Sjálfboðaliðar unnu þrekvirki 24. nóvember 2004 00:01
Sjálfboðaliðar unnu þrekvirki þegar barist var við eldinn í Hringrás í næstum tvo sólarhringa. Slökkviliðið segir að aðstoð þeirra verði ekki ofmetin. Hrólfur Jónsson slökkviliðsstjóri sá ástæðu til að þakka sérstaklega þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum sem lögðu hönd á plóginn. Líklega hefur þessi eldsvoði haft fleiri hliðarverkanir en flestir aðrir sem orðið hafa í Reykjavík. Aldrei áður hefur til dæmis þurft að flytja um sexhundruð manns nauðaflutninga af heimilum sínum. Slökkviliðið hafði auðvitað nóg að gera við að berjast við eldinn og því voru kallaðir út margir sjálfboðaliðar til aðstoðar. Má þar nefna björgunarsveitir, strætisvagnabílstjóra, Rauða krossinn og fleiri. Og sumir mættu upp á sitt eindæmi, eins og til dæmis leigubílstjórar sem óku fólki ókeypis í skjólið, og starfsmenn ET-flutningaþjónustunnar sem er í næsta húsi við Hringrás. Þeir notuðu stórvirkar vinnuvélar til að aðstoða slökkviliðið við að rjúfa og flytja burt brennandi stafla af dekkjum og öðru dóti. Einari Gíslasyni, framkvæmdastjóra ET, var um og ó hvað menn hans gengu rösklega til verks. Hann fylgdist með inni í húsi fyrirtækisins og stóð ekki á sama þegar hann sá starfsmenn sína fara inn í eldinn og velti fyrir sér hvort þeir kæmu út aftur. Vatnsskortur háði slökkviliðinu um tíma og þá var leitað til danska varðskipsins Triton sem lá í Sundahöfn. Þar um borð eru mjög öflugar dælur sem dældu vatni fyrir slökkviliðið látlaust í sólarhring. Tor Nilsen, 1. stýrimaður á Triton, segir hafnaryfirvöld hafa komið að máli við áhöfnina nokkru eftir að eldsvoðans varð vart og spurt hvort hún gæti dælt sjó til að nota við slökkvistarfið.
Fréttir Innlent Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Innlent Fleiri fréttir Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Sjá meira