Hafa ekki fengið að snúa heim 13. október 2005 15:02
Hátt í 600 manns, sem þurftu að yfirgefa heimili sín í skyndingu í gærkvöldi af ótta við eitraðan reyk frá stórbruna við Sundahöfn, hafa ekki enn fengið að snúa til síns heima og er óvíst hvenær það verður. Fulltrúar heilbrigðisyfirvalda, lögreglu og tryggingafélaga munu meta það þegar líður á daginn. Rauði Krossinn hýsti fjölda fólks í Langholtsskóla í nótt, en aðrir gistu hjá vinum og ættingjum. Nokkrir leituðu aðstoðar á Slysadeild vegna gruns um reikeitrun, en enginn hafði þó hlotið alvarleg einkenni. Engin starfssemi er í framleiðslu- og þjónustufyrirtækjum á svæðinu og óljóst hvenær hún hefst, en talið er að víða hafi orðið miklar reykskemmdir, bæði í atvinnu- og íbúðarhúsnæði á all stóru svæði. Þá er ekkert skólahald í Laugalækjarskóla í dag og leikskólarnir Lækjarborg og Laugaborg eru lokaðir. Eldurinn kviknaði á athafnasvæði Hringrásar við Sundahöfn og varð hans vart á tíunda tímanum í gærkvöldi. Allt slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað á vettvang og aðstoð barst frá slökkviliðunum í Keflavík og á Keflavíkurflugvelli auk þess sem danskt varðskip, sem lónar útifyrir, hefur dælt sjó til slökkkviliðsmanna í nótt. Eldurinn virðist hafa kviknað í skemmu og borist í mikinn hlaða af ónýtum dekkjum, sem átti að farga, og magnaðist eldurinn skjótt. Eldurinn er mjög lífseigur í dekkjunum og þarf að kraka þau logandi úr staflanum og flytja þau á víðavang, þar sem endanlega er slökkt í þeim. Allt athafnasvæði í grennd við brunastað er lokað og Sæbraut er lokuð frá gatnamótum Kringlumýrarbrautar á Langholtsvegi og allar hliðargötur að henni eru líka lokaðar á þessu svæði. Talsverður eldur logar enn á staðnum, því slökkvistarf gengur hægt en örugglega. Búist er við að það muni standa eitthvað fram eftir degi. Vindur á að snúast til suðlægrar áttar í dag og þá ætti reykinn að leggja út á sund og hættan að líða hjá. Reiknað er með því að staðan verði endurmetin í hádeginu. Engin sprengihætta er á svæðinu, þannig að slökkviliðsmenn gátu strax ráðist að eldinum sjálfum. Eldsupptök eru ókunn, en í fljótu bragði virðist sem eldurinn hafi fyrst kviknað í skemmu á athafnasvæði Hringrásar, en þar er mikill brotajárnshaugur auk dekkjastaflans.
Fréttir Innlent Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira