Gaul var ekki sökkt 17. desember 2004 00:01
Útilokað er að sovéskur kafbátur hafi sökkt breska togaranum Gaul sem sökk út af ströndum Noregs árið 1974. Togaranum var illa við haldið og því fór sem fór. Þetta er niðurstaða rannsóknarnefndar sem kynnti niðurstöður sínar í morgun. Togarinn Gaul lagði úr höfn í Hull í febrúar árið 1974 og stefndi í norðurátt. Þegar hann var um sjötíu mílur frá ströndum Noregs rofnaði sambandið við togarann og hann hvarf. Ekkert neyðarmerki barst og ótrúlegustu sögusagnir fóru af stað um að ekki væri allt með felldu. Í þrjá áratugi hafa sögusagnir verið á kreiki um að skipið hafi í raun verið hlerunarskip sem fylgdist með sovéska flotanum. Af þeim sökum hafi sovéskur kafbátur sökkt togaranum. Flakið fannst fyrst árið 1997 og tveimur árum síðar var rannsókn fyrirskipuð á því sem gerðist. Niðurstaða þeirrar rannsóknarvinnu var kynnt í morgun og niðurstaðan er ekki til þess fallin að friðþægja þá sem trúa sögusögnum um njósnastarfsemi Togarinn sökk í ofsaveðri, og er fullyrt að ruslalúga hafi verið opin þar sem sjór gat streymt inn óhindrað inn á dekkið. Viðhaldi hafi einnig verið illa sinnt. Aðrar ástæður eru útilokaðar: engar vísbendingar séu um að nokkur hafi komið um borð og hreinlega rænt togaranum, engin ummerki séu um árekstur eða sprengingu af nokkru tagi, né heldur mikla ísingu, vélarbilun eða því um líkt. Og næsti sovéskur kafbátur hafi verið í um þúsund mílna fjarlægð.
Fréttir Innlent Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Sjá meira