Fleiri fréttir

Laxnessraunir

Halldór Guðmundsson hefur ritað sannkallað stórvirki um nafna sinn Laxness. Í stuttu máli frábæra bók þar sem þræddir eru saman ótrúlega haglega allir þræðirnir í lífi skáldsins Laxness.

Eftirlaunasjóður stjórnmálamanna?

Allt frá upphafi hefur íslenska utanríkisþjónustan - að ákveðnu marki - verið svo nátengd íslenskum stjórnmálum að segja má að þar hafi embættis- og stjórnmálakerfið runnið saman í eitt. Til skamms tíma voru það aðeins "lýðræðisflokkarnir" sem höfðu aðgang að þessu kerfi.

15 mánaða dómur fyrir kókaínsmygl

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi tvo karlmenn í dag í fimmtán mánaða fangelsi hvorn fyrir kókaínsmygl og fyrir að reyna að koma sér hjá því að greiða aðflutningsgjöld af hnefaleikabúnaði.

Valt með fullan pall af möl

Engan sakaði þegar vörubíll með fullfermi af möl valt í Garðabæ á fimmta tímanum í gær. Að sögn lögreglunnar í Hafnarfirði var bíllinn staddur í beygju þar sem hann hann reyndi að sturta hlassinu af pallinum þegar óhappið varð.

Kröfur ríkisins um þjóðlendur

Fjármálaráðherra, fyrir hönd íslenska ríkisins, hefur afhent óbyggðanefnd kröfur sínar um þjóðlendur á Norðausturlandi, samanber lög um þjóðlendur og ákvörðum marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta. Á meðal þess sem gerð er krafa til er afrétta milli Jökulsár í Fljótsdal og sýslumarka í austri, syðsta hluta Fljótsdalsheiðar og Vesturöræfa.  

Umræðu vantar

"Hjá sjálfstæðu ríki hefði mátt búast við umfangsmikilli umræðu um stjórnarskrána, en hún hefur aldrei farið fram hér á landi. Það er ekki víst að það þurfi að breyta miklu en það er mikilvægt að raunveruleg endurskoðun fari fram og hún ætti að ná lengra út í samfélagið en ekki vera bundið við þingmenn," segir Ágúst Þór Árnason, verkefnastjóri við félagsvísinda- og lagadeild Háskólans á Akureyri, um fyrirhugaða endurskoðun á stjórnarskrá Íslands.

Undrandi yfir forræðishyggju

Vörður, félag ungra sjálfstæðismanna á Akureyri, hefur sent frá sér ályktun þar sem lýst er yfir undrun stjórnarinnar á þeirri forræðishyggju sem komi fram í tillögu þingmanna Samfylkingarinnar um að leggja bann við auglýsingum á óhollum matvörum í fjölmiðlum.

Hækka um þrjú prósent

Ákveðið hefur verið að hækka atvinnuleysisbætur um áramótin ásamt hámarksábyrgð úr Ábyrgðarsjóði launa, fæðingarstyrk og lágmarksgreiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.

Síðustu dagar Arafats

Sóttarsaga og andlát Jassers Arafat eru sveipuð talsverðri dulúð. Eitt og annað um þau efni er þó að skýrast og er ekki allt fallegt sem komið hefur fram.

Kynbundinn launamunur sá sami

Karlar eru með 7 prósentum hærri mánaðarlaun og 17 prósentum hærri heildarlaun heldur en konur í sambærilegum starfsstéttum. Ef ekki er tekið tillit til mismunandi aldurs, menntunar og vinnutíma hafa karlar 28 prósentum hærri laun en konur.

Þróunaraðstoð aukin

Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra telur að loftslagsvæn tækni, ekki síst í orkumálum, geti átt stóran þátt í að draga úr veðurfarsbreytingum og losun gróðurhúsalofttegunda.

Nýi bæjarstjórinn í Kópavogi

Hansína Á. Björgvinsdóttir tekur við sem bæjarstjóri í Kópavogi á fyrsta vinnudegi á nýju ári. Hún þurfti góðan umhugsunarfrest áður en hún ákvað að takast á við verkefnið. "Það hafði aldrei hvarflað að mér að þurfa að kljást við þetta verkefni," segir hún. </font /></b />

Guðfinna rektor sameinaðs skóla

Á fundi með starfsfólki Háskólans í Reykjavík og Tækniháskóla Íslands, sem haldinn var síðdegis í dag, var skýrt frá ráðningu dr. Guðfinnu S. Bjarnadóttur, núverandi rektors Háskólans í Reykjavík, í starf rektors sameinaðs skóla.

Fíkniefnin hafa skilað sér niður

Nígeríumaðurinn sem tekinn var á þriðjudagskvöld í Leifsstöð með ætlað kókaín í farangri og innvortis er talinn hafa verið með 300 til 450 grömm af efninu. Fíkniefnunum var pakkað í hátt í fimmtíu misstórar kúlur sem maðurinn hafði bæði gleypt og geymt í endaþarmi.

Báðir dæmdir í 15 mánaða fangelsi

Salvar Halldór Björnsson og Sigurjón Gunnsteinsson voru dæmdir, í Héraðsdómi Reykjaness, í fimmtán mánaða fangelsi hvor, fyrir innflutning á tæpum 325 grömmum af kókaíni. Fíkniefnin komu þeir með frá Amsterdam í Hollandi í byrjun desember fyrir ári síðan.

Rúm fimmtungshækkun á sérbýli

Enn hækkar vísitala íbúðarverðs á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins var vísitalan 217,3 stig í nóvember, en í októbermánuði var vísitalan 209,3 stig.

Vestmannaeyjabær rekinn með halla

Fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar var lögð fram á fimmtudag. Gert er ráð fyrir að eigið fé bæjarsjóðs verði neikvætt um rúmar 185 milljónir í lok árs 2005. Auka á langtímalán um rúmar 33 milljónir. </font /></b />

Rekstarafgangurinn lækkar

Eftir breytingar á fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar, lækkar áætlaður rekstarafgangur um 350 milljónir. Sjálfstæðismenn segir borgina komna í fjárhagslega erfiðleika. </font />

Sex prósenta hækkun

Á fundi bæjarstjórnar í Vestmannaeyjum á fimmtudag var samþykkt að hækka far- og farmgjöld með Herjólfi um sex prósent.

Dómari kallaði dóminn fjarstæðu

Inger Jónsdóttir, sýslumaður á Eskifirði, segir að ekki hafi verið ákveðið hvort brugðist verði við þætti ákæruvaldsins í frávísun Hæstaréttar á dómi Héraðsdóms Austurlands í gær. Einn dómara við Hæstarétt kallaði dóm Héraðsdóms, sem var yfir pilti vegna líkamsárásar, fjarstæðu og sagði eðilegast að sýkna manninn.

Fischer ekki eini vitleysingurinn

Bobby Fischer verður ekki eini vitleysingurinn hér á landi komi hann til landsins, segir utanríkisráðherra. Hann hefur ekki áhyggjur af því að Fischer verði til vandræða. Hann segir boð um dvalarleyfi sérmeðferð sem Fischer bjóðist vegna sérstakra tengsla við landið.

Kennarar endurgreiða ofgreidd laun

Flestir grunnskólakennarar greiða sveitarfélögunum ofgreidd laun fyrir jól. Hjá öðrum eru greiðslurnar dreifðar og endurgreiddar á nýju ári, að sögn Sesselju G. Sigurðardóttur, varaformanns Félags grunnskólakennara

Vilja vita verð símtala fyrirfram

Erfitt er fyrir neytendur að vita hvað þeir greiða fyrir símnotkun fyrr en eftir á, segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna. Samtökin krefjast að greitt verði úr því.

Tíu þúsund skráðir á Tónlist.is

Nær tíu þúsund manns hafa skráð sig á vefmiðilinn Tónlist.is. Stefán Hjörleifsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir þessa miklu þátttaka ekki koma á óvart.

Landamæri ESB að Írak og Íran?

Landamæri Evrópusambandsins munu liggja að Írak, Íran og Sýrlandi ljúki aðildarviðræðum við Tyrki með því að þeir gangi inn í sambandið. Ýmis ljón eru þó í veginum og efasemdir báðum megin borðsins.

Reykjavíkurflugvöllur nýttur áfram

Það er óhjákvæmilegt að Reykjavíkurflugvöllur verði nýttur áfram segir samgönguráðherra. Annað væri sóun á þeim fjármunum sem lagðir hafa verið í flugvallarsvæðið að undanförnu. Formaður samgöngunefndar Reykjavíkur segir samgönguyfirvöld vilja flugvöllinn burt en kjósi að segja það ekki að svo stöddu.

Úttekt á þjónustu við aldraða

Ríkisendurskoðun gerir nú úttekt á þjónustu við aldraða á stofnunum. Benedikt Davíðsson, formaður Landssambands eldri borgara, segir að stórar öldrunarstofnanir eigi að heyra sögunni til. Vistmennn þar hafi verið mjög óánægðir með tíð starfsmannaskipti og þjónustuna almennt.

Reykjanesbrautin ekki breikkuð?

Bæjarstjórn Garðabæjar hefur hafnað því að veita Vegagerðinni framkvæmdaleyfi til að breikka Reykjanesbraut samkvæmt fyrirliggjandi tillögum. Bæjarstjórinn segir meðal annars hljóðmanir of háar en fundur verði með hagmunaðilum í næstu viku. Bæjarstjórinn efast ekki um að brautin verði breikkuð.

Fischer tekur vel í að koma

Þórður Ægir Óskarsson, sendiherra Íslands í Tokyo, fór snemma í morgun að íslenskum tíma í japanska utanríkisráðuneytið og tilkynnti þar um þá ákvörðun íslenskra stjórnvalda að bjóða skákmeistaranum Bobby Fisher dvalarleyfi á Íslandi. Þá tilkynnti Þórður Fisher símleiðis um málið og tók Fisher því vel.

Ekki skipta ykkur af segir Bush

George Bush, Bandaríkjaforseti, hefur varað Írana og Sýrlendinga við því að skipta sér af framgangi mála í Írak. Bush tiltók ekki hvað hann átti við þegar hann sagði það ekki Sýrlendingum og Írönum í hag að skipta sér af.

Hansína verður bæjarstjóri

Framsóknarmenn í Kópavogi samþykktu á fundi sínum í gærkvöldi að Hansína Ásta Björgvinsdóttir verði næsti bæjarstjóri í Kópavogi, í stað Sigurðar Geirdal, sem lést nýverið. Fyrr í vikunni höfðu Sjálfstæðismenn fallist á þá tilhögun.

Gáfust upp

Mannræningjarnir í Grikklandi, sem héldu á tímabili hart nær þrjátíu manns í gíslíngu í rútu í Aþenu í gær gáfust í nótt upp eftir 18 klukkustunda þolraun. Mennirnir, sem eru frá Albaníu, gerðu upphaflega kröfu um að vera ekið út á flugvöll og vildu fljúga þaðan til Rússlands. Að auki vildu þeir milljón evrur í lausnargjald.

Hneykslismál í bresku stjórninni

Hneykslismál skók breskan stjórnmálaheim í gærkvöldi þegar innanríkisráðherra Bretlands, David Blunket, sagði af sér. Afsögnin kom í kjölfar uppljóstrana um að hann hefði meðal annars beitt sér fyrir því að erlend kona fékk landvistarleyfi með hraði.

Bundu sprengju við manninn

Nú er ljóst að mennirnir sem rændu starfsmanni gjaldeyrisbanka í Stokkhólmi í gær, festu við hann sprengju og rændu síðan bankann þar sem hann starfaði, höfðu eina komma fjórar milljónir sænskra króna upp úr krafsinu, eða sem nemur ríflega þrettán milljónum íslenskra króna.

Gæsluvarðhaldið framlengt

Lögreglan í Reykjavík fer í dag fram á framlengingu á gæsluvarðhaldi yfir karlmanni sem varð Ragnari Björnssyni að bana á veitingastaðnum Ásláki í Mosfellsbæ um síðustu helgi. Þess verður krafist að maðurinn sitji í gæsluvarðhaldi að minnsta kosti sex vikur til viðbótar.

Danir hefja eigin innrás

Danir hafa snúið vörn í sókn og hafið innrás í íslenska efnahagslífið. Danski málningarframleiðandinn Flugger hefur keypt allt hlutafé í Hörpu Sjöfn, sem framvegis verður dótturfélag danska fyrirtækisins og lætur Helgi Magnússon framkvæmdastjóri af störfum.  

Ofsaveður í gærkvöldi

Ofsaveður var út af suðausturströndinni í gærkvöldi, en mesti veðurofsinn náði ekki inn á landið. Yfir 50 metrar á sekúndu mældust á skipi á þessum slóðum, en þegar vindur verður svo mikill, ná öldurnar sér ekki upp og því var ekki vont í sjóinn þrátt fyrir veðurhaminn.

Bin laden lifir

Osama bin Laden er á lífi, samkvæmt nýrri hljóðupptöku sem fram hefur komið. Á upptökunni heyrist rödd, sem líkist mjög rödd bin Ladens, blessa hóp sádí-arabískra hryðjuverkamanna sem réðst inn á ræðismannsskrifstofu Bandaríkjanna í Sádi-Arabíu þann 6. desember. Ekki hefur þó enn verið staðfest að þarna sé örugglega um rödd bin Ladens að ræða.

Dó vegna afleiðinga höggs

Allt að sex vikna gæsluvarðhalds verður krafist í dag yfir banamanni Ragnars Björnssonar, sem lést eftir högg sem hann hlaut á krá í Mosfellsbæ um helgina. Bráðabirgða niðurstaða krufningar liggur fyrir. Samkvæmt henni má rekja lát Ragnars til hnefahöggs sem hann fékk á vinstri vanga. Afleiðingar þess höggs drógu hann til dauða.

Tveir handteknir í Stokkhólmi

Tveir menn hafa verið handteknir í Stokkhólmi, grunaðir um að hafa rænt starfsmanni gjaldeyrisbanka, fest við hann sprengju og rænt síðan bankann.

Gerði grein fyrir áformum í gær

Davíð Oddsson utanríkisráðherra gerði bandaríska sendiheranum hér á landi grein fyrir þeim áformum að veita Bobby Fischer landvistarleyfi hér á landi, á fundi í gær.

Vekur heimsathygli

Allir stærstu vestrænu fjölmiðlar heims fjalla í dag um tilboð íslenskra stjórnvalda um dvalarleyfi til handa Fischer. Til að mynda hafa fréttastofur BBC, ABC, CNBC, CNN, Reuters, írskir fjölmiðlar ásamt fleirum fjallað nokkuð ítarlega um málið í morgun.

Umsátrinu lauk í nótt

Nítján klukkustunda umsátri um mannræningja sem héldu sex manns í gíslingu í rútu í Aþenu lauk í nótt, þegar ræningarnir gáfust upp. Upphaflega voru 23 í rútunni sem mennirnir rændu í Aþenu snemma í gærmorgun. Í gærdag slepptu mannræningjarnir svo smám saman yfir daginn meirihluta gíslanna, en héldu sex eftir.

Bætt upp fyrir verkfallið

Fræðsluyfirvöld í Reykjavík og Hafnarfirði hafa lagt fram áætlanir til að bæta grunnskólanemendum tjónið sem hlaust af löngu verkfalli grunnskólakennara.

Ætlar að bjóða sig fram á ný

David Blunkett, innanríkisráðherra Bretlands, sem sagði af sér í gær, ætlar að bjóða sig fram á ný í næstu kosningum. Blunkett naut mikils trausts Blairs forsætisráðherra, og þykir afsögnin mikið áfall fyrir hann.

Sjá næstu 50 fréttir