Fleiri fréttir

Tveir handteknir vegna morða

Franska lögreglan handtók í gær tvo fyrrverandi vistmenn á geðsjúkrahúsinu í Pau í Suður-Frakklandi. Þeir eru grunaðir um að hafa myrt tvo hjúkrunafræðinga á hrottalegan hátt á laugardag. Önnur konan var afhöfðuð og höfuð hennar stillt upp á sjónvarpstæki.

Fleiri ásakanir um pyntingar

Bandaríska varnarmálaráðuneytið rannsakar um þessar mundir nýjar ásakanir um að fangar í Guantánamo-flóa séu pyntaðir og að hermenn villi á sér heimildir við yfirheyrslur. Bandarísku frelsissamtökin hafa sýnt tölvupóst frá Alríkislögreglunni þar sem fram kemur að FBI misbjóði að hermenn í Guantánamo villi á sér heimildir við yfirheyrslur.

4 dæmdir fyrir smygl á kannabis

Fjórir menn fengu í dag fjögurra til tuttugu mánaða fangelsisdóm í Héraði fyrir innflutning á samtals um 15 kílóum af kannabisefnum. Þrír þeirra eru 22 ára að aldri, en sá fjórði er tæplega fimmtugur. Mennirnir keyptu efnin í Danmörku og fluttu þau inn meðal annars í bíldekkjum.

Blair óvænt til Bagdad

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, fór í óvænta heimsókn til Bagdad í gær og fundaði með Iyad Allawi, forsætisráðherra bráðabirgðastjórnar landsins. Þetta var þriðja heimsókn Blairs til Íraks og sú fyrsta síðan Saddam Hussein var handtekinn fyrir ári síðan.

Dæmd fyrir stuld úr 10-11

Kona á sextugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmd í 90 daga fangelsi fyrir búðarhnupl. Hún stal matvöru fyrir 5600 krónur úr 10-11 við Lágmúla og leðurjakka og skyrtum fyrir átján þúsund úr Vera Moda. Konan játaði undanbragðalaust, og hefur leitað sér læknishjálpar.

Ófaglærðir skrá sig veika

Tæplega 40 ófaglærðir starfsmenn á fjórum af sex leikskólum hjá Ísafjarðarbæ skráðu sig veika og mættu ekki til vinnu í gær í mótmælaskyni.

Samkeppni um tónlistarhús hafin

Útboðslýsingar voru afhentar fulltrúum fjögurra hópa í gær sem taka þátt í samkeppni um réttinn til að hanna, byggja, fjármagna og reka tónlistarhús og telst samkeppnin því formlega hafin. Hóparnir voru valdir í sérstöku forvali og eiga frumhugmyndir þeirra að liggja fyrir eftir mánuð og fyrstu tilboð í byrjun maí.

Yfir 20 létust í sprengjuárás

22 létust og rúmlega 50 særðust í sprengjuárás á bandaríska herstöð í borginni Mosul í norðurhluta Íraks í gær.Samtökin Ansar al-Sunnah hafa lýst yfir ábyrgð á árásinni, en þau eru sögð vilja koma álíka stjórnarfari á í Írak og talibanar höfðu í Afganistan.

Blaðamönnum sleppt úr haldi

Tveimur frönskum blaðamönnum sem andspyrnumenn í Írak hafa haldið sem gíslum hefur verið sleppt. Þeim hefur verið haldið síðan 20. ágúst, þegar þeim var rænt á leið sinni til Najaf.

Feðgar dæmdir til refsingar

Tuttugu og tveggja ára maður var, í Héraðsdómi Reykjavíkur á þriðjudag dæmdur í tuttugu mánaða fangelsi fyrir innflutning á fimmtán kílóum af hassi í félagi við föður sinn og tvo jafnaldra sína. Efnin flutti maðurinn í þremur skipaferðum frá Danmörku.

Kókaínhylki sótt með skurðaðgerð

Náð var í um sextíu kókaínhylki í görn fíkniefnasmyglara með skurðaðgerð á mánudag. Smyglarinn, sem er Íslendingur um þrítugt, var handtekinn við komuna til landsins á sunnudag og leiddi röntgenskoðun í ljós að hann væri með aðskotahluti innvortis.

Grunaður um íkveikju

Öryggisvörður er grunaður um að hafa kveikt í lyftara við Rúmfatalagerinn á Smáratorgi í Kópavogi aðfaranótt laugardags. Maðurin tilkynnti sjálfur um eldinn og slökkti hann, en myndir úr eftirlitsmyndavél urðu til þess að maðurinn er grunaður um verknaðinn.

Sjö handteknir vegna þýfis

Sjö menn voru handteknir í íbúð í Vogahverfi í Reykjavík um klukkan hálf þrjú í fyrrinótt eftir að þýfi fannst í íbúðinni. Einnig fannst lítilræði af fíkniefnum í neyslupakkningum, kannabis og annað hvort amfetamín eða kókaín.

Náðu fljótt tökum á eldinum

Eldur kom upp í hlöðu á bænum Vorsabæjarhóli í Gaulverjabæjarhreppi um klukkan ellefu í fyrrakvöld. Eldurinn logaði í heyi í hlöðunni sem er áföst fjósi. Hvorki mönnum né skepnum var meint af og gekk slökkvistarf vel.

Gísli í Fjölbrautaskólann í Ármúla

Menntamálaráðherra hefur skipað Gísla Ragnarsson í embætti skólameistara Fjölbrautaskólans við Ármúla til fimm ára frá áramótum. Gísli hefur starfað sem aðstoðarskólameistari við Fjölbrautaskólann í Garðabæ frá 1985. Tíu umsóknir bárust um embættið.

Pyndingar héldu áfram lengi

Komið hefur í ljós að pyndingar bandarískra hermanna á írökskum föngum héldu áfram löngu eftir að Abu Ghraib hneykslið varð opinbert. Svo virðist sem þessar pyndingar hafi bæði verið víðtækari og að fleiri háttsettir embættismenn í Washington hafi vitað um málið, en áður var talið.

Skorinn upp þegar dóp sat fast

Rúmlega tvöhundruð grömm af kókaíni voru fjarlægð með skurðaðgerð úr ungum íslenskum karlmanni á Landspítalanum í gær. Maðurinn var í hættu þar sem fíkniefnin voru föst í maga hans og um margfaldan banaskammt var að ræða.

Feðgar dæmdir fyrir hasssmygl

Fjórir karlmenn voru dæmdir í fjögurra til tuttugu mánaða fangelsi í dag fyrir innflutning á fimmtán kílóum af hassi. Tveir hinna dæmdu eru feðgar. Hassið var flutt til landsins í þremur ferðum. 2 kíló komu í varadekki bíls sem kom með Norrænu.

Manhunt var tekinn úr verslunum

Fjöldi verslana í Lundúnum tók tölvuleikinn Manhunt, sem fjallað var um í fréttum í gær, úr sölu eftir hryllilegt morð sem talið var að tengdist spilun leiksins. Lítið mál er að nálgast leikinn hér á landi.

22 létust í Mosul

Að minnsta kosti 22 liggja í valnum eftir sprengjuárás á bandaríska herstöð í nágrenni Mosul í Írak í dag. Mannskæðar sprengjuárásir af þessu tagi eru að verða daglegt brauð nú í aðdraganda þingkosninganna og Tony Blair, forsætisráðherra Breta, þótti því sýna nokkra fífldirfsku með því að dúkka óvænt upp í heimsókn í Bagdad í morgun.

Bændur saka ríkið um yfirgang

Fjármálaráðherra kynnti í liðinni viku kröfur ríkisins til þjóðlendna á Norðausturlandi. Svæðið er það fjórða sem Óbyggðanefnd hefur til úrskurðar. Landeigendur undrast kröfugerð ríkisins og telja að farið sé offari, meðan fjármálaráðuneytið segist bara uppfylla lögboðnar skyldur.

Blásið á brot gegn viðskiptabanni

Baldur Þórhallsson, dósent í stjórnmálafræði, telur að ígrunda hefði átt betur ákvörðunina um að bjóða Bobby Fischer landvistarleyfi. Hann telur málið ekki munu skaða samskipti Íslands, Bandaríkjanna og Japans. Lögmaður Fischers fundar með japanska utanríkisráðuneytinu.

Ekki verið að senda skilaboð

Getgátur eru uppi um að landvistarboð íslenskra stjórnvalda til handa Fischer tengist að einhverju leyti samningaviðræðum Íslands og Bandaríkjanna um framtíð Varnarliðsins. Þór Whitehead sagnfræðingur segir að vissulega geti þetta frumkvæði Íslendinga valdið pirringi í Washington en það sé fullkomlega fráleitt að lesa einhverjar samsæriskenningar út úr þessu máli.

Ferðin tefst um sinn

Ferð Sæmundar Pálssonar til Japans til að sækja Bobby Fischer, tefst um sinn, vegna óvissu um hvort Fischer verði leystur úr haldi. Taugatitrings virðist gæta meðal japanskra yfirvalda vegna óskar Bandaríkjamanna um að íslensk stjórnvöld dragi til baka boð um að veita honum dvalarleyfi.

Viðtökur fram úr björtustu vonum

Viðtökur íslensks viðmóts Windows XP stýrikerfisins og Office 2003 skrifstofuhugbúnaðarvöndulsins meðal almennings voru betri en við var búist, að sögn Elvars Steins Þorkelssonar, framkvæmdastjóra Microsoft á Íslandi.

Hækkunin er 270 miljónir

Oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn segir hækkun þjónustugjalda hjá borginni að mörgu leyti óeðlilega. Hann segir hækkunina nema 270 milljónum á milli ára.

Ill lykt af málinu

Forsvarsmaður Þjóðarhreyfingarinnar segir illa lykt af meðhöndlun dómsmálaráðuneytisins á umsókn hreyfingarinnar fyrir söfnun. Dómsmálaráðherra vísar því á bug.

Fuglarnir verði notaðir markvisst

Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra, er bjartsýnn á framtíð skógræktar hér á landi, þrátt fyrir svarta skýrslu Ríkisendurskoðunar um greinina. Guðni vill markvisst nota snjótittlinga til landgræðslu, eins og gert er við Gunnarsholt. Þeir vinna kauplaust og eru glaðir við sína iðju, segir ráðherra.

Meistaranám við KHÍ

Boðið verður upp á meistarnám í beinu framhaldi af þriggja ára námi í Kennaraháskóla Íslands árið 2007. Útskrifaðir stúdentar hafa hingað til einungis getað stundað meistaranám eftir minnst tveggja ára starfsreynslu í fjarnámi eða hlutanámi.

Jól með konunni og sínum nánustu

Loftur Jens Magnússon sem varð Ragnari Björnssyni að bana með hnefahöggi í andlit á sveitakránni Ásláki í Mosfellsbæ um miðjan mánuðinn er laus úr gæslu. Loftur ætlar að halda jólin með sínum nánustu og segir í samtali við DV fangelsisvistin hafi tekið verulega á sig.

Vélstjóra vikið frá Eimskip

Einum vélstjóra af flutningaskipi Eimskips sem tekinn var í Færeyjum með lítilræði af fíkniefnum hefur verið vikið úr starfi. Hann átti eitt og hálft gramm af hassi og 0,1 gramm af kókaíni sem fundust í káetu stýrimanns.

Sonur í fangelsi en faðir sleppur

Guðmundur Örn Guðjónsson var í dag dæmdur í 20 mánaða fangelsi fyrir innflutning á 15 kílóum af hassi í dekkjum frá Danmörku. Ingi Sigurður Svansson og Eyjólfur Kristjánsson sem seldu hassið hér á landi fengu átta mánaða fangelsi. Faðir Guðmundar sótti síðustu sendinguna og var gripinn en sleppur við refsingu haldi hann skilorð næstu tvö árin.

Síminn ósáttur

Erlend símafyrirtæki greiða lægra heildsöluverð fyrir símtöl viðskiptavina í net Og Vodafone en Síminn, að sögn Evu Magnúsdóttur, upplýsingafulltrúa Símans. Því sé hluta símtala úr númerum Símans til Og Vodafone beint í gegn um norkst símafyrirtæki.

Járnblendifélagið að semja um kjör

Samninganefnd starfsmanna Íslenska járnblendifélagsins skoðar tillögu að kjarasamningi sem nefndin fékk í hendur síðasta föstudag.

Verðhækkun út úr kortinu

Það eru sennilega engar forsendur fyrir hækkun raforkuverðs um áramótin sem Orkuveita Reykjavíkur og Hitaveita Suðurnesja hafa boðað, að mati Neytendasamtakanna. Talið er að hækkunin verði um tíu prósent og hafa forsvarsmenn fyrirtækjanna sagt að hækkunin sé til komin vegna nýrra raforkulaga.

Vilja aðstoð við rækjuvinnslu

Forsvarsmenn Blönduóssbæjar eiga í viðræðum við þingmenn, ráðherra og fulltrúa Byggðastofnunar vegna atvinnuástands í bænum eftir að rækjuvinnslan Særún hætti störfum.

Dómur mun falla í Sólbaksmálinu

Félagsdómur hafnaði í gær kröfu Brims um að máli Vélstjórafélags Íslands gegn útgerðinni vegna kjarasamnings sjómanna á Sólbaki yrði vísað frá dómi. Forsvarsmenn Brims sögðu samninginn ekki á vegum fyrirtækisins, heldur sérstaks útgerðarfélags í eigu Brims. Vélstjórafélagið vill að samningurinn verði ógildur með dómi þar sem hann sé málamyndagjörningur.

Eldur á Stíflu

Mikið tjón varð á bænum Stíflu í Vestur-Landeyjum á þriðjudag þegar eldur kom upp í vélaskemmu. Tilkynnt var um eldinn klukkan tíu í gærmorgun og slökkvilið Hvolsvallar og Hellu voru komin á staðinn fimmtán mínútum síðar.

Skattrannsókn aftur til lögreglu

Skattrannsóknarstjóri hefur vísað rannsókn á ákveðnum þáttum skattamála Baugs aftur til embættis ríkislögreglustjóra til meðferðar. Baugi var tilkynnt þetta þann fimmtánda nóvember. Hreinn Loftsson, stjórnarformaður Baugs, vill ekki tjá sig um efnisatriði í málinu að svo stöddu en segir að það hafi tekið nokkrum breytingum frá því að ríkislögreglustjóri sendi það til meðferðar hjá skattrannsóknarstjóra í lok síðasta árs.

Gerir forvarnir erfiðari

Niðurskurðurinn hjá SÁÁ gerir allt forvarnarstarf mun erfiðara, að sögn forstöðumanns Fræðslumiðstöðvar forvarna. Hann segir að kallað verði eftir svörum frá stjórnvöldum um hvort markmið heilbrigðisáætlunar Alþingis til 2010 séu gleymd.

Vill samskipti í formi samninga

Heilbrigðisráðherra kveðst vilja hafa samskipti ráðuneytisins og SÁÁ í formi samninga og vísar til þjónustusamnings sem er í gildi nú. Hann segir að vilji menn endurskoða þann samning þá þurfi þeir að sækja formlega um það samkvæmt ákvæðum hans. Engin slík umsókn hafi borist frá SÁÁ.

Fólk sem nær ekki endum saman

Margir þeirra sem leita sér aðstoðar hjá Fjölskulduhjálp Íslands nú fyrir jólin er ungt fjölskyldufólk sem hreinlega nær ekki endum saman á laununum sínum, að sögn Ásgerðar Jónu Flosadóttur formanns Fjölskylduhjálparinnar.

Samstarfsverkefnið lifir

Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í gærmorgun að 12-14 milljónum skyldi varið til samstarfsverkefnis Fjölmenntar og Samhjálpar á næsta ári, að sögn Helga Jósefssonar verkefnisstjóra.

Gíslataka og bankarán

Bankaræningjum í Norður-Írlandi tókst að flýja með með allt að 20 milljónir punda, eða tæpum 2,5 milljörðum króna, eftir eitt stærsta bankarán sögunnar, þegar Northern Bank var rændur.

Lögregla sökuð um pyntingar

Grísk mannréttindasamtök hafa sakað þarlenda lögreglumenn um að pynta afganska hælisleitendur. Gríska lögreglan er sökuð um að misþyrma innflytjendum, þykjast ætla að taka þá af lífi og taka myndir af þeim nöktum við yfirheyrslur. Ríkisstjórnin hefur lofað að rannsókn á málinu fari fram.

Sjá næstu 50 fréttir