatíu prósent unganna sem fæddust síðasta vor hafa drepist úr sjúkdómnum sem virðist ekki ógna fullorðnum fuglum. 23.12.2004 00:01
Stakk mann til bana í Lundúnum Óður maður drap einn og stórslasaði fimm í Lundúnum í dag. Hann gekk berserksgang í norðurhluta borgarinnar og stakk þar fólk, að því er virðist af handahófi. Fórnarlömbin voru af báðum kynjum og ólíkum kynþáttum. 23.12.2004 00:01
Hættulegt listaverk Listaverk sem var reist við Austurgötu í Hafnarfirði í tilefni hundrað ára afmælis rafveitunnar í bænum er varasamt að mati áhyggjufullra nágranna, sérstaklega börnum sem klifra í því. 23.12.2004 00:01
Vilja sameinast Hafnarfirði Rúm sextíu prósent íbúa Vatnsleysustrandarhrepps geta hugsað sér að hreppurinn sameinist öðru sveitarfélagi. Rétt tæpur helmingur þeirra telur sameiningu við Hafnarfjörð skásta kostinn en tæp þrjátíu prósent nefndu Reykjanesbæ og tólf prósent Grindavík. 23.12.2004 00:01
Um 3 milljarðar úr jöfnunarsjóði Framlög jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna framkvæmda í sveitarfélögum með færri en tvöþúsund íbúa, við grunnskóla, íþróttahús, sundlaugar, leikskóla og vatnsveitur nema 147 milljónum á næsta ári samkvæmt áætlun félagsmálaráðuneytisins. 23.12.2004 00:01
Borgin sameinist ekki Kjósarhreppi Reykjavíkurborg mælir ekki með því að kosið verði um sameiningu borgarinnar við Kjósarhrepp í allsherjarkosningu um sameiningu sveitarfélaga sem verður eftir fjóra mánuði. Mörg önnur sveitarfélög víða um land hafna einnig sameiningartillögu. 23.12.2004 00:01
Friðarviðræður komnar í strand Friðarviðræður stjórnvalda og uppreisnarmanna í Darfur-héraði í Súdan eru komnar í strand. Á aðra milljón manna hefur misst heimili sín í héraðinu og Alþjóða Rauði krossinn óttast að með sama áframhaldi verði þrjár milljónir manna hjálparþurfi á næsta ári. Fréttamaður Stöðvar 2 var á ferðalagi í Darfur-héraði. 23.12.2004 00:01
Júsjenkó sigurstranglegri Spennan magnast í Úkraínu þar sem styttist í forsetakosningar - aftur. Kannanir benda til sigurs stjórnarandstöðunnar eins og síðast. 23.12.2004 00:01
Jólaverslunin góð í ár Þúsundir manna eru í miðbæ Reykjavíkur í kvöld að kaupa síðustu jólagjafirnar. Margir þeirra tóku þátt í friðargöngunni sem fór niður Laugaveginn á milli klukkan 18 og 19. Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, segir jólaverslunina í ár hafa verið góða. 23.12.2004 00:01
4400 börn njóta stuðnings ABC Yfir fjögur þúsund börn njóta stuðnings í gegnum ABC-hjálparstarf, þar af bættust eitt hundrað og tuttugu við nú í desember. Staðan er þannig að biðlisti er eftir að fá að styðja börn í Suður-Úganda. 23.12.2004 00:01
Lét klóna köttinn sinn Þegar peningum og vísindum er blandað saman er ýmislegt hægt, að því er virðist. Í dag fékk kona á Flórída níu vikna kettling í fangið í fyrsta sinn - og þó, því að kettlingurinn er nákvæmlega eins og köttur sem hún átti en er farinn á vit feðra sinna. Fyrir litla fimmtíu þúsund dollara, tæpa milljón króna, lét konan klóna kisann sinn og er nú alsæl. 23.12.2004 00:01