Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vill ekki tjá sig Steinunn Valdís Óskarsdóttir vildi í hádegisfréttum ekki tjá sig um það hvað henni þætti sem íbúa í nágrenni aðalstöðva Hringrásar ehf. um að búa nálægt þeirri starfsemi sem þar færi fram. Hún sagðist eiga eftir að skoða það betur. 23.11.2004 00:01
Búið að opna leikskóla Leikskólarnir Laugaborg og Lækjaborg voru opnaðir klukkan eitt eftir hádegi, en engin starfsemi fór fram á leikskólunum í morgun vegna brunans við Klettsgarða 23.11.2004 00:01
ASÍ tjáir sig ekki Alþýðusamband Íslands hefur ákveðið að tjá sig ekki um skattabreytingar ríkisstjórnarinnar fyrr en eftir miðstjórnarfund í dag 23.11.2004 00:01
Mjóafjarðarhreppur er fámennastur Eitt sveitarfélag í landinu er undir lögbundnum mannfjölda sveitarfélaganna. Þetta er Mjóafjarðarhreppur á Austurlandi. 23.11.2004 00:01
Tjónið fellur undir brunatryggingu Samband íslenskra tryggingafélaga sendi nú fyrir hádegi frá sér yfirlýsingu þar sem segir meðal annars að hugsanlegt tjón af völdum sóts og reyks á íbúðarhúsnæði, sem rakið verði til eldsvoðans hjá Hringrás hf., falli undir lögboðna brunatryggingu íbúðareigandans. 23.11.2004 00:01
Viðvaranir hundsaðar Eldvarnareftirlitið hafði gert athugasemdir við mikinn dekkjahaug á athafnasvæði Hringrásar og talið að af honum stafaði eldhætta. Eftirlitið skrifaði harðort bréf í júní og krafðist þess að dekkjahaugurinn yrði fjarlægður. Það kom fram í bréfinu að ef kviknaði í gæti þurft að rýma íbúða- og atvinnuhúsnæði á stóru svæði, eins og raun varð svo á. 23.11.2004 00:01
Enn að störfum Slökkviliðsmenn eru enn að störfum á athafnasvæði Hringrásar í Sundahöfn. Lögreglan ræður íbúum húsa að snúa ekki til baka í íbúðir sínar að svo stöddu. Þá ítrekaði Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur viðvörun sína til íbúa vegna mengunar í húsunum. Þá segir að íbúum, starfsfólki fyrirtækja eða öðrum þeim sem voru í nágrenni brunans við Hringrás og finna fyrir við ertingu eða óþægindum í öndunarfærum sé bent á að leita læknis. Síðbúin einkenni allt að þremur dögum eftir að fólk hafi orðið fyrir reykjarmengun séu hugsanleg.<font size="4"></font> 23.11.2004 00:01
Neyðarfundur í Úkraínu Nú stendur yfir neyðarfundur á úkraínska þinginu, sem boðað var til vegna forsetakosninganna sem fóru fram á sunnudaginn. Talsmaður þingsins sagði að það væri ósiðlegt af þingmönnum að láta eins og allt væri með felldu í landinu og sjálfstæðis þess vegna væri algerlega lífsnauðsynlegt að kryfja framkvæmd kosninganna til mergjar. 23.11.2004 00:01
SÞ rannsaka misnotkun Sameinuðu Þjóðirnar hafa sett af stað rannsókn vegna meintra ásakana á hendur starfsmönnum stofnunarinnar í Kongó. Alls hafa borist yfir 150 ásakanir vegna meintra nauðgana, vændissölu og barnamisnotkun á flóttamönnum í herbúðum Sameinuðu Þjóðanna í Kongó. Sum atvikin hafa verið tekin upp á myndband, eða náðst á ljósmynd. 23.11.2004 00:01
Erfitt að hafna fólki í neyð Starfsmenn sem taka á móti áfengissjúkum á Vogi kvíða því að þurfa að vísa fólki í neyð frá og senda það annað. Nú fer í hönd einn mesti álagstími á sjúkrahúsinu, sem hefst skömmu fyrir jól og skellur af fullum þunga á eftir áramót. </font /></b /> 23.11.2004 00:01
Rannsókn á líðan lækna Hleypt hefur verið af stokkunum rannsókn á heilsu, lífsstíl og starfsskilyrðum lækna á Íslandi. Allir læknar á Íslandi með gilt lækningaleyfi þann 30. júní á þessu ári og búsettir eru hér á landi, alls 1.185 læknar, hafa fengið sent boð um þátttöku. 23.11.2004 00:01
Stóð til að sprengja upp turna Öryggisyfirvöld í Bretlandi segja að staðið hafi til að gera hryðjuverk á Canary-turnana í London, en komið hafi verið í veg fyrir það. Dagblaðið Daily Mail greinir frá því í dag að hryðjuverkamenn tengdir Al-Qaeda samtökunum hafi ætlað sér að granda flugvélum á turnunum þremur með svipuðum hætti og gert var við tvíburaturnana í New York. 23.11.2004 00:01
Stjórnmálasamband við Tógó Ísland hefur tekið upp stjórnmálasamband við V-Afríkurríkið Tógó, þar sem búa um fimm milljónir manna. Yfirlýsing um þetta var undirrituð í New York á föstudag. Ríkið liggur milli Gana og Benín og á landamæri við Búrkína Fasó í norðri. Strandlengja Togo í suðri við Benín flóa er um eitthundrað kílómetrar og nefnist Þrælaströndin. 23.11.2004 00:01
Heilbrigðiseftirlitið skoðar málin Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur vinnur sem stendur að rannsóknum bæði á skrifstofum fyrirtækja og á heimilum í nágrenni við Klettagarða, þar sem eldur kom upp í nótt, til að kanna magn eiturefna í loftinu. Í kjölfarið verða gefnar út leiðbeiningar til almennings og ákveðið hvort og þá hvenær fólki verður leyft að halda heim eða til vinnu á ný. 23.11.2004 00:01
8 í nýju athvarfi 8 manns af þeim 83, sem gistu á vegum Rauða Krossins í nótt vegna brunans í Sundahöfn fengu inni í nýju næturathvarfi sem hefur verið opnað fyrir heimilislausar konur í Reykjavík. Athvarfið nefnist Konukot og er starfrækt í Eskihlíð 4. Þörfin fyrir slíka starfsemi er brýn, samanber skýrslu sem Rauði Krossinn lét vinna í fyrra. 23.11.2004 00:01
29 umsóknir 29 sóttu um fjögur laus störf í yfirstjórn Reykjavíkurborgar en þar hafa staðið fyrir dyrum miklar skipulagsbreytingar. Meðal umsækjenda um stöðu sviðsstjóra á framkvæmdasviði er Hrólfur Jónsson slökkviliðsstjóri. Meðal annarra umsækjenda eru: Garðar Lárusson, sem hefur starfað við Friðargæslu í Afganistan. 23.11.2004 00:01
Yfirdráttarlán á niðurleið Yfirdráttarlán heimilanna hafa minnkað eftir að bankarnir fóru að bjóða íbúðalán í ágúst síðastliðnum. Yfirdráttarlánin voru 60,5 milljarðar í ágúst, þegar bankarnir hófu að bjóða verðtryggð íbúðarlán, en voru komin í 57,8 í lok október. Á sama tíma hafa verðtryggð útlán bankanna til heimilanna aukist úr 93 milljörðum í 129,8 milljarða. 23.11.2004 00:01
Samningur upp á 11 milljarða Atlanta hefur nýverið gert samninga að verðmæti um ellefu milljarða króna um fraktflug á Boeing 747 vélum félagsins. Hluti af þessum samningum er framlenging á eldri samningum en annað er hrein viðbót. Þetta sannar traust samstarfsaðila á félaginu segir Magnús Stephensen framkvæmdastjóri hjá móðurfélaginu Avion Group. 23.11.2004 00:01
Borgi 7,5 milljónir í bætur Auður Laxness hefur stefnt Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni fyrir ritstuld og krefst samtals sjö og hálfrar milljóna króna bóta. 23.11.2004 00:01
29 sækja um sviðsstjórastöður Átta hafa sótt um starf sviðsstjóra á menningar- og ferðamálasviði Reykjavíkurborgar. Störf fjögurra sviðsstjóra hjá Reykjavíkurborg voru nýlega auglýst laus til umsóknar og bárust samtals 29 umsóknir. 23.11.2004 00:01
Tólf umsóknir á rekstrarsviði Tólf umsækjendur eru um starf sviðsstjóra þjónustu- og rekstrarsviðs Reykjavíkurborgar en umsóknarfrestur rann út í byrjun vikunnar. 23.11.2004 00:01
Anna er eini umsækjandinn Aðeins einn umsækjandi er um starf sviðsstjóra fjármálasviðs hjá Reykjavíkurborg. </font /> 23.11.2004 00:01
Hrólfur sótti um framkvæmdasviðið Átta sóttu um starf sviðsstjóra framkvæmdasviðs hjá Reykjavíkurborg en umsóknarfrestur rann út á hádegi á mánudaginn var. 23.11.2004 00:01
Snúa aftur heim Íbúar allra húsa sem rýmd voru í gær vegna brunans í Sundahöfn hafa nú fengið að snúa heim aftur. Í athugun er að reykræsta örfáa stigaganga við Kleppsveg en það á ekki að þurfa að hindra íbúa þeirra húsa í að snúa aftur að sögn lögreglu. 23.11.2004 00:01
Fylgja Íbúðalánasjóði KB banki hefur ákveðið að lækka fasta vexti sína á KB íbúðalánum í 4,15% frá og með deginum í dag. Áður hafði Íbúðalánasjóður lækkað sína vexti. Samhliða þessari vaxalækkun verður gerð sú breyting á skilmálum íbúðarlána hjá KB-banka að þegar tekið er 100% lán að fimmtungur lánsfjárhæðarinnar verði að hámarki lánaður til fimmtán ára. 23.11.2004 00:01
Hannesi Hólmsteini stefnt Auður Laxness, ekkja Halldórs Kiljans Laxness, hefur stefnt Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni prófessor fyrir að hafa brotið á höfundarrétti Halldórs með "ítrekuðum og grófum hætti" í fyrsta bindi ævisögu skáldsins sem kom út í fyrra. <font face="Helv"></font></font /> 23.11.2004 00:01
Bjartsýni í Palestínu Bjartsýni og trú á að hægt sé að koma á varanlegum friði fyrir botni Miðjarðahafs virðist ríkja meðal palestínskra og ísraelskra embættismanna að mati forystumanna East-West Institute. Þetta kom fram á umræðufundi með John Mroz, forseta stofnunarinnar og Mathias Mossberg, sendiherra í Lögbergi í gær. 23.11.2004 00:01
Aukið hungur kemur ekki á óvart Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins segir skýrslu um aukna vannæringu íraskra barna ekki koma á óvart. Hann telur ástand í landinu þó betra en áður en ráðist var inn. Þingflokksformaður Vinstri grænna segir niðurstöðurnar skelfilegar 23.11.2004 00:01
Bílhræ í trollið Áhöfninni á norska togaranum Kongstein brá í brún þegar hún fékk heldur óvæntan afla í trollið nefnilega gamalt bílhræ sem menn telja að hafi verið af Peugeot gerð. Skipstjórinn sagði í samtali við Verdens Gang í Noregi að þetta væri í fyrsti aflinn af þessari tegund á tuttugu og níu ára sjómannsferli. 23.11.2004 00:01
Hætt við skammtímasamning Samninganefnd Félags Leikskólakennara hefur hætt við að óska eftir skammtímakjarasamningi í ljósi þess hvernig mál hafa þróast í samningamálum grunnskólakennara. Viðræðum verður vísað til ríkissáttasemjara á föstudag nema um annað verði samið. 23.11.2004 00:01
Vextir í 4,15% hjá bönkunum KB banki og Íslandsbanki tilkynntu nú síðdegis að þeir hefðu ákveðið að lækka vexti á íbúðalánum úr 4,2 prósentum niður í 4,15% og hefur vaxtalækkunin þegar tekið gildi. Bankarnir svara þannig vaxtalækkun Íbúðalánasjóðs sem tilkynnt var í gær. 23.11.2004 00:01
Áfrýja til EFTA Samtök banka og verðbréfafyrirtækja hafa áfrýjað til EFTA-dómstólsins þeirri niðurstöðu Eftirlitsstofnunar EFTA frá því sumar að starfsemi Íbúðalánasjóðs stæðist samkeppnisreglur. Samtökin telja að þessi þátttaka ríkisins á lánamarkaði brjóti gegn EES-samningnum. 23.11.2004 00:01
Brunaeftirlitið vildi dekkin burt Eldvarnareftirlitið var búið að koma auga á þá hættu sem almenningi gæti stafað að dekkjahaug sem brann á starfssvæði Hringrásar í fyrrinótt. Það skrifaði þess vegna eigendum Hringrásar harðort bréf í júní þar sem bent var á hættuna og krafist greinargerðar um hvað fyrirtækið hygðist gera til úrbóta. 23.11.2004 00:01
Hundruð þúsunda mótmæla Hundruð þúsunda mótmæla enn kosningasvikum í Úkraínu. Þing landsins kom saman til neyðarfundar í dag til að ræða vandann, og mótmælendurnir óttast aðgerðir öryggissveita. Tugir þúsunda stuðningsmanna stjórnarandstöðuframbjóðandans Viktors Yuschenkos létu frostkalda nóttina ekki stöðva sig og héldu áfram mótmælum á aðaltorginu í Kænugarði. 23.11.2004 00:01
Óvinnufært vegna sóts Sót og óþrifnaður barst inn í nokkur fyrirtæki í nágrenni við Hringrás í brunanum í fyrrinótt. Bjarni Lúðvíksson, forstjóri Kassagerðarinnar, segir að ekki verði unnið í skemmu fyrirtækisins fyrr en búið sé að reykræsta hana og hreinsa. 23.11.2004 00:01
Annar bruninn á þremur árum Eldur kom upp á athafnasvæði Hringrásar fyrir þremur árum í kjölfar sprengingar sem varð þegar tankur með sprengifimu efni fór í brotajárnspressu. Hann náði þó ekki að breiðast út eins og eldurinn sem kviknaði á vinnusvæði fyrirtækisins í fyrrakvöld. 23.11.2004 00:01
Tryggingar vegna reykskemmda Hugsanlegt tjón á íbúðarhúsnæði af völdum sóts og reyks frá eldsvoðanum í Hringrás í fyrrinótt fellur undir lögboðna brunatryggingu íbúðareigenda. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Sambandi íslenskra tryggingafélaga. 23.11.2004 00:01
Vill lækka matarskatt Samfylkingin lagði í gær til að matarskattur yrði lækkaður um helming síðari hluta ársins 2005: "Þetta kemur öllum vel og sérstaklega milli- og lágtekjufólki" segir í yfirlýsingu flokksins. Þá leggur flokkurinn til að hækkun barnabætur verði flýtt og þær hækki strax um 2,5 milljarða króna. 23.11.2004 00:01
Gera tilraunir með fanga Alþjóðleg og suður-kóresk mannréttindasamtök hafa krafist rannsóknar á því hvort Norður-Kóreumenn noti pólitíska fanga við rannsóknir á efnavopnum. 23.11.2004 00:01
Eignaskattur íþyngir öldruðum Afnám eignaskatts nýtist hinum tekjulægstu ekki síst eldra fólki. Þetta kom fram í máli stjórnarliða í umræðum á Alþingi í gær um frumvarp um afnám eignaskatts. 23.11.2004 00:01
Þjóðverjar efast um úrslit Utanríkisráðherra Þýskalands, Joschka Fischer, sagði að efasemdir um úrslit forsetakosninganna í Úkraínu væru alveg réttlætanlegar. 23.11.2004 00:01
Feta sömu braut Nýr leiðtogi PLO, Mahmud Abbas, sagði á þingi Palestínumanna að hann lofaði að feta í fótspor Jassers Arafat. 23.11.2004 00:01
Stjórn sökuð um að hygla tekjuháum Geir H. Haarde, fjármálaráðherra mælti í gær fyrir frumvarpi um tekju- og eignaskatt. Stefnt er að því að lækka tekjuskatt um 4% í þremur þrepum, hækka barnabætur og skattleysismörk og fella niður eignaskatta. 23.11.2004 00:01
Sleppt heilum á húfi Þremur starfsmönnum Sameinuðu þjóðanna sem teknir höfðu verið í gíslingu var sleppt eftir nær fjórar vikur. Innanríkisráðherra Afganistans, Ali Ahmad Jalali, segir að engir samningar hafi verið gerðir til að tryggja öryggi þeirra. 23.11.2004 00:01
Smituðum konum fjölgar Nýjar tölur sýna að nærri helmingur þeirra 37,2 milljóna fullorðinna sem sýktir eru af HIV-veirunni eru konur og hefur þeim fjölgað alls staðar í heiminum. Mest fjölgar konum sýktum af HIV í Austur-Evrópu og Austur- og Mið-Asíu. Á sumum þessum svæðum er hlutfall sýktra orðið hærra meðal kvenna en karla. 23.11.2004 00:01