Fleiri fréttir

Gríðarleg hækkun á sundkortum

Afsláttarkort í sundlaugar Reykjavíkur hafa hækkað langt umfram verðlagsþróun á undanförnum árum. Þannig hafa tíu miða barnakort hækkað um 88 prósent en almennt verðlag um 23 prósent.

Versnandi geðheilsa Íslendinga

Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra hefur þungar áhyggjur af versnandi geðheilsu Íslendinga og mikilli notkun þunglyndislyfja. Hann telur ástæðu til að skoða hvers vegna fólk á aldrinum 60 til 64 ára notar mest af þess konar lyfjum.

Varðskýli lögreglu ófullnægjandi

Vinnueftirlitið hefur lokað varðskýli lögreglumanna við Grænás á Keflavíkurflugvelli þar sem það uppfyllir ekki sett skilyrði. Sýslumaður segir að ráðist verði í úrbætur. 

Fátækt aukist á Suðurlandi

Fátækt virðist hafa aukist mest á Suðurnesjum og Suðurlandi miðað við óskir um matargjafir sem borist hafa Hjálparstarfi kirkjunnar fyrir þessi jól.

Mikil spenna í Mósúl

Mikil spenna er í borginni Mósúl í Írak sem er í herkví eftir að tuttugu og tveir létust þar í sjálfsmorðssprengjuárás í gær. Óttast er að uppreisnarmenn hyggi á nýja hrinu árása.

Frelsun Fischers á næsta leiti

Frelsun Bobbys Fischers úr japönsku fangelsi er sóknarskák sem lýkur innan tíðar með fullnaðarsigri, segja stuðningsmenn hans hér á landi. Japanska dómsmálaráðuneytið hefur fengið málið til meðferðar en þar gæti það legið í langan tíma. 

Mesta hækkunin til deildarstjóra

Félag leikskólakennara og Launanefnd sveitarfélaga skrifuðu undir kjarasamning í gærkvöld. Ef samningurinn verður samþykktur í atkvæðagreiðslum mun hann gilda til 30. september 2006. Atkvæðagreiðslum þarf að vera lokið fyrir lok janúar.

Lungnakrabbamein arfgengt

Afkomendur þeirra sem fengið hafa lungnakrabbamein, jafnvel systkinabörn, eru líklegir til að erfa sjúkdóminn samkvæmt tímamótarannsókn vísindamanna Íslenskrar erfðagreiningar, Landspítalans og Hjartaverndar. Reykingar eru eftir sem áður langstærsti áhættuþátturinn.

Leikskólakennarar semja

Félag leikskólakennara og Launanefnd sveitarfélaga skrifuðu fyrir stundu undir nýjan kjarasamning. Samningurinn gildir til loka september 2006 og færir deildarstjórum allt að 20% hækkun á samningstímanum.

Rætt um kjör í Alcan

Kjaraviðræður eigenda og starfsmanna Alcan, álversins í Straumsvík, standa yfir. Samtök atvinnulífsins fyrir eigendurna og fulltrúar sex verkalýðsfélaga starfsmanna hafa setið á fundum frá því seinni part nóvember.

Kennarar fá laun leiðrétt

Grunnskólakennarar í Reykjavík fá greidda yfirvinnu og leiðréttingar samkvæmt nýjum kjarasamningi í gær. Kennarar á eftirágreiddum launum fá auk þess mánaðarlaun fyrir desember greidd.

Stenst hnífstungur

Japanskt öryggisfyrirtæki hefur sett á markað fatnað fyrir skólabörn sem stenst hnífstungur. Fatnaðurinn er gerður úr sömu trefjum og skotheld vesti bandarískra hermanna í Írak.

Afhöfðaður fyrir smygl

Íraskur maður sem handtekinn var í Sádi-Arabíu fyrir að reyna að smygla ótilgreindu magni af hassi var afhöfðaður í borginni Arar í gær.

Með 850 grömm af kókaíni

Brasilísk kona hefur verið úrskurðuð í þriggja vikna gæsluvarðhald fyrir að reyna að smygla til landsins 850 grömmum af kókaíni.

Farsælla að bjóða fram sér

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir að R-lista samstarfið gagnist stjórnarandstöðuflokkunum betur en Framsóknarflokknum. Hann telur almennt að farsælla sé að bjóða fram sér. </font /></b />

Endurgreiðslum TR að ljúka

Flestallir þeirra tæplega 24 þúsund lífeyrisþega sem áttu inneign hjá Tryggingastofnun ríkisins hafa nú fengið endurgreiðslu.

Á slysadeild eftur útafakstur

Einn var fluttur á slysadeild með háls- og bakáverka eftir útafakstur skammt frá Selfossi á öðrum tímanum í gærdag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi var ökumaður einn í fólksbifreið og ók eftir Vorsabæjarvegi þegar hann missti stjórn á bílnum í hálku og keyrði útaf.

Flutningabíll ók út af

Bílstjóri slapp ómeiddur þegar flutningabifreið sem hann ók fór út af við Lækshraun austan við Kirkjubæjarklaustur klukkan hálfellefu á þriðjudagskvöld.

Nær þriðjungur af asískum uppruna

Nýjum Íslendingum af asískum uppruna, sem leita sér aðstoðar hjá Mæðrastyrksnefnd hefur farið stórfjölgandi að undanförnu, að sögn Ragnhildar Guðmundsdóttur formanns nefndarinnar.

Óvíst um lyktir Evrópudraums Tyrkja

Leiðtogar ESB ákváðu í vikulokin að bjóða Tyrkjum að hefja formlegar viðræður á næsta ári um aðild að sambandinu. Þar með er hafið ferli sem gæti gerbreytt Evrópusambandinu. Hvernig því lyktar er þó opið, eins og Auðunn Arnórsson rekur hér. </font /></b />

Strandafréttir á vefnum

Nýr héraðsfréttavefur fyrir Strandasýslu hefur verið opnaður. Það er fyrirtækið Sögusmiðjan á Kirkjubóli sem á frumkvæði að gerð vefjarins og ritstjóri er Jón Jónsson þjóðfræðingur.

Engin vettlingatök

Forsetaframbjóðendurnir tveir í Úkraínu, Viktor Júsjenkó og Viktor Janúkóvitsj tókust á í kappræðum í gærkvöldi. Júsjenkó sakaði þar keppinaut sinn um að hafa reynt að stela síðustu kosningum í nóvember, þegar kosningaeftirlitsmenn sögðu mikið hafa verið svindlað.

Meirihluti á móti stríðinu

Stríðið í Írak er ekki þess virði að standa í því. Þetta er skoðun meirihluta Bandaríkjamanna, samkvæmt könnun sem birt var í gærkvöldi. 56 prósent aðspurðra í könnun ABC og Washington Post telja kostnaðinn við stríðið vera meiri en það sem græðist á því, og að réttast væri að hætta því.

Sjö handteknir í nótt

Lögreglan í Reykjavík handtók í nótt sjö menn eftir að talsvert af þýfi úr ýmsum innbrotum og eitthvað af fíkniefnum fanst í íbúð, sem þeir voru saman í. Upphaflega fór lögreglan á vettvang um hálf þrjú leitið í nótt, þar sem nágrannar höfðu kvartað undan hávaða. Við nánari athugun fanst þýfið og fíkniefnin þannig að allir voru handteknir.

Hingað en ekki til Bandaríkjanna

Lögfræðingur Bobbys Fischers mun eiga fund með fulltrúum útlendingastofnunar í Japan fyrir hádegi að íslenskum tíma, þar sem formlega verður óskað eftir því að ef Fischer verði vísað úr landi, þá verði honum vísað til Íslands en ekki Bandaríkjanna.

Morðingi óléttrar konu fyrir rétt

Meintur morðingi konu sem myrt var í Bandaríkjunum í síðustu viku kom í gær fyrir rétt, sakaður um að hafa rist kvið konunnar upp og stolið þaðan ófæddu barni hennar. Morðinginn, Lisa Montgomery, sýndi síðan fjölskyldunni sinni barnið og sagði það sitt. Það þykir ótrúlegt að barnið skuli hafa lifað harmleikinn af.

Kjarasamningur samþykktur

Félagar í Sambandi íslenskra bankamanna hafa samþykkt nýgeraðan kjarasamning við Samtök atvinnulífsins með rúmlega 62 prósentum atkvæða, en 35 prósent vildu fella hann. Tæplega 83% félagsmanna tóku þátt í atkvæðagreiðslunni en hátt í fjögur þúsund manns eru í félaginu, allt starfsmenn hjá bönkum og verðbréfafyrirtækjum.

Eldur í heyhlöðu

Eldur kviknaði í heyhlöðu, áfastri við fjós að bænum Vorsabæjarhóli í Gaulverjabæjarhreppi í gærkvöldi. Heimafólk varð vart við reyk frá hlöðunni um klukkan ellefu og kallaði þegar á slökkvilið. Það var fljótt á vettvang og hafði eldurinn ekki náð útbreiðslu þegar það kom og gekk slökkvistarf vel. Kýr í fjósinu voru ekki í hættu.

Kona og barn fórust í eldsvoða

Kona og barn fórust þegar eldur kviknaði í Hótel Continent á Nörrebrogötu í Kaupmannahöfn í nótt. Að minnsta kosti fjórir slösuðust og þar af einn alvarlega. Eldurinn virðist hafa kviknað í herbergi á fimmtu hæð, ef til vill út frá jólaskreytingu og barst reykur víða um hótelið.

Víðtækari pyntingar en talið var

Komið hefur í ljós að pyndingar bandarískra hermanna á íröskum föngum hafa verið mun víðtækari og kerfisbundnari en áður var talið. Bandarísk mannréttindasamtök hafa undir höndum nýjar upplýsingar um hrottafengna meðferð fanga sem átti sér stað löngu eftir að upp komst um pyndingarnar í Abu Ghraib fangelsinu.

Blair í Írak

Tony Blair, forsætisráðherra Breta, er í óvæntri heimsókn í Bagdad í Írak og situr, í þessum töluðu orðum, á blaðamannafundi með Iyad Allawi sem gegnir stöðu forsætisráðherra Íraks til bráðabirgða. Blair hefur áður heimsótt Írak en þá aðeins Basra borg þar sem bresku hersveitirnar hafa bækistöðvar sínar.

Ekki raunhæfar áætlanir

Ríkisendurskoðun telur að áætlanir stjórnvalda um að klæða fimm prósent láglendis skógi á fjörutíu árum séu úreltar og muni hvergi nærri standast, að óbreyttu. Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar um lagaumhverfi Skógræktar ríkisins og landshlutabundinna verkefna segir að þetta markmið muni ekki nást nema með auknum fjárframlögum

Margir vissu af pyntingum

Nýjar upplýsingar frá leyniþjónustu Bandaríkjanna leiða í ljós að pyndingar bandarískra hermanna á írökskum föngum hafa verið mun víðtækari og kerfisbundnari en áður var talið. Jafnframt er nú ljóst að mun fleiri bandarískir embættis- og stjórnmálamenn vissu af þessu hátterni en hingað til hefur verið viðurkennt.

Bylgjur farsíma skemma erfðaefni

Útvarpsbylgjur frá farsímum skaða frumur líkamans og skemma erfðaefni hans. Þetta kemur fram í glænýrri rannsókn sem kostuð var af Evrópusambandinu. Það undarlega er að rannsóknin leiðir hins vegar ekki í ljós að heilsu fólks stafi hætta af þessum frumuskemmdum.

Verðbólgan étur upp launahækkun

Verðbólgan hefur tekið tvo þriðju af launahækkunum síðustu tólf mánaða. Á því tímabili hafa laun hækkað um 5,4% en verðbólgan verið 3,8%, samkvæmt greiningardeild Íslandsbanka. Þrátt fyrir miklar launahækkanir hefur kaupmáttur launa því ekki aukist nema um 1,6% á síðustu tólf mánuðum.

Stórtjón á bæ við Hvolsvöll

Stórtjón varð á bænum Stíflu í Eyjahverfi austan við Hvolsvöll í morgun þegar vélageymsla brann þar til kaldra kola og allar heyvinnuvélar eyðilögðust meðal annars. Eldsins varð vart um klukkan tíu og voru slökkviliðsmenn og bílar sendir frá Hvolsvelli og Hellu og tók þá um klukkustund að ráða niðurlögum eldsins.

Verðum 300 þúsund árið 2007

Íslendingar eru orðnir rúmlega 293 þúsund og ef frjósemi helst áfram eins og hún hefur verið að undanförnu, verða þeir 300 þúsund árið 2007, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Landsmönnum hefur fjölgað um 0,95 prósent á árinu, sem er nokkurn veginn í meðaltali.

47 milljarðar í nóvember

Íslendingar tóku út tæplega 47 milljarða með debet- og kreditkortum sínum í nóvember, og jókst veltan um tæp 20% frá sama tíma í fyrra. Um er að ræða verulega veltuaukningu sem gefur til kynna óvenjumikla jólaverslun í ár, segir greiningardeild Íslandsbanka. Heimilin virðast vera í gleðigírnum og er vöxtur útgjalda þeirra nokkuð umfram vöxt tekna.

Hetjur sem hætta lífi sínu

Tony Blair, forsætisráðherra Breta, er í óvæntri heimsókn í Bagdad í Írak til að sýna þarlendum yfirvöldum stuðning nú í aðdraganda forsetakosninganna. Blair sat fyrir stundu blaðamannafund með Iyad Allawi sem gegnir stöðu forsætisráðherra Íraks til bráðabirgða.

Japanskir embættismenn smeykir

Enn er ekki ljóst hvort og hvenær Bobby Fischer kemur til landsins. Töluverðs taugatitrings gætir meðal japanskra embættismanna vegna beiðni Bandaríkjamanna um að boð um dvalarleyfi hér á landi verði dregið til baka, segir Sæmundur Pálsson, vinur Fischers.

Flest börn send heim á Ísafirði

Allir ófaglærðir starfsmenn fjögurra leikskóla í Ísafjarðarbæ tilkynntu sig veika í dag og voru flest börn send heim aftur þegar þau mættu í morgun. Með þessu eru starfsmennirnir að mótmæla því sem þeir kalla seinagang bæjaryfirvalda við að greiða út leiðréttingu á launum.

Snjótittlinga í landgræðslu

Þúsundir snjótittlinga eru nú notaðir til landgræðslu, með því að fóðra þá á tólg sem berjum hefur verið hnoðað saman við. Þannig bera smáfuglarnir fræin um landið eins og þúsundir lítilla landgræðsluflugvéla.

Slapp eftir fataskipti

Sænskum karlmanni, sem sat í fangelsi í Stokkhólmi fyrir árás og rán, tókst að flýja úr fangelsinu í gær eftir að hann hafði fataskipti við tvíburabróður sinn sem var í heimsókn. Eftir að seki tvíburabróðirinn var flúinn af hólmi sagði sá saklausi fangavörðum frá því að nú væru þeir með rangan mann í haldi.

Eiríkur og Elna Katrín áfram

Formaður og varaformaður Kennarasambands Íslands verða sjálfkrafa endurkjörin á þingi sambandsins í mars þar sem ekki kom neitt mótframboð á tilskyldum tíma.

Alltaf eitthvað um falsanir

Svava Johansen, kaupmaður í Sautján, segist verða töluvert vör við að fölsuð merkjavara sé flutt inn og seld hér á landi.

Sjá næstu 50 fréttir