Innlent

Lækkanirnar auka hagstjórnarvanda

Miðstjórn Alþýðusambandsins telur þær umfangsmiklu skattalækkanir sem nú eru boðaðar auka á hagstjórnarvandann og geta leitt til vaxandi verðbólgu á næstu misserum. Gangi það eftir séu forsendur kjarasamninga brostnar, segir í ályktun sem samþykkt var síðdegis. Alþýðusambandið telur að ef svigrúm er fyrir hendi hefði átt að nýta tækifærið og jafna tekjur í skattkerfinu, svo sem með meiri hækkun skattleysismarka, lægra skattþrepi á lágar tekjur og lækkun virðisaukaskatts á matvæli. ASÍ fagnar þó hækkun barnabóta og segir skattalækkanir jákvæðar ef tryggt sé að þær leiði ekki til aukinnar verðbólgu eða veiki stoðir velferðarkerfisins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×