Fleiri fréttir

Jarðakaup gagnrýnd

Framsóknarfélagið Dalasýslu lýsir þungum áhyggjum af söfnun fárra auðmanna á jörðum, og ríkisstuðningi þeim tengdum.

300 miljóna tjón vegna bruna

Eignatjón vegna eldsvoða af völdum rafmagns nam um 300 milljónum króna í fyrra samkvæmt ársskýrslu Löggildingarstofu um bruna og slys af völdum rafmagns árið 2003. Áætlað er að brunar vegna rafmagns hafi verið um 850 í fyrra. Fækkaði þeim töluvert miðað við árið 2002 og eignatjón dróst saman.

Úrslit standa þrátt fyrir svindl

Þó að kosningasvindl hafi augljóslega átt sér stað í kosningunum í Afganistan er nánast útilokað að kosningarnar verði dæmdar ógildar að sögn kosningaeftirlitsmanns.

Samþykktu brottflutning landnema

Ísraelska þingið samþykkti í gærkvöld áætlun Ariels Sharon forsætisráðherra um brottflutning ísraelskra landnema frá Gaza og fjórum svæðum á Vesturbakkanum. Auk landnemanna draga Ísraelsmenn herlið, sem verndað hefur landnemabyggðirnar á þessum svæðum, til baka. 

Ekki kjósa Bush frænda

Sjö fjarskyldir ættingjar George W. Bush Bandaríkjaforseta hafa opnað vefsíðu þar sem kjósendur eru beðnir um að kjósa ekki frænda þeirra.

Rice vill að Arafat hætti

Þeir þjóðarleiðtogar sem enn ræða við Yasser Arafat, leiðtoga Palestínumanna, eiga að þrýsta á hann að hætta. Þetta segir Condoleezza Rice, þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkjaforseta.

Umdeildur stuðningur Pútíns

Viðtal við forseta Rússlands, Vladimir Pútín, birtist í úkraínsku sjónvarpi í gær, aðeins sex dögum fyrir umdeildar forsetakosningar í landinu. Talið er að viðtalið hafi verið birt til að styðja annan frambjóðandann, forsætisráðherra Úkraínu Viktor Yanukovych.

Lögregla stöðvaði sjálfsvíg

Lögreglan á Kristjánssandi stöðvaði ungt þýskt par sem hafði áætlað að fremja sjálfsvíg með því að stökkva fram af Prekestolen, 600 metra háu bjargi sem er vinsæll ferðamannastaður á vesturströnd Noregs, nærri Stavangri.

Lélegt sjónvarpsefni bannað

Ríkisstjórn Spánar og helstu sjónvarpsstöðvar landsins hafa samþykkt að banna "rusl" sjónvarpsþætti á þeim tímum sólarhrings þegar börn gætu verið að horfa.

6 farast á Gasa

Sex palestínumenn fórust og sextán særðust þegar ísraelsmenn gerðu árás á hernaðarlega mikilvæg skotmörk á Gasa í gærkvöldi, að þeirar sögn, og beittu til þess fjarstýrðri flugvél. Ísraelskir hermenn og skriðdrekasveit fylgdu í kjölfarið og fóru hús úr húsi í þeim tilgangi að koma í veg fyirr árásir palestínumanna á landtökubyggð gyðinga á Gush Katif svæðinu. <font size="4"></font>

Ræða við Halldór

Samningamenn kennara og sveitarfélaga eru væntanlegir til fundar við Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra klukkan tíu til að ræða stöðuna í kennaradeilunni. Hugmyndir um að vísa deilunni í gerðardóm og að blása verkfallið strax af, gætu komið þar til umræðu, en samþykki beggja deilenda þarf til að vísa málinu þangað.

Sluppu vel eftir að hafa fest bíl

Fjórir útlendingar sem festu bíl sinn í sandbleytu norðan við Mýrdalsjökul á laugardag, geta þakkað sínum sæla fyrir veðurblíðuna um helgina. Fólkið lagði af stað fótgangandi eftir aðstoð og var það illa búið til útivistar. Það komst í skála í fyrrinótt og gisti þar.

Fólk aðstoðað í kjölfar skjálfta

Hjálparstarfsmenn reyna nú að koma mat og teppum til fólks, sem hefst við á götum úti og í íþróttahúsum eftir að eftirskjálfti upp á 5,8 á richter reið yfir í norðurhluta Japans í morgun. Um hundrað þúsund manns hafa þurft að flýja heimili sín eftir skjálftann um helgina og er stór hluti svæðisins er án vatns, rafmagns og gass.

Viðgerð að hefjast

Viðgerð hefst væntanlega í dag á bryggju í Neskaupstað, sem skemmdist mikið þegar fjölveiðiskipið Baldvin Þorsteinsson EA sigldi á hana í gær. Skipið var þá að koma inn til löndunar og rakst perustefni þess langt inn i bryggjuna og í gengum stálþilið á henni þannig að uppfylling innan þilsins hefur runnið út í höfnina.

Samruninn úr sögunni

Samruni Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, SH og Sölusambands íslenskra fiskframleliðenda mun endanlega vera úr sögunni eftir að SÍF ákvað um helgina að kaupa franskt matvælafyrirtæki fyrir 29 milljarða króna, sem er þrefalt andvirði móðurfélagsins SÍF. Sameiningin var um tíma mikið keppikefli Íslandsbanka og átti SÍF orðið fjórðungshlut í SH, en hefur nu selt hann.

Njósn frá æðri stöðum?

Talið er að uppreisnarmönnum hafi borist njósn frá æðri stöðum um ferðir írösku hermannanna  50 sem myrtir voru í gær. Embættismenn í Írak segja að uppreisnarmenn hljóti að hafa fengið upplýsingar um að hermennirnir væru á leið heim í rútunum og að því er virðist, veitt þeim launsátur.

Samherji stofnar nýtt fyrirtæki

Útgerðarfyrirtækið Samherji á Akureyri hefur stofnað fyrirtæki í Cuxhafen í þýskalandi, sem á að vinna úr íslenskum ferksfiski og dreifa honum ferskum á markað. Til að byrja með verður unnið úr karfa og honum dreift til veitingahúsa í þýskalandi og nálægum löndum.

Taka harðar á peningaþvætti

Kínversk stjórnvöld hafa hert aðgerðir gegn peningaþvætti í landinu og frá og með deginum í dag, ber öllum bönkum og fjármálastofnunum að tilkynna sérstaklega um allar óvenjulega háar upphæðir, sem eru millifærðar erlendis frá. Yfirvöld vona að með þessu verði hægt að draga verulega úr peningaþvætti, en óttast er að það sé stundað í stórum stíl í Kína.

Pólverjar mynda mikilvæga brú

John Kerry, frambjóðandi demókrata í forsetakosningunum í Bandaríkjunum, segir Pólland vera þá mikilvægu brú, sem tengir Bandaríkin við Evrópu. Kerry segir þetta í viðtali við pólska dagblaðið Gazeta í dag og er litið á þetta sem tilraun hjá honum til þess að tryggja sér atkvæði kjósenda af pólskum uppruna í væntanlegum kosningum.

Rannsókninni lokið

Rannsókn á láti Sri Rhamawati er svo til lokið og verður málið sent til ríkissaksóknara á næstunni. Beðið er formlegrar niðurstöðu krufningar, en samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðu lést hún af völdum höfuðáverka. Þá er beðið niðurstöðu DNA-rannsóknar frá Noregi.

Samruninn úti

Samruni Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, SH og Sölusambands íslenskra fiskframleliðenda, SÍF er endanlega úr sögunni eftir að SÍF ákvað um helgina að kaupa stórt franskt matvælafyrirtæki og selja um leið rúmlega 22% hlut sinn í SH.

Óska eftir áliti Umboðsmanns barna

Fræðsluráð Reykjavíkur hefur óskað eftir áliti Umboðsmanns barna á rétti barna til náms í verkfalli og hver eigi að verja rétt þeirra þegar hagsmunir tveggja hópa rekast á, eins og í verkfalli grunnskólakennara. Áheyrnarfulltrúi foreldra lagði fram fyrirspurn um réttindi barna á fundi fræðsluráðs sjötta þessa mánaðar.

Eimskip í flutning óunnins fisks

Eimskip ætlar sér skerf í þeim miklu flutningum sem eru orðnir með frystan óunnin fisk úr öllum heimshornum til Kína. Þaðan er hann fluttur aftur fullunninn á markað á Vesturlöndum.

Bush yfir

Nýjustu skoðanakannanir vestanhafs sýna að George Bush hefur örlítið forskot á John Kerry fyrir forsetakosningarnar 2. nóvember næstkomandi.

Búið að útskrifa tvo hinna slösuðu

Tveir af þeim þremur Íslendingum sem slösuðust í sprengjuárásinni í Kabúl á laugardag, voru útskrifaðir af sjúkrahúsi í morgun. Þeir hafa allir óskað eftir því að yfirgefa Afganistan og koma til Íslands næsta föstudag.

Fundur boðaður á morgun

Forsætisráðherra hvetur deilendur í kennaradeilunni til að setjast að samningaborðinu aftur og ítrekar að lög verði ekki sett á verkfallið. Launanefnd sveitarfélaganna segir gerðadóm í málinu ekki koma til greina, en að tilboð sem sáttasemjari lagði fram, standi enn. Ríkissáttasemjari var boðaður með stuttum fyrirvara á fund forsætisráðherra nú í hádeginu og þar var boðað til fundar á morgun að því er fram kom í hádegisfréttum útvarps.

Fundur á morgun

Nýr fundur hefur verið boðaður í kennaradeilunni á morgun samkvæmt hádegisfréttum Ríkisútvapsins. Ásmundur Stefánsson ríkissáttasemjari gekk á fund forsætisráðherra laust fyrir klukkan tólf og í útvarpsfréttum kom fram að þar hefði verið ákveðið að funda skyldi á nýjan leik á morgun.

Endurkjörinn með 95% atkvæða

Ben-Ali, forseti Túnis til 17 ára, hefur verið endurkjörinn með 95% greiddra atkvæða. Ali, sem er fyrrverandi hershöfðingi, þykir eiga stóran þátt í þeim stöðugleika sem einkennt hefur Túnis undanfarin ár.

Segir Bush hafa misnotað 9/11

Jimmy Carter, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, segir George Bush hafa misnotað sér þjáningar fólks í kjölfar árásanna 11. september 2001 og hann hafi eyðilaggt áratuga viðleitni til þess að ná fram friði í heiminum.

Powell þrýstir á Kínverja

Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hvetur Kínverja til þess að þrýsta á Norður-Kóreumenn um að hætta þróun kjarnavopna. Powell er nú staddur í Kína og segist hann vilja að Kínverjar verði meira en bara milliliðir í viðræðum um kjarnavopnaþróun í Norður-Kóreu.

Banki tapaði slysabótum í deCODE

Landsbankinn seldi Hinriki Jónssyni hlutabréf sín í deCODE á genginu 56 fyrir 5 milljónir króna en seldi þau tveimur árum síðar fyrir hann á 500 þúsund á genginu 5,95. Hinrik er 100% öryrki eftir höfuðhögg og hefur að mati geðlæknis verulega skerta hæfni til að stunda fjárhagsleg viðskipti.

Fimm handteknir í Egyptalandi

Fimm Egyptar hafa verið handteknir vegna sprengjuárása á ferðamannahótel fyrr í þessum mánuði. Einn mannanna fimm, Palestínumaðurinn Ayad Said Salah, er talinn forsprakki sprengjuárásanna. Að minnsta kosti 34 létust í sprengjuárásunum þremur og yfir eitt hundrað slösuðust.

Clinton á fundi með Kerry í dag

Bill Clinton mun í dag koma fram opinberlega í fyrsta sinn síðan hann var lagður inn á spítala vegna hjartaaðgerðar fyrir rúmum 2 mánuðum síðan. Clinton, sem kemur fram á kosningafundi John Kerrys í Philadelphiu,

Sölvi í Versló

Sölvi Sveinsson skólameistari Fjölbrautaskólans við Ármúla hefur verið ráðinn skólastjóri Verslunarskóla Íslands. Hann tekur við af Þorvarði Elíassyni sem lætur af störfum í ágúst á næsta ári. Verkefni Sölva til að byrja með verða fólgin í að starfa sem afmælisnefnd skólans, en skólinn verður hundrað ára á næsta ári, en í ágúst tekur hans svo við embætti skólastjóra.

Hundur hrakti kindur fyrir björg

Hundur hrakti sex kindur fyrir björg í Vestmannaeyjum á laugardag, samkvæmt Eyjafréttum. Atvikið átti sér stað ofan við Kapplagötu vestan við Herjólfsdal. Talsvert af fé er þar í fjallinu og hafði hundinum verið sleppt þar lausum. Það þarf vart að taka það fram að kindurnar sex drápust í fallinu.

Ekki bindandi fyrir Þjóðverja

Stjórnlagadómstóll Þýskalands hefur komist að þeirri niðurstöðu að dómar Mannréttindadómstóls Evrópu væru ekki bindandi fyrir Þýskaland, heldur aðeins leiðbeinandi. Stjórnlagadómstóllinn segir rétt að hafa þær leiðbeiningar til hliðsjónar ef þær brjóta ekki í bága við stjórnarskrá Þýskalands.

Heimili og Skóli á fund ráðherra

Framkvæmdastjóri og formaður stjórnar Heimilis og skóla - landssamtaka foreldra fara á fund forsætisráðherra hálffimm í dag. Forsvarmenn Heimilis og skóla fóru þess á leit fyrir helgi að fá að ræða stöðu mála í verkfallsdeilunni við forsætisráðherra og var orðið við því.

Öryggi minna en talið er

Öryggi heimilistölvunnar eru ekki jafnmikið og eigendurnir halda samkvæmt nýrri könnun American Online og NCSA. 77% aðspurðra töldu sig örugga í könnuninni, en í ljós kom að yfir 60% þeirra höfðu ekki nýjustu veiruvarnir og notuðu ekki eldvegg.

380 tonn af sprengiefni týnd

Ekki er vitað um afdrif 380 tonna af sprengiefni, sem talið var að væru í írakskri vopnageymslu undir stjórn Bandaríkjamanna. Vopnaeftirlitsmenn Sameinuðu Þjóðanna segjast óttast að sprengiefnin seú ef til vill í höndum hryðjuverkamanna, sem gætu gert með þeim mikinn óskunda.

3 ár fyrir ítrekuð kynferðisbrot

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag fertugan karlmann í þriggja ára fangelsi fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn fjórtán ára dóttur sinni og annarri stúlku, fimmtán ára. Brotin stóðu yfir í tvö ár og fólust meðal annars í samförum. Maðurinn neitaði sök, en framburður stúlknanna þótti trúverðugur.

Olían enn í hámarki

Olíuverð heldur áfram að hækka, en það fór upp í 55 Dali og 67 sent í dag, en lækkaði síðan aftur þegar norsk stjórnvöld gripu til aðgerða sem koma í veg fyrir verkfall olíustarfsmanna þar í landi. Hefði komið til verkfalls hefði framleiðslan stöðvast, en Noregur er þriðji mesti olíuútflytjandi heims.

Hjálmar gagnrýnir uppsögn samninga

Hjálmar Árnason, formaður þingflokks Framsóknarflokksins gagnrýnir í pistli á heimasíðu sinni þá innan vébanda verkalýðshreyfingarinnar sem hafa hótað uppsögn kjarasamninga ef kennarar nái góðum samningum.

Áttu ekki að fara af flugvelli

Upplýst hefur verið að íslensku friðargæsluliðarnir sem særðust í sjálfsmorðsárás í miðborg Kabúl hafi verið í einkaerindum. Arnór Sigurjónsson yfirmaður Friðargæslunnar sagði í DV í vor eftir að norskur hermaður var myrtur að Íslendingarnir færu ekki útaf vallarsvæðinu nema brýna nauðsyn bæri til.

Þinghlé eftir mánuð

Alþingi Íslendinga kemur ekki saman til fundar alla þessa viku vegna svokallaðrar kjördæmaviku. Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavík segist undrandi á þessu vikufríi frá þingstörfum."

Sjá næstu 50 fréttir