Innlent

Sæmundur reiðubúinn til brottfarar

Olíufélagið Skeljungur hefur ákveðið að standa straum af ferðalagi Sæmundar Pálssonar til að fylgja Bobby Fischer hingað til lands. Sæmundur er klár í slaginn og bíður þess eins að Fishcer verði látinn laus. Hann segist vona að vinur sinn geti lifað venjulegu fjölskyldulífi á Íslandi ásamt japanskri unnustu sinni. Enn hafa engin svör fengist frá japönskum yfirvöldum um það hvað farið verður fram á til að þau láti Fisher lausan. Jafnvel er talið að staðfesting Útlendingastofu á að Fisher fái hér dvalarleyfi sé ekki nægileg og það þurfi að útvega honum svokallað útlendingavegabréf, sem ætlunin var að hann fengi afhent við komuni hingað til lands. Sæmundur á von á því að fá svör eftir helgi og er þess viðbúinn að halda út, hvort heldur sem það verður eftir fáeina daga eða vikur. Hann segir þetta fyrst og fremst gert til að ná Fischer úr fangelsinu í Japan og því sé hann alveg frjáls maður eftir hugsanlega komu hingað til lands. Sæmundur vonar að vinur sinn geti lifað venjulegu fjölskyldulífi á Íslandi ásamt japanskri unnustu sinni, en segir hann alltaf eiga eftir að láta heyra í sér, hvar sem hann er staddur. Sæmundur segir að stundum heyri hann ekki lengi í Fischer, jafnvel ekki í nokkur ár. Það sé eins og hjá börnum manns - það þýði að allt gott sé að frétta. Þau hafi hins vegar samband þegar eitthvað bjáti á. Og undanfarið hefur Fisher hringt tvisvar til þrisvar sinnum á sólarhring í Sæmund úr tíkallasíma þar sem hann er hafður í haldi, til dæmis áttu þeir 45 mínútna langt samtal í morgun þar sem Fisher sagðist vilja koma hingað strax. Þrátt fyrir að þeir vinirnir hafa ekki hist augliti til auglitis frá árinu 1972 er ljóst að vináttan ristir djúpt, enda segist Sæmundur tilbúinn að skjóta skjólshúsi yfir Fisher þegar hann kemur auk þess að fylgja honum á leiðarenda. Hann er nú þegar í startholunum.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×