Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rætt um Rockall Utanríkisráðuneytið segir að viðræður Íslands, Bretlands, Írlands og Danmerkur fyrir hönd Færeyja um Hatton Rockall-málið sem nýlokið er í Lundúnum hafi verið jákvæðar og gagnlegar. 24.11.2004 00:01
Afgangur minnkar um 1.2 milljarð Meirihluti fjárlaganefndar hefur lagt fram breytingartillögu sína við fjárlög 2005. Hækka útgjöld um tæpar átján hundruð milljónir og tekjur um tæpar sex hundruð milljónir og minnkar því rekstrarafgangur ríkissjóðs sem þessu nemur eða um 1200 milljónir og verður tíu milljarðar og rúmar 54 milljónir króna. 24.11.2004 00:01
Hringrás gæti verið bótaskyld Hringrás gæti verið bótaskyld komi í ljós að fyrirtækið hafi ekki farið að fyrirmælum yfirvalda. Tjón fyrirtækja og einkaaðila í nágrenni brunastaðsins af völdum eldsins virðist hafa verið ótrúlega lítið. Talsmenn tryggingafélaga segja aðeins nokkra tugi tilkynninga hafa komið inn. 24.11.2004 00:01
Fylgjandi skattalækkunum ASÍ er fylgjandi skattalækkun ríkisstjórnarinnar ef nægilegt svigrúm er fyrir hendi án þess að verðbólga aukist og stoðir velferðarkerfisins veikist. 24.11.2004 00:01
Gjaldið í Hvalfjarðargöng lækki Veggjald um Hvalfjarðargöng getur lækkað verulega ef Spölur ræðst í endurfjármögnun lána. Samgönguráðherra lýsti þessu yfir á Alþingi í dag og studdist þar við nýja úttekt Ríkisendurskoðunar á bókhaldi Spalar. 24.11.2004 00:01
Lækkanirnar auka hagstjórnarvanda Miðstjórn Alþýðusambandsins telur þær umfangsmiklu skattalækkanir sem nú eru boðaðar auka á hagstjórnarvandann og geta leitt til vaxandi verðbólgu á næstu misserum. Gangi það eftir séu forsendur kjarasamninga brostnar, segir í ályktun sem samþykkt var síðdegis. 24.11.2004 00:01
Kostar 25 milljónir að fá lækni Heilsugæslan á Hólmavík hefur þurft að leigja lækni af Læknastöðinni í Lágmúla því enginn læknir hefur viljað ráða sig í fasta stöði. Læknaleigan kostaði 25 milljónir á ári. Gerð var krafa um ókeypis áskrift að sjónvarpsstöðvum Norðurljósa. Loks hefur fengist læknir sem mun njóta sömu kjara og leigulæknarnir sem eru úr sögunni í bili. 24.11.2004 00:01
Sjálfboðaliðar unnu þrekvirki Sjálfboðaliðar unnu þrekvirki þegar barist var við eldinn í Hringrás í næstum tvo sólarhringa. Slökkviliðið segir að aðstoð þeirra verði ekki ofmetin. Hrólfur Jónsson slökkviliðsstjóri sá ástæðu til að þakka sérstaklega þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum sem lögðu hönd á plóginn. 24.11.2004 00:01
Ógn steðjar að lífríki norðursins Ógn steðjar að lífríki norðursins að mati vísindamanna en miðað við Reykjavíkuryfirlýsingu Norðurskautsráðsins, sem undirrituð var hér á landi í dag, á lítið að gera til að bregðast við ógninni. Átta utanríkisráðherrar funduðu og komust ekki að neinni haldbærri niðurstöðu um viðbrögð við hlýnun jarðar. 24.11.2004 00:01
Óþolinmæði hjá sveitarstjórnum Fulltrúar sveitarfélaganna settust nú síðdegis á fund með fulltrúum ríkisvaldsins til þess að ræða tekjuskiptingu milli ríkis og sveitafélaga. Óþolinmæði er farið að gæta hjá sveitarstjórnarmönnum þar sem engar tillögur hafa komið frá ríkinu um hvernig kröfum sveitarfélaganna um auknar tekjur verði mætt. 24.11.2004 00:01
Einelti á Netinu Mörg dæmi eru um að unglingar hafi brotnað saman þegar óhróður um þá hefur verið settur á Netið. Þrjár ungar stúlkur hafa nú hafið gagnsókn ásamt umboðsmanni barna. 24.11.2004 00:01
Bíllinn gjörbreytti lifnaðarháttum Hann hefur verið kallaður þarfasti þjónninn og gjörbreytti lifnaðarháttum Íslendinga á öldinni sem leið. Hér er rætt um bílinn en bók dagsins fjallar um sögu hans hér á landi. 24.11.2004 00:01
Rotturnar fúlsa við honum Óttast er að risasnigill frá Spáni sé við það að nema hér land. Snigillinn er átvagl sem leggst á gróður, er óætur með öllu og fjölgar sér hratt. Stofninn hefur fært sig í norðvestur í Evrópu síðustu ár og stækkar ört. 24.11.2004 00:01
Prentað af netinu án vandkvæða Norska vafrafyrirtækið Opera Software ASA í Noregi segist hafa komið fram með lausn sem bindur enda á vandræðagang sem fylgt getur því að prenta út vefsíður. 24.11.2004 00:01
Endurbætt uppsjávarfrystihús Nýr búnaður í í uppsjávarfrystihúsi Síldarvinnslunnar í Neskaupstað var prufukeyrður í byrjun síðustu viku og síðan hefur verið unnið að því að fínstilla búnaðinn og koma á fullum afköstum við síldarfrystingu. 24.11.2004 00:01
Borgarastyrjöld gæti brotist út Óttast er að borgarastyrjöld kunni að brjótast út í Úkraínu vegna ólgunnar sem þar er eftir forsetakosningarnar í landinu. Evrópusambandið telur að kosningasvik hafi verið framin í Úkraínu. 24.11.2004 00:01
Fólk flutt úr nærliggjandi húsum Björgunarsveitir hafa verið kallaðar út til aðstoðar vegna stórbrunans í Hringrás í Klettagörðum. Allt tiltækt slökkvilið berst enn við eldinn. Fimmtán strætisvagnar eru til taks vegna brottflutnings fóls úr nærliggjandi húsum en gríðarlega mikinn svartan reyk leggur enn yfir nágrennið. 23.11.2004 00:01
Hægt að kæra olíufélögin Fyllilega raunhæft er fyrir einstaklinga að leita réttar síns fyrir dómstólum og leita bóta vegna tjóns sem þeir hafa beðið af samráði olíufélaganna þriggja, að mati Eiríks Elísar Þorlákssonar, lögmanns Félags íslenskra bifreiðaeigenda. 23.11.2004 00:01
Fleiri koma frá Japan Helmingi fleiri ferðamenn koma hingað frá Japan nú en þegar opnað var sendiráð í Tokýó árið 2001. Á þetta er bent í Stiklum, vefriti utanríkisráðuneytisins. 23.11.2004 00:01
Forsætisráðherra heimsækir Svía Halldór Ásgrímsson fer í sína fyrstu opinberu heimsókn sem forsætisráðherra til Svíþjóðar 25. nóvember. Með í för verður eiginkona hans Sigurjóna Sigurðardóttir. Gestgjafi forsætisráðherrahjónanna í tveggja daga heimsókninni verður Göran Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar. 23.11.2004 00:01
Ekki óbreytt starfsemi Davíð Oddsson utanríkisráðherra segir að George W. Bush Bandaríkjaforseti fylgist vel með viðræðum um framtíð varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli og hann sé sammála því áliti Íslendinga að hver þjóð þurfi að búa við lágmarks loftvarnir. 23.11.2004 00:01
Ráðherra sakaður um feluleik Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra mælti í gær fyrir frumvörpum sem fela í sér heimildir til ríkisháskólanna til að hækka skrásetningargjöld úr 32.500 krónum í 45.000 eða um 40 prósent. 23.11.2004 00:01
Flestir fá eitthvað Huga þarf mjög vel að því að lækka ríkisútgjöld á móti tekjulækkun ríkissjóðs svo að verðbólgan fari ekki af stað hér á landi þegar skattalækkun ríkisstjórnarinnar hefur tekið gildi. 23.11.2004 00:01
Viðeigandi að þinga í Höfða Í dag lýkur tveggja daga stefnumótunarfundi bandarísk- evrópsku stofnunarinnar East-West Institute í Höfða í Reykjavík, en fundurinn hófst í gærmorgun. East-West Institute er sjálfstæð stofnun og var sett á laggirnar árið 1981. Hún hefur síðan beitt sér í helstu deilumálum heimsins á hverjum tíma og er ein stærsta stofnun sinnar tegundar. 23.11.2004 00:01
Skólamálin rædd í þaula Í viðræðum I-lista Sameiningar og B-lista Framsóknarflokks um nýjan meirihluta í Dalvíkurbyggð voru í gær lagðar fram hugmyndir um mótun stefnu í fræðslumálum. 23.11.2004 00:01
Lítill hagur af Akranesi Íbúarnir í hreppunum umhverfis Akranes, sem samþykktu sameiningu um helgina, hafa lítinn áhuga á sameiningu við Akranes. Hjördís Stefánsdóttir, lögfræðingur og íbúi í Hvalfjarðarstrandarhreppi, segir að ekki hafi verið vilji til sameiningar við Akranes innan sveitarfélaganna. 23.11.2004 00:01
Tilbúnir til sameiningarviðræðna Íbúar í fjórum hreppum, öllum hreppunum umhverfis Akranes, hafa samþykkt sameiningu sveitarfélaganna. Þetta eru Innri-Akraneshreppur, Skilmannahreppur, Leirár- og Melahreppur og Hvalfjarðarstrandarhreppur. 23.11.2004 00:01
Öll nema eitt vilja sameiningu Unnið er að því að leggja fyrir atkvæði tillögu um að sameina öll sveitarfélögin á Snæfellsnesi nema eitt. Tillagan er m.a. byggð á niðurstöðum skoðanakönnunar sem sýndi að alls staðar er meirihluti fyrir þessari sameiningu nema í Grundarfjarðarbæ. 23.11.2004 00:01
Skjálfti sem ekki fannst Jarðskjálfti af stærðargráðunni 3,4 á Richter með upptök fyrir mynni Eyjafjarðar átti sér stað um klukkan hálf eitt í gærdag. Í tilkynningu Veðurstofu Íslands kemur fram að eftirskjálftar hafi ekki fylgt í kjölfarið og engar tilkynningar um að fólk hafi orðið skjálftans vart. 23.11.2004 00:01
Hætta auðgun úrans Íranar hafa gert hlé á auðgun úrans og annarri þróun kjarnorkuvopna samkvæmt tilkynningu sem var útvarpað í Íran í gær. 23.11.2004 00:01
Fjárfestar hrekjast frá Afríku Átök á Fílabeinsströndinni og í Darfur-héraði í Súdan fæla erlenda fjárfesta frá öðrum Afríkuríkjum. Þetta kom fram á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Eþíópíu um verslun og viðskipti. Afríka er fátækasta heimsálfan. 23.11.2004 00:01
Kvartað yfir upplýsingaskorti "Það er mjög mikið hringt í okkur út af þessu. Fólk er að átta sig á þessu núna því símareikningar margra hafa hækkað," segir Ingibjörg Magnúsdóttir hjá Neytendasamtökunum. 23.11.2004 00:01
Kafbátarnir úreltir Yfirmaður danska herflotans harmar það að báðir kafbátar danska hersins skulu úreltir í hagræðingarskyni nú í vikunni. Danska þingið samþykkti í júní síðastliðnum að tvöfalda fjölda danskra hermanna sem geta tekið þátt í alþjóðlegum aðgerðum. 23.11.2004 00:01
Segir Milocevic saklausan Nikolai Ryzhkov, fyrrverandi forsætisráðherra Rússlands, segir að sprengjuárásir NATO gegn Serbum í Kosovo árið 1999 hafi ekki haft neitt hernaðarlegt gildi, heldur hafi fyrst og fremst verið árás á Serbíu. 23.11.2004 00:01
Heitir stuðningi Bandaríkjanna Colin Powell, fráfarandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, heitir Palestínumönnum stuðningi Bandaríkjanna í forsetakosningunum í janúar á næsta ári. 23.11.2004 00:01
Vannærð börn helmingi fleiri Tæplega helmingi fleiri írösk börn þjást af vannæringu núna en áður en ráðist var inn í landið, þrátt fyrir matardreifingu Sameinuðu þjóðanna. Þetta eru niðurstöður norskrar rannsóknar sem var unnin í samvinnu við írösku bráðabirgðastjórnina og Þróunaraðstoð Sameinuðu þjóðanna. 23.11.2004 00:01
Kuldi rekur mýs í hús Eitthvað hefur verið um að mýs hafi leitað í hús vegna kuldakastsins undanfarna daga. Ómar F. Dabney, rekstrarfulltrúi hjá meindýraeyði Reykjavíkurborgar, segir þó að frekar hafi verið rólegt vegna þessa hjá embættinu og starfsmenn ekki fundið fyrir því að útköllum hafi fjölgað. 23.11.2004 00:01
19 ára vaktmaður sá eldtungu Hafþór Þórsson, 19 ára vaktmaður varð eldsins við Hringrás fyrst var. Hann sagði að eldtunga hefði teygt sig út úr einu horni vöruskemmu á svæði Hringrásar. Hafþór gerði Neyðarlínunni strax viðvart og þegar slökkvilið kom á staðinn örfáum mínútum síðar var húsið alelda. Lögregla og björgunarlið eru enn að rýma hús í nágrenninu og flytja íbúa í fjöldahjálparstöð Rauða krossins í Langholtsskóla. Ekki er vitað um nein alvarleg slys á fólki. <strong>Rauði krossinn hefur opnað upplýsingasíma þar sem menn geta fengið upplýsingar um ættingja sína, síminn er 1717.</strong> 23.11.2004 00:01
Hafa náð tökum á eldinum en eiga mikið starf fyrir höndum Slökkviliðið í Reykjavík virðist hafa náð tökum á eldinum á svæði Hringrásar við Klettagarða. Það skíðlogar þó enn í stórum haugum af ýsmu rusli en ekki er óttast að eldurinn breiðist frekar út. Mikinn reyk leggur enn frá svæðinu. Ljóst er að slökkviliðsmenn eiga langa nótt fyrir höndum. Allt tiltækt lið höfuðborgarsvæðisins hefur verið að störfum frá því klukkan tíu í gærkvöld og hefur aðstoð borist frá nágrannasveitarfélögum og frá Keflavíkurflugvelli. 23.11.2004 00:01
Brottfluttir mæti hjá KFUM Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur boðað íbúa sem þurftu að rýma hús sín vegna brunans við Klettagarða, í húsnæði KFUM við Holtaveg klukkan 08:00 til skráningar og til að fá upplýsingar um ástand og öryggi húsnæðis þeirra. 23.11.2004 00:01
Hafa ekki fengið að snúa heim Hátt í 600 manns, sem þurftu að yfirgefa heimili sín í skyndingu í gærkvöldi af ótta við eitraðan reyk frá stórbruna við Sundahöfn, hafa ekki enn fengið að snúa til síns heima og er óvíst hvenær það verður. Fulltrúar heilbrigðisyfirvalda, lögreglu og tryggingafélaga munu meta það þegar líður á daginn. <strong><a href="http://www.visir.is/?pageid=569" target="_blank"><font color="#000080">Myndir frá eldsvoðanum</font></a></strong> 23.11.2004 00:01
Enn mótmælt í Úkraínu Þúsundir mótmælenda létu kulda ekki á sig fá og héldu áfram mótmælum gegn meintum kosningasvikum og fölskum niðurstöðum í forsetakosningum í Úkraínu í nótt. Á meðal mótmælendanna gengu sögusagnir þess efnis, að öryggissveitir hygðust leggja til atlögu við þá og ryðja þeim burt, en engar fregnir hafa borist af því. 23.11.2004 00:01
Starfsmönnum SÞ sleppt Þremur starfsmönnum Sameinuðu Þjóðanna í Afghanistan, sem rænt var í síðasta mánuði, hefur verið sleppt. Eftir þrjár vikur í haldi mannræningja er fólkið nú á heimleið að lokinni læknisrannsókn. Afgönsk yfirvöld töldu glæpamenn hafa rænt fólkinu og að þeir krefðust lausnargjalds, en ekki er ljóst á þessari stundu hvernig það kom til að fólkinu var sleppt. 23.11.2004 00:01
Vonast eftir friði fyrir árslok Vonir standa til að samkomulag takist um frið í Darfur-héraði í Súdan fyrir lok árs. Utanríkisráðherra Súdans segir það markmiðið. Friðarviðræður standa nú í Abuja í Nígeríu. Flytja varð þrjátíu breska hjálparstarfsmenn á brott í skyndingu í gær, eftir að bardagar brutust út í þorpinu sem þeir störfuðu í. 23.11.2004 00:01
Man ekki eftir morðinu Héraðsdómur Reykjavíkur þingfesti í gær mál gegn Hildi Árdísi Sigurðardóttur sem ákærð er fyrir að hafa banað dóttur í Vesturbænum í sumar. Hildur Árdís segist ekki muna eftir morðinu. 23.11.2004 00:01